Vísir - 07.02.1981, Blaðsíða 5

Vísir - 07.02.1981, Blaðsíða 5
Laugardagur 7. febrúar 1981 ■ VlSIR 5 Enga óvini heldur. öllum likaði vel við þau. Amelia vann hjá manninum sinum, hún var einkaritarinn hans. Þau áttu bara einn bil og keyrðu alltaf saman i honum. Þennan morgun var óskaplega heitt svo þau hafa liklega orðið hissa þegar þau sáu að einhver hafði skrúfað rúðurnar i bilnum upp. Hvað um það — þau fóru inn i bilinn og um leið og þau settust: BAMMM! Heil flækja af skröltormum réðist á þau með eldingar- hraða. Við fundum niu risastóra skröltara inni bilnum. Amfetamini hafði verið sprautað i þá alla og þeir voru brjálaðir, þeirbitu hjónin alls staðar: ihálsinn, hand- leggina, eyrun, kinnarnar, lófana. Aum- ingja fólkið. Höfuðin á þeim voru útblásin eins og grasker sem hafa verið máluð græn. Þau hljóta að hafa dáið samstundis. Ég vona það. Ég vona það svo sannarlega. TC: Skröltormar eru ekki sérlega al- gengir á þessu svæði. Ekki svona stórir. Einhver hlýtur að hafa komið þeim inn í bflinn. JAKE: Þaðheldégnú. Frá snákabúgarði i Nogales i Texas. En ég segi þér ekki strax hvernig ég komst að þvi. Hitt er svo annað mál að við vitum i raun- inni ekki hvort Baxters-hjónin fengu senda likkistu. Ég er aftur á móti alveg viss um það, það kemur ekki annað til greina. En þau minntust aldrei á það og við fundum ekkert sem liktist henni. TC: Hún hefur auðvitað eyðilagst i eldin- um. En það voru einhver önnur hjón með þeim? JAKE: Hogans-hjónin. Frá Tulsa. Þau voru kunningjar Baxters- hjónanna og komu i heimsókn. Morðinginn hefur ekki ætlað sér að drepa þau. Það var slys. Það sem gerðist var þetta: Baxters- hjónin voru að smiða sér nýtt og flott hús en það var ófrágengið nema kjallarinn sem var tilbúinn. Roy Baxter var i góðum efn- um, hann hefði vel haft efni á að leigja allt mótelið undir sig meðan verið var að klára húsið. En þau vildu heldur búa i kjallaran- um og eina útgönguleiðin var fellihleri. Þetta var i desember — þremur mánúðum eftir skröltormamorðin. Það eina sem við vitum með vissu er, að Baxters-hjónin buðu Hogans-hjónunum að gista i kjallaranum hjá sér. Og einhvern timann rétt fyrir dög- un braust mikill eldur upp úr kjallaranum og fólkið brann til ösku. Ég meina þetta bókstaflega: brann til ösku. TC: Hefðu þau ekki getað komist út um hlerann? Clem Anderson, hann var af norskum ættum og hafði erft búgarð fyrir utan bæinn eftirföðir sinn. Við vorum saman i skóla þó hann væri að vísu busi þegar ég var að klára. Hann giftist gamalli kærustu minni, það er yndisleg stelpa, sú eina sem ég hef séð með ljósrauð augu. Stundum þegar ég var fullur fór ég að röfla um Amy og ljós- rauðu augun hennar og konunni minni fannst það ekkert sniðugt. Alla vega, Clem og Amy giftu sig, settust að á búgarðinum og áttu sjö krakka. Ég borðaði hjá þeim kvöldið áður en Clem var myrtur og Amy sagði að hún sæi eftir þvi einu i lifinu að hafa ekki átt fleiri börn. Ég hafði kynnst Clem mjög vel eftir að ég fór að vinna aðþessumáli. Hann var dálitið villtur, drakk mikið en hann var klár og kenndi mér allt sem hægt var um þennan bæ. Eina nóttina hringdi hann i mig, hingað á mótelið. Hann virtist vera eitthvað æstur. Hann sagðist þurfa að hitta mig strax svo ég sagðihonum að koma bara. Ég hélt hann