Vísir - 05.12.1980, Síða 5
Föstudagur 5. desember 1980
VÍSLR
Kommúnistaleiðtogar Póllands:
TELJfl SKYLDU SINA AB
KALLfl fl SOVÉTHERINN
Leiðtogar kommúnistaflokks
Póllands segjast ekki útiloka að
kalla sovéska herinn inn i landið
til þess að aðstoða við að koma á
reglu, en telja óliklegt, að til þess
þurfi að koma.
Jozef Klasa, áróðursstjóri mið-
stjórnarinnar, sagði á blaða-
mannafundi i gærkvöldi, að það
mundi vera skylda flokksforyst-
unnar að kalla eftir aðstoð hjá
bandamönnum Póllands, ef hinni
kommúnistisku stjórn landsins
væri ógnað.
Þetta er i fyrsta sinn, sem hátt-
settur kommúnisti i Póllandi vek-
ur máls á þeim möguleika að
sovéski herinn gripi inn i gang
mála i Póllandi eða gefur til
kynna, að flokkurinn kynni að
leita á náðir erlends hervalds til
þess að halda völdum.
Ber þetta að samtimis þvi sem
liðssafnaður við landamæri Pól-
lands, A-Þýskalands og
Tékkóslóvakiu hefur vakið ugg á
Vesturlöndum um, að fyrir dyr-
um kunni að standa hernaðar-
ihlutun Sovétmanna i Póllandi.
Fréttir af þessum liðssafnaði
urðu Carter Bandarikjaforseta
tilefni til þess að vara Kreml-
stjórnina viö þvi að beita Pól-
verja hervaldi. Sömuleiðis lét
ráðherranefnd Efnahagsbanda-
lags Evrópu það verða sér tilefni
til samskonar viðvörunar-
orðsendingar.
Klasa sagði að ástandið i Pól-
landi væri ekki komið á það stig,
að hernaðarafskipti væru
nauðsynleg. Sagðist hann fylli-
lega sannfærður um, að pólska
þjóðin vildi og gæti ráðið fram úr
sinum vandamálum sjálf.
Flugslyslð
frestar hugsan-
lega forseta-
Kosningum
Portúgals
Mikil óvissa rikir nú i stjórn-
málum Portúgals eftir að Fran-
cisco Sa Cameiro forsætisráð-
herra fórst i flugslysi i gær, þegar
kosningabaráttan stóð sem hæst.
Yfirkjörstjórn landsins mun
koma saman til fundar siðar i dag
til þess að ákveða, hvort fresta
beri forsetakosningunum, en þær
áttu að fara fram núna á sunnu-
dag.
Með Carneiro fórust Adelino
Amaro da Costa, varnarmálaráð-
herra, Antoni Patricio Gouveia,
einnig ráðherra, 45 ára gömul
dönsk sambýliskona Carneiros og
þrennt til viðbótar.
Þau voru i tveggja hreyfla
Cessna-flugvél á leið frá Lissa-
bonn norður i land, þar sem Car-
neiro ætlaði að flytja ræðu til
stuðnings frambjóðanda flokks
sins. Hrapaði flugvélin rétt eftir
flugtak. — Orsakirnar eru ókunn-
ar.
Þeir Eanes hershöfðingi og
Careiro hershöfðingi, sem
hvorugir eru skyldir Carneiro,
hafa aflýst öllum kosningafund-
um sinum.
Pálinn og
Helsinkl-
sáttmálinn
Jóhannes Páll páfi hefur verið á
ferðalagi meðal mótmælendanna
I V-Þýskalandi, sem forverar
hans förðum kölluðu „villutrúar-
hunda” og létu varpa á bálið.
Páfanum hefur verið vel tekið á
ferðalaginu og hvarvetna safnast
þúsundir til þess að bjóða hann
velkominn.
t ræðum sinum hefur hann
komið viða við. 1 Mainz sagði
hann, að Helsinkisáttmálinn væri
holur og innantómur, meðan ekki
væru virt mannréttindaákvæði
hans og ákvæöin um trúfrelsi.
Hvatti hann til þess, að þau yrðu
betur virt I framtlðinni.
