Morgunblaðið - 11.02.2004, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 11.02.2004, Qupperneq 14
ÚR VERINU 14 MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ og hvað segir þú? Og Vodafone • Sími 599 9000 • www.ogvodafone.is Aðalfundur Og Vodafone (Og fjarskipta hf.) verður haldinn í Háteigi, Grand Hótel Reykjavík, 4. hæð, fimmtudaginn 19. febrúar 2004, og hefst hann kl. 15:00. Á dagskrá fundarins verða eftirtalin mál: 1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins. 2. Tillaga um heimild til handa stjórn félagsins til að kaupa hluti í félaginu samkvæmt 55. gr. hlutafélagalaga nr. 2/1995. 3. Önnur mál sem eru löglega borin fram. Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins, ásamt skýrslu endurskoðenda, munu verða hluthöfum til sýnis á skrifstofu félagsins viku fyrir aðalfund. Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar verða afhentir á fundarstað. Stjórn Og fjarskipta hf. Aðalfundur Og Vodafone FRYSTING á loðnu fyrir Japansmarkað hófst hjá Loðnuvinnslunni hf. á Fá- skrúðsfirði í gær. Hrognafylling loðnunnar sem þar var landað var um 12% eða nægilega mikil til að loðnan sé frystingarhæf fyrir Jap- ansmarkað. Annars stað- ar hafði loðnan ekki náð tilskilinni hrognafylli og þykir það benda til þess að meira sé af loðnu á miðunum en talið var. Venjulega gera japanskir kaup- endur kröfu um að hrognafylling loðnunnar hafi náð 15% áður en frysting hefst en nú er mikil spurn eftir loðnu í Japan og því hefur verið slakað á kröfum. Á vef Loðnuvinnsl- unnar kemur fram að japönskum eftirlitsmönnum hafi þótt hrogna- fylling loðnunnar ásættanleg en loðnan hins vegar þótt fremur smá. Loðna sem landað var hjá Síld- arvinnslunni í Neskaupstað var hins vegar aðeins með um 10% hrogna- fyllingu og var því ekki hæf til fryst- ingar á Japansmarkað. Það er minni hrognafylling en var í loðnu sem landað var í Neskaupstað fyrir helgi og þykir það benda til þess að ný loðnuganga hafi nú gengið inn á mið- in. Leiðinlegt veður var á loðnumið- unum fyrir austan land í fyrrinótt og gátu nótaskipin ekki verið mikið við veiðar. Veður var hins vegar að ganga niður í gær. Veiðisvæðið er á svokölluðu Rauða torgi, sem er um 50 sjómílur austnorðaustur úr Hval- bak. Hafrannsóknaskipið Árni Frið- riksson fór til loðnuleitar frá Reykjavík á mánudag og á að freista þess að finna meiri loðnu svo hægt verði að auka við loðnukvótann Frysting hafin fyrir Japansmarkað Morgunblaðið/Albert Kemp TILTÖLULEGA fáir bátar nýttu sér línuívilnun fyrstu dagana eftir að hún varð heimil þann 1. febrúar. Ætla má að slæmt tíðarfar ráði þar mestu um. 16% ívilnun á ýsu og steinbít varð heimil þann 1. febrúar sl. en gefin verður 16% ívilnun á þorsk á næsta fiskveiðiári sem hefst þann 1. september nk. Þeir bátar sem hyggjast nýta sér ívilnunina þurfa að tilkynna það sérstaklega símleiðis til Fiskistofu þegar látið er úr höfn. Á tímabilinu frá 1.-8. febr- úar var tilkynnt um 71 löndun vegna línuívilnunar. Alls var um að ræða 46 skip í 16 höfnum. Samtals var á tímabilinu landað um 6.320 kílóum af ýsu utan kvóta vegna línu- ívilnunarinnar og um 2.716 kílóum af steinbít. Að undanförnu hafa verið lélegar gæftir vestan-, norðan- og austan- lands og má því gera ráð fyrir að fleiri nýti sér línuívilnun þegar tíðin batnar. Línuívilnunin er háð því skilyrði að línan sé handbeitt í landi og að ekki sé um borð búnaður til annarra veiða, s.s. svokölluð beitn- ingartrekt. Örn Pálsson, fram- kvæmdastjóri Landssambands