Morgunblaðið - 11.02.2004, Qupperneq 38
38 MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Clifton - Kóbrukossinn
Grettir
Grettir
Smáfólk
Smáfólk
framhald ...
© DARGAUD
ÞÁ ERUM VIÐ EINIR EFTIR LÁKI!
ÉG HELD AÐ ÞÚ HAFIR MARGT AÐ
SEGJA MÉR!
ÉG ER TIL ÞJÓNUSTU
REIÐUBÚINN
FULLTRÚI ...
ÉG ER MEÐ SKJÖLIN SEM
KOMA UPP UM ALLAR
FÆRSLUR MILLI HINNA
ÝMSU STOFNANA RUTH-
MANNS ... ÉG SÁ UM ALL-
AR AÐGERÐIR ...
ÞVOTTAEFNIÐ,
MEÐ ÖÐRUM
ORÐUM SÁ
SEM SÁ UM AÐ
HREINSA ILLA
FENGIð FÉ!
HVER ER ÁSTÆÐAN FYRIR ÞVÍ AÐ ÞÚ
ÁKVÁÐ AÐ SVÍKJA YFIRMANN YÐAR?
SONUR MINN ... ER NÝLÁTINN ...
OF STÓR SKAMMTUR AF EITUR-
LYFJUM! MIG GRUNAÐI EKKI
EINU SINNI AÐ HANN NOTAÐI
ÞAU! Á VISSAN HÁTT FINNST
MÉR ÉG HAFA DREPIÐ HANN! ...
EN RUTHMANN ER LÍKA SEKUR!
OG KÓBRAN OG ALLIR HINIR!
ÞEIR SKULU FÁ ÞETTA BORGAÐ!
KOMDU LÁKI, ÉG FER MEÐ ÞIG Á ÖRUGGAN STAÐ, ÞAR SEM
LÖGREGLAN GETUR VERNDAÐ ÞIG.
NOTAÐU TÆKIFÆRIÐ, FULLTRÚI, OG LÁTTU
HANN LÆRA Á BÍL!
ÞAÐ MÁ MEÐ SANNI
SEGJA, MATTHÍAS, AÐ
VIÐ HÖFUM STAÐIÐ OKK-
UR FRÁBÆRLEGA VEL!
ÁN OKKAR ...!
JÁ ÁN
OKKAR ...
ÞAÐ ER
EKKERT
BLEK Í
PENNANUM!
ÞAÐ ER
ENGINN PENNI
Í BLEKINU
MÍNU
FINASTA
SKYRTAN MÍN!!!
EKKI
LENGUR!
ER ÞESSI STÓLL
FRÁTEKINN
FÁÐU
ÞÉR SÆTI
GETTU HVAÐA DÝR
SLAPP ÚT ÚR
DÝRAGARÐINUM?
GÆTI ÞAÐ
HAFA VERIÐ
BJÓR
ROOP!!
KJAMS!
KJAMS!
KJAMS!
HÆ KALLI,
GAMAN AÐ
SJÁ ÞIG!
ÞÚ MANST EFTIR
FURÐULEGU STELPUNNI ÚR
SUMARBÚÐUNUM
HERRA,
KUNNA ÞEIR
FELULEIK?
HÆTTU AÐ
KALLA MIG
HERRA ...
AUÐVITA!
SÆTA, SVONA TIL
FRÓÐLEIKS ÞÁ HEF ÉG EKKI
TAPAÐ Í FELULEIK UNDAN-
FARIN ÞRJÚ ÁR
TILBÚINN!!
HVAR
EIGUM VIÐ
AÐ LEITA,
HERRA
ALLA-
VEGA EKKI
LEITA ÞAR
SEM ÉG
LEITA OG
HÆTTU AÐ
KALLA MIG
HERRA
OKEJ KALLI!
FELDU ÞIG OG
KALLAÐU ÞEGAR
ÞÚ ERT TIL
ÉG
ELSKA
LEIKI
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Þórólfur Árnason,
borgarstjóri í Reykjavík.
Í seinni fréttum sjónvarps þann 5.
febrúar sl. var rætt við þig um af-
stöðu þína til áskorunar átakshóps
Höfuðborgarsamtakanna og Sam-
taka um betri byggð á borgarstjórn
að fresta um sinn framkvæmd við
nýja Hringbraut svo ráðrúm gefist
til að kynna fyrir kjósendum í
Reykjavík alla kosti í málinu og
kanna til hlítar hagkvæmni og heild-
aráhrif.
