Morgunblaðið - 11.02.2004, Page 40
DAGBÓK
40 MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur. Skrif-
stofa s. 551 4349, mat-
araðstoð kl. 14–17.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa og postulín,
kl. 13 postulín, kl.13.30
leshringur í fund-
arsalnum. Hársnyrt-
ing, fótaaðgerð.
Árskógar 4. Kl. 9–12
bað og handavinna, kl.
10.30–11.30 heilsu-
gæsla, kl. 13–16.30
smíðar og handavinna,
kl. 13 spil.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–13 hárgreiðsla, kl.
8–12.30 bað, kl. 9–12
glerlist, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 13–
16.30 bridge/vist, kl.
13–16 glerlist.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9 að-
stoð við bað og hár-
greiðsla, kl. 10
leikfimi, kl. 14.30
bankinn, kl. 14.40 ferð
í Bónus.
Félagsstarfið Dal-
braut 27. Kl. 8–16
handavinnustofan op-
in, kl. 10–13 opin versl-
unin, kl. 13.30 bankinn,
kl. 11–11.30 leikfimi.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Postulíns-
málun, námskeið og
leirmótun, námskeið
kl. 9–16.30.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl.
9.30 hjúkrunarfræð-
ingur á staðnum, kl. 10
hársnyrting, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 13
föndur og handavinna
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Stólaleikfimi
kl. 9.30, kvennaleikfimi
kl. 10.20 og 11.15,
handavinnuhorn og
bridge-námskeið kl.
13, trésmíði kl. 13.30.
Félag eldri borgara
Kópavogi. Skrifstofan
er opin í dag frá kl.
10–11.30, viðtalstími í
Gjábakka kl 15–16.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli.
Opnað kl. 9, mynd-
ment kl. 10–16, línu-
dans kl. 11, gler-
skurður kl. 13,
pílukast kl. 13.30, bilj-
ard kl 13.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði.
Síðdegisdansinn í Ás-
garði Glæsibæ kl.
14.30–16.30. Húsið
opnað kl. 14. Guð-
mundur Haukur leikur
fyrir dansi. Kaffi og
vöfflur. Söngfélag
FEB kóræfing kl. 17
og Línudanskennsla
kl. 19.15.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar, kl.
13.30, gamlir leikir og
dansar og sund og
leikfimiæfingar í
Breiðholtslaug, frá há-
degi spilasalur opinn
kl. 13.30 kóræfing.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 10–17 handavinna,
kl. 9.30 boccia, kl. 9.30
og kl. 13 glerlist, kl. 13
félagsvist, kl. 16 hring-
dansar, kl. 16.15 tré-
skurður, kl. 17. bobb.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 vefnaður, kl.
10 ganga, kl. 11 handa-
vinnustofan opin, leið-
beinandi á staðnum kl.
13–16.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, út-
skurður, hárgreiðsla,
fótaaðgerð og banki,
kl. 13 brids.
Hvassaleiti 58–60. Kl.
9–15 handmennt, kl.
9–10 og kl. 10–11 jóga,
kl. 15–18 myndlist.
Fótaaðgerðir virka
daga, hársnyrting
þriðju- til föstudags.
Korpúlfar Grafarvogi.
Á morgun Keila í
Mjódd kl. 10.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 vinnustofa, kl. 9–
16 fótaaðgerð, kl. 14
félagsvist, kaffi og
verðlaun.
Vesturgata 7. Kl.
8.25–10.30 sund, kl.
10–11.30 ganga, kl. 9–
16 fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–16
myndmennt, kl. 12.15–
14.30 verslunarferð, kl.
13–14 spurt og spjall-
að, kl. 13–16 tréskurð-
ur. Lokað verður fös-
tud. 13. feb. frá kl.13
vegna undirbúnings
þorrablóts sem hefst
kl.17. Ósóttir miðar
óskast sóttir fyrir mið-
vikudaginn 11. febr-
úar, uppselt.
Vitatorg. Kl 8.45
smiðja, kl. 9 fótaað-
gerðir, kl. 10 búta-
saumur og hár-
greiðsla, bókband, kl.
