Vísir - 29.12.1980, Blaðsíða 4

Vísir - 29.12.1980, Blaðsíða 4
seldir á skrifstofu Reykjavikur, Haga- yj Verslunarmannafélag Reykjavíkur Jólatrésskemmtun Jólatrésskemmtun verður haldin að Hótel Sögu, Súlnasal, laugardaginn 3. janúar 1981 og hefst kl. 15.00 síðdegis. Aðgöngumiðar verða Verslunarmannafélags mel 4. Miðaverð: Börn. G.kr. 3000. nýkr. 30. Fullorðnir Gkr. 1000. nýkr. 10. Tekið verður á móti pöntunum í símum 26344 og 26850 Verslunarmannafélag Reykjavíkur. Auglýsingadeild verður opin um áramótin sem hér segir: Mánudaginn 29. des. kl. 9—22 Þriðjudaginn 30. des. kl. 9—18 Miðvikudaginn 31. des. Lokað Fimmtudaginn 1. jan. Lokað Föstudaginn 2. jan. kl. 9—22 Gleðilegt nýár Þökkum viðskiptin á liðnum árum HÓTEL YARDDORG AKUREYRI SÍMI (96)22600 Góð gistiherbergi Morgunverður Kvöldverður Næg bilastæði Er í hjarta bæjarins. JÚLIN VORII SKÖMMT- UÐ PÚLVERJUM Ef einhvers staðar annars stað- ar en i Póllandi hefði verið tekin upp skömmtun á kjöti og smjöri fyrir jólin, er hætt við, að komið hefði upp illur kurr. Pólverjar tóku þvi hins vegar eins og guðs- gjöf, svona til að byrja með, meðan enn fékkst kjöt i búðum. Menn kunnu sér ekki læti, þeg- ar ljóst var, að unnt væri að gleðj- ast yfir jólasteik, þvi að það hafði ekki horft til þess, að svoleiðis „munaður” yrði á borðum þessar hátiðarnar. Tilkynning þess opin- bera um skömmtunina féll þvi i svipaðan jarðveg og frétt á jóla- trésskemmtun um að jólasveinn- inn væri kominn. „Skömmtunarseðillinn þýðir i það minnsta, að við fáum þó alla vega eitthvað. Ég hef ekki séð smjör i marga mánúði”, sagði pólsk húsfreyja i spjalli við Brian Mooney, fréttamann Reuters i Varsjá fyrir jólin. Það var i bið- röð utan við eina af þessum 300 verslunum Varsjár, sem afgreiða skammtað kjöt og smjör. Skömmtun á borð við þessa hef- ur ekki sést i Póllandi frá þvi á styrjaldarárunum, þegar skortur var á öllu. Fyrirsjáanlega verður skömmtunarkerfinu ekki aflétt i náinni framtið. Þessi skömmtun núna fyrir jól var eins og „generalprufa” fyrir allsherjar- skömmtunina, sem taka á upp 1. febrúar næsta. Matvælaskortur er krónisk- ur” sjúkdómur i Póllandi og er pólitiskthitamál. Verkfallsólgan i sumar á rætur að rekja til þess. Dreifingarkerfið þykir vera i algjörri rúst, og matvörur ýmsar svo niðurgreiddar, að verðið er út i hött miðað við framleiðslukostn- að. Hamstur og svartamarkaðs- brask er óhjákvæmilegur fylgi- kvilli sliks ástands. Menn segja, að þessu mætti kippa i liðinn á ör- skömmum tima með þvi að taka upp frjálst markaðskerfi, en það mundi kalla fram hrikalegar verðhækkanir, sem i ljósi verk- falla i' sumar og haust myndu jafngilda pölitisku sjálfsmoröi. Stefnan i framtiöinni er þvi að skipta matvörum milli fólks eins sanngjarnlega og unnt er, meðan verðið hækkar i áföngum. Skömmtunin fyrir jólin var um 1,3 kg af kjöti á einstakling og pund af smjöri. Það voru öll ósköpin, enda vörðu fagnaðarlæt- in ekki ýkja lengi. Fyrsta daginn var brjáluð ös i verslunum i Varsjá, sem afgreiddu þann dag- inn 234 þúsund kjötskömmtunar- seðla og 183 þúsund smjör- skömmtunarseðla. Þeir heppn- ustu sluppu með klukkustundar biðröð, en aðrir biðu kannski i þrjár og fjórar stundir og komu þá að tæmdum hillum. Ef húsbyggingar eru sameigin- leg þjóðartómstundaiðja hér á ts- landi, þá eru biðraðir sameigin- leg tómstundaiðja pólsku þjóöar- innar. 