Vísir - 25.03.1981, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 25. mars 1981
VÍSIB
13
„Sjávarútvegsráðherra hefur
lagt fram frumvarp á Alþingi,
sem gerir ráð fyrir þvi að drag-
nótaveiðar verði heimilaðar að
nýju i Faxaflóa,” sagði Jón Ar-
mann Héðinsson fyrrverandi
alþingismaður i viðtali við
fréttamann Visis.
„Raunverulega hefur flóinn
verið lokaður i 10 ár. Það tók
áratugabaráttu að koma þeirri
friðun á, og við sem stóðum að
þvi á sinum tima á Alþingi, að
koma þessari löggjöf i gegn,
töldum okkur örugga um að
friðunin mundi sýna gildi sitt, ó-
tvirætt, hvað hún hefur gert.
Þess vegna teljum við að við
eigum að hafa flóann friðaðan
áfram, þrátt fyrir góða mögu-
leika á að veiða hér kola, og
sýna betur fram á, að ekki að-
eins kolastofn, heldur annar
fiskistofn, muni njóta góðs af
þviað hafa flóann friðaðan fyrir
botnveiðafærum. Þess vegna er
stór hópur manna, einkanlega
smábátamenn, sem telja að það
sé ótimabært og rangt að opna
flóann.
Við teljum að svo margar
fleytur séu hér hringinn i kring-
Mikil olga i trillukörlum vegna frumvarps um dragnótaveiöar i Faxallóa
„GETUM SELT BATANA EF
ÞAB VERDUR AB LÖGUM'
um Faxaflóann, sem geti hag-
nýtt flóann mjög vel, að það
þurfi ekki á það að bæta.
Annað atriði er i frumvarp-
inu, sem er algjörlega ný stefna
og við vörum mjög við, að
Alþingi afheiidi ákveðinni stofn-
un i þjóðfélaginu það vald,að út-
hluta slikum gæðumy að fá að
veiða visst magn úr hafinu, á
fáa báta. Ef hér á að veiöa
1000-1500 tonn af kola, þá á Haf-
rannsóknarstofnun að úthluta
þessum afla á nokkra báta.
Annað hvort verður að hafa
þetta opið fyrir alla, samkvæmt
stjórnarskránni, eða engan,,
Aðeins þetta atriði er nægilegt
til að stöðva frumvarpið.
Trillukörlum viö Faxafióa þykir illa aö sér þrengt, ef frumvarpið
um dragnótaveiöar i Fióanum verður aö lögum og hafa viö orö aö
selja bátana ef svo fer.
Viö erum þvi búnir að undir-
búa fund, sem við vonum að
verði fjölmennur, á Hótel Esju
kl. 2 sunnudaginn 29. mars. Þar
mun Aðalsteinn Sigurðsson
fiskifræðingur, sem er manna
fróöastur um kolastofninn á
Islandi, segja frá sinu sjónar-
miði og sinum rannsóknum og
menn viða að við flóann munu
halda framsöguerindi og segja
frá sinni reynslu,” sagði Jón Ar-
mann.
Þvi má bæta við að hann mun
verða fundarstjóri og fundurinn
verður öllum opinn.
Það er óhætt að segja að
trillukörlum við Flóann er mik-
ið niðri fyrir um þetta mál og
Jón Barðdal, sem hefur orð
fyrir þeim sagði það skoðun
þeirra að þeir geti farið að leita
sér að kaupendum að bátnun-
um, ef þetta frumvarp fer i
gegn.
SV
Vegna flutnings
)
i seljum vid öll húsgögn verslunarinnar
meö miklum afslætti
Þetta einstæda tækifæri stendur adeins
í nokkra daga
o
O
Þad veitir ekki af ad spara í verdbólgunni
vegi 164
— 22229
Flugleiðir bjóða þér í ódýra
viku-eða helgarferð til NewYoik.
Veið fiá 3.860-
FLUGLEIDIR
Traust fólkhjá góðu félagi
Taktu þátt í ,,l love New York“ ævin-
týrinu - með söngleikjum, lista- og
leiksýningum, bíóferðum, jazzklúbb-
um, listasöfnum, stórverslunum, úti-
mörkuðum, kínahverfinu, Greenwich
Village, o.fl., o.fl.
Fararstjórinn, hún Vilborg Kristjáns-
dóttir, tekur á móti þér á flugvellinum
og verður þér innan handar um val á
frá matsölustöðum til balletsýninga -
Þú getur valið Summit hótelið á 51. götu eða Prince George á 28. götu.
Með herberginu fylgir morgunmatur.
Taktu þátt í ,,l love New York" ævintýrinu - starfsfólk Flugleiða mun gera sitt
til þess að það verði þér sem ánægjulegast.
Þið fáið allar upplýsingar hjá söluskrifstofum Flugleiða eða hjá ferðaskrifstofum.
Hlakka til að hitta þig í New York.