Vísir - 25.03.1981, Blaðsíða 14

Vísir - 25.03.1981, Blaðsíða 14
VÍSIR Miðvikudagur 25. mars 1981 Miðvikudagur 25. mars 1981 15 ,,Það var ekki á neinn hátt staðið undarlega að forvalinu hjá okkur. Við sendum Haga, J.P., Inn- réttingahúsinu og Kalm- ar bréf og óskuðum eft- ir verðtilboð i eldhús, og tilboðin voru öll send út sáma daginn”, sagði Örn Kjærnested, fram- Yfirlýsing frá stjörn Byggung: Ásökunum á hendur fram- kvæmdastjóra vísað á bug Við afgreiðslu stjórnar á kaup- um 3. byggingarflokks á eldhús- innréttingum í ibúðir sinar, var frá þvi'gengið, að innlendir fram- leiðendur innréttinga fengju tæki- færi til jafns við innflytjendur á að koma vöru sinni á framfæri. Var i þvi' sambandi leitað til tveggja framleiöenda og tveggja innflutningsaðila. Að öðru leyti visaði stjórnin ákvörðun um kaup á einstökum innréttingum til þeirra aðila sem ibúðir eiga i 3. á- fanga. Byggjendur í 3. áfanga kynntu sér sjálfir þær innréttingar sem i boði voru og tóku ákvörðun um val innréttinga á eigin spýtur. Stjórn Byggingarsamvinnufélags ungs fólks i Mosfellssveit litur svo á, að þeim aðilum, sem valið hafa að fjárfesta i ibúðarframkvæmd- um félagsins, sé það i sjálfsvald sett hvernig þeir verji fé sinu til kaupa á innréttingum i ibúðirsin- ar. Hlutverk stjórnar og fram- kvæmdastjóra er að framkvæma vilja byggjenda i þeim efnum. Stjórnin visar algerlega á bug ásökunum á hendur fram- kvæmdastjóra félagsins, Arnar Kjærnested, um undarlega við- skiptaháttu af hans halfu, og leggur áherslu á að hlutur hans i þessu málierfyllilega i samræmi við vilja umbjóðenda hans. Stjórn Byggingarsamvinnufé- lags ungs fólks i Mosfellssveit vill aðsiðustu itreka, að kaup félags- ins á eldhúsinnréttingum i ibúðir 3. áfanga eru framkvæmdar að vilja þeirra aðila sjálfra, er ibúðir eiga i smiðum i' umræddum bygg- ingaráfanga. Stjórn félagsins mun ekki undir neinum kringum- stæðum leyfa sér að taka ákvörð- unarvald af byggjendum i þess- um málum, sem og öðrum er lúta að innréttingum ibúða þeirra. Ennfremur vonar stjórnin að kúgunarhótanir einstakra fram- leiðenda i þessu sambandi séu einungis orðin tóm, enda sé það öllum aöilum fyrir bestu. | Texti: Axel Am mcndrup Myndir: Emil Þór Sigurðs- son kvæmdastjóri Byggung- ar i Garðabæ og Mos- fellssveit. „J.P. vissi ekki hver bað um til- boðið, en það gerðu Hagi og Kalmar hins vegar, þvi fyrirtæk- in sendu ekki inn tilboð fyrr en ég sótti þau og útskýrði að tilboðið væri í eldhús fyrir Byggung. Þeg- ar ég kom til H aga, þá var 1 jóst að fyrirtækið ætlaði ekki að senda inn tilboð. Þegar þeir fréttu, að Byggung stóð að forvalinu, brugðust þeirhins vegarhart við. Þá höföu þeir ekki nema tvo tima tilstefnu, þvi fundurinn með hús- eigendunum átti aö vera þá um kvöldið. FOB-verðið á Norema innrétt- ingunum, samkvæmt samningum Byggungar við fyrirtækið, er 239 þúsund krónur norskar og hingað komið er verðið 392, 264 krónur nýjar, eða að meðaltali 13.526 á hverja innréttingu”. Orn sagði, að tilboðið frá Inn- réttingahúsinu (Norema) miðað við eitt eldhús hefði numið 15.476 krónum að meðaltali, tilboðið frá Haga hefði verið tiu prósentum hærra, eða 17.010 krónur og 30 prósent hærra frá J.P., en þaðan hefði innréttingin að meðaltali kostað 20.420 krónum. „Ég vil taka það skýrt fram, að við forvalið var miðað við eitt eldhús og sömu teikninguna i öll- um tilfellunum. Ég ætla ekki að dæma um hvort norsku innréttingarnar eða þær islensku séu betri eða fallegri, það var fólksins að dæma og það valdi Norema einum rómi”. — Er rétt af formanni atvinnu- málanefndar Mosfellshrepps aö flytja atvinnuna til Noregs? „Mér finnst atvinna verslunar- manna ekkert siður mikilvæg en atvinna iðnaðarmanna, auk þess sem við sköpum skipafélögunum vinnu. Þess má geta, aö atvinnu- ástandið i sveitinni er mjög gott — hér eru aðeins f jórir menn á at- vinnuleysisskrá. Byggung útvegar fjölda manns vinnu og greiðir gjöld til hins op- inbera og einnig i lifeyrissjóði, þannig að ég held að við séum ekkert þjóðhagslega hættulegir. Ég vil að lokum taka fram, að ég undrast mjög allan málsflutn- ing innréttiogaframleiðenda, þvi það virðist vera aðalatriðið að sverta mannorð mitt og gera mig tortryggilegan i augum almenn- ings, frekar en að hið rétta komi fram. Visa ég i þvi sambandi til samþykktar stjórnar og trúnað- armanna þriðja byggingarflokks i Mosfellssveit”, sagði Orn. — ATA örn Kjærnested fyrir utan húsin, sem