smá- bátaeigenda, segir trillukarla eflaust eiga eftir að notfæra sér línuívilnunina. Hann segir að fleiri munu hins vegar notfæra sér hana þegar gefin verður 16% ívilnun í þorski á næsta fiskveiðiári. „Það er mjög lágt verð á ýsunni núna og það svarar þess vegna varla kostnaði að handbeita línuna. En þegar þorsk- urinn verður kominn inn í línuíviln- unina á ég von á því að flestir muni nota sér hana. Ég hef heyrt á mörg- um trillukörlum að þeim finnst eft- irlitið með ívilnuninni alltof mikið. Það eru allir með afladagbók frá Fiskistofu um borð og það ætti í raun að vera nægilegt eftirlit,“ segir Örn. Fáir nýta sér línuívilnun VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF HLUTFALL útlána hjá innláns- stofnunum sem eru í vanskilum lækkaði á síðasta ári en á sama tíma hækkaði fjárhæðin. Skýrist það af stórauknum útlánum á tímabilinu. Hlutfall vanskila, bæði fyrirtækja og einstaklinga, af útlánum nam 3,1% í lok ársins 2003 en var 3,5% í lok ársins 2002. Í lok síðasta árs námu útlán innlánsstofnana 944.378 milljónum króna. Alls voru 29.525 milljónir króna í vanskilum, en þar er miðað við mánaðargömul vanskil og eldri. Í árslok 2002 námu útlán innlánsstofnana 746.122 milljónum króna og voru 26.252 milljónir króna í vanskilum. Útlánaaukning ársins 2003 er því 198.256 milljónir króna. Samkvæmt upplýsingum frá Fjármálaeftirlitinu hefur vanskila- hlutfallið ekki verið lægra síðan á fyrri hluta árs 2001. „Athuga ber að á árinu 2003 jukust útlán verulega umfram aukningu vanskila sem skýrir lækkandi vanskilahlutfall en útlánaaukningin á árinu kann að koma fram í auknum vanskilum síð- ar,“ að því er segir í frétt frá Fjár- málaeftirlitinu. Í árslok 2003 námu útlán til fyr- irtækja 752.119 milljónum króna en voru 565.779 milljónir króna í árslok 2002. Vanskil fyrirtækja jukust um rúma 3,7 milljarða króna á síðasta ári, úr 15.187 milljónum króna í 18.924 milljónir króna 31. desember sl. Hlutfall vanskila af útlánum til fyrirtækja lækkaði úr 2,68% í árs- byrjun í 2,52% í lok árs. Minni vanskil hjá einstaklingum Útlán til einstaklinga námu 192.259 milljónum króna í árslok 2003 en voru 180.343 milljónir króna í lok árs 2002. Vanskil ein- staklinga lækkuðu á árinu um 464 milljónir króna á árinu, úr 11.065 milljónum króna í 10.601 milljón króna. Hlutfall vanskila einstaklinga af útlánum lækkuðu úr 6,14% í 5,51%. Í Morgunkorni Íslandsbanka kemur fram að endanlega töpuð út- lán bankanna námu rúmum 7 millj- örðum á árinu 2003 og hafa, þó KB banki eigi eftir að birta útlánatap 4. ársfjórðungs, aukist um 61% milli ára. En Landsbanki Íslands og Ís- landsbanki hafa birt ársuppgjör sín. KB-banki kynnir sitt uppgjör á fimmtudag. „Hlutfall vanskila og endanlegra tapaðra útlána á móti útlánum lækkar úr 3,75% á 3. ársfjórðungi í 3,37% á 4. ársfjórðungi og ætla má að þegar KB banki hefur birt upp- gjör verði hlutfallið á bilinu 3,4% til 3,6%. Ætla má að hlutfallið lækki áfram á 1. ársfjórðungi. Útlánavöxt- ur hefur numið 6–7% síðustu árs- fjórðunga og upplýsingar frá bönk- unum benda til að vanskilaþróun sé að þróast með jákvæðum hætti,“ segir í Morgunkorni Íslandsbanka. Vanskil útlána hjá innlánsstofnunum Hærri fjárhæð en hlutfallið lækkar                                 !        !         „Í GÓÐÆRI er mest hætta á aukn- ingu ríkisútgjalda og að aðhald í ríkisrekstrinum minnki.