Vísir - 30.01.1981, Qupperneq 4
4
Föstudagur 30. janúar 1981
Tilboð óskast
í eftirfarandi bifreiðar i tjónsástandi.
Toyota Mark II árgerð 1973.
Mazda 323 árgerð 1977.
Ford Escort árgerð 1973.
Volkswagen 1300 ágerð 1972.
Lada 1500 árgerð 1977.
Mazda 818 árgerð 1976.
Austin Allegro árgerð 1978.
Lancer 1400 árgerð 1975.
AMC Hornet árgerð 1971.
Daihatsu Charmant árgerð 1978.
Bifreiðarnar verða til sýnis að Melabraut
26, Hafnarfirði, laugardaginn 31. janúar
frá kl. 1-5. Tilboðum sé skilað til aðalskrif-
stofu Laugavegi 103 fyrir kl. 5 á mánudag-
inn 2. febrúar.
Brunabótafélag íslands.
AÐALMANNTAL
1981
Dreifingu manntalseyðublaða á nú að vera
lokið alls staðar. Þeir, sem hafa ekki feng-
ið eyðublöð i hendur, eru vinsamlega
beðnir að afla sér þeirra á skrifstofu sveit-
arstjórnar. í þéttbýli á höfuðborgarsvæð-
inu og á Akureyri eru eyðublöð einnig fá-
anleg á lögreglustöðvum.
Hagstofan.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 78., 80. og 82. tbl. Lögbirtingablaðs 1980 á
hluta iHagainel 17, þingl. eign Péturs Rafnssonar o.fl. fer
fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar i Reykjavik, Lífeyrissj.
verslunarmanna og Helga V. Jónssonar hrl. á eigninni
sjálfri mánudag 2. febrúar 1981 kl. 15.00.
Borgarfógetaembættið iReykjavik.
Lindargata
Lindargata
Klapparstígur
verkamannallokk-
urlnn breski klof-
inn I brennt
. Breski verkamannaflokkur-
inn er nií klofinn i þrennt, og
einn hlutinn er kominn á
fremsta hlunn með að skilja
alveg við hann og mynda lýð-
ræðisjafnaðarflokk sem gjör-
bylt gæti stjórnmálamyndinni i
Bretlandi.
Siðustu tuttugu ár hefur
verkamannaflokkurinn farið
með rikisstjórn i ellefu ár, og
skipst þar á við ihaldsflokkinn.
betta tveggja flokka kerfi hefur
sett sinn svip á bresk stjórnmál
frá lokun siðari heimsstyrjald-
ar.
Stofnun lýðræðisjafnaðar-
flokks, sem gengi i kosninga-
bandalag við frjálslynda flokk-
inn, kynpi aö breyta miklu þar
um.
Það bandalag mundi höfða til
miðjunnar og laða að sér
kjósendur, sem leiöir eru orðnir
á valkostunum til vinstri eða
hægri.
Framtiðaráhrif þessa eru
mönnum þó ekki svo ofarlega i
huga þessa dagana, meöan þeir
sitja eins og áhorfendur á
fremsta bekk fjötraðir af þvi
sem fyrir augu ber, meðan
verkamannaflokkurinn tætir sig
sjálfur í sundur. — Við siðustu
kosningar hlaut verkamanna-
flokkurinn um 11,5 milljónir
atkvæða, meðan ihaldsflokkur-
inn þokaði honum úr rikisstjórn
með 13,7 milljónum atkvæða.
Vinstriarmur verkamanna-
flokksins hefur lengi verið há-
vær i minnihlutaaðstöðu sinni
innan flokksins, en er nú skyndi-
lega orðinn hið ráðandi afl þar
innan veggja. Af 267 þingmönn-
um flokksins heyrir þriðjungur-:
inn, til vinstri arminum, en meö
þvi að beita fyrir sig nýtilkomn-
um áhrifum verkalýösfélag-
anna og starfsmanna flokksins
úti i kjördæmunum, tókst hon-
um að sveigja flokkinn á siöasta
ársþingi, sem haldið var i
Blackpool I október, til róttæk-
ari vinstristefnu. Um siöustu
helgi vann vinstri armurinn
annan sigur, sem kom fjórum
fyrrverandi ráðherrum úr ríkis-
stjórnum verkamannaflokksins
tilþess að stiga fyrstu skrefin til
að kljúfa sig út úr flokknum og
mynda samtök lýðræðisjafn-
aðarmanna.
A sérstöku flokksþingi, sem
haldið var i Wembleyráðstefnu-
höllinni, var þingflokkurinn
sviptur hefðbundnum rétti sin-
um til þess að velja flokksfor-
manninn. 1 staðinn var sett á
laggirnar sérstakt kjörráð, og
svo búið um hnútana, að verka-
lýösfélögin munu ráða 40% full-
trúa þessa kjörráðs, og þar með
mest áhrif hafa á val næsta
flokksformanns, sem yrði þá
forsætisráðherra, þegar flokk-
urinn fær kosningasigur næst.
Mest er óánægjan meöal þing-
manna og meðal hægrisinnaðri
flokksmanna, sem lengst af
hafa ekki þolað róttæklingana á
vinstri vængnum en ekki þó ris-
ið upp gegn uppgangi þeirra.