13 föndur og kóræfing,
kl. 12.30 verslunarferð.
Þjónustumiðstöðin,
Sléttuvegi 11. Kl. 10–
12 verslunin opin, kl.
13–16 keramik, tau-
málun, föndur, kl. 15
bókabíllinn.
Hafnargönguhóp-
urinn. Kvöldganga kl.
20 miðvikudaga. Lagt
af stað frá horni Hafn-
arhúsins norðanmegin.
Rangæingar – Skaft-
fellingar. Spilakvöld í
kvöld kl. 20, í Skaft-
fellingabúð að Lauga-
vegi 178. Kaffiveit-
ingar.
Sjálfsbjörg, Hátúni 12.
Kl. 19.30 félagsvist.
Kvenfélagið Aldan.
Afmælisfundur í kvöld
kl. 19.30 í Háteigi á
Grand hóteli.
Í dag er miðvikudagur 11. febr-
úar, 42. dagur ársins 2004. Orð
dagsins: Í friði leggst ég til hvíld-
ar og sofna, því að þú, Drottinn,
lætur mig búa óhultan í náðum.
(Sl. 4, 9.)
Alþingismenn hafa núloks náð saman um
mjög mikið þjóðþrifamál,
að ríkisvæða sparisjóð-
ina, segir Benedikt Jó-
hannesson í pistli undir
liðnum Aðrir sálmar í
Vísbendingu. „Öllum sem
fylgst hafa með málinu er
ljóst hve mikið gagn
þingmenn vinna með
þessu. Stofnfjársjóðurinn
SES, sem er hugsaður til
þess að styrkja líknar- og
menningarmál, átti að fá
um sex milljarða króna ef
af sölu til KB banka yrði.
Vextir af því gætu numið
um 300 milljónum sem
varið yrði til þess að
styrkja góð málefni.
Sumarið 2002, þegarstofnfjáreigendur
áttu að fá sinn hlut
greiddan á pari, var
verðmæti SPRON metið
á 4,2 milljarða og þar af
átti sjálfseignarstofnunin
3,7 milljarða. Það er því
öllum ljóst (nema Pétri
Blöndal) að það er miklu
betra að koma í veg fyrir
söluna til KB banka, því
samkvæmt henni fær
sjóðurinn 2,3 milljörðum
meira til verkefna en áð-
ur var áætlað.
Það er alþekkt að miklu
meira en nógum fjár-
munum er varið til líkn-
ar- og menningarmála og
því ánægjuefni að lög-
gjafinn reisi skorður við
frekari útþenslu á því
sviði. Við fyrri lagasetn-
ingar hafði líka láðst að
virkja fulltrúa ríkisvalds-
ins í stjórnum þessara
sjálfseignarstofnana, en
úr því verður bætt núna.
Er ekki rétt, meðan menn
eru heitir, að lögfesta
endurreisn kaupfélag-
anna?“ er spurt í lok pist-
ilsins um SPRON.
Í sama dálki Vísbend-ingar segir Benedikt
Jóhannesson að ævintýr-
in gerist enn og ferðalög
forsetans hafi sett svip
sinn á undanfarna viku.
„Mál af þessu þessu tagi
vekja alltaf sérstaka
ánægju með að vera Ís-
lendingur. Fréttamenn
og stjórnmálaskýrendur
hafa sérstakt lag á að
skilja kjarnann frá hism-
inu og henda honum svo.
Forsetinn hefur eðlilega
móðgast við það að vera
leyndur afmæli stjórn-
arráðsins, því hver les
boðskort?“ spyr Bene-
dikt.
Sjálfur segist hann ætíðhafa fylgt þeirri
stefnu að mæta ekki í
veislur nema sem veislu-
stjóri eða að lágmarki að
fá að halda ræðu. „Þjóðin
hafði ekki gert sér grein
fyrir þeim almenna yf-
irgangi handhafa for-
setavalds, sem hrifsuðu
til sín valdið samtals 101
dag á nýliðnu ári sam-
kvæmt talningu Morg-
unblaðsins. Væri ekki
eðlilegt að þjóðin fengi
hlutverk í ferðum örygg-
isventils síns og lýst yrði
yfir almennum frídegi
þegar forsetinn er ekki á
landinu?“ stingur Bene-
dikt upp á í lokin.
