Morgunblaðið - 11.02.2004, Síða 22
LISTIR
22 MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
ALMENNT er það viðurkennt að
syrgjandi einstaklingar hafi bæði
gagn og gott af þátttöku í sorg-
arhópum eftir ástvinamissi. Á hinn
bóginn benda niðurstöður rann-
sókna um þetta efni til þess að
langflestir syrgjendur þurfi hvorki
á sorgarhópi né sálfræðingum að
halda til að yfirvinna sorgina. Eftir
ástvinamissi gangi einfaldlega allir
í gegnum sorgina, sem sé ósköp
eðlilegt ferli, sem standi venjulega
yfir í sex til átján mánuði. „Við
komumst ekki hjá því að þurfa að
horfast í augu við sorgina við ást-
vinamissi, einfaldlega vegna þess
að maðurinn er tilfinningavera.
Sorgin á sér því venjulega eðlileg-
an farveg í lífi okkar flestra. Hún
er bitur, en flestir geta unnið sig
út úr sorginni og haldið áfram með
eigið líf eftir ákveðinn tíma,“ segir
dr. Robert Hansson, sálfræðingur
við háskólann í Tulsa, Oklahoma.
Í nýrri bandarískri rannsókn-
arskýrslu um sorg og sorg-
arviðbrögð, sem greint var frá í
New York Times fyrir skömmu,
kemur fram að margt bendi nú til
þess að þátttaka í sorgarhópum sé
ekki til þess fallin að draga úr
sorgarviðbrögðum þeirra sem ekki
eru að fást við mjög flókið sorg-
arferli. Þvert á móti gefa rann-
sóknir til kynna að sorgarmeðferð
geri þessum syrgjendum illt verra,
hvort sem ástvinamissinn hefur
borið skjótt að eða hann haft lang-
an aðdraganda. Bent er á að síst
þér þörfin fyrir sorgarmeðferðar
strax í kjölfar dauðsfalls. Farsælla
sé að bíða og sjá hvort syrgjendur
nái að vinna sig út úr sorginni upp
á eigin spýtur innan eðlilegs tíma-
ramma, 6–18 mánaða. Finnist
syrgjendum þeir þurfa hjálp á
seinni stigum getur gagnsemi með-
ferðar verið fólgin í þeim aðferðum
sem í boði eru þar sem karlar eru
taldir syrgja öðruvísi en konur. Á
meðan tilfinningaleg nálgun sorg-
arhópa kann að gagnast konum,
eru karlar líklegri til að hafa gagn
af meðferð, sem beinir athyglinni
að hugsunarhætti þeirra.
Sumir deyja úr sorg
Umhyggjusöm ættmenni eða
vinir sækja oft stíft á um að syrgj-
andinn leiti sér faglegrar hjálpar í
kjölfar missis, en það eru bara
ekki allir steyptir í sama mótið og
því á ein aðferð ekki við alla, segir
dr. Roberts A. Neimeyer, sálfræ-
ðiprófessor við háskólann í Memp-
his og ritstjóri vísindatímaritsins
Death Studies. Rannsóknir benda
til að ekki skuli neyða syrgjendur,
sem bæla tilfinningar sínar, til að
horfast sérstaklega í augu við
sorgina þar sem sálrænar afleið-
ingar viðkomandi eru hverfandi
allt að þremur árum síðar. Mun
gagnlegri er sú umhyggja, hlut-
tekning og stuðningur sem ætt-
ingjar, vinir, vinnufélagar og ná-
grannar sýna syrgjendum á fyrstu
vikum og mánuðum eftir fráfall.
Aðeins í þeim tilfellum þegar sorg-
arferlið er orðið mjög flókið,
átakamikið og langvinnt er orðin
ótvíræð þörf fyrir sorgarmeðferð.
Þá er syrgjandinn jafnvel farinn að
berjast við þunglyndi auk þess
sem bæði vinnan og daglega lífið
er orðið erfitt viðureignar, að sögn
Neimeyer. Hann bætir við að mik-
ilvægt sé að meðhöndla syrgj-
endur, sem ekki komist út úr sorg-
inni á eigin spýtur, þar sem
ómeðhöndluð langvinn sorg geti
hreinlega haft lífshættulegar af-
leiðingar í för með sér, t.d. hækk-
aðan blóðþrýsting, hjartaáfall,
slag, fíkniefnamisnotkun og sjálfs-
morðstilraunir. „Þessir syrgjendur
geta hreinlega dáið úr sorg.“
ÁSTVINAMISSIR|Eðlilegt sorgarferli
stendur oftast í sex til átján mánuði
Sorgarmeðferð
getur gert illt verra
Reuters
Ólíkar þarfir: Á meðan tilfinningaleg nálgun sorgarhópa kann að gagnast
konum á seinni stigum í sorgarferlinu, eru karlar líklegri til að hafa gagn
af meðferð, sem beinir athyglinni að hugsunarhætti þeirra.
