Morgunblaðið - 11.02.2004, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 11.02.2004, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2004 41 DAGBÓK STJÖRNUSPÁ Frances Drake Afmælisbörn dagsins: Þú hefur hugsjónir og vilt vinna að umbótum í heim- inum. Þú býrð bæði yfir frum- leika og hugmyndaauðgi og kannt að meta frelsi. Komandi ár verður upphaf margs. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Mikilvægt er að ræða málin við vini sína og láta aðra vita hver markmið þín eru til framtíðar. Þú gætir fengið gagnleg ráð. Naut (20. apríl - 20. maí)  Aðrir munu taka eftir þér í dag þannig að ráðlegt er að gefa gaum að útlitinu. Verið gæti að einhver vildi fela þér aukna ábyrgð, en þú munt standa undir væntingum. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú skalt grípa tækifærið til að kanna heiminn. Fróðleiks- þorsti þinn er mikill og nám og ferðalög munu koma þér til góða. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Um þessar mundir gæti þér orðið ágengt í að koma á hreint öllu, sem varðar eignir, þannig að rétt er að koma sér að verki. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Það er mikilvægt að muna að eigi samstarf að bera ávöxt þarft þú að láta jafnmikið að þér kveða og gefa jafnmikið af þér og samstarfsaðilinn. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú átt sérdeilis auðvelt með að koma skipulagi á líf þitt og leggja hart að þér um þessar mundir. Nú er rétt að taka til og losa sig við minnst fimm hluti, sem þú notar ekki leng- ur. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú nýtur þín við skapandi verkefni og eins og sakir standa eru peningarnir ekki mikilvægastir heldur það að vinna verkið. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Nú er mikilvægt að ræða fjöl- skyldumál. Þú kynnir að vilja gera hreint fyrir þínum dyr- um við foreldri. Gott væri að bæta skipulagið heima fyrir. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þú skalt vera skýr í öllum samskiptum við aðra. Ekki hika við að sýna vænt- umþykju þeim, sem þú um- gengst reglulega. Það fólk er þér mikilvægt. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú kynnir að vilja kaupa eitt- hvað, sem vekur ánægju og stolt. Þú veltir sérstaklega fyrir þér hvaða augum aðrir líta þig. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þrjár reikistjörnur eru í merki vatnsberans núna og því býrð þú yfir auknum krafti. Rétt er að nota tæki- færið til að safna kröftum fyr- ir árið sem er í vændum. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú þarft meiri tíma til að hvíl- ast og velta fyrir þér stöðu mála. Þú skalt reyna að hugsa skýrt þannig að þú getir gert þér grein fyrirþví hvað þú vilt. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. VATNSBERI ÁRNAÐ HEILLA FERÐALANGUR Kominn af heiðum hrakinn og þreyttur, – hláturinn skyldur ekka. Borinn var mér í blárri könnu blöndusopi að drekka. Rakur var ég af rjúpnablóði, – rauðir tvennir sokkar. Himinblá voru hennar augu, hrukku bleikir lokkar. Þambaði drykkinn – dökkar bylgjur dundu í brjósti mínu. Hönd ein fögur að hurðarbaki hvarf með gulli sínu. Fór svo hljóður og hélt til fjalla, – hart var fok á snænum. Sólin logaði lengi í glugga á litla heiðarbænum. Staldraði við og varpaði mæði: vandi er stundum að rata. Hún var í kjól úr híalíni hvítu einum fata ... Jóhannes úr Kötlum. LJÓÐABROT 80 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 11. febrúar, verður áttræð Rósa Kemp Þórlindsdóttir, Barr- holti 7, Mosfellsbæ. Eig- inmaður hennar er Jón Þ. Eggertsson, fyrrverandi skólastjóri. Þau eru að heiman. 1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Rc3 g6 4. d4 cxd4 5. Rxd4 Bg7 6. Be3 d6 7. Dd2 Rf6 8. f3 h5 9. 