Morgunblaðið - 11.02.2004, Side 6
FRÉTTIR
6 MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Plúsfer›ir • Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
Be
nid
orm
35.942kr.
Sama sólin - sama fríi›
-en á ver›i fyrir flig!
á mann miðað við að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja-11ára, ferðist saman.
44.430 kr. á mann ef 2 ferðast saman.
Innifalið er flug, gisting í 7 nætur á Halley, 10.000 kr. bókunarafsláttur
og ferðir til og frá flugvelli erlendis.
FJÖLMENNUR fundur eigenda
stofnfjár í SPRON samþykkti í gær
ályktun þar sem hörmuð eru afskipti
löggjafans af samningi sparisjóðsins
við KB banka. Allt að 300 stofnfjár-
eigendur sátu fundinn.
Fram kom tillaga úr sal um að
stjórn SPRON verði falið að afla sér-
fræðiálits um lögmæti nýsettra laga
um sparisjóði og um hugsanlegan
bótarétt SPRON og einstakra stofn-
fjáreigenda á hendur íslenska ríkinu
og að leggja slíkt sérfræðiálit síðar
fyrir sérstakan fund stofnfjáreig-
enda. Var tillagan samþykkt með öll-
um atkvæðum fundarmanna nema
einu. Einnig samþykkti fundurinn
tillögu þar sem stjórn SPRON er fal-
ið að kanna möguleika þess og hag-
kvæmni að SPRON geri samstarfs-
samning við KB banka hf.,
Landsbanka Íslands hf., eða Íslands-
banka hf. þess efnis að SPRON fái
hjá viðkomandi banka samnot af
þeim sérfræðiþáttum í bankarekstri,
þar með töldum tölvukerfum, sem
SPRON er nauðsyn á til að tryggja
framþróun sína, m.a. á erlendum
vettvangi.
Stjórn skoði úrsögn úr Sam-
bandi íslenskra sparisjóða
Þá samþykkti fundurinn tillögu
sem borin var upp af einum fund-
armanna að fela stjórn SPRON að
kanna kosti þess og galla að SPRON
standi framvegis utan Sambands ís-
lenskra sparisjóða.
Í samhljóða ályktun fundarins er
lýst fullum stuðningi við áætlun
stjórnar SPRON um breytingu
rekstrarforms sjóðsins í hlutafélag
og við samkomulagið við KB banka.
Hörmuð eru „einstæð afskipti lög-
gjafans af þessum samningi og
hvernig komið var í veg fyrir mynd-
un stærsta sjóðs landsins á sviði
menningar- og líknarmála“, eins og
þar segir. Skorað er á stjórn SPRON
að láta ekki deigan síga og vinna ein-
arðlega að vexti og viðgangi spari-
sjóðsins hér eftir sem hingað til.
Jón G. Tómasson, stjórnarformað-
ur SPRON, gerði grein fyrir þeim
sjónarmiðum sem lágu að baki
áformum stjórnenda sparisjóðsins
um að breyta rekstrarforminu í
hlutafélag og að baki samkomulag-
inu við KB banka og lagði hann
áherslu á að stjórnendur SPRON
hefðu í einu og öllu farið eftir ákvæð-
um laga. Markmiðið hefði verið að
styrkja og efla sparisjóðinn og
tryggja stöðu hans til framtíðar.
Jón fór hörðum orðum um þá
sparisjóðsstjóra á landsbyggðinni og
stjórn Sambands ísl. sparisjóða sem
gagnrýndu áform stjórnenda
SPRON.
