Vísir - 30.01.1981, Síða 21

Vísir - 30.01.1981, Síða 21
Föstudagur 30. janúar 1981 21 VtSLR Fypsia frumsýning Alpýðuleikhússins í nýju húsnæði: f - hrir einhátfungar eflir Dario ^ i, Fo og Franca name J Erik og Traute Sönderholm. (Vlsism. E>S) Forstlóraskipti í Norræna Itúsinu: Erik og Traute á förum „Kona” verður frumsýnd hjá Alþýðuleikhúsinu i kvöld. Er þetta jafnframt fyrsta frumsýn- ing leikhússins i hinum nýju húsakynnum i Hafnarbiói. „Kona” er samheiti yfir þrjá einþáttunga, sem heita „Fóta- ferð”, „Ein” og „Við höfum allar sömu sögu að segja”. Höfundar „Konu” eru hjónin Dario Fo og Franca Rame og hafa þau sagt, að þættirnir séu framlag þeirra til jafnréttisbaráttu kynjanna og hafa þessir þættir farið sigurför viða um Evrópu i túlkun Franca Rame, enda skrifaðir sérstaklega fyrir hana sem leikkonu. Um til- urð þáttanna segir Franca: „Árum saman var ég að nauða i Dario að skrifa leikrit um konur og stöðu þeirra. Ég hótaði meira aðsegja aðskilja við hann. Hvers vegna um konur? Vegna þess að ég er kona. Ég hef svo margt að segja. Gallinn er bara á, að ég gat ekkiskrifað sjálf. Ég keypti allar bækur, sem mér fundust koma að gagni, las og fékk þær svo Dario. Eftir tvo mánuði spurði ég: „Jæja, er þetta ekki að koma?” En hann svaraði afundinn, „láttu mig i friði, mér finnst ég utan- veltu i þessari umræðu”. En verkið komst á skrið. Dario Fo bætir við: „Ég skrifaði og skrif- aði og alltaf reif hún niður allt mitt verk og sagði mér að gera betur, þar til það loksins fædd- ist”. „Kona” var fyrst sýnd i Milanó 1977. Einþáttungarnir, sem venju- lega eru leiknir af sömu leikkon- unni eru i sýningu Alþýðuleik- hússins leiknir af þeim Sólveigu Hauksdóttur, Eddu Hólm og Guð- rúnu Gisladóttur. Leikstjóri er Guðrún Ásmundsdóttir, búningar og tjöld eru eftir Ivan Török, Gunnar Reynir Sveinsson hefur samið áhrifahljóð, lýsing er hönn- uð af David Walters. Sýningar- stjóri er Guðný Helgadóttir. Olga Guðrún Árnadóttir þýddi „Fóta- ferð” og „Ein”, en Ólafur Haukur Simonarson og Lárus Ýmir Óskarsson þýddu „Við höfum all- ar sömu sögu að segja.” Alþýðuleikhúsið hefur áður sýnt eftir Dario Fo „Við borgum ekki, við borgum ekki.” — KÞ Nú um mánaðarmótin lætur Erik Sönderholm af störfum sem forstjóri Norræna hússins i Reykjavik, flyst til Danmerkur á- samt f jölskyldu sinn og tekur upp aftur fyrri störf við Kaupmanna- hafnarháskóla. Þau fjögurog hálft ár sem Erik og kona hans, frú Traute, hafa verið húsbændur á þessum sam- norræna rausnárgaröi i Vatns- mýrinni hefur starfsemi hússins staðið með miklum blóma. Þar hafa verið kynntar meö myndar- brag ýmsar greinar norrænnar menningar og lista, sem annars kynnu að hafa farið fyrir ofan garð og neöan hjá okkur Islendingum, og er það allt góöra gjalda vert. En hitt er ekki siður þakkarefni, að þar hefur veriö skotiö skjólshúsi yfir ýmislega islenska menningarstarfsemi, sem ella hefði verið á hrakhólum. Jafnvel hefur forstjórinn átt frumkvæði að þvi, að islenskum listamönnum hefur verið gert kleift að skapa verk, sem annars hefðu h'klega aldrei litið dagsins ljós. Þannig hefur Norræna húsið i stjórnartið Eriks Sönderholm sýnt jákvæöari afstöðu til islenskrar menningarviðleitni en margar þær stofnanir, sem alisl- enskar eiga aö heita og ætlað er aö stuöla að framgangi og út- breiðslu menningar i landinu. Það er ekki sist á tónlistarsvið- inu sem