Morgunblaðið - 11.02.2004, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 11.02.2004, Qupperneq 18
Frelsið og hætturnar | Febr- úarfundur hóps foreldra og aðstand- enda samkynhneigðra á Norður- landi verður á Sigurhæðum á Akureyri fimmtudaginn 12. febrúar og hefst klukkan 20.00. Fundarefnið er „Frelsið og hætturnar“, en þar mun dr. Sigrún Sveinbjörnsdóttir sálfræðingur fjalla um sjálfsmynd ungs fólks og skrefið út úr skápnum. Hópurinn hittist annan fimmtu- dag hvers mánaðar og markmiðið að fræða og fræðast og deila reynslu. Þannig ætla félagar að þeir verði betur færir um að standa að baki samkynhneigðum ástvinum sínum segir í tilkynningu. Nýir félagar eru ávallt velkomnir. Sorgarferli | Samhygð samtök um sorg og sorgargarviðbrögð verða með fund í safnaðarsal Akureyr- arkirkju annað kvöld, fimmtudags- kvöld, kl. 20.30. Gestur verður Björg Bjarnadóttir sálfræðingur og fjallar um sorgarferlið, en á eftir verða um- ræður og kaffi. Allir hjartanlega vel- komnir. ÍÞRÓTTAMAÐUR Þórs árið 2003 verður útnefndur í hófi í Hamri í kvöld, miðvikudaginn 11. febrúar kl. 20. Alls voru átta íþróttamenn, úr fjórum deildum félagsins, tilnefndir að þessu sinni. Auk þess sem kunngjört verður val á íþróttamanni ársins verða jafnframt útnefndir bestu leikmenn einstakra deilda fé- lagsins fyrir síðasta ár. Taekwondodeild Þórs til- nefndi Rut Sigurðardóttur og Helga Þór Leifsson, knatt- spyrnudeild tilnefndi þau Guð- rúnu Soffíu Viðarsdóttur og Atla Má Rúnarsson, handknatt- leiksdeild tilnefndi Árna Þór Sigtryggsson og Þorvald Sig- urðsson og körfuknattleiksdeild tilnefndi þau Guðmund Ævar Oddsson og Fjólu Eiríksdóttur. Þórsarar og aðrir velunnarar félagsins eru hvattir til þess að mæta í Hamar, fylgjast með út- nefningunni og þiggja veitingar. Íþrótta- maður Þórs út- nefndur HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 18 MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ LANSINOH HJÁLPAR ÞURRIR OG SPRUNGNIR HÆLAR 100% náttúruafurð, inniheldur engin rotvarnar- né aukaefni, vatnshreinsað. Sölustaðir: Apótek og lyfjaverslanir um land allt. www.ymus.is AKUREYRI ÞÝSKI frystitogarinn Wiesbaden, sem er í eigu Deutsche Fischfang Union, DFFU, dótturfélags Sam- herja í Þýskalandi, kom til Ak- ureyrar á sunnudagsmorgun frá Cuxhaven en skipið heldur í dag til rækjuveiða á Flæmingja- grunni. Skipið var á veiðum í Bar- entshafi í 60 daga, fram í byrjun desember sl. en hefur verið frá veiðum frá þeim tíma. Á Akureyri hefur verið unnið við að breyta vinnslulínunni á millidekki fyrir rækjuna. Þá heldur togarinn á miðin með nýtt tveggja belgja rækjutroll frá Ísfelli. Að sögn Óm- ars Óskarssonar, bátsmanns á Wiesbaden, mun þetta vera í fyrsta skipti sem tveggja belgja troll er notað við rækjuveiðar. Einnig er skipið með hefðbundið rækjutroll um borð. Þrír Íslend- ingar eru í 20 manna áhöfn skips- ins, Ómar bátsmaður, Flosi Arn- órsson, 1. stýrimaður, og Jóhannes Þorvarðarson skipstjóri. Ómar sagði að fyrir höndum væri þriggja mánaða túr á Flæmingja- grunn og var ekki annað að