Morgunblaðið - 11.02.2004, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 11.02.2004, Qupperneq 32
MINNINGAR 32 MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Það mun hafa verið árið 1968 að ég hitti Kristján frænda minn á Reykjum fyrst. Ég var þá á ferð- lagi í Skagafirði með foreldrum mínum, níu ára gamall. Við dvöld- um á Laugabóli og þar eð ég hafði snemma fengið veiðisóttina var rennt í hlað á Reykjum, heilsað upp á Kristján og beðið um leyfi til þess að renna í Svartána. Og það leyfi var þá sem og seinna meir auðsótt. Eftir það varð Svartáin með stórurriðum sínum uppáhalds- staðurinn minn og er enn. Og sam- skiptin við Kristján áttu eftir að aukast því faðir minn var ásamt fleira fólki í forsvari fyrir byggingu laxastiga í Reykjafossi og var ætl- unin að gera uppána að veiðiparad- ís enda leitun að fallegra veiði- svæði. Menn stofnuðu með sér félag í samráði við bændur í sveit- inni, Veiðivötn, og svo var stiginn byggður, eitt hið mesta mannvirki sinnar tegundar á þeirri tíð. Það þurfti að sleppa seiðum og stússast ýmislegt annað við framkvæmdina og mig minnir að Kristján hafi hvergi hlíft sér við það. Ræktunin KRISTJÁN JÓHANNESSON ✝ Kristján Jó-hannesson, bóndi á Reykjum í Skagafirði, fæddist á Brúnastöðum í Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði 4. ágúst 1924. Hann lést á Heilbrigðis- stofnun Skagfirð- inga 19. janúar síð- astliðinn og var útför hans gerð frá Reykjakirkju 29. janúar. var hins vegar á margan hátt snúið verkefni því seinna kom í ljós að urriðinn góði þreifst vel á seið- unum. Árið 1975 veiddi faðir minn fyrsta laxinn úr uppá- nni sem vakti vonir um að stiginn virkaði að einhverju leyti og á ég í fórum mínum mynd af Kristjáni hróðugum haldandi á laxinum á hlaðinu á Reykjum. Fáir laxar veiddust hins vegar í viðbót og var seinna haft í flimt- ingum að faðir minn hefði líklega haft laxinn með sér frosinn að sunnan. Laxinn, sú kynjaskepna, lét sem sagt bíða eftir sér og menn þraut úthaldið til þess að halda áfram ræktuninni því ýmislegt þurfti að gera á ári hverju, t.d. að hreinsa stigann sem var erfitt verk og vandasamt og kostnaðurinn eft- ir því. Tilraunin gekk ekki sem skyldi og vafalaust margar ástæð- ur til þess en eftir stendur stiginn við fossinn sem minnisvarði um merkilega tilraun í fiskirækt snemma á áttunda áratugnum. Árin liðu og ég hélt áfram að koma í fjörðinn, ýmist með föður mínum eða þá vinum og félögum og iðulega var staldrað við á Reykjum til þess að rabba við Kristján. Hann var alltaf viðtals- góður og innti eftir fréttum að sunnan og sem fyrr var það auð- sótt með leyfið. Hins vegar fannst honum þetta líklega oft og tíðum óttalegt brölt að vera að aka alla leið úr Reykjavík til þess að fá að veiða í ánni hans enda töluvert ferðalag á þeim tíma. Og tilsvörin enda skemmtileg þegar maður spurði hvernig fiskaðist. Þá kom iðulega svarið: „Ooo, það er nú sussum ekkert að hafa,“ og á eftir fylgdi góðlátlegt glott. Við það varð ég auðvitað enn kappsamari um að komast í ána. Mér fannst Kristján á margan hátt óvenjuleg- ur bóndi. Hann var ekkert að vasast mikið með sauðfé og slíkt heldur ræktaði tómata og gúrkur í gróðurhúsum enda nóg af heitu vatni á jörðinni og dró fyrir í Héraðsvötnum. Hon- um var líka annt um arfleifð sína og reisti myndarlegt safn þar sem sjá má t.d. gamlar