væri fullur en það var ekki það, hann var hræddur. Veistu út af hverju? TC: Jólasveinninn hafði sent honum gjöf. JAKE: Umhumm. En sjáðu til, hann vissi ekkert hvað hún þýddi. Likkistan. Eða þá að hún tengdist hinum morðunum. Við höfðum aldrei upplýst það. Svo þegar hann kom og sýndi mér nákvæma eftirlikingu af likkistunni sem þú ert með i höndunum, þá vissi ég að vinur minn var i mikilli hættu. Hann hafði fengið likkistuna i pósti, nafnið hans og heimilisfang voru skrifuð með svörtu bleki á brúnan umbúðapappir. TC: Og það fylgdi mynd af honum? JAKE: Já. Og égskal lýsa henni fyrir þér af þvi það skiptir máli i sambandi við hvernig hann dó. Ég held reyndar að morð- inginn hafi verið að skemmta sér, gefa i skyn hvernig hann myndi drepa Clem. Á myndinni sat Clem i jeppa, nokkurs konar jeppa, sem hann hafði sjálfur smiðað. Það varekkerthús á honum og engin framrúða, yfirleitt ekkert til að vernda bflstjórann. Þetta var bara vél á fjórum hjólum. Hann sagðist aldrei hafa séð myndina áður og hafði ekki hugmynd um hver gæti hafa tek- ið hana. Nú var ég i vanda. Atti ég að trúa honum fyrir öllu saman? — segja honum að Roberts-hjónin hefðu fengið svona stuttu áður en þau voru myrt og Baxters-hjónin sennilega lika. Á vissan hátt var vænlegra að segja honum ekki neitt, þannig gæti hann kannski fært okkur á slóö morðingj- ans ef við fylgdumst rækilega með honum. TC: En þú ákvaðst að segja honum allt af létta? JAKE: Já. Af þviað nú var ég viss.hand- viss, um að það væri tengsl milli morðanna. Og mér fannst að Clem yröi að fá að vita Capote. mér aftur og loks virtist Clem ekki hafa neinar áhyggjur lengur. Sex mánúðir liðu. Amy hringdi og bauð mér i mat. Það var hlý sumarnótt. Loftið var fullt af eldflug- um. Sumir krakkanna hlupu fram og aftur og reyndu að veiða þær i glerkrukkur. Þeg- ar ég var að fara labbaði Clem með mér niðrað bilnum minum. Litil á rann meðfram stignum upp að bæn- um og Clem sagði: ,,Þú manst að við vor- um að leita að tengsl- um. Mér datt dálitið i hug um daginn. Ain”. Hvaða á, spurði ég og hann benti á ána sem rann framhjá okkur. „Það er flókin saga og sennilega heimskuleg”, sagði hann. ,,En ég segi þér hana næst þegar við hittumst”. Auðvitað sá ég hann aldrei framar. Alla vega ekki lifandi. TC: Það er eins og hann hafi heyrt i þér. JAKE: Hver? TC: Jólasveinninn. Það er skrýtið, meina ég, aðeftir alla þessa mánuði minnist Clem Anderson á ána og daginn eftir er hann p L * „ r * . 4" i .ig JAKE: Held nú ekki. Brennuvargurinn, morðinginn, hafði hlaðið sementhellum of- an á hann. King Kong hefði ekki getað loft- að þeim. TC: En einhver tengsl hljóta að vera milli brunans og skröltormanna. JAKE: Það var hægara sagt en gert að finna þau. Ég fann þau alla vega ekki. Við létum fimm stráka vinna við málið og ég er viss um að við vissum orðið meira um George og Ameliu Roberts, um Baxters- hjónin og um Hogans-hjónin en þau vissu nokkurn timann sjálf. Ég er til dæmis sann- færður um að George hafði ekki hugmynd um að konan hans hafði átt krakka þegar hún var 15 ára en gaf einhverju fólki hann. Auðvitað þekkja allir alla meira eða minna á þetta litlum stað en fjandinn hafi það: ég fann ekkert sem tengdi þetta fólk saman. Oghvaöþá aðég vissi af hverju þau höfðu verið myrt