þessi orð eru sannmæli, enda mun engum af fyrri for- stjórum Norræna hússins gert rant til, hefur aldrei verið fjör- meiri og áhugaverðari en i for- stóratið Eriks Sönderholm. I öllu þvi starfi hefur frú Traute, sem sjálf er tónlistarkennari, tekið virkan þátt áf águga og eldmóði. Þau hjón hafa m.a. af þessum sökum eignast marga vini i röð- um islenskra tónlistarmanna, og þeirra verður sárt saknað, þótt enginn vænti annars en góðs af þeim, sem við starfinu tekur. Fjölmennur vinahópur Eriks og Traute Sönderholm mun lengi minnast þeirra með þakklæti og góðar óskir fylgja þeim, er þau nu hverfa til annarra starfa. Jón Þórarinsson Guðrún Gisladóttir fer með aðalhlutverkið I „Við höfum allar sömu sögu að segja.” ■BORGAR^ DíOiO SMIDJUVEGI 1, KÓP. SÍMI 43500 (Útvagtbankahútlnu •uataat I Kópavogi) /#The Pack" Frá Warner Bros: Ný ame'- risk þrumuspennandi mynd um menn á eyöieyju, sem berjast viö áður óþekkt öfl. Garanteruð spennumynd, sem fær hárin til aö risa. Leikstjóri: Robert Clouse (gerði Enter The Dragon) Leikarar: JoeDonBaker.........Jerry Hopi A. Willis......Millie Richard B. Shull. Hardiman Sýnd kl. 5, 7 og 9 tslenskur texti Bönnuö innan 16 ára. //Ljúf leyndarmál" Erotisk mynd af sterkara taginu. Sýnd kl. 11 Stranglega bönnuð innan 16 ára. Nafnskirteini TÓNABÍÓ Simi31182 Manhattan hefur hlotið verö- laun, sem besta erlenda mynd ársins viða um heim, m.a. iBretlandi, Frakklandi, Danmörku og.Italiu. Einnig er þetta best sótta mynd Woo.dy Allen. Leikstjóri: Woody Allen. Aöalhlutverk: Wo<idy Ailen, Diane Keaton. Sýnd kl. 5,7 og 9. Stórkostleg og mjög vel leik- in itölsk-amerisk mynd eftir Bernardo Bertolucci. Mynd sem viða hefur valdið upp- námi vegna auglýsinga á mjög sterkum böndum milli sonar og móður. Aðalhlutverk: Jill Clayburgh og Matthew Barry. Bönnuð börnum innan 16 ára. Sýnd kl. 5 og 9. Stund fyrir strið Ný og sérstaklega spennandi mynd um eitt fullkomnasta striðsskipiheims. Háskólabió hefur tekið i notkun DOLBY STEREO hljómtæki sem njóta sin sérstaklega vel i þessari mynd. Aðalhlutverk: Kirk Douglas, Katharine Ross, Martin Sheen. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Hækkað verö. Trúöurinn Spennandi, vel gerö og mjög dul- arfull ný áströlsk Panavision-lit- mynd, sem hlotiö hefur mikiö lof. — Robert Powell, David Hemmings og Carmen Dunc- al. Leikstjóri: Simon Wincer. Ð0693C POUJfli _mogkian or rruderer? laaaiasimni íslenzkur texti Bönnuð innan 16 ára. Sýnd ki. 3, 5, 7, 9 og 11. Sólbruni Hörkuspennandi ný bandarísk litmynd. um harösnúna tryggingasvikara, meö Farrah Fawcett feguröardrottningunni trægu, Charles Gordin, Art Carney. íalanakur taxti Salur Uönnuó innan 16 ára. Sýnd kl. 3.05, 5.05, 7.05, 9.05, og 11.05. | Farrah Fav H frægu. Char I salur Llí °oo TheMcMasters BURL IVES • BROCK PETERS NANCY KWAN Afar spennandi og viöburöahröö litmynd meö Davld Carradine, Burl Ives, Jack Palance, Nancy Kwan. Bönnuö innan 16 ára. íalenakur texti. Endura. kl. 3.10, 5.10, 7.10, 9.10, ______________11.10. Hjónaband Maríu Braun 3. sýningarmánuöur. Sýnd kl. 3.15, 6.15, og 9.15. Ljósin í lagi - lundin góð Slík áhrif hafa rétt stillt Ijós í umferöinni. IUMFEROAR RÁÐ ★ * ★ , SNEKKJAN ♦ Opid til kl ki. 03.00 ^ * Hin frábæra h/jómsveit KyL. ★ OLIVER ★ * ^ skemmtir í kvöld ^ Halldór Árni verður í diskótekinu * SNEKKJAN ★

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.