„Hún [stjórn Sambands ísl. spari-
sjóða] hélt uppi látlausum ásökunum
og aðdróttunum í garð SPRON og
stjórnenda hans og beitti áhrifum
sínum af fremsta megni til að áform
kjörinnar stjórnar stærsta spari-
sjóðs landsins næðu ekki fram að
ganga. Í þeirri herferð höfðu tals-
menn sambandsins í frammi fullyrð-
ingar sem ekki fá staðist. Þannig var
t.d. af þeirra hálfu fullyrt að KB
banki fengi yfirráðin yfir SPRON-
sjóðnum, með sex milljarða króna
stofnfé. Þeir fóru þarna í nákvæm-
lega 180 gráðu beygju frá sannleik-
anum. Það er KB banki sem ætlaði
að borga milljarðana sex en það var
okkar stofnfjáreigendanna að skipa
stjórn sjóðsins,“ sagði hann.
„Þetta vissi stjórn Sambands ís-
lenskra sparisjóða þegar þessi yfir-
lýsing var gefin, en þrátt fyrir að eft-
ir því hafi verið leitað hefur
formaður sambandsins og öll stjórn-
in neitað að leiðrétta þessi og önnur
ósannindi, sem sögð voru í hita leiks-
ins. Allar tillögur SPRON á liðnum
tveimur til þremur árum um breytt-
ar áherslur í samstarfi sparisjóð-
anna, með öflugu baklandi til að
styrkja stöðu þeirra hvers og eins á
gjörbreyttum fjármálamarkaði, hafa
verið hunsaðar af stjórnendum Sam-
bands íslenskra sparisjóða. Þar á bæ
virðast menn telja að breytingar og
þróun á fjármálamarkaðinum hafi
ekki áhrif á sparisjóðina. Þeir þurfi
ekkert að bregðast við. Þeir geti lifað
sínu lífi og hver verið kóngur í sínu
ríki. SPRON hlaut því að treysta
stöðu sína á eigin forsendum. Stjórn
sparisjóðsins lætur hagsmuni
SPRON ráða gerðum sínum, en ekki
hagsmuni annarra sparisjóða,
ímyndaðra eða raunverulegra.
Þetta vildu talsmenn Sambands
íslenskra sparisjóða ekki virða og
beittu þingmenn þrýstingi svo að
undan lét.“
Menn setti hljóða við yfirlýs-
ingu viðskiptaráðherra
„Það vakti óneitanlega eftirtekt
þegar haft var eftir viðskiptaráð-
herra í Morgunblaðinu 1. febrúar sl.
að hún hefði ekki þurft að beita sér
til að stöðva yfirtökutilraun Búnað-
arbankans sumarið 2002, því það
hefði alltaf verið ljóst, sagði hún, að
sú tilraun stæðist ekki lög. Nú horfir
málið hins vegar öðruvísi við, sagði
ráðherrann. Menn setti hljóða við
þessa yfirlýsingu,“ sagði Jón í ræðu
sinni.
„Ráðherra bankamála telur sig
ekki þurfa að hafa afskipti af banka
sem er að meirihluta í eigu ríkisins
eins og Búnaðarbankinn var, og ráð-
herrann ber þannig eigandaábyrgð
á, af því að bankinn var bara að að-
hafast eitthvað ólöglegt. Nú horfir
hins vegar svo við að stöðva þurfti
samning tveggja sjálfstæðra aðila af
því að þeir séu að fara að lögum.
Undir forystu ráðherrans og með
blessun ríkisstjórnarinnar var
ákveðið að breyta leikreglum í
miðjum leik,“ sagði hann.
Segir að flestir séu sammála
um að beitt hafi verið ólögum
Jón sagði ljóst að tilgangurinn
með lagasetningunni hefði verið að
koma í veg fyrir að samningur á milli
SPRON og KB banka næði fram að
ganga. ,,Það er dapurlegt til þess að
vita að aðeins einn þingmaður skyldi
berjast gegn þeirri valdbeitingu sem
felst í lagasetningunni, sem er áreið-
anlega einsdæmi í sögu lýðveldisins.
Hvaða skoðanir sem menn kunna að
hafa á samningi SPRON og KB
banka, þá held ég að flestir séu sam-
mála um að hér hafi verið beitt ólög-
um,“ sagði hann.