eða af hverjum. Ég þekkti ekkert þeirra, hafði ekki einu sinni heyrt minnst á þau áður en þau voru myrt. En sá næsti sem var drepinn var vinur minn. hvað væri á seyði. En þegar ég hafði út- skýrt þetta fyrir honum fékk hann taugaá- fall. Ég varð að gefa honum utanundir. Svo lagðist hann á rúmið og byrjaði að snökta: „Einhver ætlar að drepa mig! Hvers vegna? Hvers vegna?” Ég reyndi að hug- hreysta hann og spurði hann hvað hann ætti, sameiginlegt með hinu fólkinu. Hann vissi það ekki, hann vissi ekkert. Ég gaf honum að drekka þangaö til hann var orðinn svo fullur að hann sofnaði. Hann var hérna um nóttina. Um morguninn var hann rólegri en gat samt ekki fundiö neitt sem tengdi sig við hina sem höfðu fengið likkistur. Ég sagði honum að minnast ekki á þetta við konuna sina og hafa engar áhyggjur, ég myndi sjá til þess að ekkert kæmi fyrir. Ég fékk tvo stráka i viðbót til að elta hann um allt. TC: Og hvað var langt þangað til likkistu- smiðurinn stóð við loforð sitt? JAKE: Djöfull held ég hann hafi notið sin? Hann var eins og veiðimaður að þreyta lax. Skrifstofan tók strákana fljótlega frá drepinn, án þess að geta sagt þér nokkurn skapaðan hlut. JAKE: Hvernig ertu i maganum? TC: Sæmilegur. JAKE: Ég ætla að sýna þér ljósmyndir. En þú ættir aö fá þér stóran sopa fyrst. Þú þarft á þvi að halda. (Myndirnar voru þrjár og teknar á svart- hvita filmu að nóttu til með flassi. A fyrstu myndinni var heimssmíðaður jeppi Ander- sons. Hann hafði oltið út fyrir þröngan troðning og framljósin loguðu ennþá. Næsta mynd var af höfuðlausu liki sem lá á sama troðningi, það var hauslaus maður i leður- stigvélum, gallabuxum og ullarskinns- jakka. Siðasta myndin af af höfði fórnar- lambsins. Skurðlæknir hefðu ekki getað sniöið það snyrtilegar frá bolnum. Það lá við vegarbrúnina eins og einhver prakkari hefði fleygt þvi þangað. Augu Clem Ander- sons voru opin og þau virtust ekki vera dá- in, bara dálitið stjörf. Fyrir utan skrámu á enninu var andlitiö óskaddað, hann virtist rólegur og friðsæll þar sem hann starði á mig út úr myndinni sakleysislegum, fölum Norðmannaaugum sinum. Meðan ég skoð- aöi myndirnar hallaði Jake sér yfir öxlina á mér og leit á þær lika.) JAKE: Það var farið að skyggja. Amy bjóst við Clem heim i kvöldmatinn. Hún sendi einn strákanna niður á veginn til að taka á móti honum. Það var strákurinn sem fann hann. Fyrst sá hann bilinn. Hundrað metrum lengra fann hann likiö. Hann hljóp heim til sin og mamma hans hringdi i mig. ÞU getur nærri að ég blótaöi sjálfum mér i sand og ösku. Þegar við komum á staðinn fann einn strákanna frá skrifstofunni höfuöiö. Það lá góðan spöl frá lfkinu. Reyndar lá það nákvæmlega þar sem vir- inn hafði lent á þvi. TC: Virinn, já. Ég skildi aldrei þetta með virinn. Það er svo — JAKE: Svo sniðugt? TC: Meira en það. Ósvifiö. JAKE: Ekkert ósvifið við það. Vinur okk- ar hafði barasta upphugsað hentugan máta til að myrða Clem Anderson án þess að nokkur vitni væru aö þvi. Hann þurfti að visu að reikna þetta töluvert nákvæmlega út. TC: Hann strengdi virinn milli tveggja trjáa? JAKE: Milli trés og simastaurs. Þetta var niðsterkur stálvir og beittur eins og rakvélarblað. Næstum ósýnilegur, jafnvel i dagsljósi. En I rökkrinu, þegar Clem hafði beygt út af aðalveginum, var