Vísir - 29.12.1980, Blaðsíða 24

Vísir - 29.12.1980, Blaðsíða 24
vssm Mánudagur 29. desember 1980 síminner 86611 Veðurspá úagsins Gert er ráð fyrir stormi á suðvesturmiðum, Faxaflóa- m iðu m, Bre iða f ja rða rm iðu m og Vestfjarðamiðum og Suð- austurdjúpi, Suðurdjúpi og Suðvesturdjúpi. Milli Vestfjarða og Græn- lands er 970 mb lægð sem þok- ast suðaustur og frá henni lægðardrag noröaustur um Jan Mayen. Um 300 km suö- austur af Hornafirði er 985 mb smálægð, sem hreyfist hratt norðaustur. Frost verður áfram um allt land. Veðurhorfur næsta sólar- hring: Suöurland til Vestfjarða, suðvestur mið til Vestfjarða- miða.allhvass eöa hvass vest- an til landsins sums staöar stormur i miðum, él. Lægir nokkuð þegar liður á daginn. Strandir, Norðurland vestra og Norðurland eystra, norð- vesturmiö og norðausturmið: Suðvestan og vestan kaldi en stinningskaldi á miöum, viða él, einkum þegar liður á dag- inn. Austurland að Glettingi og Austfirðir, Austurmið og Austfjarðamið: Vestan kaldi eða stinningskaldi, sums staðar léttskýjað. Suðausturland og suð- austurmið: Vestan stinnings- kaldi eða allhvass, viða él einkum vestan til. Veöríö hér os har Veður kl. (i i morgun. Akureyri skýjað -h5, Kaup- mannahöfn þokumóöa 3, Osló skýjað 2, Iteykjavik hagl 4-4, Stokkhólmur él 1, Þórshöfn rigning 5. Veður kl. 18 í gær. Aþena léttskýjaö 10, Berlin skýjað 2, C'hicago skyjaö 1, Feneyjarhálfskýjað 4, Frank- furt þoka 4-3, Nuuksnjóél á siðustu klukkustund -=-12, l.ondon alskýjað 7, Las Pal- mas skýjaö 18, Mallorka úr- koma i grennd 10, Montreal mistur-=-ll, New Yorksúld 3, Parisþoka 0, Kómheiöskirt 7, Malaga heiöskirt 10, Vín skýjað 0, YVinnipeg alskýjað 4-7. Lokl seglr Frést hefur að Geir Hall- grimsson muni mæta i dag I afmæli Gunnars Thoroddsens með afmælisgreinina, sem hann birti ekki I Morgun- blaðinu I gær. BRAOABIRGÐALOG IIM VAXTAMALIN Kikisst jórnin hefur tekið ákvörðun um að fresta með bráöabirgðalögum þeirri vaxta- hækkun, sem samkvæmt Ólafs- lögum átti að koma til fram- kvæmda um áramótin. Hækk- unin hefði orðið um 10% og þar með hefðu vextir af þriggja mánaða innlánum orðið sam- stiga verðbólgunni. Tiðir fundir voru i efnahags- málanefnd rikisstjórnarinnar um helgina, og hefur nefndin nú lagt fram hugmyndir sinar um aðgerðir i efnahagsmálum, sem voru til umræðu á sameigin- legum fundi hennar og rikis- stjórnarinnar siðdegis í gær. Samkvæmt heimildum Visis verða þessar hugmyndir að öllum likindum lagðar fyrir þingflokka stjórnarflokkanna i dag. Að sögn heimildarmanns blaðsins er enn ekki hægt að tala um aö fyrir liggi ákveðnar til- lögur um aögerðir, „þvi það á eftir að hafa samráð við það marga aðila, að þetta getur allt umturnast”. Humyndir efnahagsmála- nefndarinnar taka til allflestra þátta efnahagsmálanna, en enginn veit semsé ennþá hverjar þeirra koma til með að standa af sér þann hreinsunar- eld sem nú tekur við. Sem dæmi má nefna, að samkomulag tókst i nefndinni um ákveðnar breyt- ingar i verðbóta- og visitölu- málum, en það er með fyrirvara um undirtektir verkalýðshreyf- ingarinnar, þannig að enn er allsendis óvist hvaö verður ofan á i þeim efnum. Stjórnarliðar vonast til þess áö málin gangi hratt fyrir sig nú fvikunni, þannig að hægt verði að taka ákvaröanir um aðgeröir um eða strax eftir áramótin. Akvörðunin um frestun