Vísir - 30.01.1981, Page 5

Vísir - 30.01.1981, Page 5
Föstudagur 30. janúar 1981 5 yísiR „Þeip Ijúga. svíkja og fremja hvaða glæp sem fyrir markmið sín” Ronald Reagan vandar Sovétleiðtogunum ekki kveðjurnar. „Sovétmenn telja sig hafa rétt til þess að fremja hvaða glæp, ljúga og svikja til þess að koma sinufram,” sagðiRonald Reagan, Bandarikjaforseti, á fundi með fréttamönnum i gær. Hann og Haig, utanrikisráð- herrathans, hafa nú hvor á sinum blaðamannaf undinum kippt hrottalega i stoðir ,,dé- tente”-stefnunnar i sambúð Bandarikjanna og Sovétrikjanna. Svo harðorða hafa menn ekki heyrt leiðtoga Bandarikjanna vera i garð Sovétstjórnarinnar siðan á isköldustu dögum kalda striðsins. t fyrradag sakaði Haig Sovét- menn um að róa undir með hryðjuverkaöflum i' heiminum, og sagði, að barátta við hryðju- verkaöfl væru höfuðverkefni nýju stjórnarinnar i Washington. Tæki sú barátta sæti mannréttindanna i utanrikisstefnu Carters, enda hryðjuverk versta tegund brota á mannréttindum. Reagan sagði, að leiðtogar Sovétrikjanna fyrr og nú stefndu ljóst að framgangi byltingarinnar til þess að breyta heiminum i eitt kommúnistiskt riki. Vitnaði hann til ýmissa ummæla þeirra þvi til stuðnings. Reagan og Haig ætla greinilega ekki að láta sitja við kaldar kveðjur einar, þvi að i gær, þegar Sovéski sendiherrann i Washing- ton, Anatoly Dobrynin, ætlaði að nota sérinngang úr bilageymslu utanrikisráðuneytisins, sem hon- um stóð opinn frá þvi i tið Kiss- ingers utanrikisráðherra, var honum visað á aðalinnganginn, eins og öðrum, sem reka þurfa er- indi i utanrikisráðuneytinu. Þeir Reagan og Haig héldu báð- ir opnum möguleika á þvi að halda áfram viðræðum við Moskvustjórnina um afvopnun og takmarkanir á herafla, en gerðu það ljóst, að slikir samningar yrðu þá á grundvelli þeirra skil- mála og tengdir framferði Sovét- manna annarstaðar i heiminum. Þiðan i sambúð Bandarikjanna segir Ronalö Reagan forseti USA um ráða- menníMoskvu Köldustu kveðjur síOan í helkulda kalda stríðsins og Sovétrikjanna, sem hófst 1972 i forsetatið Nixons, hefur naumast verið annað en orðin tóm eftir innrás Sovétmanna i Afganistan. — „Þiðan hefur verið einstefnu- gata, sem Sovétmenn hafa notað til þess að koma markmiðum sin- um fram,” sagði Reagan i gær. Reagan sagði, aö Bandarikja- stjórn hefði engan hug á að hefna á Iran hertöku sendiráðsins fyrir 15 mánuðum. En hann varaði hryðjuverkamenn við þvi aö vinna bandariskum borgurum mein. Hryðjuverkamenn gætu ekki lengur sofið rólegir i þeirri vissu, að Bandarikin mundu ekkki hegna þeim. — „Ég veit ekki, hvort sættir eru mögulegar viö núverandi stjórn, eða stjórn- leysi, i íran,” sagði Reagan. Varsjárstlórnin hótar „Einingu 99 Forsætisráöherra skipti á Spáni Framkvæmdaráð Miðflokks Spánar, sem stendur að rikis- stjórninni, valdi i dag mann i stað Adolfo Suarez, forsætisráðherra, sem sagði af sér i gær öllum að ó- vörum. Flokkurinn valdi i staðinn Leo Poldo Calco Sotelo, aðstoðarfor- sætisráðherra, til þess að mynda nýja rikisstjórn, en Sotelo hafði efnahagsmálin á sinni könnu i stjórn Suarezar. Carlos konungur mun eiga i dag fundi með leiðtogum stjórnmála- flokkanna, áður en hann leggur fyrir þingið tillögu sina um nýjan forsætisráðherra. — Enginn hinna flokkanna hefur stungið upp á nýjum forsætisráðherra. Afsögn Suarez, sem er aöeins 48 ára að aldri, kom mjög á óvart. Hann bar við „persónulegum á- stæðum”. Meðráðherrar hans fóru að hans fordæmi og sögðu allir af sér um leið, en stjórnin mun sitja áfram til bráðabirgða fyrst um sinn. Pólsk yfirvöld lýstu þvi yfir i gær, aö þau væru reiðubúin að gripa til nýrra og strangari að- gerða til að hindra, að vaxandi vinnudeilur landsins leiði til glundroða og stjórnleysis. Þessu var lýst yfir i gærköldi, eftir að „Eining” hafði tiikynnt, að samtökin mundu eiga við- ræöur i dag meö Pinkowski for- sætisráðherra i viðleitni til þess að stöðva nýjustu verkfallsölduna og leysa önnur deilumál verka- lýösins. I tilkynningu þess opinbera var þvi hótað, að gripið yrði til hverra þeirra ráða, sem nauðsynleg þættu til að afstýra „glundroða og stjónleysi”. A miðvikudag höfðu landssamtök „Einingar” frestaö öllum verkföllum i fimm daga til þess að hefja viöræður við stjórn- völd, en það kom þó ekki i veg fyrir verkföll á þeim iðnaðar- svæðum i gær. 1 Jelenia hefur verið boðaö til allsherjarverkfalls i héraðinu i dag, þrátt fyrir boö forystumanna „Einingar” um aö biða til.