Vísir - 29.12.1980, Blaðsíða 6

Vísir - 29.12.1980, Blaðsíða 6
vísm Þótt menn hafi komið undir bila sina góðum dekkjum og telji sig örugga I ófærð og vetrarakstri láta óhöppin ekki standa á sér. Um klukkan 14 í gær lentu þrir bilar saman á Réttarholtsveginum.allt auðvit- að hálku að kenna, en þó mætti minna menn á lengra bil milli bifreiða, þegar hálkan er annars vegar, og aukna aðgát. Það hefur reynst besta vörnin gegn árekstrum. Að þessu sinni var áreksturinn litilfjör- legur, en hamlaði þó frekari akstri einnar bifreiðarinnar, nema gripið væri til róttækra aögerða. (Visismynd GVA) HAVAÐAROK LÍTIB UM TJÖN Viða heíur verið þungfært á Suðurlandi um þessi jól, sérstaklega i Árnes- sýslu. Utan erfiðrar færðar hefur yéjrið mjög litið um óhöpp á Suðurlandi að sögn lögreglu. Þó var mjög erfitt aðfá fréttir af ástandi málaallt frá Hvols- velli austur með landinu og i Mývathssveit, vegna simabil&a! Visir hafði samband við nokkra staði á Suðurlandi og spurðist frétta af óvéðrinu. 1 nágrenni Reykjavikur hefur umferð gengið mjög erl'iðlega vegna veðurs. Þannig hefur Hell- isheiði verið nánast ófær á köfl- um. Fært heíur veriö fyrir Hval- fjörð og til Keflavikur en þó þarf að gæta itrustu varkárni vegna veðurs og hálku á vegum. 1 Kópavogi tóku rafmagnsloít- linur að gefa sig i gær, og orsak- aði rafmagnsleysi viða, auk þess sem hitaveitudælur stöðvuðust af sþþiu orsökum svo kuldinn sótti '^pnig heimilin heim á tima i gær. ?;í Hafnaríirði urðu einhverjar sjtemmdir af völdum veðursins er j^rnplötur fuku af húsþökum og viðbygging við Viðistaöaskóla skemmdist. Samskonar vandamál komu upp i Keílavik, af völdum foks, plötur lentu á bilum, sem skemmdust nokkuð, en ekki urðu menn íyrir óhöppum i veðrinu. A Akranesi rauf veðurofsinn skarð i grjótgarðinn i höíninni, með þeim afleiöingum að stærri skipin sem lágu þar við, slitnuöu upp og hafast nú skipshaínirnar við i skipunum. Menn úr Björg- unarsveit Ingólfs íluttu nýjar landfestar til skipanna, en i gær- kvöldi gekk sjór enn i gegnum garðinn, svo sjómenn voru við öllu viðbúnir. í fyrrinótt geisaði fárviðri i Eyjum. Rúður brotnuðu af völd- um veðurs og i gærdag frestaði Herjólfur ferð sinni vegna mikils sjógangs. Nóttina áður gerði þiðu mikla og flæddi þá viða inn i' kjall- ara, en tjón varð ekki verulegt. bá fauk bill útaf Hamarsvegi við veginn inn i Herjólfsdal, og er mjög sjaldgæftað bill fjúki i Eyj- um af völdum veðurs, þótt oft blási þar hressilega. Billinn skemmdist nnkkuð, en eins og annars staöl^á Suðurlandi urðu ekki slys á monnum i veðurofsan- um. —AS SÍMASAMBANDSLAUST UM STÚR- AN HLUTA LANDSINS I GÆR Eldingu laust niður i radiótæki simstöövanna á Hvolsvelli óg Iiraunhól á Reynisfjalli, sem or- sakaði simsambandsleysi frá Hvolsvelli og austur eftir landinu. Einnig varð bilun á Húsavikur- fjalli sem unnið var við i gær- kvöldi, en af þeim sökum bilaði örbylgjan norður um scm mun vera aöalsambandið við Austur- land. Um klukkan fjögur i gær, var þó lokið við viðgerð á Hvolsvelli og var þvi greiðara samband um austurhluta suðurlands i gær- kvöldi. Þrengsli eru þó i linum allt frá Höfn i Hornaíirði og norður á Raufarhöfn, svo erfitt er að ná þangað beint. Samkvæmt upplýs- ingum langlinumiðstöðvarinnar gekk þó erfiðlega að ná austur i gærkvöldi, en þá var aðallinan austur, frá Húsavikurfjalli, enn ekki komin i lag. Samkvæmt upplýsingum við- gerðarmanna á Landsimanum var þó talið liklegt að simsam- band kæmist f lag i dag. —AS A annað Dúsunú manns bíður flugs nnanlandsflug lá veg niðri um helgina á annað þúsund ns biða flugs til og % Reykjavik . Á ann- m dag jóla tókst hins jar að halda settri p. pað haia allir flugvellir lands- íns, jafnt Reykjavikurflugvöllur sem aðrir flugvellir verið lokaðir vegna veðurs á laugardag og sunnudag”, sagði Fetur Maack, afgreiðslustjóri innanlandsflugs Flugleiða. ,,Það eru hátt á fimmta hundr- að farþegar sem biða hér i Reykjavik eftir fari, aðallega til Isafjarðar, Akureyrar og Egils- staða. Þá biða um fjögur hundruð manns eftir fari til Reykjavikur. Það vill til að til