Morgunblaðið - 19.12.2003, Page 10
10 | FÓLKIÐ | FÖSTUDAGUR 19|12|2003 MORGUNBLAÐIÐ
Maður er kallaður Tiny og er í hljóm-
sveitinni Quarashi, sem er að fara að
spila með Skyttunum á Nasa á morgun.
Tiny hefur orðið:
„Jú maðurinn er Tiny fullu nafni Egill Ólafur Thorarensen bú-
settur í Hlíðunum. Aðeins hef ég nú búið í Englandi og Svíþjóð en
það er nú assgoti fínt að búa bara hérna í Reykjavík. Rapp og
textasmíð hef ég verið að fitla við allt frá því ég var 11 ára. Nú
nýverið gekk ég í Quarashi-flokkinn og erum við nýbúnir að gefa
út lagið „Race City“ og myndband við það.
Framundan eru svo tónleikar á Nasa á morgun þarsem við ætl-
um að gera allt vitlaust. Síðan höldum við til Japans og gerum
allt meira vitlaust þar og svo beint í upptökur á næstu Quarashi-
plötu sem koma á út næsta sumar og þá verður allt endanlega
vitlaust.
Ég er reyndar nokkuð súr á því þessa dagana vegna láts Keik-
ós. Aðeins verið að velta því fyrir mér hvað gert verði við líkið og
einnig hvernig Halli Hallssyni líður. Það þýðir samt ekkert að
vera að velta sér uppúr því. Lífið heldur áfram.
Það er reyndar fullt dimmt hérna fyrir minn smekk núna og
hefur rökkrið valdið mér töluverðum vandræðum í morgun-
skokkinu. Ég skokka 4 morgna í viku með félögum mínum og
svo teygjum við vel á eftir og tökum heitu pottana í Laugar-
dalnum með trompi og ræðum heimsmálin stór sem smá. Maður
á í smá erfiðleikum með að vita hvert maður er að hlaupa þegar
svona dimmt er úti.
Þessi sami félagahópur fer svo aðra hverja viku í diskókeilu í
Öskjuhlíðinni sem er magnaður skítur. Ég er sem stendur í 1.
sæti í heildina og fellubani mikill. Set kúluna yfirleitt Breiðholts-
megin. Annars er margt spennandi framundan yfir jól og áramót
en toppurinn verður sjálfsagt ræða útvarpsstjóra á gaml-
árskveld. Hlakka mikið til að heyra hvað hann hefur að segja
þetta árið kallinn.“
Morgunblaðið/Árni Torfason
Kúlan fer Breiðholtsmegin
V
I
K
A
N
1
9
.
-
2
3
.
d
e
s
.
LaugardagurFöstudagur
Víghöfði
Spennumyndin Víghöfði
(Cape Fear) sem gerð var
árið 1962 með einvalaliði
leikara, en síðar lék Robert
De Niro í eftirgerðinni.
Dæmi nú hver fyrir sig hvor
myndin er betri. Sjónvarpið
kl. 22.
Sálin
Lokaball Sálarinnar í Sjallanum,
en hljómsveitin er að fara í frí.
Borgardætur
Borgardætur halda jólatónleika í Salnum í Kópavo
kl. 20. Söngtríóið skipa Andrea Gylfadótti
Ellen Kristjánsdóttir og Berglind Björk Jónasdóttir
Íslensku
dívurnar
Jólatónleikar með Íslensku dív-
unum Margréti Eiri, Eivöru Páls-
dóttur, Guðrúnu Árnýju, Ragnheiði
Gröndal og Védísi Hervöru í Graf-
arvogskirkju á föstudagskvöld.
Maríus Sverrisson gestasöngvari.
Dagur með
Hobbitum
Maraþonsýningar á
Hringadrótt-
inssöguþríleiknum í
Regnboganum í dag,
laugardag, sunnudag
og mánudag. Allar
þrjár myndirnar sýnd-
ar hvern dag og miða-
verð 1.900 kr.
Tísku-
sýning
Rauðvínskynning
kl. 20 og
síðan tískusýning
á Pravda.
Blús
Blúsmenn Andr-
eu í Húsi Silla og
Valda.
Svart
Í svörtum fötum
spila á Players í
Kópavogi.
Sálin
Sálin hans Jóns
míns spilar á
Nasa
Páll
Rósinkranz
Páll Rósinkranz
syngur matinn ofan
í gesti í Leik-
húskjallaranum í
kvöld og laug-
ardagskvöld.
Súellen
Útgáfutónleikar með Súellen í Egilsbúð á
Neskaupstað kl. 21, en einnig koma fram
Bjarni Tryggva og Out Loud.
Bikarúr-
slit
Úrslitaleikur kvenna
í Hópbílabikar-
keppni KKÍ í körfu-
bolta sýndur í beinni
í Sjónvarpinu
kl. 14.10.
Pravda
Tommi og Balli spila
niðri á Pravda, en Áki
á efri hæðinni.
Quarashi
Tvennir tónleikar Quarashi
og Skyttnanna á NASA. Fyrri
tónleikarnir verða fyrir 13 ára og
eldri, en 20 ára aldurstakmark er á
þá síðari sem hefjast upp úr
miðnætti. DJ Magic og Sammi
úr Jagúar taka síðan við.
Doktor
Dr. Gunni með útgáfutónleika
á Grandrokk
kl. 23.59.
Margeir
og Gald-
ur á
Kapital
Hinir kunnu
plötusnúðar
Margeir og
Gísli Galdur í
essinu sínu á
Kapital í
kvöld.
Filur á
Kapital
Danska dúóið Filur á
Kapital, „eins og
Basement Jaxx og
Masters At Work.“