Vísir - 20.03.1981, Page 4
4
Föstudagur 20. mars 1981
AUGLÝSING
um aðalskoðun bifreiða í Hafnarfirði,
Garðakaupstað, á Seltjarnarnesi og í
Kjósarsýslu í marz, apríl, maí og júní
Skoðun fer fram sem hér segir:
Mosfells- Kjalarness
Mánudagur
Þriöjudagur
Miövikudagur
Fimmtudagur
Skoðun fer fram við
hreppi.
Seltjarnarnes:
Mánudagur
Þriöjudagur
Miövikudagur
og Kjósarhreppur:
6. apríl
7. apríl
8. aprll
9. aprfl
Hlégarð i Mosfells-
30. marz
31. marz
1. april
Skoðun fer fram við iþróttahúsið.
Hafnarf jörður, Garðakaupstaður og
Bessastaðahreppur:
Mánudagur 13. aprfl G- 1 — G- 150
Þriðjudagur 14. aprfl G- 151 —* G- 300
Miðvikudagur 15. april G- 301 — G- 450
Þriðjudagur 21. april G- 451 — G- 600
Miðvikudagur 22. april G- 601 — G- 750
Föstudagur 24. april G- 751 — G- 900
Mánudagur 27. april G- 901 — G-1050
Þriðjudagur 28. april G-1051 — G-1200
Miðvikudagur 29. aprfl G-1201 — G-1350
Fimmtudagur 30. april G-1351 — G-1500
Mánudagur 4. mai G-1501 — G-1650
Þriðjudagur 5. mai G-1651 — G-1800
Miðvikudagur 6. mai G-1801 — G-2000
Fimmtudagur 7. mai G-2001 — G-2200
Föstudagur 8. mai G-2201 — G-2400
Mánudagur 11. mai G-2401 — G-2600
Þriðjudagur 12. mai G-2601 — G-2800
Miðvikudagur 13. mai G-2801 — G-3000
Fimmtudagur 14. mai G-3001 — G-3200
Föstudagur 15. mai G-3201 — G-3400
Mánudagur 18. mai G-3401 — G-3600
Þriðjudagur 19. maí G-3601 — G-3800
Miövikudagur 20. mai G-3801 — G-4000
Fimmtudagur 21. mai G-4001 — G-4200
Föstudagur 22. mai G-4201 — G-4400
Mánudagur 25. mai G-4401 — G-4600
Þriðjudagur 26. mai G-4601 — G-4800
Miðvikudagur 27. mai G-4801 — G-5000
Föstudagur 29. mai G-5001 — G-5200
Mánudagur 1. júni G-5201 — G-5400
Þriöjudagur 2. júni G-5401 — G-5600
Miðvikudagur 3. júni G-5601 — G-5800
Fimmtudagur 4. júni G-5801 — G-6000
Föstudagur 5. júní G-6001 — G-6200
Þriðjudagur 9. júni G-6201 — G-6400
Miðvikudagur 10. júní G-6401 — G-6600
Fimmtudagur 11. júni G-6601 — G-6800
Föstudagur 12. júni G-6801 — G-7000
Mánudagur 15. júni G-7001 — G-7200
Þriðjudagur 16. júni G-7201 — G-7400
Fimmtudagur 18. júni G-7401 — G-7600
Föstudagur 19. júni G-7601 — G-7800
Mánudagur 22. júni G-7801 — G-8000
Þriðjudagur 23. júni G-8001 — G-8200
Miðvikudagur 24. júni G-8201 — G-8400
Fimmtudagur 25. júni G-8401 — G-8600
Föstudagur 26. júni G-8601 — G-8800
Mánudagur 29. júni G-8801 G-9000
Þriöjudagur 30. júni G-9001 G-9200
Skoðun fer fram við Suðurgötu 8, Hafnar-
firði.
Skoðunferfram frá kl.8.15 — 20.00 og 13.00
— 16.00 á öllum skoðunarstöðum.
Festivagnar, tengivagnar og farþega-
byrgi skulu fylgja bifreiðum til skoðunar.
Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna
leggja fram fullgild ökuskirteini. Sýna ber
skilriki fyrir þvi, að bifreiðaskattur og vá-
trygging fyrir hverja bifreið sé i gildi. At-
hygli skal vakin á þvi að skráningarnúmer
skulu vera læsileg.
.Vanræki einhver að koma bifreið sinni til
skoðunar^á auglýstum tima, verður hann
látinn sæta sektum samkvæmt umferðar-
lögum, og bifreiðin tekin úr umferð hvar
sem til hennar næst.
Framhald bifreiðaskoðunar i umdæminu
„ verður auglýst siðar.
Þetta tilkynnist öllum þeim, sem hlut eiga
að máli.
Bæjarfógetinn i Hafnarfirði, Garðakaup-
stað og á Seltjarnarnesi. Sýslumaðurinn i
Kjósarsýslu, 17. marz 1981
Einar Ingimundarson.
VÍSLR
Eru Norðmenn
orðnir of háð-
ir olíunni?
Norðmönnum er að lærast það
smám saman, að oliuauðurinn i
Norðursjónum er ekki aðeins til
blessunar. Það þykja fylgja ýms-
ir smábögglar þessu skammrifi.
Efnahagslif Noregs er oft tekið
sem dæmi um hægfara en þó
trausta hagsæld, þar sem malað
er jafnt og þétt gull, meðan
kreppan sækir að öðrum.