Megininntak áskorunar samtak-
anna er að í tillögu Vegagerðar felist
alvarleg skerðing á framtíðarmögu-
leikum miðborgarinnar, að bygging-
arland fyrir samtals 11milljarða fari
í súginn og að engin samgöngubót
hljótist af.
Í viðtalinu sagðir þú að of seint
væri að fresta framkvæmdum og að
sjálfur værir þú maður fram-
kvæmdanna, rétt eins og þú hygðist
nú hirða eyrinn en kasta krónunni
með því að framkvæma strax fyrir
1.200 miljónir samgönguráðherrans,
án tillits til víðtækra og þungvægra
hagsmuna samfélagsins.
Átakshópur Höfuðborgarsamtak-
anna og Samtaka um betri byggð
krefst þess hér með:
– að þú gerir Reykvíkingum strax
ítarlega grein fyrir nefndarstörfum,
samráðsfundum, hönnunarkostnaði,
kostnaði við gerð útboðsgagna og
öðru því sem á undan er gengið á
vegum nefnda og ráða Reykjavíkur-
borgar varðandi fyrirhugaða bygg-
ingu hinnar nýju Hringbrautar,
– að þú gerir nákvæma grein fyrir
verkaskiptingu og skiptingu ábyrgð-
ar og kostnaðar milli Vegagerðar
ríkisins og Reykjavíkurborgar,
– að þú leggir fram mat Reykja-
víkurborgar á verðmæti þess lands,
sem fer forgörðum vegna hávaða-
mengunar af völdum hinnar fyrir-
huguðu brautar,
– að þú gerir Reykvíkingum ítar-
lega grein fyrir því hvernig núver-
andi ráðamenn í borginni sjá fyrir
sér þróun núverandi miðborgar-
svæðis, þróun byggðar í Vatnsmýri,
uppbyggingu Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss, þróun Háskóla Íslands,
uppbyggingu vísindagarða og sam-
spil og samþættingu allra þessara
mikilvægu þátta þegar komin er sex
akreina stofnbraut yfir þvert svæðið,
– að þú gerir Reykvíkingum nú
grein fyrir því hvað líður undirbún-
ingi borgaryfirvalda að heildarskipu-
lagi Vatnsmýrar og aðliggjandi
svæða.
Átakshópurinn óskar nánari skýr-
inga á hvað felst í sjálfsmati þínu, að
þú sért maður framkvæmdanna. Á
þessu stigi málsins treysta kjósend-
ur því að í hópi ráðamanna í Reykja-
vík leynist e.t.v. hugsuðir, skáld eða
heimspekingar, fólk, sem ekki styð-
ur mál sitt með dínamíti og jarðýt-
um. Þórólfur, það verður seint of
seint að fresta þessu máli.
F.h. átakshóps Höfuðborgarsam-
takanna og Samtaka um betri byggð,
DÓRA PÁLSDÓTTIR,
EINAR EIRÍKSSON,
ÖRN SIGURÐSSON.
Opið bréf
Frá átakshópi Höfuðborg-
arsamtakanna og Samtaka um
betri byggð
11. og 12. febrúar næstkomandi fara
fram kosningar til stúdentaráðs og
háskólafundar Háskóla Íslands.
Hafa þrjár fylkingar tilkynnt um
framboð sitt og lýst sig mótfallnar
hvers konar hugmyndum um upp-
töku skólagjalda við HÍ.
Við undirritaðir hörmum þá
ákvörðun framboðanna að hafna
upptöku skólagjalda áður en kostir
og gallar slíkrar gjaldtöku hafa verið
vegnir og metnir á sanngjörnum for-
sendum.
Í raun má líta á menntun á há-
skólastigi sem einstaklingsbundin
gæði, sem skilar sér í auknum lífs-
gæðum. Með aukinni þátttöku ein-
staklingsins í fjármögnun mennt-
unnar sinnar verður námsval og
násmtími markvissari og kröfur til
menntastofnana að sama skapi
auknar.
Það er von okkar að þegar orra-
hríð kosninganna lýkur muni kjörnir
fulltrúar nemenda setjast niður og
velta fyrir sér hvort sú afstaða að
loka á möguleika þess að tekin verði
upp skólagjöld við HÍ þjóni í raun
hagsmunum nemenda.
BJARKI MÁR BAXTER
laganemi
SKAPTI ÖRN ÓLAFSSON
sagnfræðinemi
STEFÁN EINAR STEFÁNSSON
guðfræðinemi
Yfirlýsing vegna umræðu
um skólagjöld við HÍ
Frá Bjarka Má Baxter, Skapta
Erni Ólafssyni og Stefáni Einari
Stefánssyni