ekki mögu- leiki á að sjá hann. Virinn lenti á honum ná- kvæmlega þar sem hann átti að lenda: undir kjálkunum. Og skar höfuðið rétt sisona af. TC: Ef eitthvað hefði nú farið úrskeiðis? JAKE: Hvað þá? Hann hefði bara reynt aftur, þangað til honum heppnaöist aö drepa Clem. TC: Þaö er þetta sem er ósvifið. Honum heppnast alltaf það sem hann ætlar sér. JAKE: Já og nei. En við komum að þvi siðar. (Hann virtist þreyttur. Ég spuröi hvort hann vildi fara að sofa en hann neitaði, sagðist aldrei fara i bólið fyrr en um mið- nætti og nú væri klukkan bara niu.) TC: Ertu einn hérna? JAKE: Nei, guð minn góður, ég yröi vit- laus. Ég tek vaktir með tveimur öðrum. En ég er við stjórnpölinn. Það er lika það sem ég vil. Ég ætla mér að negla þennan gæja þó það verði mitt siðasta verk. Það kemur að þvi að hann gerir mistök. Reyndar hefur hann þegar gert mistök þó ekki geti ég sagt að morðið á dr. Parsons hafi verið eitt þeirra. 'TC: Likskoðaranum? JAKE: Já Horaða óþolandi likskoðaran- um með herðakistilinn. TC: Hvernig var þetta aftur? Fyrst hélstu aö hann hefði framið sjálfsmorð? JAKE: Ef þú hefðir þekkt Dr. Parsons hefðir þú lika haldið að þetta væri sjálfs- morð. Hann haföi allar hugsanlegar ástæð- ur til að drepa sig. Eða láta drepa sig. Kon- an hans var virkilega falleg og hann hafði gert hana háða morfini, þannig fékk hann hana til að giftastsér. Hann var okurlánari. Leynifóstureyðingarlæknir. Ég veit ekki hvað margar gamlar ruglaðar kerlingar arfleiddu hann að öllum eignum sinum. Hann var þorpari. TC: Þér féll ekki við hann? JAKE: Engum féll viö hann. En þetta var vitleysa i mér: hann hafði sosum enga ástæðu til að drepa sig. Guð var á himnum og slólin skein á Ed Parsons daginn út og inn. Eina sem var að honum voru maga- truflanir og hann bar alitaf á sér glas með Maalox-töflum. At nokkrar á dag. TC: Og samt uröu allir undrandi þegar þeir fréttu að Dr. Parsons hefði drepið sig? JAKE: Nei, eiginlega ekki. 1 fyrstu hélt enginn að hann hefði drepið sig. TC: Fyrirgefðu Jake, þetta er fariö að vefj- ast fyrir mér. En segðu mér, hvað var langt milli jarðarfara? Milli jaröarfara Clem Andersons og Parsons? JAKE: Fjórir mánuðir. Um þaö bil. TC: Og sendi jólasveinninn Dr. Parsons pakka? JAKE: Biddu, biddu. Þú ferö of fljótt yfir sögu. Daginn sem hann dó — já, við héldum bara að hann hefði dáiö. Rétt sisona. Hjúkrunarkonan hans fann hann á gólfinu á skrifstofunni hans. Alfred Skinner, annar lækniri bænum, sagði að likastil hefði hann fengið hjartaslag en krufningin myndi skera úr um það. Sama kvöldið hringdi hjúkrunarkonan i mig. Hún sagði að koma Parsons vildi tala við mig og?g sagöi ókei. Hún tók á móti mér i svefnherberginu en mér skilst að hún fari sjaldnast þaðan. Morfinið bindur hana liklega niður. Hún er enginn aumingi, ekki i venjulegum skiln- ingi, hún er indælis kona og hraustleg i þokkabót. En augun eru of stór, of daufleg. Hún lá i rúminu og studdi bakiö við kodda. Ég tók eftir nöglunum á henni, þær voru langar og snyrtilegar, hendurnar sömuleið- is. En það sem hún hélt á var hins vegar ekki snyrtilegt. TC: Gjöf? JAKE: Einmitt. Nákvæmlega eins og hinir höfðu fengið. Hún sagði: „Ég held að eigin- ..................... —p

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.