Einnig kom fram í máli hans að ef
KB banki hefði viljað höfða dómsmál
til efnda á samningnum, þá hefði það
mál trúlega unnist, en Jón benti á að
þá hefði jafnframt ríkt óvissa um
eignarhald og starfsemi SPRON
mánuðum og jafnvel árum saman.
„Stjórn í fjármálastofnun getur ekki
leyft að mál kunni að þróast með
þeim hætti. Stjórninni var því einn
kostur, að falla frá tillögu sinni um
breytingu á rekstrarformi spari-
sjóðsins,“ sagði hann.
Sagði hann hin nýju lög muni ekki
tryggja framtíð sparisjóðastarfsem-
innar. „Eftir atburði síðustu vikna
hlýtur stjórn SPRON að endurmeta
aðild sína að Sambandi sparisjóða.“
Hlutafélagaleiðin er orðin ónýt
Fram kom í máli Guðmundar
Haukssonar, sparisjóðsstjóra
SPRON, að sparisjóðurinn stendur
mjög traustum fótum. „Sparisjóður-
inn hefur vaxið hratt um langt skeið.
Hann hefur styrkt eiginfjárstöðu
sína jafnt og þétt og aukið markaðs-
hlutdeild sína. Markmiðið með þessu
var hins vegar að skerpa á hraðan-
um, vinna tíma til þess að efla spari-
sjóðinn mun hraðar heldur en ef við
gerðum þetta frá grunni,“ sagði
hann.
„SPRON stendur mjög vel, við er-
um að skila mjög góðri arðsemi.
Stofnfjáreigendur geta vænst mjög
góðs arðs á næsta aðalfundi, trúlega
meiri arðs heldur en í fyrra og var þó
talsvert gert. Stofnféð er því í sjálfu
sér mjög góð eign og menn geta
vænst góðrar arðsemi af því,“ sagði
Guðmundur.
Hann sagði ljóst að nú væri hluta-
félagaleiðin ónýt fyrir sparisjóðina.
„Við getum gleymt henni. Ég hygg
ekki að nokkur ábyrgur stjórnandi
sé reiðubúinn að afhenda einhverj-
um, sem enginn veit hver er, ábyrgð
á rekstri SPRON. Mér finnst sjálf-
um að þessi lagasetning sé vanvirð-
ing við stofnfjáreigendur, bæði hér
hjá SPRON og jafnframt gagnvart
öllum stofnfjáreigendum á Íslandi.“
Skoða leiðir fyrir stofnfjáreig-
endur til að selja stofnfé sitt
„Eftir stendur að það er búið að
staðfesta, að það má selja stofnfé á
yfirverði. Ég hygg að það sem verð-
ur skoðað núna í framhaldinu verði
að finna farveg til þess að gera stofn-
fjáreigendum mögulegt að selja fé
sitt á einhvers konar tilboðsmarkaði,
vegna þess að það liggur fyrir stað-
festing á því, að það er ekkert sem
bannar að stofnfé sé selt á yfirverði.
En það þarf þá að finna því traustan
farveg, þannig að þau mál geti
þróast með eðlilegum hætti. Við
munum snúa okkur að því að skoða
slíka möguleika á næstu vikum,“
sagði Guðmundur Hauksson.
Pétur Blöndal alþingismaður var
meðal þeirra sem þátt tóku í um-
ræðum á fundinum. Gagnrýndi hann
harðlega lagasetninguna á Alþingi
og lagði áherslu á að samkomulag
SPRON og KB banka hefði verið
fullkomlega löglegur gerningur.
Einn fundarmanna, Sigurður Tóm-
asson, gagnrýndi samninginn við KB
banka þar sem greiða átti stofnfjár-
eigendum hærra verð fyrir þeirra
hlut en sjálfseignarstofnunin hefði
fengið greitt. „Ég er þeirrar skoð-
unar að ef þessu yfirverði hefði verið
skipt í eðlilegum hlutföllum á milli
stofnfjáreigenda og sjálfseignar-
stofnunarinnar, þá hefði þetta ríkis-
stjórnarfrumvarp aldrei komið
fram,“ sagði hann.
