Vísir - 29.12.1980, Blaðsíða 11

Vísir - 29.12.1980, Blaðsíða 11
Mánudagur 29. desember 1980 VISIR Verði ekki al Nordsat: Möguleiki á engilsaxnesku sjðnvarpselni Innan nokkurra ára geta möguleikap tslendinga varöandi val á sjónvarpsefni, stóraukist. Bretar, Skotar og trar fengu úthlutaö sendistöö i geimnum sem samsvarar 19 gráöur vestur. Hver um sig veröur meö fimm rásir, svo hér er um aö ræða 15 rásir i heild. Notfæri Bretar sér þessa Uthlutun, má gera ráö fyrir aö sendistöð i geimnum verði aö veruleika einhversstaðar á milli áranna 1985-90. I vangaveltum Breta um þessi mál, kemur fram að kostnaður við að koma slikri sendistöð i gang væri 100 milljón pund, eða 137 þúsund milljónir islenskra króna, og rekstrarkostnaður yrði einnig gifurlegur. Hins vegar er ljóst að tekjur af hnett- inum væru fljótar að hafa upp i kostnað. Möguleiki Austfirðinga Þessum rásum yrði að sjálf- sögðu beint yfir England og er þá ljóst að svæði geislans fer töluvert þar út fyrir. t samtali Visis við Hörð Frimannsson yfirverkfræðing rikisútvarps- ins, kom fram að ekki væri ólik- legt að á Austfjörðum yrði möguleiki á móttöku, með við- ráðanlegri stærð af loftnetum, en til samanburðar má benda á að Bretar telja að aukabúnaður svo unnt sé að njóta útsendinga, kosti um 400 þúsund krónur á hvert tæki. Frakkar og Þjóðverjar hafa ákveðið að fara i gang með sitt kerfi 1983, að sögn Harðar, en stefna þeirra geisla mun vera mikið austar yfir Skandinaviu. til Norður-Noregs og N-Svi- þjóðar. Kanadiskur og bandariskur gervihnettir eru þegar komnir upp, en útsending hefur mun minni orku en geisli sá sem Frakkar Þjóðverjar og Bretar kynnu að nota. Þegar um er að ræða svo litla orku, krefst mót- taka mun stærra loftnets, sem gerði möguleika hér nánast óraunhæfa vegna kostnaðar. Ekki bara Nordsat Hingað til hafa Islendingar einblint á Nordsat gervihnött, en við eigum úthlutað svæði fyrir gervihnött i geimnum á 5 gráður austur, þar sem Nordsat yrði staösettur, en að sögn Harðar nær úthlutun okkar einnig yfir sama svæðiog bretar hafa, þannig að veröi ekkert af Nordsat, „væri möguleiki að við gætum nýtt okkur þetta svæði annað hvort með þvi að leigja aðstöðu af Bretum eða trum. Undir slikum kringumstæðum kæmum við til meö aö setja upp loftnet sem stefna á þann hnött. Þvi er alveg fræðilegur mögu- leiki á að tslendinga geti farið að horfa á Engilsaxneskt efni innan nokkurra ára”, sagöi Hörður. Það virðist þvi vera augljóst aðnáiNorðurlöndin ekki saman með uppsetningu Nordsat, koma aðrir möguleikar vel til greina, svo þeir sem óttast af- hroð norrænnar menningar, ættu að styðja Nordsat fullum fetum, i' stað þess að standa gegn þessari þróun. 2ja ára ábyrgd Við höfum margar gerðir verðmerkivéla — en mælum sérstaklega með HALLO 1-Y — því að við teljum hana þá bestu af þeim vélum sem við höfum reynt Þlastpokar O1 8 26 55 PLASTPOKAR O 82655 PLASTPOKAVEWÍSMBJA 0DDS SIGURÐSSONAfir BILDSHÖFÐA 10 REYKJAVIK [}>Kj 9 japanskra verðmerkivéla Léttar — Sterkar — Fljótvirkar ÓTRÚLEGA HAGSTÆTT VERÐ Raudir blekp rir nýkrónu BYGGINGAPLAST * PLASTPRENTUN * MERKIMIÐAR OG VELAR Hárgreiðslustofan Klapparstíg ^ Rakarastofan Klapparstíg PANTANIR 13010 GOLFLIM STfí/GAIÉ VEGG- 01 GÓLFLÍM Aqua-fix QuMni & ^JvtitnTS l-K- Acryseal - Butyl - Neor HEILDSÖLUBIRGÐIR OMAseeirsson i i r— 11 rv\ /rnoi i ia i _ ^ HEILDVERSLUNGrensásvegi 22— Sími: 39320 105 Reykjavik — Pósthólf: 434

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.