STAKSTEINAR
Ekki rétt að endurreisa
kaupfélögin?
Víkverji skrifar...
Vinafélag foreldra hljómarkannski framandi í eyru ein-
hverra en nýlega heyrði Víkverji að
slíkur selskapur væri starfræktur
við skóla í borginni og vel væri
mætt á fundi félagsins.
Foreldrar hittast semsagt reglu-
lega utan skólans til að bera saman
bækur sínar um uppeldið, nám
barna sinna og kennslu, útivist-
artíma, kennslu, afmæli barnanna,
einelti, vasapeninga og svo fram-
vegis. Frábær hugmynd og örugg-
lega vel þegið að hittast til að
skiptast á skoðunum um öll þessi
mál sem foreldrar eru að glíma við.
Reyndar er Víkverji að fara á
svipaðan fund á næstunni, foreldra-
félagið í bekk barnsins hans boðar
til samverustundar forráðamanna
þar sem spjalla á um krakkana og
ákveðið var að hittast utan skólans.
Víkverji vonar að fundurinn verði
vel sóttur og marki upphaf að
reglulegum fundum foreldra.
x x x
Víkverji hefur sótt kirkju und-anfarið, farið í messu og notið
þessara stunda í Guðs húsi. Börnin
fara í barnamessu og fullorðna fólk-
ið hlýðir á hefðbundna messu á
meðan.
Hann kann vel að meta þann sið
að fá sér kaffisopa að messu lokinni
og hitta safnaðarmeðlimi áður en
haldið er heim á ný. Þær stundir
efla tengslin við fólkið og ekki síður
við kirkjuna. Hann veltir því hins
vegar fyrir sér hvort ekki sé grund-
völlur fyrir því að bjóða upp á súpu
og brauð í hádeginu eða þá súpu og
salat í stað þessa að vera alltaf með
molasopa. Þetta þyrfti ekki að vera
í boði alla sunnudaga, einu sinni í
mánuði væri alveg nóg.
Það væri líka frábært ef kirkj-
urnar kæmu sér upp leikaðstöðu
þar sem kirkjugestir drekka saman
kaffi eða snæða og börnin gætu
verið að dunda sér ef þau væru fyrr
búin að drekka eða matast.
Víkverji er viss um að nóg er til
af leikföngum á heimilum kirkju-
gesta sem börn eru hætt að nota og
safnaðarmeðlimir gætu gefið kirkj-
unni sinni. Kirkjugestir gætu svo
borgað kostnaðarverð fyrir súpuna
og salatið, væntanlega 200–300
krónur á mann og setið og spjallað.
Víkverji bjó einu sinni í útlöndum
og þá kom fyrir að hann brá sér í
messu þar. Iðulega var boðið upp á
hádegissnarl á eftir. Þessar stundir
voru mjög vel sóttar.
x x x
Vinkona Víkverja er mikill dýra-vinur og í frostinu síðustu daga
hefur hún eignast marga smávini
sem koma að húsinu hennar reglu-
lega og þiggja fuglafóður. Ef hún
hefur gleymt að gefa þeim eða er
sein með kornið láta þeir heyra í
sér þegar hún er að koma að húsinu
eða fara frá því og þannig minna
þeir á sig.
Víkverji hvetur fólk til að gefa
smáfuglununum nú á meðan kalt er
í veðri og ekki síður þeim fuglum
sem búa á tjörninni. Þeir eru sár-
svangir.
Morgunblaðið/Arnaldur
Foreldrar fá sér kaffibolla og bera
saman bækur sínar um hluti eins og
útivistartíma, vasapeninga, einelti.
Fordómafull
fyrirsögn
MIG langar til að lýsa reiði
minni yfir fyrirsögn DV
hinn 9. febrúar síðastliðinn,
„Íslenskur hommi vinnur
Eurovision í DK“.
