Morgunblaðið - 11.02.2004, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 11.02.2004, Qupperneq 24
UMRÆÐAN 24 MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Í DAG er fyrri kjördagur kosn- inga til Stúdentaráðs og Há- skólaráðs og í dag gefst stúdentum kostur á að leggja sín lóð á vog- arskálarnar til að tryggja að frum- kvæði og kraftur ein- kenni starf fulltrúa þeirra innan Háskóla Íslands. Við í Vöku, fé- lagi lýðræðissinnaðra stúdenta, erum óhrædd við að leggja verk okkar undir dóm kjósenda fullviss um að á þeim tveimur árum sem við höfum leitt starf ráðsins hefur ver- ið lyft grettistaki í hagsmunabaráttu námsmanna. Stúd- entaráð hefur leitt öfl- uga og ábyrga umræðu um málefni stúdenta og Háskóla Íslands og ein- sett sér að benda ekki einungis á það sem betur mætti fara heldur einnig sýnt fram á leiðir til úrbóta. Á hverju ári er kosið nýtt fólk til að sitja í Stúdentaráði. Ráðið, sem fyrst kom saman árið 1920, hefur alla tíð verið aflvaki umbóta og framfara í Háskóla Íslands og komið fram sem öflugur málsvari stúdenta í landinu. Undanfarnar vikur höfum við í Vöku unnið hörðum höndum að stefnumótun fyrir næsta ár og gert okkar besta til að kynna þá vinnu fyrir stúdentum, ýmist með dreifi- efni eða heimsóknum fulltrúa okkar í kennslustofur Háskól- ans. Í þessum heim- sóknum höfum við kynnt stefnu Vöku og fengið upplýsingar um hvaða málefni brenna helst á nemendum. Mun fleiri standa þó að baki framboðinu og ætla má að hátt á þriðja hundrað manns komi nálægt því með einum eða öðrum hætti. Eitt af meg- inmarkmiðum þessa hóps er að vinna að hagsmunum stúdenta og hefur hann á síðustu tveimur árum sýnt hverju er hægt að áorka ef tek- ið er höndum saman. Nefna má vöktun bygginga í próftíð, sem tryggði rýmri opnunartíma í próf- um, skönnun prófa síðustu 3 ára til Metnaðarfull stefna Vöku – betri háskóli Davíð Gunnarsson skrifar um stúdentaráðskosingar Davíð Gunnarsson Í DAG og á morgun verður kos- ið til Stúdenta- og Háskólaráðs Háskóla Íslands. Röskva er ein af þeim fylkingum sem leita eftir um- boði stúdenta til að leiða hags- munabaráttuna næsta árið. Á lista Röskvu í ár er fjöldinn allur af öfl- ugu fólki sem er boðið og búið til að bæta hag stúdenta. Röskva er samtök félagshyggju- fólks við Háskóla Íslands. Röskva hefur frá upphafi unnið út frá því sjónarmiði að varðveita jafnrétti til náms. Hluti af jafnrétti til náms er að tryggja að stúdentar fái lán frá LÍN sem dugar þeim til fram- færslu. Í ár hækkaði grunn- framfærslan aðeins um nokkur hundruð krónur að raunvirði og það er óásættanlegt. Við endur- skoðun úthlutunarreglna LÍN í vor verður að sjá til þess að betri niðurstaða fáist. Einnig er nauð- synlegt að endurskoða ábyrgð- armannakerfið með ákveðinn fé- lagslegan sveigjanleika í huga því eins og staðan er í dag kemur ábyrgðarmannakerfið í veg fyrir að allir geti fengið lán. Fyrsta flokks menntun Háskóli Íslands á að veita fyrsta flokks menntun og því þarf að vinna jafnt og þétt að því bæta kennsluna. Auka þarf samræmi bak við einingar og endurskoða fyrirkomulag prófsýninga. Jafn- framt þarf að tryggja að aðstaða fyrir nemendur sé til fyrirmyndar og vinna að því að lengja opnunartíma Þjóðarbókhlöð- unnar, einkum um helgar. Til að hægt sé að halda uppi góðri menntun þarf að bæta rekstr- argrundvöll Háskóla Íslands. Nemendur, líkt og kennarar og starfsfólk skól- ans, eru orðnir langþreyttir á því fjársvelti sem skólinn býr við. Nýr menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, hefur und- anfarið sagt opinberlega að hún útiloki ekki að skólagjöld verði tekin upp við Háskóla Íslands. Slíkum skyndilausnum hafnar Röskva algerlega því þær herja á jafna möguleika fólks til náms. Í síðustu viku stóð Röskva fyrir mótmælastöðu við Háskólann þar sem stúdentar slógu skjaldborg um aðalbyggingu skólans og sýndu þannig samstöðu í baráttunni gegn skólagjöldum. Röskva vill áfram- haldandi baráttu gegn skólagjöld- um og betri árangur í hagsmuna- málum stúdenta. Röskva hvetur stúdenta til að taka höndum sam- an og kjósa ábyrgt fólk í forystu Stúdentaráðs. Gunnar Örn Heimisson og Anna Pála Sverrisdóttir skrifa um stúdentaráðskosningar ’Röskva vill áframhald-andi baráttu gegn skóla- gjöldum og betri árang- ur í hagsmunamálum stúdenta.