muna færri bókanir voru núna en endranær milli jóla og nýárs”, sagði Pétur Maack. Svipaða sögu fengum við hjá Arnarflugi. Ekkert var flogið á laugardag og ekki heldur á sunnudag. Er ástæðan bæði mikill vindur og ising i lofti. „Við urðum að fella niður fjór- ar ferðir á laugardag og á sunnu- dag voru einnig fjórar íeröir áætl- aðar. Það er þvi töluverður hópur manna sem biður flugs”, sagði Þórarinn Hjálmarsson hjá Arn- arflugi. —ATA Mánudagur 29. desember 1980 Rafmagnstrufianlr á Snæfellsnesi Viða um Snæfellsnes var fært fyrir jeppabifreiðir i gær. Þá var færtmilli Stykkishólms og Búðar- dals, helst að veðurofsi hamlaði akstri. Rafmagnsleysi var tíðum á Snæfellsnesi i fyrradag en skán- aði þó nokkuð i gær. Engu að sið- ur þurftu ibúar Snæfellsness að hirast án rafmagns á þriðja tima i gær, frá klukkan 13.30—16.00 og búast mátti við rafmagnstruflun- um fram eftir degi. —AS Veöurofsinn torveldar mjðlkurfiutninga „Þaö lentu nokkrir mjólkurbil- stjórarnir I erfiöleikum á laugar- daginn, en þetta gekk þó slysa- laust fyrir sig og mestöll mjólkin komst til okkar”, sagöi Grétar Simonarson, mjólkurbússtjóri Mjólkurbús Flóamanna, i' samtali viö Visi. „Ófæröin var mikil og litiö hafði vérið hægt að moka, en þaö sem geröi þetta eríiöast var veöurhæöin, sem var rosaleg. Erfiölegast gekk aö ná mjólkinni austur I Mýrdal, og einnig i Fló- anum. Þá er okkur ókunnugt um þaö hvernig ganga muni með mjólkurflutninga i dag, þar sem simasambandslaust hefur veriö um allt Suöurland um helgina”, sagöi Grétar. —ATA Hér sést hluti af virnum sem hélt var í gærdag til að hægt væri að hefja Langbylgfuloftnetið á í ðve Of hvasst : GVA siitnaði ÚTVARPSLAUSTA STORU SVÆÐI UM HELGINA „Þaö má segja aö viö höfum sloppiö með skrekkinn að þessu sinni þvi heföi annaö hvort mastrið fariö i staö loftnetsins sem á milli þeirra er, þá heföi þaö tekið tvö til þrjú ár aö koma upp nýrri langbylgjustöð”, sagði Haraldur Sigurðsson yfirverk- fræðingur hjá Pósti og sima, en i óveðrinp um helgina slitnaði loft- net langbylgjustöðvarinnar á Vatnséndahæð. „Það liggja þvi niöri lang- bylgjusendingar hljóövarpsins nema á þvi svæöi, sem endur- varpsstöðin á Eiðum þjónar. Ég er til dæmis hræddur um aö Borg- firöingar og Húnvetningar séu heldur illa haldnir af útvarps- leysi”. Veöúr hamlaöi þvi um helgina aö viögeröarflokkur gæti hafist handa um viögerö, en fimmtán menn voru i viöbragösstööu. Taldi .Haraldur. Sigurðsson aö viögérðin væri ekki nema nokk- urra klukkustúnda verk. þegar hægtjyæri aö hefjast handa vegna veðutá. —ATA i r£ Sæmlleg færð innan héraða fyrir norðan Samkvæmt upplýsingum lög- reglunnar á Akureyri hefur veriö fært um Eyjafjöröinn siöustu daga. A Akureyri er færö ágæt en þó töldu menn vist aö ófært væri til Dalvikur, ef taka mætti mark á veröurofsanum sem geisaö heföi. Sömu sögu var aö segja úr Skagafiröi. Leiöin til Siglufjaröar var ófær en þó sæmilega fært um héraðiö, aö sögn lögreglunnar á Sauðárkróki. Ógjörningur reynist vera aö fá upplýsingar um færðina austan Mývatnssveitar, vegna simasam- bandsleysis en samkvæmt upp- lýsingum lögreglu var talið vist að svipaða sögu væri að segja af færðinni þar eins og annars stað- ar, sæmilega fært um héraðið en heiðar ógreiðfærar. —AS Víðast ófært fyrir fólksbíla um Vestfirði Ófært Var fyrir fólksbila um Isafjaröarkaupstaö i gærdag. Veðurofsinn var hinn sami þar og um allt land, en um nóttina haföi fennt enn frekar með fyrrgreind- um afleiöingum. Aö sögn lögregl- unnar á tsafiröi, var ófært milli tsafjarðar og Bolungarvikur en hugsanlegt var að vel búnar jeppabifreiðar kæmust þar á milli. Þá var ófært allt umhverfis tsafjörö. Sömu sögu var aö segja frá Patreksfiröi. Vegna veöurs varö aö hætta viö barnaskemmtunina, sem þar skyldi halda i gær, eins og svo viöa annars staöar. Þá var svipaö ástand á Bildudal og viöast hvar um Vestfirði. Þó var hljóöið gott I þeim Vestfiröingum er rætt var viö, þrátt fyrir ófærö, og allir sögöust þeir hafa átt góö jól og kvörtuöu ekki undan óveðrjnu. —AS

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.