Stærsti sjóður í menningarlíf-
inu á Íslandi eyðilagður
Hjálmar H. Ragnarsson tónskáld,
sem var meðal þerra sem valdir
höfðu verið í stjórn fyrirhugaðs
SPRON-sjóðs, sagði að með laga-
setningunni hefði verið komið í veg
fyrir stofnun sjóðs sem átti einstaka
möguleika í menningarlífinu. Átti
sjóðurinn að hafa yfir að ráða um 6
milljörðum sem varið yrði til menn-
ingar- og líknarmála. Sagði Hjálmar
að um hefði verið að ræða stærsta
sjóð í menningarlífinu sem stofnaður
hefði verið á Íslandi. „Ég get ekki
annað en lýst ábyrgð á hendur
stjórnvalda fyrir að hafa gripið í
taumana með þessum hætti og eyði-
lagt þetta mikla framtak.“
Stofnfjáreigendur skoruðu á stjórnendur SPRON að láta ekki deigan síga
Morgunblaðið/Sverrir
Guðmundur Hauksson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis, tók á móti stofnfjáreigendum sem komu til fundar á Nordica hótel í gær.
Vilja kanna mögulegan
bótarétt á hendur ríkinu
ÞRÍR yfirmenn hjá Flugleið-
um/Icelandair hafa verið ráðn-
ir til flugfélaga í eigu Magn-
úsar Þorsteinssonar, eins
eigenda eignarhaldsfélagsins
Samson og aðaleiganda flug-
félagsins Atlanta, sem einnig
á stóran hlut í Íslandsflugi.
Um er að ræða Guðnýju
Hansdóttur, sem verður
starfsmannastjóri Air Atlanta,
Hannes Hilmarsson, sem fer
til starfa hjá Íslandsflugi, og
Magnús Stephensen, sem
verður deildarstjóri markaðs-
deildar Air Atlanta. Öll hafa
þau sagt upp störfum sínum
hjá Flugleiðum eftir langa
dvöl þar og byrja hjá nýjum
vinnuveitanda í mars nk.
Nýr starfsmannastjóri
Guðný hefur verið yfirmað-
ur flugliðadeildar Icelandair
(Cabin Crew Manager) frá
árinu 1999. Hannes hefur í
vetur gegnt starfi fram-
kvæmdastjóra Íslandsferða,
dótturfyrirtækis sem Flug-
leiðir stofnuðu sl. haust til að
sinna markaðssetningu og
sölu á íslenskri ferðaþjónustu
erlendis. Áður var hann m.a.
svæðisstjóri Icelandair á
Norðurlöndunum og í Bret-
landi og markaðsstjóri í
Bandaríkjunum. Magnús
Stephensen hefur undanfarið
verið markaðsstjóri Icelandair
í Bandaríkjunum og m.a. átt
stóran þátt í skipulagningu
Airwaves-tónlistarhátíðarinn-
ar hér á landi, sem Flugleiðir
hafa verið aðalstyrktaraðili
að.
Samkvæmt upplýsingum úr
herbúðum Magnúsar Þor-
steinssonar eru bundnar mikl-
ar vonir við störf þeirra
þriggja, ekki síst í ljósi víð-
tækrar og góðrar reynslu
þeirra í flugrekstri.
Þrír yf-
irmenn
Flug-
leiða til
Atlanta
TAMNINGAKONA slasaðist á baki
þegar hún féll af hestbaki við störf
sín á Litla-Garði í Eyjafjarðarsveit
seinni partinn í gær. Konan, sem er
24 ára, lenti með bakið á steypubita
og þurfti að flytja hana með sjúkra-
bíl á Fjórðungssjúkrahúsið á Akur-
eyri. Hún var að temja lítið tamið
hross í skemmu þegar óhappið varð.
Slasaðist
eftir fall af
hestbaki