vaxta- hækkana verður þó tilkynnt i siðasta lagi á gamlársdag. —P.M. vegir víða ruúúir í dag Vegna skarðs sem myndaðist f grjótvegginn utan bryggjunnar, gengu stórsjóar yfir og köstuðu með sér I—200 kilóa þungum steinum.Vikingur er bundinn við bryggjuna með margföldum landfestum, en nokkrir steinhnullungar liggja á bryggjunni. (Vísismynd BP) Færðin á landinu er vfða erfið eftir býsna hart vetrarveður síð- ustu daga. Þó var í morgun sæmi- lega greiðfært fyrir Hvalfjörð og áfram allt norður að Vatnsskarði, en þar var skafrenningur og ekki talið fært litlum bilum og svipað var á öxnadalsheiði. Viöa var verið að ryðja snjó af vegum, Hellisheiðin var mokuð i morgun, fjallvegir á Snæfellsnesi sömuleiðis og einnig voru snjó- ruðningstæki á ferðinni á Norð- austurhorninu og voru að opna veginn úr Keiduhverfi fyrir Sléttu að Raufarhöfn. Engar fréttir voru komnar af Austfjörðum. A Vestfjörðum voru allir fjall- vegir ófærir og ekki var talað um að opna þá. 1 Vik var hið versta veður og gátu vegagerðarmenn ekkert að- hafst þar um slóðir. A Austfjörðum er hins vegar ágætis veður, frá Egilsstöðum er veriðað opna til Seyðisfjarðar og út i sveitirnar og verður fært vi:ð- ast hvar i dag. Fagridalur er fær. -SV. umhleyplngasamt NEVUARASTAND I AKRANESHOFN Foráttubrim fylgdi óveðrinu á seinnihluta laugardags. Af þess- um sökum var mikil ókyrrð i Akraneshöfn, en öll skip voru i höfn, og þrengsli þvi mikil. Skips- hafnir gengu I að tryggja festing- ar skipanna. Undir flóðtima á laugardagskvöldið tóku skipin að slita festingar, og hjálpuðust þá menn viö að tryggja landfestar enn frekar, við hinar verstu að- stæöur. Skarð tók að myndast i grjótvegg utan við hafnargarð- inn, og gengu stórsjóar þar yfir og köstuðu 1-200 kilóa steinum yfir vegginn og á bryggjuna. Loðnu- löndunarrör sildarverksmiðjunn- ar slitnuðu úr festingum og fór hluti þeirra útaf bryggjunni, en skipsverjum á Vikingi tókst að ná þeim upp á bryggjuna aftur. A morgunflóðinu á sunnudag var heldur minna brim og land- festar margfaldar, svo ekki var talið að hætta stafaði af. BP/ AS Útlit er fyrir, að veðráttan fram að áramótum verði ókyrr og um- hleypingasöm, ekki ósvipuð þvi sem verið hefur um hátiðarnar. Ný lægð er nú komin i sjónmál. Hún kemur frá Noröur-Kanada um Suður-Grænland og tii Islands. A morgun fer áhrifa hennar að gæta þannig að þá hvessir trúlega aítur. Eldíngu laust niður í símstöðina á Hvolsvelli: „LOGARNIR STÖDU UT ÚR SKIPTIBORBINU" „Þaö var eins og flugeldasýn- ing niður úr möstrunum fyrir ut- an gluggann hjá mér, og bláir logarnir stóöu út úr skiptiborð- inu”, sagöi Guöbjörg Beck, en hún var á vakt í slmstööinni á Hvolsvelli, er eldingum laust þar niður á laugardagskvöldiö. „Mér varð óneitanlega mjög bylt við, henti af mér heyrnartól- inu og hljóp frá borðinu og slapp þar af leiðandi við meiðsl. Ég held fólk geri sér ekki grein fyrir, hvað það er hættulegt að hringja i þrumuveðri, sérstaklega I sveitarsima”. Meðan Guðbjörg ræddi við blaðamann Visis, fór rafmagnið af Hvolsvelli og sagði hún, að það væri tilbreyting að sitja svona i myrkrinu eftir þá óþægilegu reynslu að fá þrjár eldingar i skiptiborðið. Viðgerð stendur enn yfir á Hvolsvelli, en skemmdir á tækj- um urðu þar all-verulegar. — ATA

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.