Vísir - 05.12.1980, Síða 18
18
Föstudagur 5. desember 1980
mcnmlíf
VtSIR
Bræörabandiö lék kúrekalög viö góöar undirtektir.
Kúrekastemmning
á frumsýningu
Sjaldan hefur kvikmynd verið frumsýnd með annarri eins viðhöfn og Urban
Cowboy, sem f rumsýnd var í Háskólabiói á miðvikudagskvöldið. Kvikmyndahúsið
og skemmtistaðurinn Óðal efndu til mikillar kúrekahátíðar í tilefni dagsins og
hófst hátíðin með kokteilpartí í anddyri Háskólabíós. Þar lék bræðrabandið
kúrekalög og rétt fyrir sýningu var flugeldum skotið á loft fyrir framan bíóið.
Fyrir sýningu myndarinnar og í hléi var tískusýning þar sem sýnd voru kúrekaföt
frá Blondieog að lokinni sýningu var frumsýningargestum boðið í Óðal þar sem
Jónatan Garðarsson kynnti lögin úr myndinni. Meðfylgjandi Ijósmyndir tók Gunn-
ar V. Andrésson á kúrekahátíðinni í Háskólabíói og Óðali á miðvikudagskvöldið.
Sumir klæddu sig sérstaklega I
tilefni dagsins. Þröngt á þingi i Óöali aö lokinni frumsýningu.
I Bandormur I margfaldri stækkun myndavélarinnar. Höfuö þess orms
sem hér var myndaöur var tæpir 4 millimetrar I þvermál.
Nýtt lyf gegn
bandormum
Þaöer ekki von að menn hafi I
fyrstu áttað sig á af hverju með-
fylgjandi mynd er en hér er um aö
ræöa margfalda uppstækkun á
bandormi.
Hér i eina tið var bandormurinn
mikill vágestur á islenskum
heimilum, en hann olli sullaveiki
sem dró marga til dauða. Band-
ormurinn barst úr innyflum naut-
gripa i' hunda en eftir að farið var
að hreinsa þá reglulega, sam-
kvæmt lagaboði, tókst að útrýma
veikinni hér á landi.
Bandormurinn er þó enn við
góða heilsu i þriðja heiminum og
gerir þar svipaðan usla og hann
gerði hér á landi á árum áöur.
Lyfjaverksmiðjur i Vest-
ur-Þýskalandi hafa að undan-
förnu gert tilraunir með nýtt lyf
sem talið er geta komið að góðu
gagni i baráttunni við bandorma
og eru bundnar vonir við, að með
hjálp lyfsins takist að útrýma
þeim með öllu.
Sá harðasti I hjóna-
bandsbransanum
—hefur átt tuttugu og f jórar konur
Scotty VVolfe: „Þær koma og fara einsog áætlunarbllar”.
Þeir eru sjdlfsagt fáir, ef þá
nokkur, sem hafa gengiö oftar á
biðilsbuxunum upp aö altarinu
en hinn 72 ára gámli Olynn
„Scotty" Wolfe. Og sá gamli er
slöur en svo af baki dottinn, þvi
nýlega gekk hann aö eiga 25 ára
gamla stúlku, Keginu Santos, en
hún er tuttugasta og fjóröa
eiginkona hans.
,,fcg hef aldrei kvænst konu
sem er yfirtvftugt fyrr”, — seg-
ir Scotty, sem árum saman hef-
ur verið á lista f heimsmetabók
Guinness sem sá alharöasti i
hjónabandsbransanum. — ,,En
ég kvíö engu þótt hún sé oröin
þetta gömul, ég hlýt aö ráöa viö
hana eins og þær yngri”, — seg-
ir karl og er hvergi smeykur.
Þegar Scotty rifjar upp sln
fjölmörgu hjónabandsævintýri
minnist hann þess er hann eitt
sinn reyndi að kvænast 13 ára
gömlu stúlkubarni þegar hann
sjálfur var 07 ára. — ,,Það var
allt orðiö klárt og allir papplrar
I lagi, þegar dómarinn tók I
laumana. llann sagöi aö hún
væri of ung og ef til vill haföi
hann rétt fyrir sér.”
Scotty er sæmilega loðinn um
lófana en hann á tvö hótcl I Kali-
forniu, en að sjálfsögðu hafa
Scotty 72 ára og eiginkona núm-
er 24, Regina Santos, 25 ára.
hjónaböndin og skilnaöarmálin
tekið sinn toll. Nýja konan, hún
Kegina, stundar háskólanám og
aö sjálfsögöu borgar Scotty
brúsann.
Scotty heldur góöu sambandi
við fyrri konur sinar og árlega
lieldur hann samkomu þar sem
liðið kemur allt saman. En hon-
um cr mcinilla viö aö borga
meðlög: „Meölög eru óþverra
ánauö. Þetta er eins og aö kaupa
hafra handa dauöutn hrossum”,
segir hann svekktur. „En ég
elska allar fyrri konur minar og
þeim þykir vænt um mig. Þær
skrifa mér, koma I heimsókn og
leita ráöa hjá mér.”
Scotty á 40 börn, en ekkert
þeirra býr hjá honum. „Elsta
barnið er 54 ára", segir hann
stoltur. „Sjáiö til, ég hef staöiö I
þessu I hálfa öld.”
Lcngsta hjónaband hans ent-
ist I fiinm ár. Slöasta hjóna-
bandiö, áöur en hann kvæntist
Barböru, fór út um þúfur eftir
niánuö. En hann lét þaöekkert á
sig fá. „Þær koma og fara",
segir hann.
Þegar hann var spuröur hvort
þetta yrði hans siöasta sagöi
hann brosandi: „Hver veit. Þaö
er ómögulegt aö segja fyrir um
framtiöina. Ég lifi bara -fyrir
Höandi stund. Og ef þetta geng-
ur ckki mun einhver önnur eiga
leiö hjá. Það má llkja þeim viö
áætlunarblla...”