111 nauðsyn rekur til þess, en allir eru sammála um, að tim- anum er sóað hræðilega. Þótt blöðin hömruöu á því á- kaft, að nóg kjöt væri til og á leið- inni, kom upp urgur i þeim, sem misstu af lestinni fyrsta daginn. Þrátt fyrir fullyrðingar þess opin- bera lagaðist ástandið litið i Var- sjá siðustu dagana fyrir jól, en mjög var þetta misjafnt annars stáöar i landinu. A stöku stað var hótað verkföllum, ef ekki væri úr bætt. 1 Lublin var t.d. nóg kjöt og engin skömmtun. I Krakow var heldur engin skömmtun, en af öðrum ástæðum, þvi að ekkert var til. Matvöruskömmtun var ein af kröfum verkfallsmanna i sumar, og lætur sig þó enginn dreyma um, að hún fái leyst allan vand- ann. Vöruskorturinn er á svo mörgum sviðum. Þar sviður Pól- verjum, sem þykja likir Finnum og Islendingum i þvi að vera sólgnir i brjóstbirtuna, hvað mest skorturinn á áfenginu. Var talið, að það mundi meiru valda um minni áfengisneyslu þessa hvild- ardaga, heldur en áskoranir kaþólsku kirkjunnar, áhrifamikil þótt hún sé. Varsjárbúar segja, að þetta ár- ið hafi biðraðir verið með allra lengsta móti, þótt litið sé allar götur aftur til þess, þegar komm- únistar komu til valda fyrir 36 ár- um. í jólaösinni voru verslanir opnar bæði laugardaginn og sunnudaginn fyrir jól, og komu menn sér fyrir i biðröðum strax um miðnættin áður. Nokkrar áhyggjur höfðu menn af þvi lika, að gengið hafði mjög á kolabirgðir, en úr rættist, þegar horft var fram á einhver hlýjustu jól i manna minnum. Auð jörð og raunar nánast til vandræða á vin- sælum skiðastöðum. Alla vega sættu Pólverjar sig sæmilega við sinn hag, þegar nægileg sild var fáanleg, en það er hefðbundinn jólamatur á að- fangadagskvöld. Maria Peron losnar úr siofufangelsi Fyrrum forseti Argentinu, Maria Estela Peron — ekkja Juan Perons — á að losna úr stofufang- elsi i márs næsta, eftir þvi sem dagblaðið La Nacion liermir. Seg- ir blaðið, að þá verði fallið frá ö 11- um ákærum á hendur henni. Ein alvarlegasta ákæran, sem herforingjastjórnin hélt fram gegn henni, var sú, að Maria hefði gefið út einnar milljón dollara ávisun til ólöglegra nota. Ilerinn bylti Mariu Perón úr forsetastóli 1976, og er sagt, að henni verði sennilega leyft að flytja til Panama eða Spánar. ilún hefur að undanförnu verið undir læknishendi, hjartaveil orð- in. Demantavlnnsla Angöia Demantaframleiðsla Angóla mun fara langleiðina upp i 1,5 milljón karöt þetta árið, sem er mesta framleiðsla frá þvi 1975 og nær þvi tvöfaldur afrakstur mið- að við i fyrra. En áður en Portúgalar veittu Angóla sjálfstæði var afrakstur- inn miklu meiri. 1973 var hann t.d. 2,12 milljón karöt, og nær 8% af demantaframleiðslu heimsins þá. Aætlanir fyrir árið 1975 spáðu metframleiðslu eða 3,5 milljónum karata, en borgarastriðið, flótti tæknimenntaðra námamanna, þjófnaðir og ólögleg demanta- vinnsla spillti þeim áætlunum. Aukið smygl í Klna Kinversk tollayfirvöld hyggjast bretta upp ermar og taka ræki- lega til hendi gegn smyglurum, eftir að tollverðir tóku skip frá Hong Kong undan strönd Suð- ur-Kina. Um borð fannst 60000 smyglarmbandsúr, 24000 sólgler- augu og fleira góss. Ilagblað alþýðunnar segir, að smygl hafi mjög færst i aukana, en um tuttugu smygiskútur hafa verið tcknar i kinverskri land- helgi frá þvi i miðjum október.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.