ljósmyndir af ættmennum hans gengnum. Og einhvern veginn er það þannig við þessi tímamót að maður getur ekki ímyndað sér Reyki og ána fallegu án Kristjáns, það verður að minnsta kosti erfitt að venjast þeirri hugsun að Kristjáns njóti ekki lengur við þar. Fundum okkar Kristjáns bar seinast saman í ágúst á síðasta ári í miklu sólskini og sumarhlýju, þar sem ég var á ferð með nokkrum vinum mínum. Mér var sem oft áð- ur í mun að renna í ána í landi Reykja því ég vissi af reynslu að þar gætu legið stórurriðar enda eitt besta veiðisvæðið í ánni norð- urundan Reykjabænum. Á þeim dagsparti komu þrír boltaurriðar á land og lét ég Kristján hafa aflann að launum fyrir leyfið. Ég held honum hafi þótt vænt um það. Ég átti hins vegar erfitt uppdráttar þegar ég hitti félaga mína sem trúðu lítt á þrjá urriða veidda og enn síður að ég hefði gefið þá. Ég vil nota tækifærið að lokum til þess að þakka Kristjáni ánægju- leg samskipti sem hafa staðið yfir með hléum í hartnær 35 ár um leið og ég votta aðstandendum samúð mína. Blessuð sé minning Krist- jáns á Reykjum. Þorsteinn G. Indriðason. Nú er vinur minn Pétur Haraldsson allur. Pétur var fæddur á Siglufirði árið 1933 á þeim tíma sem kennd- ur er við kreppuár. Nútímafólk á erfitt með að skilja aðstæður á þessum hörðu árum þegar fátt var PÉTUR HARALDSSON ✝ Pétur J. Har-aldsson vélstjóri fæddist á Siglufirði 26. júní 1933. Hann andaðist á sjúkra- húsinu á Ísafirði 27. janúar síðastlið- inn og var útför hans gerð frá Ísa- fjarðarkirkju 31. janúar. til bjargar. Móðir Pét- urs kom honum til fósturs hjá föðurafa og ömmu tveggja til þriggja mánaða göml- um og ólst hann því upp hjá þeim. Þegar Pétur er þriggja ára fær hann lömunar- veikina sem þá herjaði á landsmenn. Þessi veikindi urðu Pétri mjög erfið og hann losnaði aldrei alveg við áhrif þessa erfiða sjúk- dóms sem hann fann mjög fyrir síðustu ævi- ár sín. Við Pétur kynntumst í bernsku, og svo nánir vorum við að sjaldan var minnst á annan svo að hinn væri ekki nefndur. Þau vináttubönd sem við mynduðum ungir bar aldrei skugga á þar til Pétur var allur. Sjómennskan var Pétri í blóð borin og aldrei kom annað til greina en að hann yrði vélstjóri eins og faðir hans, afi og föður- bræður sem allir höfðu vélstjóra- réttindi og sinntu því starfi í lengri eða skemmri tíma. Pétur sigldi sem vélstjóri á fiski- og farskipum mestanpart ævinnar. Hann ólst upp á Ísafirði til fullorðinsára og engan þekki ég meiri Ísfirðing en Pétur sem unni Ísafjarðarbæ af heilum hug. Pétur var engin hóp- sál eða mótaður af neinu kerfi. Hann hafði sterkar skoðanir og lá ekki á þeim. Sterk lýsingarorð og þá ekki síð- ur blótsyrði léku Pétri svo fimlega á vörum að engan hef ég hitt jafn- ingja hans í þeim efnum. Pétur setti svip sinn á bæjarlífið á Ísa- firði. Persóna hans gerði mannlífið fjölskrúðugra og er því skarð fyrir skildi við fráfall hans. Pétur var mikill drengskapar- maður, tryggðatröll, fastur fyrir en traustur vinur vina sinna. Pétur kvæntist árið 1970 Geirlaugu Jóns- dóttur frá Vestmannaeyjum en hún lést árið 1995. Geirlaug var sólargeislinn í lífi Péturs, hún kom með mannkærleika og tilgang inn í líf hans. Dóttir Geirlaugar, Elísa- bet Una Jónsdóttir, og hennar börn upplifðu Pétur sem afa sinn. Þau reyndust Pétri ómetanleg í hans erfiðu veikindum allt þar til yfir