Niu þingmenn fylgdu fljótlega á
eftir ráðherrunum fyrrverandi
inn i lýðræðisjafnaðarmennsk-
una.
1 hópi hinna óánægðu, sem
eftir sitja þó enn i verkamanna-
flokknum — þótt þessir ofan-
nefndu hafi ekki enn sem komið
er sagt sig úr verkamanna-
flokknum — eru margir, sem
lýst hafa þvi yfir, að þeir muni
berjast fyrir þvi á næsta árs-
þingi að snúa aftur við þessari
þróun til vinstri og draga úr rót-
tækninni i stefnuskrá flokksins.
Þeirra á meðal eru fyrrverandi
ráðherrar og miklir áhrifamenn
eins og Denis Healey, Peter
Shore og Roy Hattersley.
Aörir velta þvi svo fyrir sér,
hvort þeir eigi ekki að slást i lið
með fjórmenningunum, sem eru
Roy Jenkins, fyrrum forseti
Evrópuráðs EBE, Shirley Willi-
ams, fyrrum heilbrigðismála-
ráöherra og ein úr hópi mestu
áhrifamanna ^ flokksins, dr.
David Owen, s'ém verið hefur
yngstur utanrikisráð herra
Bretlands (og stýrði samning-
unum um lausn Ródesiudeild-
unnar) og William Rodgers, enn
einn fyrrverandi ráðherra úr
rikisstjórnum Verkamanna-
flokksins. Þessir fjórir ásamt
niu þingmönnum til viðbótar
kalla sig nú „Ráð lýðræöisjafn-
aðarmanna” og hafa uppi
áform um að stofna nýjan
stjórnmálaflokk á næstu mán-
uðum. öljóst er nákvæmlega
hvenær, og fremur óliklegt þyk-
ir, að þeir muni standa að fram-
boði til sveitarstjórnakosninga-
anna, sem fram eiga aö fara i
mai i vor.
En þessir lýðræðisjafnaðar-
menn hafa strax markað sér þá
stefnu að viðhalda blönduðu
hagkerfi Breta, halda tryggð
Bretlands við Norður-Atlants-
hafsbandalagiö og Efnahags-
bandalag Evrópu og fylgja
áfram þeirri miðflokksstefnu,
sem rikisstjórnir verkamanna-
flokksins hafa til þessa fylgt. —
Þetta voru þau stefnumörk, sem
ársþingið i Blackpool i október
hafnaði. Þar komu vinstri-
mennirnir hverju þvi fram, sem
þeir vildu.
David Owen fyrrum utanrikisráðherra unir ekki nýju stefnunni, sem
vinstrisinna róttæklingar hafa markað gagnvart kjarnorkuvopnum,
NATO, aðild Breta að EBE, þjóðnýtingu o.fl.
Sovésk kvlkmynd
um Afghanlstan
Sovétmenn vinna um þessar
mundir að gerö kvikmyndar, sem
verður i þrem hlutum, og fjallar
um sambuð Rússa og Afghana
allar götur frá þvi 1830 til okkar
daga.
Fyrsti hlutinn, sem kailast ,,1
þjónustu ættjaröarinnar”, er
kvikmyndaöur i Uzbekistan I
Sovétríkjunum og fjaliar um tog-
streytu Rússiands og Engiands
urn itökin i Afghanistan á fyrri
helming siöustu aldar.
Annar hlutinn fjallar um
diplómataheimsóknir Sovét-
manna i Afghanistan á þriöja
áratug þessarar aldar, og sá
þriðji um ,,þá bróðurlcgu hjálp,
sem land okkar veitir nágrönnum
okkar i dag”.
Smíðuðu
gervihlarla
Gerfihjarta úr plasti og áli
hefur hlotið náð læknaháskólans i
Utah, en á eftir að hijóta sam-
þykki heilbrigöisyfirvalda
Bandarikjanna, sern getur tekiö
nokkurra mánaða bið.
Þetta er áhald á stærð við
mannshjarta og ætlunin að græða
þetta i brjóstkassa hjartasjúkl-
inga, sem þcss þurfa með. Þaö er
rafknúiö en rafmótorinn hafður
utan likamns.
A meðan samþykki heii-
brigðisyfirvalda liggur ekki fyrir,
cru ekki gerðar tilraunir meö
þetta tæki á mönnum. En i Salt
Lake City hafa þeir gert tilraunir
á dýrum, og græddu t.d. i kálf
fyrir 200 dögum og lifir hann góðu
lifi, eftir þvi scm best verður séð.
Húsnæðisvandl
V-Berlínar
Yfirvöld Vestur-Berlinar hafa
kunngert áætlanir um samvinnu
við sjáifboöaiiða tii lausnar hin-
um eilifa húsnæðisvanda borgar-
búa. i hópi þessara sjálfboðaliöa
veröur að finna marga þá, sem
sest hafa að i óleyfi i yfirgefnum
eða auðum húsum. Þeir hafa ein-
mitt átt i mestum útistöðum við
yfirvöld i ýmsum mótmælaaö-
geröum sinum. Yfir 80 þúsundir
manna eru talin eiga við hús-
næðisskort aö striða i V-Berlin.