Vísir - 29.12.1980, Blaðsíða 12

Vísir - 29.12.1980, Blaðsíða 12
12 Mánudagur 29. desember 1980 VtSIR Nýársdagur 1.1. 1981 Aramóta- matseðill helmílisins Hjördis Magnúsdóttir útivinnandi húsmóðir, gefur okkur upp hvað verður á borðum á hennar heimili siðustu daga ársins 1980 og fyrstu fjóra daga ársins 1981. Bestu þakkir, Hjördis. —i>G Mánudagur 29.12 Soðin ýsa með kartöflum og rifnu hráu grænmeti, sem er sykrað örlitið og sitrónusáfa hellt yfir. Skyr með kaffirjóma Þriðjudagur 30.12 Heimalagaðar fiskiboilur m/soön um kartöflum og köldu smjöri. Nýir ávextir Gamlársdagur 31.13 Rækjurönd með cocktailsósu Kalkún m. brúnuðum kartöflum, rauðkáli niðursoðnum perum, Waldorf salati og fyllingunni sem fer inni kalkúninn. Ferskt ávaxtasalat með hrákremi. .. Hjordis Magnúsdóttir úti- vinnandi húsmóðir sem á heiðurinn af áramótamat- Kalt hangikjöt meö kartöflustöppu, seðlinum. Heimalagaður is. Föstudagur 2.1. 81. Nú er sildin min vonandi orðin góö og þessvegna boröuð niður- lögðsild með seyddu rúgbrauði, heitum kartöflum og harðsoðn- um eggjum. Laugardagur 3.1. 81. Nautagúllas með soðnum hrisgrjónum og maisjtorni. Islenskir ostar. - - Sunnudagur 4.1. 81. Gúllassúpa úr afganginum af gúllasinu frá laugardeginum. Grillaöur kjúklingur meö hrásalati Uppskriftir Þar sem ég veit af reynslu að það vefst fyrir myndarlegustu hús- mæðrum að búa til „skothelt” fiskfars læt ég uppskrift af sliku fylgja með 500 gr. hakkaöur fiskur 1 góður hakkaöur laukur 2. msk. hveiti 2 msk. kartöflumjöl salt og pipar eftir smekk 1. msk. rjómi. Fylling i kalkún X kg dós maiskorn 250 gr. bacon-steikt sveskjur og þurrkuð epli Blandað saman og sett inni kalkúninn, saumað fyrir, steiktur i ca. 3/4 klst. fyrir hvertkg. Gæta þarf þessað hann ekki þorni og þarf þessvegna, ef um stóran fugl er að ræða, að setja álpappír utanum hann, en taka hann af siöasta klukkutimann. Kryddað eingöngu meö salti og pipar. Hrákrem 2 eggjarauður þeyttar með sykri og vanillusykri 1 dl. stifþeyttum rjóma og einni stifþeyttri eggjahvitu bætti i og ávaxtasalatinu bætt úti þessa blöndu, en auöveldlega má útbúa salatið timaniega ef sitrónusafa er hellt yfir það. Þá litast ekki bananar og epli. Einnig er gott aö bæta súkkulaðibitum og hnetu- kjörnum úti þetta. Gúllassúpa Gúllassúpu laga ég úr afgöngum af gúllasinu, en ég bý ævinlega til riklegan skammt af gúllasi i þeim tilgangi, og annað hvort frysti þaðtil betri tima, eða bæti i þaðsætri'papriku og auövitað meira soði sneiddum gulrótum, lauk, púrru (þegar hún er fáan- leg) steinselju, og tómatkrafti, látiðmalla velog lengismakkað til og borið fram með snittubrauöi. Sildarlögur Þaö hefur aukist mjög að konur leggi niður sina eigin sild og fylgir hér auðveld og þægileg uppskrift af sildarlegi. 2 dl edik 1 dl vatn tæpl. 2 dl sykur l/2bréf síldarkrydd (pickle spice-syltekrydderier) allt eftir þvi i hvaöa útgáfu það fæst i búðunum. Vatn og sykur ásamt kryddi soðið saman, edikinu bætt úti og lát- ið kólna jafnvel má láta það liggja yfir nótt i lokuöu iláti og áður en sildin er sett lagvisst ásamt lauk i niðursuðuglösin er gott að sigta kryddið frá, þvi það er smágert og finnst mörgum betra að vera laus við það. Þessari uppskrift má siöan breyta t.d. með Sherry eða tómat- sósu sem einfaldlega koma sem viðaukar viö