lauk. Kæri Pétur. Nú þegar þú ert allur hugsa ég til æskuáranna og þeirra ljúfu minninga og mynda, sem mér koma í hug, um öll þau ævintýri sem við upplifðum saman. Þau vináttubönd sem aldrei brustu munu ylja mér um ókomin ár. Ég mun aldrei gleyma þeirri hetju- legu baráttu sem þú háðir við erfið veikindi. Þú kunnir ekki að aumk- ast yfir sjálfan þig og barst ekki tilfinningar þínar á torg. Ég óska þér velfarnaðar á siglingu þinni um sólarsali almættisins og veit að vélin stoppar ekki í þínum hönd- um. Guðmundur Halldórsson. Ástkær dóttir mín, systir og mágkona, RÁÐHILDUR ELLERTSDÓTTIR, Kríuási 15, áður Móabarði 30b, lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi, Hafnarfirði, mánudaginn 9. febrúar. Jóhanna Kristjánsdóttir, systkini, makar og aðrir aðstandendur. Hjartans þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar og móður okkar, INGIBJARGAR SKÚLADÓTTUR, Aðalstræti 17, Ísafirði. Sveinbjörn Sveinbjörnsson, Skúli Sveinbjörnsson, Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir. Okkar bestu þakkir til ættingja og vina GUÐRÚNAR HELGU ÞORMAR GARÐARSDÓTTUR, sem heiðruðu minningu hennar og voru henni ómetanleg hjálp. Sérstakar þakkir fá allir norsku vinir hennar, sem komu til að kveðja hana, svo og Heimahlynning Krabbameins- félagsins fyrir frábær störf. Guð blessi ykkur öll. Jónas Þormar Edvardsson, Ingunn Þormar, Garðar Þormar, systkini og aðrir vandamenn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ARNÞÓR FLOSI ÞÓRÐARSON, Selbraut 42, Seltjarnarnesi, sem lést miðvikudaginn 4. febrúar, verður jarðsunginn frá Seltjarnarneskirkju föstu- daginn 13. febrúar kl. 13.30. Inger E. Andersdóttir, Hafrún Arnþórsdóttir, Elías Þ. Kristjánsson, Atli Arnþórsson, Berglind Sigurðardóttir, Hjördís Inga Atladóttir. UNNUR P. JÓNATANSDÓTTIR frá Skeggjastöðum, síðast til heimilis á Sólvallagötu 45, Reykjavík, lést á heimili dóttur sinnar í Bandaríkjunum þann 4. desember sl. og var hún jarðsett þar í kyrrþey að eigin ósk. Aðstandendur. Elskuleg eiginkona, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, EVA KARLSDÓTTIR, Syðri-Brekku, andaðist á Heilbrigðisstofnuninni Blönduósi sunnudaginn 8. febrúar. Þórir Magnússon, Guðrún Sigurjónsdóttir, Sigrún Þórisdóttir, Gunnlaugur Björnsson, Þórkatla Þórisdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Kæri tengdapabbi. Það eru nú 24 ár síð- an ég kom með dóttur þinni til Íslands og hitti þig í fyrsta skipti. Frá fyrstu byrjun hef ég alltaf fundið hvað ég var velkominn. Það hafa verið mörg jól og sumarfrí sem við höfum verið saman og gleðin yfir minningunum GUNNLAUGUR SIGURBJÖRNSSON ✝ Gunnlaugur Sig-urður Sigur- björnsson fæddist á Kljáströnd í Höfða- hverfi í Eyjafirði 11. júní árið 1916. Hann lést á Sjúkrahúsi Akraness 20. janúar síðastliðinn og var útför hans gerð frá Akraneskirkju 28. janúar. lifir enn. Vinalegheit- unum sem streymdu frá þér gleymi ég aldrei. Betri tengda- föður hefði ég ekki getað átt. Tómas Óskarsson. Kæri afi. Við erum svo þakklát fyrir þessi ár sem við höfum átt með þér, þó það væri langt á milli stundum og okkar íslenska væri ekki eins og hún átti að vera. Við vitum að þú fannst hvað okkur þótti vænt um þig. Við söknum þín og minnumst þín með gleði. Himinninn er einum engli ríkari. Jóhanna og William.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.