Mikilvægasti árangur heim-
sóknarinnar þykir liggja i stofnun
nefndar, sem vinna skal að þvi að
brúa bilið milli þessara tveggja
kirkjustefna, kaþólskunnar og
mótmælenda.
Skyndileg
velgengni
Sovéskir kvikm yndagerðar-
menn hafa nú i bigerð að hefja i
sumar framleiðslu á sakamála-
mynd, sem bera skal titilinn
„Silfurbrúðan”. Kvikmyndatök-
urnar fara fram skammt utan við
Moskvu.
Meðal leikkvenna, sem þar fara
með hlutverk cr 27 ára bandarisk
stúlka að nafni Patti Davis sem
tók tilboði Sovétmanna um að
leika i myndinni.
Patti þessi Davis hefur litla at-
hygli vakið fram til þess, að Ron-
ald Reagan sigraði I forsetakosn-
ingunum. Þá fór stjarna hennar
skyndilega að hækka á himnin-
um, og hafa henni upp úr þurru
boðist ýmis girnileg hlutverk.
Það eru auðvitað aðeins ill-
gjörnustu tungur, sem vilja setja
þessa tilviljun eitthvað I samband
við það, að Patti Davis er dóttir
Ronald Reagans af fyrra hjóna-
bandi.
Aðspurður á blaðamannafund-
inum vildi Klasa ekkert tjá sig
um fréttir af liðssafnaði Sovét-
manna við landamæri Póllands.
Hann sagðist viss um, að „vinir
okkar vilja ekki, að upp komi sú
staða að þeir þurfi að hjálpa okk-
ur hernaðarlega til þess að verja
sósialismann”. Sagði hann enga
bráða hættu steðja að völdum
kommúnistaflokksins i bili, en
hinsvegar hættu á þvi að smám
saman yrði grafið undan þeim.
Sagði hann þeirri hættu ekki bægt
frá með hernaðaraðgerðum,
heldur yröi á lengri tima að
endurvekja traust þjóðarinnar til
flokksins og efla itök hans.
Bökin sem strákarnir tala um
UVERPOOL
IIVSRPOOI
Bókin um LIVERPOOL er um leið og hún er frásögn af þekktasta knatt-
spyrnuliði Evrópu í dag, saga ensku knattspymunnar og alls þess sem hún
býður upp á.
Hér er lýst uppbyggingu Liverpool, frásagnir eru af keppnistímabilum, ein-
stökum leikjum og ekki síst frásagnir af þekktustu knattspyrnusnillingum
sögunnar.
Enska knattspyrnan er ekki neinn „dúkkuleikur", hún er harðsvíruð keppni
bæði utan vallar sem innan. Þeir sem skara fram úr eru snillingar á sínu
sviði, bæði þeir sem leika í liðinu á hverjum tíma og hinir, sem þjálfa leik-
mennina og stjórna félögunum.
LIVERPOOL hóf keppnistímabilið í haust með fjóra meistaratitla á s.t. fimm
árum í veganesti. Liðið hefur hafnað í fyrsta eða öðru sæti í 1. deildinni s.l.
8 ár og ekki neðar en í fimmta sæti síðan 1966. Frá því liðið kom upp í 1.
deifdina 1962 hefur það unnið titilinn sjö sinnum og hafnað í öðru sætinu
fjórum sinnum. Liverpool hefur tvívegis unnið bikarinn, árin 1965 og 1974,
og að auki leikið til úrslita í honum árin 1971 og 1977. Leikið til úrslita í
deildabikarnum 1978, orðið Evrópumeistari tvisvar, 1977 og 1978. Unnið
UEFA-bikarinn 1973 og 1976, leikið til úrslita í Evrópukeppni bikarhafa 1966
og unnið stórbikar (Supercup) Evrópu. Hvernig sem á er litið verður að út-
nefna LIVERPOOL liðið í dag sterkasta félagslið nútimans í sögu enskrar
knattspyrnu og ef til vil! um víða veröld. Úthald liðsins og þrautseigja eru
með eindæmum og enn virðist ekkert lát á.
Sagan um LIVERPOOL er bók sem allir unnendur knattspyrnu á Islandi vilja
fá í bókasafn sitt.
HAGPRENT HF. - BÓKAFORI.AG