“ Þannig er komist að orði í skýrslu Verslunar- ráðs Íslands (VÍ) til Viðskiptaþings 2004, sem haldið verður í dag. Þá segir í skýrslunni að því lengur sem beðið sé með markvissar aðhalds- aðgerðir í ríkisrekstri því erfiðari verði viðsnúningurinn sem að lok- um sé þó óumflýjanlegur „Ef ekki er þegar gripið í taumana mun ís- lenskt efnahagslíf fyrr eða síðar takast á við samdrátt og atvinnu- leysi.“ VÍ ákvað í tengslum við Við- skiptaþing 2004 að vinna skýrslu um framtíðaráherslur um umsvif og afskipti ríkisins og opinberra aðila af almennum markaði ásamt því að fjalla um umfang og eðli opinberrar þjónustu. Segir í skýrslunni að um- talsverðar breytingar hafi orðið til batnaðar í íslensku efnahagslífi á undanförnum árum. Útgjöld hins opinbera hafi hins vegar aukist verulega. Samneyslan sé að ná í hæstu hæðir á meðal OECD-þjóða. Opinberum starfsmönnum hafi fjölgað sem og opinberum stofn- unum, sem séu hlutfallslega marg- falt fleiri hér á landi en til að mynda í Svíþjóð og Bretlandi. Hvetur VÍ til að leitað verði enn frekar en gert hefur verið í smiðjur fyrirtækja og lausnir einkamarkað- arins nýttar varðandi nýjar leiðir í opinberum rekstri Ríkið kaupandi en ekki veitandi Í skýrslu VÍ eru sérstaklega tek- in til skoðunar þrjú viðfangsefni í opinberum rekstri, heilbrigðismál, menntamál og orkumál. Auk þess segir í skýrslunni að VÍ telji nauð- synlegt að leggja fram almennar til- lögur um breytingar í ríkisrekstr- inum á allra næstu árum. Tillögur VÍ byggjast á innleiðingu hugsunar sem grundvallast á því að ríkið eigi ekki að annast rekstur þar sem að- koma einkaaðila er möguleg. Ríkið eigi að vera kaupandi þjónustu en ekki veitandi hennar. Í tillögum VÍ um breytingar í ríkisrekstrinum er m.a. lagt til að haldið verði áfram að einkavæða fyrirtæki í eigu rík- isins. Sérstaklega er nefnt að naun- synlegt sé að hraða einkavæðingu Landssímans. Jafnframt telur VÍ mikilvægt að hefja vinnu við fækk- un ríkisstofnana með útboðum á rekstri. Leggur VÍ til að ríkis- stjórnin setji sér þau markmið að fækka stofnunum á næstu fjórum árum um 30–40, en í dag eru rík- isstofnanir um 230 talsins. Þá er hvatt til þess í skýrslu VÍ að kann- aðir verði frekari möguleikar á einkaframkvæmd í opinberum verk- efnum. Skýrsluhöfundar segja að innleiðing á samkeppni verði hafin á sem flestum sviðum. Forsenda þess að unnt sé að innleiða samkeppni á sviðum þar sem ríkisrekstur hefur verið við lýði sé að rekstrarskilyrði verði jöfnuð hvað varðar skattalega meðferð, leyfisveitingar og eftirlit. Óviðunandi sé að ríkisstofnanir njóti undanþágna frá skattheimtu. Þá segir í skýrslunni að þar sem laun og launatengdir liðir séu stór hluti af útgjöldum ríkisins, eða að jafnaði 50–60% af heildarkostnaði vegna rekstrar, hafi sveigjanleiki og hagræðing í starfsmannamálum mikil áhrif á rekstur ríkisins. Skýrsla Verslunarráðs til Viðskiptaþings 2004 Nauðsynlegt að draga úr ríkisrekstri Morgunblaðið/Jim Smart Í tillögum Verslunarráðs Íslands um breytingar í ríkisrekstri er meðal ann- ars nefnt að nauðsynlegt sé að hraða einkavæðingu Landssímans. ALLS voru viðskipti með Íslands- banka fyrir rúmar 433 milljónir króna í Kauphöll Íslands í gær. Lokaverð Íslandsbanka var óbreytt frá síðasta viðskiptadegi, eða 7,65. Verð hlutabréfa í Landsbanka Íslands lækkaði um 2,1% og var lokaverð bankans 6,85. 83 milljóna króna viðskipti voru með Landsbankann í Kauphöll- inni í gær. Heildarviðskipti með hlutabréf í Kauphöllinni námu 1761 milljón króna í gær. Viðskipti með Íslands- banka fyrir 433 milljónir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.