heyra en að úthaldið legðist vel í hann. Wiesbaden heldur á Flæmingjagrunn Morgunblaðið/Kristján Slegið undir rækjutrollið. Ómar Óskarsson og Flosi Arnórsson, skipverjar á Wiesbaden, voru vinna við rækjutroll togarans á Akureyri í gær. Til veiða með nýtt tveggja belgja rækjutroll 111 gestir | Byggðasafnið Hvoll á Dalvík var opið á laugardögum í vet- ur. Á tímabilinu frá 1. september til 31. desember á liðnu ári komu alls 111 gestir á safnið, þar af komu 9 gestir í nóvember en enginn í desem- ber. Vesturbær | Kjartan Magnússon, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í borg- arstjórn Reykjavíkur, hefur lagt fram tillögu um mögulegar úrlausn- ir á aðstöðuvanda Knattspyrnu- félags Reykjavíkur (KR). Í tillögunni er mælst til þess að Íþrótta- og tóm- stundaráð hefji viðræður við KR með það að markmiði að tryggja fé- laginu viðunandi framtíðaraðstöðu fyrir þá starfsemi sem félagið sinnir í þágu barna- og unglingastarfs sem og almenningsíþrótta. Enda segir Kjartan ljóst að mikil þörf sé fyr- irstækkun á íþróttasvæði KR, þar sem sprenging hafi orðið í starfsemi félagsins undanfarin ár. Leggur Kjartan til að tveir meginkostir verði skoðaðir. Annars vegar nefnir hann þriggja hektara íþróttasvæði á uppfyllingu við Sörlaskjól í um tvö hundruð og þrjátíu metra fjarlægð frá KR-heimilinu. Þar yrði pláss fyr- ir þrjá æfingavelli fyrir unglinga. Hins vegar leggur hann til nýtingu á SÍF reitnum við Keilugranda 1, sem er um 7.200 fermetrar og rúm fyrir einn æfingavöll, en sú lóð er í ein- ungis hundrað metra fjarlægð frá KR-svæðinu. Vesturbærinn nógu þéttbyggður Í greinargerð tillögunnar segir Kjartan meðal annars að eldri hug- myndir R-listans um æfingasvæði á uppfyllingu norðan við Eiðsgranda gangi illa upp, enda sé staðurinn al- gjörlega óvarinn fyrir norðanátt- inni. Segir hann að út af Sörlaskjóli sé mun grynnra og henti það betur fyrir landfyllingu auk þess sem veð- urfar sé þar mun mildara en að norðanverðu. Svonefndar SÍF- skemmur hafa staðið á lóðinni við Keilugranda 1 um áratugaskeið en nú stendur til að rífa þær og hefur verið sótt um að byggja fjölbýlishús á lóðinni með háu nýtingarhlutfalli, allt að tólf hæða háum. Íbúar við Rekagranda og Keilugranda hafa gert athugasemdir við þessar fyr- irhuguðu framkvæmdir og telja að þær geti haft mikil áhrif á lóðir þeirra. Auk þess segir Kjartan að byggð sé þegar mjög þétt í Vest- urbænum. Brýnna sé að hlúa betur að íþrótta- og tómstundastarfi á svæðinu, sem hefur setið á hakanum lengi. Mikilvægt sé að taka alla möguleika sem skapast til gaum- gæfilegrar skoðunar áður en meira landi er úthlutað til bygginga í þeirri þéttu byggð sem Vesturbær- inn er. Heilsa almennings í húfi „Ég tel að það sé raunhæft að byggja á landfyllingu út af Sörla- skjóli, en þar þurfi að hlusta grannt eftir sjónarmiðum íbúanna á svæð- inu. Sá valkostur gæti þó verið fram- tíðarlausn,“ segir Kjartan. Hann leggur áherslu á að brýnt sé að ræða framtíð SÍF-reitsins, því nú þegar standi yfir skipulagsvinna vegna þess svæðis og líklegt að ákvarðanir verði teknar fljótlega, en margt mæli með því að taka það svæði und- ir íþróttasvæði frekar en stórhýsi. „Ég held að þessi reitur væri alveg kjörinn fyrir fyrstu skrefin að því að leysa aðstöðuvanda KR.