Vísir - 07.02.1981, Blaðsíða 12

Vísir - 07.02.1981, Blaðsíða 12
12 VÍSLR Laugardagur 7. febrúar 1981 ÞEYR I VESTURBÆNUM Tónleikar Hótel Sögu.Súlnasal. Miövikudaginn 28. jan. kl. 21.00-23,48 — Jói á hakanum — Þeyr — Þaö var dágóöur hópur unglinga samankominn við anddyri Súlnasals Bænda- hallarinnar þegar undir- ritaöan bar aö garöi um niu ieytið miðvikudags- kvöldiö28. jan. Ein stúlkan spuröi í hæðnistón: //Ertu með passa"? og viti menn i dyrunum stóð ábúðarfullur dyravörður og heimtaði skilríki/ nokkuö sem hefur ekki hent mig i mörg ár. Þar sem ég var ekki með skilríkin á mér þurfti nokkuð þref áður en maðurinn félst á að ég hlyti að hafa nokkur ár um tvítugt. Þegar inn var komið fékk ég aðgöngu- miðann afhentan og rétti hann i átt til dyravarðar sem stóð við hlið nokkuð sem búið var að koma fyrir við enda stigans sem liggur upp í Súlnasal. Aðrar eins varúðarráðstafanir hef ég ekki áður séð gerðar á þessum stað, en trúlega hafa forráðamenn hússins átt von á hinu versta frá Þey og áhangendum þeirra. Hakaskak Tónleikahaldib hófst á þvi að Jói á hakanum, ný hljómsveit skipuö nemendum úr MH var kynnt til leiks. Tónlistin sem Jói karlinn framdi var heldur af lé- legra taginu, þ.e. ef hægt er þá aö tala um tónlist. Trommarinn hélt ekki takti og það sem hljómborös- leikararnir voru aö gera, var fremur ómerkilegt. óhljóöin sem einn meölimurinn gaf frá sér minntu helst á þegar hermt er eftir spangóli úlfs sem liggur hel- særöur og biöur dauða sins. Mót- tökurnar voru einnig i samræmi við þetta og eftir þrjár tillögur að lögum hurfu Jóarnir af sviðinu. Þaö þurfti smá tilfæringar á sviöinu áður en Þeyr kom fram. Hljómsveitin hefur tekiö nokkr- um breytingum frá þvi hún kom fyrst fram. Gitarleikarinn Jó- hannes Helgason og söngkonan Elin Reynisdóttir eru hætt, en i þeirra stað er Þorsteinn Magnús- son fyrrum meðlimur Eikar kom- inn á gitar. Steini lék aö visu nokkuö á plötu Þeys sem út kom um jólin, en nú er hann orðinn fastur meðlimur. Magnús söngv- ari er hættur aö leika á pianóið, i þ.m. aö sinni og leggur aöal- áherslu á sönginn. Er þetta til bóta þvi sifelldar tilfæringar meö hljóönemann til og frá pianóinu slitu dagskrá Þeys allverulega i sundur áður fyrr. Reyndar eru tafir og snúningar ennþá mjög til baga hjá Þey og brjóta stemmninguna nokkuð niöur i salnum, en þessir annmarkar eru trúlega aöeins byrjunaröröug- leikar sem koma má i veg fyrir meö aukinni æfingu. Vaxandi Tónlist sú sem Þeyr flutti var

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.