Morgunblaðið - 19.12.2003, Blaðsíða 4
4 | FÓLKIÐ | FÖSTUDAGUR 19|12|2003 MORGUNBLAÐIÐ
Við Hverfisgötu er gráleitt hús og inni í því er guð leiklist-
arinnar tilbeðinn. Leikhús þetta er kennt við þjóðina og
jólaleikritið í ár heitir Jón Gabríel Borkman og er eftir
Henrik Ibsen. Það verður frumsýnt á öðrum í jólum. Með
veigamikið hlutverk fer leikkonan Vigdís Hrefna Páls-
dóttir, sem svaraði örfáum spurningum.
Um hvað fjallar þetta leikrit, Vigdís, í örstuttu máli?
„Það fjallar um afleiðingar þess að maður í hárri stöðu
misnotar aðstöðu sína.“
Það er semsagt pólitískt.
„Já, það er pólitískt.“
Hvaða hlutverk ferðu með í sýningunni?
„Ég fer með hlutverk Fríðu Foldal, fátækrar dóttur fyrr-
verandi undirmanns Borkmans, sem kemur til hans og
spilar á píanóið reglulega.“
Ertu lík þessari persónu?
„Nei.“
En þú spilar á píanó?
„Já.“
Eru leikkonur eins og annað fólk? Fara þær í Bónus?
„Já, þær fara sko í Bónus (hlær). Við erum á svo lág-
um launum að við verðum að versla í Bónusi og Krón-
unni.“
Þær eru hagsýnar?
„Almennt? Ég bara veit það ekki.“
En þú ert hagsýn.
„Já, ég held að ég sé bara nokkuð hagsýn.“
Ertu farin að hlakka til jólanna? Geturðu leyft þér það í
þessu leiklistarstressi?
„Já, ég er farin að hlakka til jólanna. Ég stressa mig
reyndar ekkert út af þessu; við erum búin að undirbúa
þetta svo vel og það er allt tilbúið. Oft er allt á seinustu
stundu, en ekki í þetta skiptið. Það er rosalegur munur.“
Hvað viltu helst í jólagjöf?
„Ég sá Sveppa og Audda spyrja að þessu í 70 mín-
útum í gær og hugsaði með mér: „O hvað ég er fegin að
vera ekki spurð þessarar spurningar“.“
Og þér er stillt upp við vegg hér og nú.
„Hér og nú, já, ég stend einmitt fyrir framan innrétt-
ingabúðina Hér og nú. En ætli ég væri ekki til í að fá
bókina Öxin og jörðin, eftir Ólaf Gunnarsson.“
|ivarpall@mbl.is
Morgunblaðið/ÞÖK
Stillt upp við vegg hér og nú
VIGDÍS HREFNA PÁLSDÓTTIR