Fæst í apótekum
og lyfjaverslunum
ER NEFIÐ STÍFLAÐ?
STERIMAR
Skemmir ekki slímhimnu
er náttúrulegur
nefúði sem losar stíflur
og léttir öndun.
Fyrir 0-99 ára.
AÐSÓKNIN að Myrkum mús-
íkdögum hefur að sögn Kjartans
Ólafssonar, formanns Tónskálda-
félags Íslands, verið einstaklega
góð í ár og farið fram úr björtustu
vonum. „Aðsóknartölur fyrir fyrstu
tíu af tólf tónleikum hátíðarinnar
eru að nálgast þriðja þúsundið, sem
er algjört met í aðsókn að nútíma-
tónlist,“ segir Kjartan og bendir á
að aðsóknin að Myrkum mús-
íkdögum hefur verið að aukast
jafnt og þétt á síðustu árum, en í
fyrra sóttu samtals um tvö þúsund
manns hátíðina.
Inntur eftir því hvernig skýra
megi þessa góðu aðsókn nefnir
Kjartan nokkrar ástæður: „Verkin
hafa sjaldan verið fleiri á Myrkum
músíkdögum og flytjendurnir sem
koma fram eru vel á þriðja hundrað
þannig að hátíðin er sífellt að
stækka. Tónleikarnir hafa með tím-
anum verið að fá á sig skýrari
mynd, þannig má á efnisskránni t.d.
finna sinfóníutónleika,
kórtónleika, kamm-
ertónleika o.s.frv. Með
þessu móti á fólk auð-
veldara með að velja
tónleika eftir sínu
áhugasviði.
Á undanförnum ár-
um hefur maður reglu-
lega heyrt að markaðs-
öflin væru að ganga af
allri alvarlegri list
dauðri, en ég held að
það sé ekki rétt því
áhugi almennings á
innlendri list og menn-
ingu virðist fara vax-
andi, sem er alveg í
samræmi við það sem er að gerast í
öðrum löndum. Ein ástæða þessa
held ég að sé að með öllum þessum
fjölþjóðlegu tengingum og samruna
þá myndast fókuspunktur á inn-
lenda menningu. Ég hef líka tekið
eftir því að fjölmiðlar hafa sýnt há-
tíðinni meiri áhuga
heldur en áður.“
Að sögn Kjartans
eru tónleikagestir há-
tíðarinnar á öllum
aldri, allt frá 10 ára og
upp úr. „Vissulega er
alltaf fastur kjarni
sem sækir alla tón-
leikana, en þar í kring
er síðan mjög fjöl-
breyttur áheyr-
endahópur. Sumir
hverjir eru að koma í
fyrsta sinn til að
kynna sér þetta sem
þeir hafa svo oft heyrt
um en aldrei heyrt
sjálfir, þ.e. nútímatónlist. Ég hef
líka veitt því sérstaka athygli að á
síðustu árum er sífellt fleira yngra
fólk að mæta á tónleika Myrkra
músíkdaga, fólk sem ekki er með
þessa gamaldags fordóma um að
allt sem er nútímalegt sé vont.“
Kjartan Ólafsson
Metaðsókn að Myrkum músíkdögum
LOKATÓNLEIKAR Myrkra músík-
daga verða haldnir í Ými í kvöld kl. 20,
en þá leikur Camerarctica verk eftir
Oliver Kentish, Árna Egilsson,
Krzysztof Penderecki og Elínu Gunn-
laugsdóttur. Camerarctica skipa
Miklós Dalmay píanóleikari, Hallfríð-
ur Ólafsdóttir flautuleikari, Ármann
Helgason klarínettuleikari, Hildi-
gunnur Halldórsdóttir og Sigurlaug
Eðvaldsdóttir fiðluleikarar, Guð-
mundur Kristmundsson víóluleikari
og Sigurður Halldórsson sellóleikari.
„Við erum að frumflytja tvö verk í
kvöld sem voru samin sérstaklega
fyrir okkur, annars vegar Frá myrkri
til ljóss, sem er kvintett fyrir klarín-
ettu og strengi eftir Oliver Kentish og
hins vegar Ferð, fyrir píanó, flautu,
klarínettu og strengi eftir Elínu
Gunnlaugsdóttur,“ segir Ármann
Helgason, en auk fyrrnefndra verka
verða flutt In the twilight, tríó fyrir
flautu, altflautu, fiðlu og víólu eftir
Árna Egilsson og Kvartett fyrir klar-
ínettu og strengjatríó eftir Krzysztof
Penderecki. „Það er einmitt sérstak-
lega spennandi að fá tækifæri til að
frumflytja ný verk því oft veit maður
hreinlega ekki hvort þau virka fyrr en
maður flytur þau í viðurvist áheyr-
enda. Þess vegna eru Myrkir músík-
dagar einmitt svo mikilvægir, því þeir
geta lýst upp skammdegið svo um
munar, þ.e. þegar um góð verk er að
ræða.“
Að sögn Ármanns er ákveðin heild-
armynd yfir efnisskrá kvöldsins þó
verkin fjögur séu innbyrðis mjög ólík.