Mér finnst þetta vera
fordómafull, barnaleg og
ósmekkleg fyrirsögn.
Hvaða máli skiptir hvort
maðurinn er samkyn-
hneigður eða ekki?
Þetta sýnir bara, finnst
mér, að DV er orðið sorp-
dagblað og veit ég um
marga sem hafa sagt upp
áskrift vegna þessa.
Hjördís Svan,
Danmörku.
Góð þjónusta
MIG langar til að vekja at-
hygli á góðri þjónustu hjá
Dressmann á Laugavegi.
Ég keypti þar náttföt sem
reyndust of stór og þegar
ég kom til að skila þeim þá
voru þau endurgreidd án
athugasemdar. Fannst mér
þetta sérstaklega góð þjón-
usta.
190923-4799.
Handmálaðir
jólabollar
ÉG er að leita að konu í
Garðabænum sem fram-
leiðir jólabolla sem eru
handmálaðir með jólasvein-
unum. Ef einhver getur að-
stoðað mig við að hafa upp
á þessari konu þá vinsam-
lega hafið samband við Geir
í síma 897 8258.
Að geta þess
sem vel er gert
VIÐ höfum átt viðskipti við
verslunina Johan Rönning,
Borgartúni 24, undanfarna
mánuði. Í stuttu máli,
starfsfólkið þar er einstakt
í sinni röð. Auk þess að
selja manni einstaklega
góða vöru er það boðið og
búið að koma til móts við
allar okkar þarfir og leysa
mann út með góðum óskum
með meiru.
Unnur, Atli Freyr og
Þröstur, hjartans þakkir.
Hjónin á Selfossi.
Athugasemd við grein
MIG langar að gera at-
hugasemd við grein sem
heitir Fýkur landið burt
eftir Þóri Kjartansson í Vík
í Mýrdal og birtist í Morg-
unblaðinu sl. sunnudag.
Fannst mér hann víkja
ómaklega að tveimur kon-
um sem hafa skrifað um
landgræðslumál. Eins segir
hann að gróður landsins sé
í framför og að náttúran sé
sjálf að græða upp landið
en hann gleymir að geta um
ástæðuna fyrir þessu en
hún er sú að sauðfé á land-
inu er helmingi færri en
það var fyrir 25 árum.
Þetta þarf að koma fram.
Vonandi heldur sauðfé
áfram að fækka á Íslandi.
Baldvin Atlason.
Tapað/fundið
Gullnisti týndist
FÖSTUDAGINN 30. jan-
úar sl. glataðist lítið gull-
nisti með hvítum (glærum)
ópalsteini, hugsanleg á leið
frá Domus Medica, framhjá
Iðnskóla, niður Skóla-
vörðustíg að Laugavegi 1
og uppeftir Laugavegi.
Nistið er eigandanum afar
kært. Skilvís finnandi vin-
samlega hafi samband í
síma 482 1520.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT
1 skrautgjarn, 8 fisk-
veiðar, 9 hrósar, 10
slæm, 11 dregur, 13
mannsnafn, 15 æki, 18 of-
samaður, 21 guð, 22
ginni, 23 fuglinn, 24 ná-
býliskona.
LÓÐRÉTT
2 slóttug, 3 talar, 4 lítill
bátur, 5 skottið, 6 knippi,
7 ósoðinn, 12 bardaga, 14
sefa, 15 hæð, 16 ílát, 17
stíf, 18 ósvífin, 19 sárið,
20 skýra frá.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 trýni, 4 bolti, 7 nefna, 8 riftu, 9 níð 11 rýrt, 13
grun, 14 askur, 15 fork, 17 árás, 20 urt, 22 mokar, 23
efnuð, 24 linna, 25 glita.
Lóðrétt: 1 týnir, 2 ýlfur, 3 iðan, 4 borð, 5 lifir, 6 Iðunn,
10 ískur, 12 tak, 13 grá, 15 fámál, 16 rakan, 18 rengi, 19
síðla, 20 urða, 21 teig.
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16