Vísir - 07.02.1981, Page 20

Vísir - 07.02.1981, Page 20
Raðaðu upp tiu smápeningum eins og sést á myndinni. Geturðu snúið þrihyrningnum við með þvi að færa aðeins 3 peninga? GÁTUR 7. Hvað er það sem svifur um án þess að hafa fætur eða vængi? 8. Ég heyri alit en segi ekkert. Hver er ég? 9. Hvað er það, sem getur bæði í'arið i gegnum náiarauga og yfir hæsta hús? 10. Hvað er það, sem byrjar á átta og end- ar á sjö? Svör við gátum. '18 '01 '!|Siu3jc|os '6 •cj/Cg -8 •*MS 'L 'tB0 '9 •Qcddoi! ■ ’IM3 Jnjog snn jA'p uigug g •uininjæj lunuiij jijjAt - j JSBUI05| ||IA UUEIJ QE IA(J JV i: N Q!|BUlgjOJJ I 1. Hver hefur alltaf siðasta orðið? 2. Á hverju byrjar nóttin og á hverju endar dagurinn? 3. Aí hverju hoppar skógarþrösturinn yf- ir götuna? 4. Hvað gerir storkur- inn þegar hann stendur á einum fæti? 5. Hvaða dýr geta hoppað hærra en hús? 6. Hvað finnur þú i tómum vasa? d.niii Björn bóndi i Bæ átti góðan fjárhund. Það var tik, sem hét Bitra. Hún átti hvolp, sem ^var kallaður Skuggi. Hann fylgdi Bitru um allt og þvældist fyrir fénu. „Farðu h ei m , Skuggi”, sagði Björn. En Skuggi hlýddi ekki. Hann vildi fá að vera með. Bitra ýtti við honum. Þá fór Skuggi,. En hann hafði ekki farið langt, þegar hann sá lamb, sem hafði flækt sig i virflækju. Skuggi fór strax að hjálpa lambinu og honum tókst að hjálpa þvi, en rispaði sig um leið á virnum. Það var samt ekkert alvarlegt, og Skuggi rak lambið inn i fjárhópinn, alveg eins og mamma hans hefði gert. Björn bóndi var ánægður með að Skuggi hafði komið með lambið i hópinn. „Þessi hvolpur verður einhvern tima góður fjárhundur,” sagði hann. Skuggi skildi að bóndinn var að hrósa honum og hann varð glaður og hreykinn. Skemmti- lcgir leikir Seglgarn er fest við stól eins og sést á myndinni. Dós eða stórt pappamál er sett á gólfið miðja vegu milli stólanna og. keppandinn sest á annan stól- inn og heldur i endana á seglgarninu. Litill bolti er látinn renna eftir snúrunni, þar tii hann kemur yfir dósina. Þá á að færa seglgarnspottana sundur, svo að boltinn detti og helst á hann að setta ofan í dósina. En það er ekki mjög auðvelt, að minnsta kosti fyrst, en æfingin skapar meistarann. Sá vinnur i leiknum, sem I fæstum til- raunum á stystum tima eða kemur fjórum boltum ofan I dósina. t þessum leik notar hver þátttakandi þrjá blyanta, band og toma flösku. Band er bundið við blýantana og flöskunum raðað á gólfið. Þátttakendur standa svo i vissri fjarlægð frá flöskunum og reyna að sveifla bandinu með blýantinum þannig aö blýanturinn lendi ofan i flöskunni. Flöskurnar verða að vera nokkuð stórar eöa blýantarnir litlir til þess að blýantarnir fari alveg ofan i flöskuna og hver þátt- takandi á að koma þremur blýöntum ofan I sina flösku. Ef engum tekst það, vinnur sá, sem kemur tveimur eöa jafnvel bara ein- um blýpnti ofan i flöskuna.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.