Vísir - 07.02.1981, Side 3

Vísir - 07.02.1981, Side 3
Laugardagur 7. febrúar 1981 3 vtsm prestur (japönsk fjölgyöistrú, mætti þy&a sem „vegur guö- anna”). Honum til aðstoðar voru tvær ungar stúlkur. Hin tilvonandi brúöhjón tóku sér stööu fyrir framan litiö borö sem stóö nokkru fyrir framan altariö. Varð mér sérstaklega starsjfnt d brúöina sem iklædd var snjóhvi'tum kimono, nokkru si&ari en hún sjáif. Andlit hennar var sömuleiðis mjaliahvitt fyrir utan varir og augnahár. Byrjaöi nú athöfnin. Var hún m.a. fólgin iþvi að prestur tónaði fram ræöustúf sem konan min tjáöi mér síöar aö hún heföi sjálf ekki skiliö nema að litlu leyti þvi a& hann var á forn japönsku. Ein- hverjar athafnir og orö prests munu þó hafa verið ætlaðar til að fæla burt illa anda og óska þeim brúöhjónum langs og hamingju- riks lifs. Meðhjálparastúlkurnar bárubrúöhjónum nú bakka sem á voru hringar þeirra sem þau siö- an skiptust á og einnig blessaö japanskt sake (hrisgrjóna vin) sem þau dreyptu á. Með þvi voru þau orðin hjón gagnvart guðun- um. Aö þessu loknu báru með- hjálpararnir öllum gestum hiö helga vin til að dreypa á i sætum slnum. Siöan gengu brúöhjónin út á undan okkur gestunum. Var okkurnú visaö inn i veislu- sal. Er allir voru sestir i fyrir- fram merktsæti gengu brúðhjón- in fram eftir salnum og til enda hans að griðar stórri þriggja hæða brúökaupstertu sem þau skáru að ameriskum siö. Við þaö hófst veislan með kampavins skál. Var hún mjög á vestræna visu með fjöidann allan af hnifa- pörum, forréttum, miili og eftir- réttum, skdlum og skálræöum feðra, frænda ættingja og kunn- ingja brúðhjónanna. Þegar viö vorum langt komin meö forréttina var brúöurin, sem hafði brugöiö sér frá, leidd inn klædd rósrauöum kimono með gylltum mittisborða og höfuð- skraut, en rautt mun vera litur nýgiftar brúðar. Er liöa tók á veisluna hurfu brúöhjónin bæði enn á ný úr saln- um til a& skipta um föt. Þaö er vist nokkuö algildur siöur hjá japönum að brúðurin skipti nokkrum sinnum um klæönaö á meöan d brúökaupsveislunni stendur, eöa a.m.k. tvisvar sinn- um eins og i þessu brúökaupi. Brúðguminn losnar hinsvegar við aö skipta um föt eins oft þótt hann skipti stundum á milli japansks og vestræns klæ&naöar eftir að veislan byrjar. Þegar brUðhjónin birtust aftur voru öll ljós slökkt en kastljósi beint aö dyrunum, var hún nú komin i' dökkbláan kjól en hann i smóking meö slaufu. I hendi sinni héldu þau d sprota Sem þau kveiktu meö á kertunum á borö- um allra veislugesta hverju á fæt- ur öðru. Fljótlega eftir þessa athöfn var lokiö viö siðustu ábætina og skálarnar og sta&iö upp frá borö- um. Við brottförina beið hvers gests smá gjöf, postulins skdlar og kaka, en i Japan er viö li&i sá mjög svo sérkennilegi siður aö brúöhjón gefa brúðkaupsgestum gjafir en ekki öfugt. Þar á móti kemur hins vegar aö hver gestur leggur fram peningagjöf sem ætl- ast er til aö hrökkvi a.m.k. fyrir máltið hans og gjöf. Næsta dag flugu siöan brúð- hjónin til Singapúr i brúðkaups- ferö. Þaö sem mér finnst kannski at- hyglisverðast viö þetta brúökaup var hvernig japönskum siðvenj- um og vestrænum var blandaö sgman. Slikt er raunverulega ekkert sérstakt fyrir giftingarat- hafnir heldur má sjá þetta fyrir- bæri hér um bi! á öllum sviðum japansks þjóöiifs i mismikluin mæli. Tokio 1981 01.07 Kagnar Baldursson F/mleikar Fi mleikar L nglingameistai amót F Sí verður Imldiö i iþróttuhúsi Kennaraháskóla islands v/Stakkahlið, sem hér segir. Laugardag 7. febrúar: kl. 10-12 keppni pilta. kl. 13-15 keppni stúlkna. Sunnudag8. febrúar kl. 14 úrslit stúlkna ogpilta. Skemmtileg keppni 8-10 ára fimleikafólks. Fimleikasambandic Nýjung á íslandi VÉLSKÍÐI Nú er auðve/t fyrir unga sem a/dna að komast ferða sinna i snjó og ófærð — bæði i leik og starfi Auðveldur í geymslu og flutningi • Þyngd aðeins 33 kg Sparneytnasta samgöngutækið í vetrarferðum 5 lítra bensíntankur endist í 3 klst. Góð varahluta- og viðgerðarþjónusta CHRYSLER Söluumboð og uppiýsingar: HÖDIR HF. Marme Klapparstig 27 Box 4193 Simi (91)21866 Umboðsmaður á Akureyri: Skálafell s.f. Skáli v/Kaldbaksgötu Simi (96)22255

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.