‘ Anna Pála Sverrisdóttir Gunnar Örn skipar fyrsta sæti á lista Röskvu til Stúdentaráðs, Anna Pála skipar 1. sæti Röskvu til Háskólaráðs. Gunnar Örn Heimisson Tökum höndum saman með Röskvu REYKVÍKINGUM er annt um miðborgina og vilja flestir veg hennar sem mestan.Umræða um stöðu og framtíð miðborgar Reykjavíkur hefur aukist og verið töluverð undanfarnar vikur og er það vel. Þar hefur m.a. borið á góma fyrirhugaða og mögulega uppbygg- ingu við Laugaveginn og mat á gildi þeirrar byggðar sem fyrir er og þeirra húsa er víkja mega sam- kvæmt samþykktu deiliskipulagi. Verður hér stiklað á stóru og reifuð sú vinna sem leitt hefur til þeirrar niðurstöðu sem fram kemur í nýsam- þykktum deiliskipu- lagsáætlunum. Endurskoðun Árið 1997 var samþykkt að hefjast handa við endurskoðun á deili- skipulagi Kvosarinnar frá 1986 og vinna að gerð og endurskoðun deiliskipulags á miðborgarsvæð- inu.Fyrir þessu voru ýmsar ástæð- ur. Uppbygging hafði ekki orðið sú er vænst var, m.a. vegna breyttra verslunarhátta og nýrrar verslunarmiðstöðvar í Kringlu. Breyttar áherslur voru í verndun byggðar og ný skipulags-og bygg- ingarlög kváðu fastar að orði um deiliskipulagsgerð, sem skyldi unnin í samráði við viðkomandi hagsmunaaðila á umræddum svæðum. Húsvernd Þá þegar lá fyrir þemahefti um húsvernd í Reykjavík, unnið af starfshópi skipuðum embætt- ismönnum frá Árbæjarsafni, bygg- ingarlistadeild, skipulagsfulltrúa og byggingarfulltrúa. Þemaheftið var fylgigagn með Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996 – 2016. Í því kvað við nýjan tón í málefnum húsverndar. Þar sagði m.a. að stefnt skuli að varðveislu stað- bundinna og listrænna sérkenna í húsagerð og skipulagi sem gefi Reykjavík sérstöðu meðal borga og sé þannig mikilvægur þáttur ímyndar hennar. Jafnframt að hugtakið húsvernd feli í sér skilning á samhengi milli fortíðar og nútíð- ar, þar sem varðveisla á byggingararfinum og efling bygging- arlistar haldist í hendur. Skilgreindir voru mismunandi flokkar varðveislu, allt frá friðun húsa og verndun 20. aldar byggingarlistar til verndunar heildstæðra götumynda og byggðarmynsturs reita. Þróunaráætlun Þessi grunnur að húsvernd- arstefnu var síðan útfærður nánar í Þróunaráætlun miðborgar Reykjavíkur, sem var upphaf deiliskipulagsendurskoðunarinnar. Hún er eins konar uppbygging- aráætlun miðborgarinnar og felur í sér stefnumarkandi samþykktir m.a. um framkvæmd, landnotkun, samgöngumál, íbúðarsvæði, mótun umhverfis og uppbyggingu og verndun sem eru forsendur í þeirri deiliskipulagsvinnu sem unnin hefur verið sl. ár. Kynning Þegar unnið er skipulag að þegar byggðum svæðum ber samkvæmt skipulags- og byggingarlögum að vinna húsakönnun, sem höfð skal til hliðsjónar við gerð skipulags- ins. Þegar hin eiginlega deiliskipulagsvinna hófst fyrir um fjórum árum voru þannig unnar húsakannanir á vegum Árbæj- arsafns að öllum þeim reitum sem til skipulags voru og byggðu þær á fyrrnefndu þemahefti og stefnu- mörkun þróunaráætlunar. Höfðu fyrstu skipulagstillögur niðurstöðu þemaheftis að leiðarljósi. Tillög- urnar voru þrívegis kynntar fyrir hagsmunaaðilum og kallað eftir athugasemdum, við upphaf, þegar tillaga lá fyrir og í lögbundinni auglýsingu, en í sömu lögum er einnig kveðið á um samráð og kynningu fyrir hagsmunaaðilum áður en deiliskipulag er endanlega auglýst til samþykktar. Endurmat Í kjölfar athugasemda og frekari vinnu varð eðlilega ákveðin breyt- ing á skipulaginu og kom m.a. fram áhugi um frekari uppbygg- ingu við Laugaveginn. Var þá skipaður starfshópur um ákveðið endurmat á fyrirliggjandi drögum að deiliskipulagi, sem í sátu þáv. formaður skipulags- og bygging- arnefndar, embættismenn frá skipulagsfulltrúa, bygging- arlistadeild, framkvæmdastjóri miðborgar ásamt fulltrúa úr mið- borgarstjórn. Skilaði hópurinn áliti þar sem gerðar voru tillögur að breytingum á verndun og upp- byggingu þess