Vísir - 30.01.1981, Qupperneq 12
12 Föstudagur 30. janúar 1981
HÁRGREIBSLA
VIKUNNAR
,,Margar konur sem eru meö lint og mjúkt hár
eða það sem ég kalla skandinaviskt hár, en vilja
safna siðu hári gefast oft upp á því að safna. Með
það í huga valdi ég þessa hárgreiðslu vikunnar, sem
er tilbreyting fyrir þær sem ekki vilja fórna síða
hárinu, sagði Guðný Gunnlaugsdóttir hárgreiðslu-
meistari. Hárgreiðslustofa Guðnýjar á vikuafmæli
i dag, ber stofan heitið Meyjan og er i Hafnarfiröi.
Létt permanent er sett á þetta axlarsiða hár, siö-
an er hárið þurrkað i infralampa. Toppurinn er
blasinn sléttur, hárið spennt aftur með vöngunum.
Mjór borði bundinn yfir hárið til að fá finlegri svip
á hárgreiðsluna. Má breyta til og setja litlar f léttur
i vangana og smella litlum perlum í flétturnar.
Þær sem hafa þessa sídd á hári, geta svo bundið'
hárið i tagl einn daginn og fléttað það allt næsta
dag, tilbreytinguna ætti ekki að vanta.
—ÞG
Guóny Gunnlaugsdóttir hargreiðslumeistari valdi þessa hárgreiðslu
fyrir þær sem ekki vilja fórna siða hárinu. —ÞG Visismynd/Emil
HUGMYNDARIK
HANDAVINNUKONA
Guðrún Þorgelrsduttlr kennlr okkur að nnýta einfalda lléttu
„Hvert stykki er svo fljótt aö
verða til, árangurinn kemur strax
I ljos, ætli aö þaö sé ekki stærsti
þátturinn sem gera hnýtingar eöa
macrame aö skemmtilegri
handavinnu”, sagði Guðrún Þor-
geirsdóttir, er við heimsóttum
hana á heimili hennar við Völvu-
fell i Breiðholti nýlega.
Þar sem Fjölskyldan og heimil-
ið er okkar vettvangur er okkur
hugleikið hvaö einstáklingar inn-
an fjölskyldunnar taka sér fyrir
hendur i dagsins önn. Bæði ein-
staklingurinn einn sér og hvað
fjöl skyldan bardúsar við saman.
Tekið skal þó fram að áhugi okk-
ar er af allt öðrum toga spunnin
en manntal yfirvalda.
Guðrún Þorgeirsdóttir er hand-
lagin mjög, við höfðum t il dæmis
frétt aö hun hafi búið til skemmti-
legar strádúkkur fyrir jólin og
marga fallega muni hefur hún.
hnýtt i tómstundum, e:<ra og
Hér sjáum viö aðGuðrún hefur hengt fléttuna á krók.
—ÞG Visism./Emil
Dúkka úr stráum, eitt sýnishorn
af handavinnu Guörúnar Þor-
geirsdóttur. _ÞG visism./EmiI
Fléttan tilbúin og komin á sinn
staö á vegginn....
.. og svo getum við skreytt fléttuna meö þurrkuðum stráum, könglum
og slaufum.
—ÞG/Visism. Emil
heimili hennar reyndar ber vott
um.
„Ég fór einu sinni á tusku-
teppandmskeiö, það skýrir sig
sjálft heitið á námskeiðinu, þar
lærði ég að búa m.a. til teppi úr
tuskum eða efnaafgöngum.
Fleiri hannyröanámskeið hef ég
sótt mér til mikillar ánægju, en
fyrir tveimur árum fór ég og
lærði hnýtingar, það er með þvi
skemmtilegasta sem ég hef lagt
fyrir mig. Möguleikarnir eru líka
margir, þú getur hnýtt rúmteppi,
gluggatjöld, blómahengi og svo
margt og margt fleira. 1 bóka-
verslunum er mikið úrval af
erlaidum blöðum með skyringar-
myndum sem auðvelt er að hnýta
eftir. Svo er líka mikið úrval af
garni í tömstunda- og hannyrða-
verslunum” sagði Guðrún og nú
vindur hún sér i að kenna okkur
að flétta einfalda fléttu, en til þess
var leikurinn gerður:
Við skulum nota Hobbygarn.
Við byrjum á þvi að klippa niður
■•niu (9) enda, hvern garnenda höf-
um við tveggja metra langan.
Finnum miðjuna (sem er þá 1
mtr.) leggjum þessa niu garn-
spotta saman um miðju og þá eru
komnir átján endar. Klippum tvo
enda til viðbótar, hvorn ca 1 1/2
mtr. t miðjunni sem er efsti hluti
fléttunnar, myndum við lykkju
(opiö ca. 7 cm) tökum annan end-
ann sem er 11/2 mtr. aö lengd, og
vefjum lykkjuna. A einni skýr-
ingarmyndinni sjáiö þið hvernig
þaö er gert.
Þegar þið hafið vafið lykkjuna
er lausa endanum stungið undir
'vafninginn siðast. Þá hengjum
við tilvonandi fléttuna upp á
vegg, skiptum átján endunum i
þrjá hluta,sex i hverjum, og flétt-
um á venjulegan hátt, eins og við
séum að flétta hár.
séum að flétta hár.
Þegar fléttan sjálf er oröin ca.
75 cm löng, tökum við hinn end-
ann (þennan sem er 11/2 mtr.) og
vefjum neðst á sama hátt og
lykkjuna efst. Neöstu cm eru
ófléttaðir, en þar rekjum við
garnið, kemur þá nokkurs konar
„búskur” neðst á fléttuna. Til
frekari glöggvunar vonum við að
myndirnar hjálpi til að skýra
verkið betur og segjum góða
skemmtun.
—ÞG
Vafningur um lykkjuna efst