Vísir - 07.02.1981, Blaðsíða 31

Vísir - 07.02.1981, Blaðsíða 31
Laugardagur 7. febrúar 1981 Lisiamannalaunum 1981 úthlutað: Fækkaö um 31 listamann Listamannalaunum var úthlut- Tóku nefndarmenn fram er út- að i gær og hlutu að þessu sinni 155 menn listamannalaun, eða 31 færri en i fyrra. Fækkunin varð öll i lægri flokknum, þar sem i efri flokknum fjölgaði um fimm lista- menn. í efri flokk eru niutiu listamenn * og hlýtur hver þeirra 6.600 krón- ur. Sex menn hafa flust upp i efri flokk og eru það Árni Björnsson, Einar Hákonarson, Jón Dan, Sig- urður A. Magnússon, Þuriður Pálsdóttirog örlygur Sigurðsson. Fimmtiu og þrir eru i neðri flokknum og fær hver þeirra 3.300 krónur. Tólf nýir listamenn eru i neðri flokki, þeir Björgvin Hall- dórsson, Egill Friðleifsson, Einar Jóhannesson, Helgi Vilberg, Hilmar Jónsson, Ingibjörg Páls- dóttir, Jóhann Björnsson frá Húsavik, Kjartan Ólafsson, Hoar Kvam, Sigrún Eldjárn, Snorri Sigfús Birgisson og Þórður Tómasson. Eins og sjá má af þessu varð Björgvin Halldórsson valinn full- trúi popptónlistarmanna að þessu sinni, en það hefur verið venja Úthlutunarnefndar Lista- mannalauna undanfarin ár að skipa einn poppara i neðri flokk- inn. _____________ hlutun Listamannalauna var lýst i gær, að ekki hefði rikt einhugur innan nefndarinnar um val popp- ara né hvort yfirleitt ætti að heiðra tónlistarmann með þessum hætti. Sögðu nefndar- menn, aö það sýndi best frjáls- lyndi nefndarinnar að poppari skyldi hljóta listamannalaun og jafnframt sýndi það tónlistar- smekk nefndarmanna að aðeins einn skuli vera valinn. Að þessu sinni er enginn leikari I neöri flokknum og aðeins átta alls, og enginn arkitekt hlaut listamannalaun. Formaður úthlutunarnefndar, Magnús Þórðarson, tók þaö fram, að ástæðan fyrir þvi að færri listamenn hefðu hlotið laun aö þessu sinni, væri sú, að ráðstöfun- arfé nefndarinnar færi i raun si- lækkandi og þvi hefði náðst sam- komulag í nefndinni um að fækka þeim sem fengju úthlutun. I nefndinni eiga sæti Magnús Þórðarson, formaður, Jón R. Hjálmarsson, Bessi Jóhanns- dóttir, sr. Bolli Gústavsson, Gunnar Stefánsson, Halldór Blön- dal og Sverrir Hólmarsson. —ATA VÍSIR 3) (Jthlutunarnefnd Listamannalauna. Lengst til vinstri er séra Bolli Gústavsson, þá Sverrir Hólmars- son, Halidór Blöndal, Magnús Þóröarson, Jón R. Hjálmarsson, Bessi Jóhannesdóttir og Gunnar Stefánsson. Vfsismynd: EÞS ivær ríkisverksmlðjur slöðvasi el vélstjérar fara I verkfali Ef boðað verkfall vélstjóra kemur til framkvæmda á mið- nætti á sunnudag, stöðvast Aburðarverksmiöja rikisins og Sementsverksmiðja rikisins. Kisiliðjan við Mývatn stöðvast hins vegar ekki, þar sem Vél- stjórafélag íslands er ekki samn- ingsaðili þar. Að sögn Guðmundar Guð- mundssonar tæknilegs fram- kvæmdastjóra Sementsverk- smiðjunnar á Akranesi vinna 6-7 vélstjórar þar og 12 i Áburðar- verksmiöjunni. Kvaöst Guð- mundur búast við, aö fulltrúar Vélstjórafélagsins yrðu kallaðir, ásamt viðsemjendum sinum til rikissáttasemjara um helgina. Yrði freistað þess, að ná sam- komulagi áðugjsn verkfallið skylli a- — JSS verður hætl við kaupin á Þorshalnartogaranum?: Sérsiök könnun á hvernlg siaðið var að kaupunuml „Rikisstjórnin bað Fram- kvæmdastofnun að skoða hvort hún teldi að eðlilega hefði verið staðið að þessum kaupum”, sagði Steingrimur Hermannsson sjávarútvegsráðherra, þegar fréttamaður spurði nýrra tíðinda af Þórshafnartogaranum, ,,og þeim breytingum, sem okkur er sagt að á honum þurfi að gera. Gangur málsins var sá, að fyrst mæla þingmenn kjördæmisins með kaupum, siðan Fram- kvæmdastofnun og henni er falin forsjá málsins. Eins og ég sagði i Annar myndatökudagurinn i samkeppni Visis, Hans Petersen hf. og Ljósmyndarafélags íslands um „skemmtilegustu barna- myndina” er næsta mánudag. Eru foreldrar og forráðamenn barna á aldrinum 6 mánaða til 5 ára hvattir til að fara meö börn sin á