0–0–0 Bd7 10. Bc4 Hc8 11. Bb3 a6 12. Hhe1 0–0 13. Kb1 He8 14. h3 Da5 15. g4 Re5 16. Bh6 Bh8 17. f4 Rc4 18. Bxc4 Hxc4 19. Rb3 Dd8 20. e5 Rxg4 21. hxg4 Bxg4 22. exd6 Kh7 23. Bg5 f6 24. Dd5 Hxc3 25. Df7+ Bg7 Staðan kom upp í sterku al- þjóðlegu móti sem lauk fyrir skömmu í Ber- múda. Bartlomiej Macieja (2.653) hafði hvítt gegn Alexander Shabalov (2.623). 26. Bxf6! og svartur gafst upp enda staðan ekki fögur eftir 26. … exf6 27. Hxe8. 2. um- ferð Meistaramóts Tafl- félagsins Hellis hefst í húsakynnum félagsins Álfa- bakka 14a í kvöld kl. 19.30. Áhorfendur eru velkomnir og fyrir þá sem mættu ekki í fyrstu umferð er mögu- leiki að skrá sig til leiks í kvöld. SKÁK Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. Í vörninni verður stund- um að gefa sér forsendur og spila samkvæmt því. Þegar útlitið er dökkt er ekki um annað að ræða en treysta á að makker eigi réttu spilin. Þraut átta: Norður ♠Á2 ♥ÁG10874 ♦975 ♣Á4 Vestur ♠K75 ♥32 ♦KD32 ♣10987 Vestur Norður Austur Suður – 1 hjarta Pass 1 spaði Pass 2 hjörtu Pass 2 grönd Pass 3 grönd Allir pass Við erum enn í hinni hörðu tíu spila prófraun og nú er lesandinn í vestur í vörn gegn þremur gröndum eftir sagnirnar að ofan. Út- spilið er lauftía. Sagnhafi setur smátt úr borði og tek- ur drottningu makkers með kóng. Spilar svo hjartaníu og lætur hana rúlla yfir á drottningu austurs. Makker skiptir yfir í tíguláttu, tían frá suðri og þú átt slaginn á drottninguna. Hvernig á nú að haga vörninni? – – – Norður ♠Á2 ♥ÁG10874 ♦975 ♣Á4 Vestur Austur ♠K75 ♠D964 ♥32 ♥KD5 ♦KD32 ♦864 ♣10987 ♣D65 Suður ♠G1083 ♥96 ♦ÁG10 ♣KG32 Lausn: Við getum gleymt lauflitnum – makker hefði svarað okkur upp þar með fimmlit. En hann virðist eiga hjónin í hjarta og þar með tvo slagi þar. En það dugir engan veginn ef suð- ur á spaðadrottningu. Suð- ur er greinilega með ÁG10 í tígli og laufgosa. Fái hann frið mun hann fríspila hjartað og næla sér í níu slagi: spaðaás, fjóra á hjarta, tígulás og þrjá á lauf. Eina von varnarinnar er sú að makker eigi spaða- drottningu, en þá þarf að ráðast strax á litinn. Þú verður að spila spaða, vona að makker fái á drottn- inguna og spili tígli til baka. Það gæti dugað. Stig: Ef þú skiptir yfir í smáan spaða: 10 stig. Spaðakóngur gefur líka 10 stig (en er óþarfa bruðl, sem gæti kostað sitt í ann- arri legu). Allt annað: ekk- ert stig. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynn- ingar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyr- irvara fyrir sunnudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmæl- istilkynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa : Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 13. september 2003 í Laug- arneskirkju þau Sonja Kristín Sverrisdóttir og Marinó Már Magnússon. KIRKJUSTARF Fermingarbörn styðja götubörn í Rússlandi FERMINGARBÖRN Árbæj- arkirkju lásu biblíuna í 16 tíma samfleytt og söfnuðu um leið peningum með lestri sínum sem renna til götubarna í Rússlandi. Lesturinn fór fram í kirkj- unni föstudaginn 6. febrúar til laugardagins 7. febrúar. Þetta er tíunda árið sem ferming- arbörn í Árbæjarsöfnuði eru með biblíumarþonlestur. Vel á aðra milljón króna hafa safnast í þessum lestri. Markmiðið er alltaf að opna augu ferming- arbarnanna fyrir neyð náung- ans. Áður hafa líknarsamtök eins og ABC hjálparstarf, unglinga- deild SÁÁ, kristniboðs- sambandið og fleiri líkn- arsamtök notið góðs af þessu framtaki Árbæjarkirkju. Viljum við sem að þessu stöndum koma fram þakklæti til þeirra sem tekið hafa börn- unum opnum örmum og gert þeim kleift að safna fé svo mætti verða jafnöldrum þeirra til hjálpar. Sr. Þór Hauksson, sóknarprestur Árbæjar- og Grafarholtssafnaðar. Morgunblaðið/Jim Smart Bústaðakirkja. Starf aldraðra kl. 13- 16.30. Spilað spilabingó við börn úr Breiðagerðisskóla. Þeir sem óska eftir að láta sækja sig fyrir samverustund- irnar látið kirkjuverði vita í síma 553 8500. Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10. Léttur málsverður á eftir. Prestarnir taka við fyrirbænum í síma 520 9700. Grensáskirkja. Samverustund aldraðra kl. 14. Biblíulestur, bænagjörð, kaffi og spjall. Hallgrímskirkja. Morgunmessa kl. 8. Hugleiðing, altarisganga, léttur morgun- verður. Opið hús fyrir foreldra ungra barna kl. 10–12. Samverustund fyrir 6 ára kl. 14.30. Samverustund fyrir 7–9 ára kl. 15.30. Samverustund fyrir 10–12 ára kl. 17. Háteigskirkja. Bænaguðsþjónusta kl. 11. Súpa og brauð borið fram í Setrinu kl. 12. Brids í Setrinu kl. 13–16. Kvöld- bænir kl. 18. Langholtskirkja. Kl. 12.10 kyrrðarstund og bænagjörð með orgelleik og sálma- söng. Kl. 12.30 súpa og brauð (kr. 300). Kl. 13–16 Opið hús eldri borgara. Söng- ur, tekið í spil, upplestur, föndur, spjall, kaffisopi o.fl. Allir eldri borgarar vel- komnir. Þeir sem ekki komast á eigin vegum geta hringt í kirkjuna og óskað eftir því að verða sóttir. Síminn er 520 1300. Laugarneskirkja. Mömmumorgunn kl. 10 undir stjórn Aðalbjargar Helgadóttur. Nýjar mömmur velkomnar með börnin sín. Gönguhópurinn Sólarmegin leggur af stað frá kirkjudyrum kl. 10.30 alla mið- vikudagsmorgna. Kirkjuprakkarar kl. 14.10. Starf fyrir 1.–4. bekk. Umsjón Að- alheiður Helgadóttir, hjónin Kristjana H. Þorgeirsdóttir og Geir Brynjólfsson auk sr. Bjarna. TTT-starf kl. 16.15. (5.–7. bekkur). Umsjón Þorkell Sigurbjörnsson. Fermingartími kl. 19.15. Unglingakvöld Laugarneskirkju kl. 20 í umsjá Sigurvins Jónssonar og Sigríðar Tryggvadóttur. Neskirkja. Foreldramorgunn kl. 10–12. Fræðsla: Hlutverk Sjónarhóls – nýstofn- uð samtök fyrir sérstök börn til betra lífs. Umsjón Elínborg Lárusdóttir. 7 ára starf kl. 14.30. Sögur, söngur, leikir og föndur. Opið hús kl. 16. Kaffi og spjall. Biblíulestur kl. 17. Lesnir kaflar úr Op- inberunarbók Jóhannesar. Umsjón sr. Frank M. Halldórsson. Fyrirbænamessa kl. 18. Prestur sr. Frank M. Halldórsson. Seltjarnarneskirkja. Kyrrðarstund í há- deginu kl. 12. Altarisganga. Léttur há- degisverður eftir stundina. Allir velkomn- ir. Fríkirkjan í Reykjavík. Í hádegi er fólki boðið til bænastunda í kapellu safnaðar- ins á annarri hæð í safnaðarheimilinu. Sérstök áhersla er lögð á bæn og íhug- un, en einnig flutt tónlist og textar til íhugunar. Koma má bænarefnum á fram- færi áður en bænastund hefst. Árbæjarkirkja. Kl. 12 kyrrðarstund í há- deginu. Léttur málsverður í safnaðar- heimilinu að stundinni lokinni. Kl. 13–16 opið hús í safnaðarheimilinu. Þorvaldur Halldórsson kemur í heimsókn fyrsta miðvikudag hvers mánaðar. Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund í dag kl. 12. Tónlist, altarisganga, fyrirbænir. Létt- ur málsverður í safnaðarheimilinu eftir stundina. Kirkjuprakkarar starf fyrir 7–9 ára börn kl. 16.30. TTT-starf fyrir 10–12 ára kl. 17.30. Æskulýðsstarf á vegum KFUM&K og kirkjunnar kl. 20. Digraneskirkja. Unglingastarf KFUM og KFUK kl. 20–21.45. (Sjá nánar: www.digraneskirkja.is) Grafarvogskirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Fyrirbænir og altarisganga. Boðið er upp á léttan hádegisverð á vægu verði að lokinni stundinni. Allir velkomnir. Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10. TTT (10–12 ára) starf kl. 17. Tólf spora námskeið kl. 20. Lindakirkja í Kópavogi. Unglingadeild KFUM og K í Lindasókn í safnaðarheim- ilinu, Húsinu á sléttunni kl. 20. Allir krakkar í 9. og 10. bekk velkomnir. Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund í dag kl. 18. Beðið fyrir sjúkum. Allir hjart- anlega velkomnir. Tekið á móti fyrir- bænaefnum í kirkjunni í síma 567 0110. SELA eldri deild kl. 20–22. Vídalínskirkja. Foreldramorgnar kl. 10– 12 með Nönnu Guðrúnu í Vídalínskirkju. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung börn og foreldra þeirra í Vonarhöfn, safn- aðarheimili Strandbergs, kl. 10–12. Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12, íhugun, orgelleikur, altarisganga, fyrirbænir . Léttur hádegisverður kl. 12.30 í Ljós- broti Strandbergs. Víðistaðakirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna- stund í dag kl. 12. Góður kostur fyrir þá sem vilja taka frá kyrrláta og helga stund í erli dagsins til að öðlast ró í huga og frið í hjarta. Hægt er að koma fyrirbæna- efnum til sóknarprests eða kirkjuvarðar. Boðið er upp á súpu og brauð í safn- aðarheimilinu að kyrrðarstund lokinni. Opið hús fyrir eldri borgara í dag kl. 13. Verið velkomin í vikulegar samverur í safnaðarheimili kirkjunnar í spil, spjall, góðar kaffiveitingar og fleira. Bessastaðasókn. Miðvikudagur er dagur kirkjunnar í Haukshúsi. Foreldramorgnar eru frá kl. 10–12. Þar koma saman for- eldrar ungra barna á Álftanesi með börn- in og njóta þess að hittast og kynnast öðrum foreldrum sem eru að fást við það sama, uppeldi og umönnun ungra barna. Opið hús eldri borgara er síðan frá kl. 13–16. Dagskráin verður fjölbreytt en umfram allt eru þetta notalegar sam- verustundir í hlýlegu umhverfi. Þorlákskirkja. Barna- og foreldramorgn- ar í dag kl. 10–12. Lágafellskirkja. AA-fundur kl. 20.30 í Lágafellskirkju. Unnið í 12 sporunum. Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 17:30 TTT, yngri og eldri, í Landakirkju. Er einhver áhugi á því að fara á mót á þessu misseri? Sr. Fjölnir Ásbjörnsson, Esther Bergsdóttir og leiðtogarnir. Kl. 20 opið hús í KFUM&K heimilinu hjá Æsku- lýðsfélagi Landakirkju og KFUM&K. Est- her Bragadóttir æskulýðsfulltrúi, sr. Fjölnir Ásbjörnsson og leiðtogarnir. Keflavíkurkirkja. Kirkjan opnuð kl. 12:00. Kyrrðar- og fyrirbænastund í kirkj- unni kl. 12:10. Samverustund í Kirkju- lundi kl. 12:25 – súpa, salat og brauð á vægu verði – allir aldurshópar. Umsjón: Ólafur Oddur Jónsson. Æfing Barnakórs Keflavíkurkirkju kl. 16–17 og Kórs Kefla- víkurkirkju frá 19–22.30. Stjórnandi Há- kon Leifsson. Kynning á stöðu atvinnu- lausra þátttakendur síðan vísað á Alfahóp sem verður kl. 12–15 í Kirkju- lundi á þriðjudögum. Kynningin verður í minni sal Kirkjulundar kl. 20.15–21. Undirbúningur fyrir samtalsguðsþjónustu á sunnudag. Umsjón Ólafur Oddur Jóns- son. Sauðárkrókskirkja. Kyrrðarstund kl. 21. Kletturinn, kristið samfélag. Kl. 20.30 bænahópar í heimahúsum. Upplýsingar í síma 565 3987. Kristniboðssalurinn, Háaleitisbraut 58. Samkoma í kvöld kl. 20. Guð svarar. Sálmur 21. Ræðumaður: Margrét Hró- bjartsdóttir, vitnisburður. Valgerður Gísla- dóttir. Kaffiveitingar eftir samkomuna. Allir hjartanlega velkomnir. Fríkirkjan Kefas. Samverustund unga fólksins kl. 20.30. Samvera, lofgjörð, fræðsla og lestur orðsins. Nánari upplýs- ingar á www.kefas.is Akureyrarkirkja. Mömmumorgunn kl. 10–12. Alma kynnir vörur úr aloe vera, m.a. nýjar vörur fyrir börn. Glerárkirkja. Hádegissamvera kl. 12. Al- menn fræðslukvöld kl. 19.30. Sr. Arn- aldur Bárðarson ræðir um trúna og fjallar um nokkra ritningarstaði. Allir velkomnir, léttur kvöldverður í boði kirkjunnar. Hvítasunnukirkjan á Akureyri. Kl. 17 krakkastarf fyrir 3–9 ára. Kl. 18 starf fyr- ir 10–12 ára krakka (Skjaldberar). Safnaðarstarf

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.