Framámenn i noskum stjórn-
málum og ýmsir sérfræðingar
rikisstjórnarinnar hafa samt orð-
ið af þvi vaxandi áhyggjur, að
undir svörtum oliustraumnum
dyljist mönnum, hver hnignun
eigi sér stað i hefðbundnari at-
vinnugreinum Norðmanna.
Knut Getz Wold, seðlabanka-
stjóri þeirra Norðmanna, sagði
nýlega, að horfurnar hjá meiri-
hluta fyrirtækja i eldri atvinnu-
rekstri væru hreint ekki uppörv-
andi.
Gro Harlem Brundtland, hinn
nýi forsætisráðherra Noregs,
sagði i viðtali við frettamann
Rauters á dögunum, að draga
mundi Ur mikilvægi margra iðn-
greina, á þessum og komandi ár-
um. Bót i máli væri þó það, að
ýmsar þjónustuiðngreinar mundu
eflast vegna aukins athafnalifs
undan ströndum.
Löngu áður en olian kom til
sögunnar og gasið úr Norðursjón-
um reyndu Norðmenn að hafa til
hnifs og skeiðar með útflutningi
þessara hefðbundnari fram-
leðslugeina. Það voru fiskafurðir
sjávarútvegsins, ný skip skipa-
smiðastöðvanna, hráefni ýmis og
málmar og timbur. — Eftir að oli-
an kom til sögunnar hafa þeir
reynt að verða ekki of háðir oliu-
framleiðslunni. Búmannshygg-
indi þeirra vöruðu þá við þvi að
treysta einvörðungu á það, sem
kynni að leynast óséð á land-
grunninu undir úthafinu. Enda ó-
fyrirséð, hve lengi sú uppspretta
entist.
Mörgum hagfræðingum og
iðjuhöldum Noregs þykir samt,
sem helst til langt hafi þróast i þá
áttina, sem menn vildu varast. —
Frú Brundtland hefur þó and-
mælt þessu og fullyrðir, að þvi
farifjarriað Noregur eins og sjó-
fuglinnhafi misst flughæfnisina i
snertingunni við oliuna. Nú sex
mánuðum fyrir kosningar vill
hún, að verkamannaflokkurinn,
sem situr i minnihlutastjórn,
stefni að þvi að fara bil beggja.
Nýti vel oliubrunninn við strönd-
ina, en gæta um leið vel að hefð-
bundnari atvinnugreinum.
„Mitt verkefni er að gefa gaum
efnahagslifi Noregs öllu og stefna
að sem bestri útkomu. Huga
verður vel að eldri atvinnugrein-
um, en án þess þó að loka augun-
um fyrir möguleikunum á tekjum
af oliunni,” sagði hún.
Þvi er spáð, að Norðursjávar-
framleiðslan skili litið eitt meiru
af sér 1981 en árið 1980, en þá gaf
hún af sér rétt undir 50 milljónum
smálesta af oliu eða oliugildum
(gasorka umreiknuð i oliuorku).
Olia oggasætti þvi að skila Nor-
egi þetta árið niu milljörðum doll-
ara i útflutningstekjum.
Nýjustu skýrslur og ályktanir
iðnaðarins gefa til kynna, að
stöðnun sé komin i útflutningssölu
þessarar framleiðslu. Spáð er lit-
illi aukningu i brúttóþjóðartekj-
um, minni fjárfestingu i iðnaðin-
um og litilli eða engri aukningu i
framleiðslunni. Annari en oliunni
auðvitað, sem þó eins og áður
segir verður litið eitt meiri þetta
árið en i fyrra.
♦
Hagfræðingar stjórnarinnar
telja sig sjá fram á samdrátt i út-
flutningi hráefnis eins og járns
eða stáls og fleiri málma, likt og
sýnt sig hefur siðustu mánuði, en
framleiðsla fullunnins varnings
ýmiss, eins og vélar og vélasam-
stæður hefur aukist og mun auk-
ast samkvæmt spám þeirra.
EUefu manns fórust i uppþoti,
sem varð á járnbrautastöðinni I
Sao Paulo. Seinkun haföi orðið á
einni farþegalestinni og gengu
margir farþegar, sem biðu,
bcrserksgang við að tæta sundur
vagnana, i lest sinni, svona eins
og tíi aö stytta sér stundir, þang-
að til hún legði af stað, Margir
vildu hinsvcgar foröa scr út und-
an þessum óhemugangi, en ó-
greitt var um útgöngu. Þegar þeir
stukku útum gluggana, lentu þeir
fyrir lest. setn har að i sömu svif*
unt.
San Marino heitir eista og
minnsta lýðveldi i heimi. Það er
orðiö 1680 ára gamait, þvi að það
var stofnað árið 301 (i itölsku
fjöllunum skammt frá Rimini,
sem menn þekkja betur).
Eins og annað gamait lýðveidi
norður I Atlantshafi. hefur San
Marino nú kojsið sér konu fyrir
þjóðarieiðtoga. Maria Lea Pedini
Angelini verður nú annar af
tveim höfuðrikisstjórum þessara
20 þúsund manna þjóðar. Hinn
var kosinn Gastone Pasolini. —
Leiötogaembætti þessi voru
slofnuð 1244 og hefur kona ckki