ljósmyndastofur og gera börnin þátttakendur. Ekki þarf að panta tima fyrirfram. Ljósmyndastofurnar, sem til- kynnt hafa þátttöku eru Effect ljósmyndir, Litljósmyndir, Ljós- myndastofa Gunnars Ingimars, Ljósmyndastofa Þóris, Nýja myndastofan og Stúdió Guð- mundar allar i Reykjavik, Leó — ljósmyndastofa tsafirði, Ljós- myndastofa Óskars Vestmanna- eyjum, Ljósmyndastofa Páls og Norðurmynd Akureyri, Ljós- myndastofa Péturs Húsavik, Ljósmyndastofa Suðurlands Sel- fossi, Ljósmyndastofa Suður- nesja Keflavik, Myndsmiðjan Kópavogi og *Stefán Pedersen Sauöárkróki. —KÞ þingi, hlýtur rikisstjórnin að endurskoða sina afstöðu, ef þessir aðilar draga tillögur sinar til baka. Ég hef ekki haft nein afskipti af kaupum þessa togara eftir að Framkvæmdastofnun var falið þetta mál. Ráðuneytið hefur ekki með það að gera, hvernig útgerð- armenn haga sinum kaupum. Við litum svo á, að Fram- kvæmdastofnun hafi borið að fylgjast með hvernig að þessu var staðið. Við erum ekki með þessu að ákveða að hætt verði við kaup- Kvikmyndahátíð '81: Sýningar á mynflum Keatons Sýningar á myndum Buster Keaton hjá Kvikmyndahátið hefj- ast á morgun i Regnboganum. Það er Raymond Rohauer, fé- lagi og fyrrum samstarfsmaður Keatons sem mun fylgja mynd- unum úr hlaði með litlum for- mála, en Rohauer vann ómetan- legt starf i þágu kvikmynda er hann leitaði uppi verk Keatons og bjargaði þeim frá skemmdum. Á morgun mun Rohauer kynna tvær stuttar myndir, sem nýbúið er að gera upp og ekki hafa verið sýndar siðan á framleiðsluári. Þetta eru myndirnar Fangi nr. 13 frá árinu 1921 og Ástarhreiörið frá 1923. —KÞ Yfir 30 árekstrar í Dorgar- akstrinum Yfir þrjátiu árekstrar voru i umferðinni i Reykjavik i gær. Slys urðu ekki á mönnum en tjón á bilum nokkuð i fjölda tilvika. Mesti annatimi hjá lögreglunni vegna árekstra var frá um klukk- an 13-17 en þá áttu 17 árekstrar sér stað. in, við erum bara að biðja stofn- unina að skoða vandlega hvort eðlilega sé að kaupunum og breytingunum staðið. Okkur finnst veröið orðið of hátt, ég hef áhyggjurvegna staðarins, að hann geti ekki rekið þetta. Ég vil taka þaö fram, að ég er þeirrar skoðunar eftir að hafa skoðað málið itarlega, að það vantar fisk og ég held að skikkan- legur togari væri ekkert vitlaus fyrir þá,” sagði sjávarútvegsráð- herra. SV Leiðrétting „Vegna þess munar vinna Kanadamenn markað af íslend- ingum”, átti að standa sem svar Guðjóns ólafssonar við spurningu fréttamanns um hvort islending- um tækist að halda óbreyttum verðmismun á flökum á Banda- rikjamarkaði, i baksiðufrétt Visis i gær. Ein lina féll niður einhvers staðar i vinnslu blaðsins og gerði setninguna æði meiningarlitla. sv Leiðrétting Tvær villur slæddust inn i frétt um atvinnuástand i Grindavik. Sagt var að Hópsnes hf. ætti hlut i togaranum á staðnum. Þetta átti að vera Hraðfrystihús Þórkötlu- staða hf. Eins skal tekið fram, að Jón G. Björnsson er formaður Verkalýðsfélagsins i Grindavik. Eru viðkomandi beðnir velvirð- ingar á þessum mistökum. Aðalfundur Torfusamiakanna Aðalfundur Torfusamtakanna verður haldinn i Norræna húsinu á morgun klukkan 15. Á fundinum mun stjórn sam- takanna gera grein fyrir starfi þeirra frá siðasta aðalfundi. Reikningar samtakanna verða lagðir fram og tillögur stjórnar að breyttum lögum samtakanna bornar undir atkvæði. Þá verða einnig ræddar hugmyndir um framtiðarskipan mála varðandi endurbyggingu Bernhöftstorfu, —KÞ KOKOSTEPPI Tegund: MAMBO með gúmmíbotni Breidd: 200 cm Litir: Natur Verð pr. ferm kr. 162 Tegund: PANAMA Breidd: 200 cm, 100 cm og 70 cm Litur: Natur Verð: pr. ferm kr. 148 epcil Síðumúla 20 - 105 Reykjavik - simi 91-36677 Þar sem tískan byrjar I I I Vinsamlega sendið mér nýja FREEMANS pontunarlistann í póstkröfu Nafn: heimili: staður: Sendist til: FREEMANS of London. Reykjavikurvegi 66. 220 Hafnarfirði. LONDON

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.