Morgunblaðið - 11.02.2004, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 11.02.2004, Qupperneq 7
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1998 7 RÚMLEGA 90% svarenda í nýrri könnun þjóðarpúls Gallup telja að rétt sé að skylda útlendinga sem setjast hér að til að læra íslensku. Hlutfall þeirra sem eru þessarar skoðunar hefur aukist frá því Gall- up gerði sams konar könnun árið 2000 en þá töldu 82% rétt að skylda innflytjendur til íslensku- náms. Karlar eru síður hlynntir því en konur að skylda útlendinga til ís- lenskunáms eða 86% karla á móti 95% kvenna. IMG Gallup kannaði nýlega viðhorf meðal Íslendinga til innflytjenda á sama hátt og gert var í könnun árið 2000 og voru nið- urstöðurnar því næst bornar sam- an. Umburðarlyndari gagnvart innflytjendum en árið 2000 Í ljós kom í könnuninni að Ís- lendingar virðast vera umburðar- lyndari gagnvart innflytjendum nú en árið 2000. Nú telja mun fleiri að reglur sem heimila útlendingum að setjast að á Íslandi séu of strangar eða tæplega 18% samanborið við tæplega 11% sem voru þeirrar skoðunar árið 2000 og nokkuð færri telja nú að reglurnar séu of rúmar en í fyrri könnun. Nokkur munur er á viðhorfum fólks eftir menntun. Þeir sem hafa meiri menntun telja frekar að reglurnar séu of strangar og eru síður en aðrir þeirrar skoðunar að þær séu of rúmar. Einnig kemur fram munur á viðhorfum eftir bú- setu. Um 59% þeirra sem búa utan Reykjavíkur og nágrannasveitar- félaga telja reglurnar hæfilegar en um 51% íbúa á höfuðborgarsvæð- inu eru þeirrar skoðunar. Í könnuninni kom einnig í ljós að tæplega helmingur svarenda telur að tekið sé vel á móti inn- flytjendum sem koma til Íslands en 265 telja að innflytjendur mæti neikvæðu viðmóti. Rúmlega 90% vilja skylda inn- flytjendur til að læra íslensku ÁRNI Magnússon félagsmálaráð- herra minnir á að rétt rúmt ár sé lið- ið frá því að gengið var frá sam- komulagi milli ríkis og sveitarfélaga þar sem ágreiningur um húsaleigu- bætur hafi verið leystur en auðvitað séu samskipti ríkis og sveitarfélaga stöðugt uppi á borðinu. Hann segir það þó auðvitað hljóta að vera um- hugsunarefni að friður um svona samkomulag ríki í svona stuttan tíma. Árni tekur þó fram að félagsmála- ráðuneytið muni að sjálfsögðu setj- ast yfir málið með sveitarfélögunum. Samskipti ríkis og sveitarfélaga, bæði verkefnin og tekjuskiptingin, séu vitaskuld stöðugt umfjöllunar- efni. Í samkomulaginu frá því í desem- ber 2002 er kveðið á um að fram- kvæmd húsaleigubótakerfisins verði áfram verkefni sveitarfélaga og fjár- magnað af þeim og Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Þá var kveðið á um sérstakt aukaframlag á fjáraukalög- um 2002 upp á 150 milljónir sem renna skyldu til greiðslu húsaleigu- bóta. Eins er kveðið á um að framlag ríkisins vegna húsaleigubóta verði ekki endurskoðað nema hækkun heildarfjárhæðar húsaleigubóta frá 2003 verði meiri en almennar verð- lagshækkanir eða meiri en hlutfalls- leg hækkun framlags ríkissjóða í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga miðað við árið 2003. Félagsmálaráðherra um húsaleigubætur Aðeins um ár frá því samkomu- lag náðist ÍSLAND er í hópi tíu efstu ríkja hvað varðar umgengni við umhverfið ef marka má um- hverfisvísitölu sem stofnunin World Economic Forum hefur birt vegna ársins 2002, en þar er lagt mat á hvernig löndum gengur að nýta umhverfið með sjálfbærum hætti. Efst á listanum eru auk Ís- lands Finnland, Noregur, Sví- þjóð og Kanada, Austurríki, Kosta Ríka og Sviss. Breska blaðið Independent skýrir frá þessu í gær og þar kemur fram að Bretland er 91. sæti af þeim 140 ríkjum sem könnunin nær til, en það þykir mikið áfall að lönd á borð við Bangladesh og Papúa Nýju-Gí- neu og fleiri þróunarríki eru fyrir ofan Bretland í könnun- inni. Í könnuninni er tekið tillit til sjálfbærrar nýtingar náttúru- auðlinda og lagt mat á gæði drykkjarvatns, loftmengun, losun gróðurhúsalofttegunda og öryggi kjarnorkuvera. Umhverfisvísitala Ísland í hópi efstu þjóða ÞREMUR tölvum var stolið þegar brotist var inn í Ölduselsskóla í Breiðholtshverfi í Reykjavík aðfara- nótt þriðjudags. Að sögn lögreglu var rúða í útihurð skólans brotin og farið þar inn. Málið er í rannsókn. Einnig var brotist inn í veitinga- stað við Maríubaug aðfaranótt þriðjudags og stolið fartölvu. Það mál er einnig í rannsókn. Tölvum stol- ið úr skóla

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.