hýsa eiga hinar umdeildu eldhúsmnrettingar. Talsmenn Haga og J.P. innréttinga óhressir með innflutning Byggung á innréttingum: „UNDARLEGT HUGARFAR AÐ BAKI AKVðRÐUNAR FRAMKVÆMDASTJÚRANS formaður atvinnumálanefndar flytur atvinnuna til Noregs! framkvæmdastjóra „Við viljum visa á bug Byggungar og umboðs- innréttingarnar séu talsverður, okkur i hag, einnig betri”, sagði Sæ- þeim fullyrðingum manns norsku innrétt- bæði ódýrari og betri. og ef nokkuð er þá eru mundur Sæmundsson, inganna, að innfluttu Verðmunurinn er um- islensku innréttingarnar sölustjóri hjá Haga-inn- réttingum, i samtali við Visi. „Við erum ekki sárir yfir þvi að fá ekkiverkefni, heldur undrumst við alla málsmeðferð og skiljum ekki hvað liggur að baki,” sagði Guðmundur Ingi Jónsson hjá J.P. innréttingum. Þeir félagar höfðu samband við Visi vegna blaðaskrifa um kaup Byggungar i Garðabæ og Mos- fellssveit á norskum eldhúsinn- réttingum. Islenskir framleið- endur hafa haldið þvi fram, að is- lenska framleiðslan sé 30-50% ódýrari en norska framleiðslan, en umborðsmaður norsku inn- réttinganna og Orn Kjærnested, framkvæmdastjóri Byggungar, halda þvi fram að verðið sem fékkst hjá Norðmönnunum hafi verið hagstæðara en hægt var að fá innanlands, alla vega miðað „tslensku innréttingarnar hafa upp á alltað bjóða, sem innfluttu innréttingarnar hafa”, segja innlendir framleiöendur. Til dæmis skápahuröir, sem opnast 170 gráöur, hornskápa meö hornsleöum og útdregna þvottaskápa við gæði. Þeir Sæmundur og Guðmundur sögðuaðef menn bara kynntu sér hlutina, bæru saman íslensku framleiðsluna og þá norsku, kæmust þeir að þvi að sú íslenska væri sist lakari. „Skápahurðirnar á okkar inn- réttingum opnast um 170 gráður eins og þær norsku, við erum með útdregna þvottaskápa og horn- skápa með hringsleðum”, sagði Guðmundur, en þessa kosti meðal annarra sagði Sigurður Karlsson, umboðsmaður norsku innrétting- anna i blaðasamtali að prýddu sina vöru umfram innlenda fram- leiðsluna. „Þá er úrvaliö hjá okkur ekki siðra en úrvalið hjá norsku fram- leiðendunum”. — En hvernig var þá staðið að útboðinu? „Það var ekkert útboð, heldur forval hjá Byggung. Það kom hingað maður klukkan fimm að kvöldi og gaf mér frest til klukkan sjö að gera tilboð í innréttingu í tiltekið eldhús. Ég hafði náttúru- lega ekki grun um að þar með væri ég aö bjóöa i þrjátiu eldhús og reiknaði ekki magnafslátt inn í dæmiö. Þrátt fyrir það er tilboðiö frá mér lægra en norska boðið, sem þó er miðað við þrjátiu eld- hús”, sagði Sæmundur. Þeir sögðu, að gaman væri að fá að sjá samningana, sem gerðir hafi verið við norska fyrirtækið. Þó vissu þeir, aö FOB-verðið i Noregi næmi 284 þúsund norskum krónum, eða 345,429 krónum is- lenskum. A þetta bætist 15% flutningskostnaður, og þá er talan komin i 397 þúsund krónur. Með söluskatti er upphæðin komin upp i 430 þúsund krónur og nemur þá verð á hverja innréttingu 15 þús- und krónum að meðaltali. J.P.-innréttingar geta boðið i sama magn, innréttingar fyrir 11 þúsund krónur að meðaltali, en Hagi fyrir 9.500 krónur að meðal- tali. Þarna munar allt að 50 pró- sentum. „Boðiðfrá Haga miðað við eitt eldhús hljóðaði upp á 13.300 krón- ur og er það lægra en tilboð Nor- ema i 30 eldhús”, sagði Sæmund- ur. Boð J.P. hljóðaði upp á 16.400 krónur. „Þettá virðist allt framkvæmt með undarlegu hugarfari og þetta er einnig hið dapurlegasta mál, séð frá þjóðhagslegu sjónarmiði. Við leggjum fram vinnu, útveg- um atvinnu, við greiðum launa- skatt til rikisins og greiðum i op- inbera sjóði af vinnu fölksins, og þessir sjóðir styrkja svo bygg- ingasam vinnufélög á borð við Byggung. Þaö horfir svo dálitið undarlega við, nú þegar islenskur iðnaður stendur höllum fæti og atvinnu- möguleikar iðnaðarmanna þverra, að örn Kjærnested, framkvæmdastjóri Byggungar, skuli flytja atvinmna svona úr landi, þvi hann er formaður at- vinnumálanefndar Mosfells- hrepps”, sagði Sæmundur. „Maðurinn hefði átt aö leggja fram nákvæma verklýsingu og leyfa öllum að keppa á jafnréttis- grundvelli. Hefði hann gert það, hefðum við að sjálfsögðu sætt okkur viö úrskurö hans. Viö vilj- um ekki neyða neinn til að kaupa islenska framleiðslu, ef sú er- lenda er betri eða ódýrari, en þaö átti bara ekki viö i þessu tilfelli”, sagði Guðmundur. — ATA Ullum var gen jafn 5 99 hatt undir hotöi - segir Orn Kjærnested, framkvæmdastjori Byggung vísm

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.