“ Margir foreldrar hafa áhyggjur af hreyfingarleysi barna og segir Kjartan nauðsynlegt að byggja und- ir bætta heilsu almennings í framtíð- inni. „Betri aðstaða íþróttafélag- anna er mikilvægur hlekkur í heilsueflingu almennings. Það er brýnt að leysa vanda íþróttafélag- anna og bæta aðstöðu fyrir almenn- ingsíþróttir í borginni,“ segir Kjart- an að lokum. Tillögur uppi um lausnir á aðstöðuvanda KR Fyrirhuguð háhýsi: Uppi eru hugmyndir um byggingu fjölbýlishúsa á SÍF- reitnum, en Kjartan vill að þar verði frekar hugað að hagsmunum KR. Brýnt að tryggja aðstöðu     !  "   !     !$   %      !  &                              Grafarvogur | Úrslitaviðureignin í fyrstu kokkakeppni Rimaskóla fór fram í gær. Þar kepptu sautján nemendur í níunda og tíunda bekk til úrslita, en heimilisfræði er kennd sem valfag í efstu bekkjum Rimaskóla. Sigur úr býtum báru tveir piltar, Daníel Jóhannsson og Egill Már Egilsson úr tíunda bekk, en þeir elduðu kjúklingabringur fylltar með sólþurrkuðum tómötum og timianristaðar kartöflur. Dreng- irnir hlutu í verðlaun veislu á Arg- entínu steikhúsi, sérvalda af meist- arakokkum staðarins og hálfsárs áskrift að Gestgjafanum auk glæsi- legrar gjafar frá Rimaskóla. Undanúrslitin stóðu yfir í heila viku, en í þeim kepptu sextíu og átta nemendur í tuttugu liðum. Sex lið kepptu síðan til úrslita og voru tveir til fjórir saman í liði. Hráefnið mátti ekki kosta meira en tólf hundruð krónur. „Það var rosaleg stemning fyrir þessu og stofan hefur aldrei verið fyllri af fólki, en þegar dómnefndin var að störfum ríkti slík þögn að heyra hefði mátt tannstöngul detta,“ seg- ir Áslaug Traustadóttir, fagstjóri og kennari í heimilisfræði í Rima- skóla. Fleiri strákar en stelpur sækja heimilisfræðina í Rimaskóla. Af sex liðum sem kepptu voru fjögur strákalið og tvö stelpulið og í öll- um efstu sætunum í keppninni voru strákar. Áslaug segir nem- endur yfirleitt skipta sér eftir kynjum, þó að þeir hafi ekkert á móti því að vinna saman á þessum aldri. Áslaug segir stefnt á að skora á aðra grunnskóla að halda svipaðar keppnir og halda síðan keppni milli skólanna á Reykjavíkursvæðinu eða jafnvel á landsvísu. „Ég sé óendanlega möguleika, krakkarnir eru svo öflugir,“ segir Áslaug, sem er með fastan þátt í Gestgjafanum, „Krakkarnir elda“, þar sem krakk- arnir sýna hvernig á að elda og uppskriftir fylgja með. „Þá getur öll fjölskyldan brett upp ermarnar og eldað saman,“ segir Áslaug að lokum. Fyrsta kokkakeppni Rimaskóla haldin með glans Strákar fylltu þrjú efstu sætin Morgunblaðið/Jim Smart Upprennandi meistarakokkar: Þessar ungu stúlkur kepptu til úrslita í kokkakeppni Rimaskóla og stóðu sig með prýði. Morgunblaðið/Jim Smart Fjölhæfir strákar: Drengir lentu í þremur efstu sætunum í fyrstu kokkakeppni Rimaskóla.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.