„Verkin eru öll um 12–15 mínútur að
lengd og í þeim er ekkert ofsagt eða
ofhlaðið. Þau einkennast öll af mikl-
um kaflaskiptum og skiptingum milli
stemninga, en þema verkanna er m.a.
myrkrið og ljósið, ljósaskiptin og
minningar. Þannig eiga verk Olivers
og Árna það sammerkt að þar er verið
að leika sér með litbrigði. Árni notar
til þess m.a. altflautuna sem hefur
mjög dökkan lit, eins og víólan. Verk-
ið er á köflum mjög dularfullt, en á
sama tíma afar rytmískt, létt og leik-
andi, fer jafnvel út í djass. Verk Oli-
vers fjallar, líkt og titillinn ber með
sér, um allt litrófið frá myrkri til ljóss.
Í verkinu er klarínettan oft í andstöðu
við strengina, en samt er þetta mjög
ómblíð tónsmíð með fallegum laglín-
um og stefjum.“
Elsta verkið á efnisskránni er
Kvartett fyrir klarínettu og strengja-
tríó eftir Krzysztof Penderecki frá
árinu 1993. „Við fluttum þennan
kvartett hér á landi stuttu eftir að
hann var saminn, en þá var þetta al-
veg óþekkt verk. Síðan þá hefur það
verið hljóðritað nokkrum sinnum og
flutt mikið erlendis, en ekki heyrst
hérlendis þar til nú. Það er því mjög
gaman að fá að takast á við verkið aft-
ur, enda er þetta afar fín tónsmíð. Það
mætti lýsa því sem einhvers konar
hugleiðingu um tónlist fyrri hluta síð-
ustu aldar, enda minnir það nokkuð á
Bartók og Schönberg. Penderecki er
eitt af merkustu tónskáldum samtím-
ans og hefur samið mikið af tilrauna-
kenndri tónlist, en á síðustu árum hef-
ur hann farið að semja meira af
lagrænni og rómantískri tónlist á
borð við klarínettukvartettinn sem
við flytjum í kvöld,“ segir Ármann að
lokum.
Frá myrkri til ljóss
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Camerarctica leiðir Myrka músíkdaga til lykta þetta árið.
LEIKRITIÐ And Björk of course …
eftir Þorvald Þorsteinsson verður
framlag Íslands til Norrænu leik-
skáldaverðlaunanna 2004. Það er
dómnefnd á vegum Leiklist-
arsambands Íslands sem hefur valið
verkið úr öllum frumfluttum ís-
lenskum sviðsleikritum árin 2002 og
2003. Eitt verk frá hverju Norður-
landanna hlýtur tilnefningu, en
verðlaunin verða afhent á Norræn-
um leiklistardögum í Ósló í júní nk.
Leiklistarsamband Norðurlanda
stofnaði til verðlaunanna og hafa
þau verið veitt annað hvert ár allt
frá 1992, en Hrafnhildur Hagalín
hlaut hnossið það ár.
Forsendur valsins eru svohljóð-
andi:
„And Björk of course … er afar
nærgöngul, jafnvel hrollvekjandi
háðsádeila, þar sem meintu inni-
haldsleysi nútímans er lýst án mis-
kunnar. Verkið bregður upp mynd
af ráðvilltu, guðlausu fólki sem leit-
ar leiðsagnar, jafnvel forsjár hjá
ennþá ráðvilltari þerapista. Verkið
kallast þannig á við gamalt og áleit-
ið málverk Bruegels þar sem blind-
ur leiðir blindan til ógæfunnar.
Leikpersónurnar eru í senn þegnar
og fórnarlömb sálarlauss neyslu-
samfélags sem hefur misst trú á allt,
að eigin sjálfi meðtöldu, eða eins og
ein persónan segir: „Ég er algert
núll“. Guð er löngu dáinn en eftir
sitja villuráfandi sálir með óskil-
greinda þörf til að trúa meðan allt er
að mást út. Verkið er skrifað við
núllpunkt. Háðið beinist reyndar
ekki aðeins að efninu heldur líka
umgerðinni, sjálfri leiklistinni og
hefð hennar, en þótt unnt sé að
skoða leikritið sem afbyggingu leik-
formsins felur það í sér óumdeil-
anlega trúarjátningu um mátt þess.“
Dómnefndina skipuðu Árni Ibsen,
Guðmundur Brynjólfsson og Ingunn
Ásdísardóttir.
Norrænu leikskáldaverðlaunin verða veitt í Ósló í júní
And Björk of course… tilnefnt
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þorvaldur Þorsteinsson tekur við viðurkenningu vegna tilnefningarinnar.