Vísir - 29.12.1980, Blaðsíða 5

Vísir - 29.12.1980, Blaðsíða 5
Krefjast dauoa- relslngar yllr ekklu Maos Sækjandi i málaferlunum gegn fjórmenningarklikunni i Kfna kraföist i morgun dauðarefsingar yfir Jiang Qing, ekkju Maos for- manns, fyrir gagnbyltingarað- gerðir. Saksóknarinn sagði, að taka b,æri tillit til þess hvilikt tjón hún Skæruliöar umkringdir í El Salvador Stjórnarher E1 Salvador er sagðurhafa umkringt 1500 manna varnarmálaráðherra landsins, tilkynnti snemma i gær, að sókn lið vinstrisinna skæruliða, sem skæruliða hefði verið stöðvuð. sótti inn yfir landamærin úr felu- stöðum sinum i fjöllum Honduras fyrir tveim dögum. Segir i fréttum þess opinbera, aðskæruliðarnir hafi verið króað- iraf nærri bænum Dulce Nombre de Maria, sem er um 160 km norð- ur af höfuðborginni, San Salva- dor. Bardagar voru sagðir hafa verið hinir áköfustu siðasta sóla- hring. JoseGullermo Garcia, offursti, Sagði hann, að innrásarliðið væri skipað mönnum frá Kúbu, Pan- ama, Nicaragua og útlögum frá E1 Salvador. Einnig munu hafa verið i hópi skæruliða félagar úr þeim fimm skæruliðasamtökum, sem saman mynda hina „lýðræðislegu bylt- ingarfylkingu”. Leiðtogi hennar German Cienfuegos, tilkynnti ný- lega, að i undirbúningi væri loka- sókn til þess að bylta herforingja- stjórn landsins. hefði bakaö kinversku þjóðinni, og vitnaði til 103. greinar hegn- ingarlaganna, sem gerir ráð fyrir dauðarefsingu fyrir gagnbylt- ingarstarfsemi af alvarlegasta tagi, ef valdið hafi riki eöa þjóð miklum skaða. Sækjandi hafði áður lokið sokn sinni gegn ni'u öðrum sakborning- um þessara réttarhalda, en ekkj- an var sú eina, sem krafist var dauðarefsingar yfir. Ekki var sjónvarpað frá þessu þinghaldi, eins og þó hefur verið oft gert i' réttarhöldunum. Sagt er, að ekkjan hafi nokkrum sinn- um gripið reiðilega fram i fyrir sækjandanum. — Hann sagði það afdrifarik mistök hjá sakborn- ingnum að reyna að varpa ábyrgöinni af sér og yfir á Mao formann. Jiang, ekkja Maos. Sú eina úr fjórmenningaklikunni, sem krafist er dauðarefsingar yfir. Reagan kallar frani „villimenn upprelsn í ítöisku örygglsfangelsi Fangar i öryggisfangelsinu i bænum Trani i suðausturhluta Italiu hafa gert þar uppreist og krefjast betri aðbúnaðar. 1 Guðmundur Pétursson skrifar fangelsinu eru um 400 fangar, margir dæmdir hryðjuverka- menn eða grunaðir. Um 100 fanganna byrjuðu upp- reistina si'ðdegis 1 gær og yfirbug- uðu fangaverðina, sem voru óvopnaðir. Náðu þeir á sitt vald tveimur álmum fangelsisins, sem byggðar voru fyrir fimm árum og þóttu þá til fyrirmyndar vegna þæginda i fangaklefum, þar sem boðið var upp á heitt vatn i baðið og sjónvarpstæki i hvern fanga- klefa. Fangarnir eru sagðir krefjast þess,að öryggisfangelsi, sem svo eru nefnd, verði lögð af, og einnig felld úr gildi sérstök lög, sem heimila lögreglunni handtökur án birtingar ákæru. En þau lög voru sérstaklega sett til höfuðs hryðju- verkastarfsemi i Itallu. Fangaverðirnir eru sagðir heil- irá húfi, en á valdi fanganna, sem halda þeim sem gislum. Fangels- ið hefur verið umkringt af öryggissveitum. Ronald Reagan, tilvonandi for- seti Bandarikjanna, kallaði töku Irana á 52 Bandarikjamönnum fyrirgisla „villimennsku”. Þessa dagana standa einmitt yfir samningaviðræður við Irani fyrir milligöngu Alsir um lausn til handa