grunnuppskriftina. I I I I I I I I I I I i i i i i i i i i i a i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i j - voru orðnir ðreytlir á stórmarkaðnum Spægipylsan, rúgbrauöið, eggin og öllararnir eru eins og I öðrum búöum og verðið næstum aö segja lika. En hér er engin venjuleg búð á ferö. 700 fbúar i húsasamstæðu I Ishöj i Dan- mörku tóku sig nefnilega til og settu á fót sina eigin búö þegar þeir voru orðnir þreyttir á að versla við stórmarkaöinn. Þeim finnst hart að þurfa að eyða þremur stundarf jórð- ungum i markaðnum þegar aö- einsá aö höndla svo sem eins og eina dós af skóáburði eða franskbrauðsenda. Þessum vör- Tyggigúmmi i fötum og hús- gögnum má fjarlægja með þvi að setja rakan strásykur á blett- ina I nokkrar minútur og núa siðan blettina burt með mjúkum svampi. Þegar þið hafið pússað silfur- hnifapör og aöra hluti og gengið frá þeim i skúffur og skápa, þá skulið þið leggja 2-3 sykurmola i hverja skúffu og hillu. Þá mun silfrið halda betur gljáa sinum og ekki er nauðsynlegt að pússa þaö eins oft. um er nefnilega komið fyrir innst i stórmarkaöinum til að freista viðskiptavinanna til að kaupa aörar vörur i leið sinni eftir nauðsynjunum. Það er ennfremur skoöun þessa fram- takssama fólks, aö stórversl- animar séu einkum hugsaðar fyrir þá sem hafa bil og mikla kaupgetu en þarfir hinna sem minna mega sinséu látnar næta afgangi. tbúarnir létu hafa eftir sér þegar búöin var opnuð fyrir skömmu aö vart væri við þvi að búast að þeir gætu verið sam- keppnisfærir hvað verölag Möndlukvörnina er hægt að nota til fleiri hluta en að hakka möndlur. Hægt er að rifa i henni bæði ost, lauk og gulrætur. En þar sem innihaldið vill oft dreif- ast út um allt er gott að draga plastpoka yfir kvörnina. Ef súpan er of sölt má setja l-2franskbrauðsneiðar út i hana og láta þær liggja i henni i 7-8 minútur, taka þær siðan upp, þá hafa þær sogið i sig hluta af salt- inu. snerti enda væri höfuðáherslan á góðri og persónulegri þjón- ustu. Andrúmsloftið Ibúarnir höfðu upphaflega ýmsar hugmyndir um hvernig skapa mætti skemmtilega stemmingu i versluninni þessa gömlu góöu sem við þekkjum frá kaupmanninum á horninu, en siöan komust þeir að raun um aö andrúmsloftið yröi ekki keypt meö þvi að hafa gamal- dagskaffikvörn og sild á tunnu. Reiknaö er meö að hver ibúi leggi um einn tiunda af sinni daglegu neyslu i eigin verslun. Ef það verður gert á búðin aö geta borið sig. Opnunartiminn er til klukkan hálf sjö fyrstu þrjá daga vikunnar en annars eins og i öðrum verslunum. Ekki hefur enn verið hægt að hafa opið á sunnudögum þrátt fyrir óskir þar um, þar eð slikt yrði brot á lögum um opnunar- tima verslana. Engin tilboðsverð Ibúabúðin er með vöruúrval á við meðalverslun, nýtt kjöt, grænmeti og brennivin eins og tiðkast hjá Dönunum. Engin sérstök tilboðsverð veröa aug- lýst til að laða að og yfirleitt verður ekkert auglýst. Þess i staö veröur reynt að hafa verð á algengustu neysluvörunum eins lágt og mögulegt er. Þetta er óneytanlega mikil framtakssemi hjá þessum ibúum Ishöj og hver saknar ekki kaupmannsins á horninu? — ÞG Húsráö Gr ibúabúöinni. Andrúmsloftið allt annaðen i stórverslunubum og þörfum lltilmagnans sinnt. VIÐSKIPTAVINIRNIR KOMU Á FÓT EIGIN VERSLUN

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.