þriðju- dags. Viröist sem forysta sam- takanna eigi orðið æ erfiöara meö að sefa þá óþolinmóöustu úti i héruðum. Til viðræðnanna i dag lætur stjórnin senda flugvél til Gdansk eftir samninganefnd „Ein- ingar”. Skrúðganga til heiöurs gíslunum Það hefur löngum verið um New York sagt, að hún, eða öllu heldur bæjarbúar, elski skrúð- göngur. Ein slik verður farin i dag til heiðurs gislunum, sem á dögunum komu heim úr prisund- inni i Iran. Hún mun hefjast við Man- hattaneyju og liggur leið hennar um Wall Street, en eftir einnar og hálfrar stundar þramm likur henni við ráðhúsið, þar sem Ed- ward Koch borgarstjóri mun af- henda gislunum tröllstóran lykil að borginni. Ekki munu allir gislarnir sjá sér fært að vera viðstaddir, en að minnsta kosti 19 þeirra. Þetta tilstand Nýju Jórvikinga hefur mælst misjafnlega fyrir, eftir að fréttist að gislarnir heföu ekkí allir jafnað sig enn andlega eftir álagið i prisundinni. Koch borgarstjóri hefur visað allri slikri gagnrýni á bug og segir, að besta læknisráðiö sé, að almenn- ingur ausi yfir gislana velvild og virðingu. Evröpa lendir undlr samkeppnínni Hagfræðingar spá þvi, að iön- riki vesturlanda standi nú á þrep- skildi hnignunartimabils, sem haldast muni út þennan ára- tug. — Þau verðleggi framleiðslu sina svo hátt, að þau hljóti að detta út úr samkeppninni á al- þjóðamörkuðum. Aðallega er kennt um háum launakostnaði i Evrópu, sem leiöi til verðlagningar á útflutnings- vörum Evrópumanna, er sé 15% hærri en á Bandarikjunum og allt að 50% hærri cn útflutningsverö Japana. Kemur i ljós þegar gluggað er I þessa spá og gáð aö þvi, hvað átt er viö með hækkandi launakostn- aði, að þykir muna mest um ýmis launagjöld og greiöslur til lif- eyrissjóða, lengri sjúkra- og sumarorlof og margan annan kostnað af starfsmannahaldi, sem ekki rennur beint i launaum- slög starfsfólks. Olbeldl í Brasillu Yfirmaður öryggislögreglu Rio de Janciro hefur sagt af sér eftir mikla holskeflu manndrápa. rána og götuóeiröa sem þar hefur gcngið yfir. Ofbeldisverkum i borginni hefur fjölgaö mjög Það er vitað um 2.826 morö i borginni árið 1980, en það var 25% aukning frá þvi árið áður. Fjölmiðlar i Braziliu hafa inikið fjallað um þetta vandamál að undanförnu, og hefur í þeiin koniið fram hörð gagnrýni á yfir- völd fyrir skort á lögreglumönn- uin á götunum. Aflélll verölpysi- ingu á ollu Keagan Ba ndarikjaforseti hefur aflétt takmörkun á álagn- ingu á oliu og oliuvörum. Vonast hann til þess meö þvi, að örva ol iuf ra mleiðslu Bandarikja- manna sjálfra og um leið hvetja landsmenn til orkusparnaðar. Sagði hann, að verölags- ákvæðin, sem sett voru i for- setatiö Carters, hefðu gert Bandarikin háðari oliu frá OPEC-rikjunum, grafiö undan öryggi USA og raskaö jafnvægi efnahagsmálum. 400 kg. fli stoiíð Fílsunganum Sonju var stoliö á dögunum úr dýragarði Kaup- mannahafnar og ieitaði lögregl- an hans dyrum og dyngjum. Grunur féllá júgóslavnesk hjón, sirkusfólk, sem komu með Sonju frá Indlandi. Fillinn var af þeim tekinn og settur i vörslu og sóttkvi i dýragarðinum, með- an tilheyrandi yfirvöld ákváðu, hvort þau hjón fengju innflutn- ingsleyfi fyrir hann. Þau höfðu grcitt morðfjár fyrir filinn og kviðu stdrtapi, ef þeim væri 'synjaö um leyfið.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.