gi'slunum. Hann var spurður i gær 1 Los Angeles um álit sitt á kröfum írana fyrir lausn gislanna, og svaraði: „Ég held ekki, að maður greiði lausnargjald fyrir fólk, sem rænt hefur verið af barbör- um.” Edmund Muskie, utanrikisráð- herra, hefur áður visað kröfunum á bug sem óraunhæfum og raunar utan valdssviös forsetans að upp- fylla þær. Edwin Meese, helsti aðstoðar- maður Reagans, tók undir orð hans um kröfur Irana, og lagði mikla áherslu á það, að Iranir þyrftu ekki að vænta meiri eftir- gefni af stjórn Reagans, þegar hún tekur við 20. janúar. Glslarnir hafa nú verið 14 mán- uði á valdi Irana eftir að brotist var inn i bandariska sendiráðið i Teheran og fólkið tekið til fanga. Oliulelt á auðugustu fiskimlðum heims l.agaþræta, sem upp spratt, þegar menn vildu hindra oliubor- anir á George-banka, sem þykja einhverjar gjöfulustu fiskuppeld- isstöðvar heims — undir Cape Cod — lauk i Boston með þvi, að umhverfisverndarsinnar féllu frá andstöðu sinni við borunartii- raunir. Menn höfðu reynt að fá George-banka friðaðan sem eins konar sjávarþjóðgarð en sæst var á, að stjórnvöld héldu áfram að leigja ut skika og skika á þessum sióðum til oliuleitar. i staðinn skyldu ákveðin svæði friðuð. Þykir þetta vera ósigur fyrir umhverfisverndarmenn, sem vildn taka fvrir alla oliuleit á þessu, gjöfulu miðum. Hubner og Korchnoi Robert Hu'bner, vestur-þýski skákmeistarinn, sem sést hér til vinstri á myndinni tefla við sovéska útlagann Viktor Korchnoi, þykir hafa byrjað ein- vigi þeirra vel meö þvi að vinna bæöi með hvitu og svörtu mönnunum. Fyrir einvigi þeirra, sem fram fer i baðstrandarbænum Merano á Norður-ítaliu, þótti Korchnoj liklegri þeirra tveggja til sigurs. Sigurvegarinn hlýtur réttinn til þess að skora á heimsmeistar- ann, Anatoly Karpov, til einvigis um titilinn. Carler meiddisi ' á skiðum Carter Bandar ikjaforset i brákaði á sér viðbein þegar harin féll á skiðum i Maryland- fjöllum i fyrradag. Ásamt konu sinni og samstarfsmönnum var hann i skiðagöngu, þegar skiði hans rákust i stein falinn i snjónum. Honum var flogið i þyrlu til læknis og verður nú að hafa vinstri handlegginn i fatla i rúmlega vikutima. Khomeini llkir Carier við Staiin Khomeini æðstiprestur i tran veittist harkalega I gær að Carter forseta USA, þegar klerkur ávarpaði hóp irana i Teheran. Likti hann Carter við Joseph Stalin, hvað viðkæmi átroðning á mannréttindum. „Sumir forsetar hér i heimi þykjast bera mannréttindi fyrir brjósti, en þegar þeir hafa náö kjöri falla þeir á prófinu,” sagöi Khomeini. „Stalin þóttist lika vinna fyrir fólkið og ieiða það til aukins frels- ins, en þegar hann komst til valda útrýmdi hann fólki i massavis. Sama um Cartér,” hélt klerkur áfram. Fjárkúgun í Ástraiíu Woolworths-verslanakeðjunni i Ástraliu barst enn á ný í morgun fjárkúgunarbréf, eftir að fannst sprengja I einni verslun hennar. Sprengjur hafa sprungið i þrem versiunum Woolworths fyrr I þessum mánuði. Aðeins eina bar upp á annrikistima i verslunum, nefnilega aðfangadag, en áður hafði borist viðvörun og stór- magasinið verið rutt af fólki. Þó meiddust tveir. Fjárkúgararnir krefjast milljón Ástraliudala i reiðufé, gulli og demöntum, en hóta ella fleiri sprengjum i verslunum og styttri viðvörunartfma.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.