eðlis að um 20 hús, sem talin voru hafa ákveðið varð- veislugildi, mætti rífa eða flytja á aðra lóðir og heimild til nýbygg- inga veitt í þeirra stað. Var þessu áliti vísað til meðferðar við end- anlega vinnu skipulagstillagnanna og hefur verið haft til hliðsjónar við hana. Deiliskipulag – uppbygging- armöguleikar Nú liggur fyrir samþykkt deili- skipulag fyrir alla reiti við Lauga- veg, að tveimur undanskildum, svokölluðum Stjórnarráðsreit og Timburhúsareit, sem markast af Frakkastíg, Laugavegi, Vitastíg og Grettisgötu, en á honum er heildstæðust byggð eldri húsa við Laugaveg. Samkvæmt deiliskipu- laginu má reisa um 60.000 m² ný- bygginga, þar af 30.000 m² versl- unarrými. Núverandi byggingarmagn er um 190.000 m², þar af 27.000 m² verslunarhús- næði. Mögulegt heildarniðurrif húsa samkvæmt deiliskipulag- sáætlunum er um 13.000 m². Þegar má sjá nýrisnar bygg- ingar og uppgerð hús í samræmi við hið nýja skipulag, þar sem byggt er á því að hver bygging sé barn síns tíma, vitnisburður um samtíð sína þar sem ákveðnar for- sendur búa að baki notkun, bygg- ingaraðferð og stílgerð. Þannig má lesa hina löngu byggingarsögu Laugavegarins frá fyrstu áratug- um 19. aldar og halda því fram að styrkur og sérstaða götunnar fel- ist m.a.í þessu. Aðalskipulag – horft til framtíðar Það er stefna nýs Aðalskipulags Reykjavíkur 2001–2024 að styrkja miðborg Reykjavíkur, m.a. með áherslu á að Laugavegurinn sé að- alverslunarsvæði og að í hlið- argötum frá honum eigi verslun sér vaxtarmöguleika. Með fjölgun íbúða, bættum samgöngum og fjölþættri menningu og þjónustu verði sköpuð skilyrði fyrir auðugt mannlíf. Miðbæir borga þurfa að vera í stöðugri endurskoðun og eðlilegri þróun til að halda aðdráttarafli sínu í samræmi við kröfur samtím- ans hverju sinni. Jafnvægi þarf að ríkja milli verndunar og uppbygg- ingar á sögulegum svæðum, þann- ig að byggt sé í sátt við söguna og horft til framtíðar. Laugavegur, miðborg – deiliskipulag – uppbygging, verndun Helga Bragadóttir skrifar um skipulagsmál ’Með fjölgun íbúða,bættum samgöngum og fjölþættri menningu og þjónustu verði sköpuð skilyrði fyrir auðugt mannlíf.‘ Höfundur er skipulagsstjóri í Reykjavík. PÁLL Vilhjálmsson blaða- maður ritar grein um fréttaföls- un í Morgunblaðið í gær. Tilefni hans til skrifanna er fréttaflutn- ingur Fréttablaðsins af laga- setningunni um sparisjóðina, sem hann telur að hafi gefið hlutdræga og villandi mynd af atburðarásinni. Telur hann þetta vera til marks um hlut- drægni í fréttaflutningi Frétta- blaðsins í þágu eigenda þess. Taka má undir sumt af því sem Páll segir almennt um þessa hlutdrægni. Það má líka vel vera að greina megi hlut- drægni í flutningi blaðsins á fréttum af sparisjóðamálinu að undanförnu. En gagnrýnandan- um Páli verður hins vegar alvar- lega á í messunni við skrif sín. Hann segir nefnilega orðrétt um frumvarpið sem samþykkt var á Alþingi í síðustu viku: „Frum- varpið kom í veg fyrir að stofn- fjáreigendur gætu höndlað með eigin fé sparisjóðanna sem sitt eigið…“. Þessi staðhæfing er röng. Í þeim fyrirætlunum sem Alþingi stöðvaði fólst ekkert af þessu tagi. Eigið fé Spron var alveg ósnortið í þessum við- skiptasamningi. Það átti allt saman að leggjast í sjóð, sem ráðstafað yrði til menningar- og líknarmála. Hins vegar áttu stofnfjáreigendur að fá meira en nafnverð fyrir stofnfé sitt. Kaupandinn átti að greiða þeim það úr sínum eigin vasa. Það er verðugt verkefni fyrir sálfræð- inga að finna það út, hvað veldur óbeit Páls blaðamanns og raun- ar alþingismanna á því að menn fái gott verð fyrir eigur sínar. Mér finnst við hæfi að beina þeirri ábendingu til Páls, að næst þegar hann ber fram ásök- un á hendur öðrum um að segja rangt frá, ætti hann sjálfur að reyna að hafa það sem sannara reynist. Þeir sem kasta steinum þurfa að búa í góðu húsi. Jón Steinar Gunnlaugsson Fréttafölsun II Höfundur er hæstarétt- arlögmaður. Nýbýlavegi 12 • 200 Kópavogi • Sími 554 4433 Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15 Föt fyrir allar konur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.