Morgunblaðið - 11.02.2004, Qupperneq 42
ÍÞRÓTTIR
42 MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
LANDSLIÐSMAÐURINN Jakob
Sigurðarson og Helgi Margeirsson
voru báðir í háskólaliði Birmingham
Southern College sem lagði UNC As-
hville um síðustu helgi, 79:52, og var
þetta sjötti sigur BSC í röð. Jakob,
sem lék með liði KR áður en hann
fór í nám til Bandaríkjanna, skoraði
8 stig, tók 5 fráköst og var með 4
stoðsendingar. Helgi Margeirsson,
sem lék áður með liði Tindastóls frá
Sauðárkróki, var með 3 stoðsend-
ingar, 1 frákast og 1 stolinn bolta á
þeim 8 mínútum sem hann fékk að
spreyta sig í leiknum.
Í grein sem má finna á vef ESPN,
er sagt frá því að BSC sé eitt af
„öskubuskuliðum“ ársins og gæti vel
spjarað sig í úrslitakeppni há-
skólaliða sem hefst í mars. Hins veg-
ar er BSC-háskólinn aðeins búinn að
vera í efstu deild í eitt ár og sam-
kvæmt reglum NCAA geta há-
skólalið sem eru að stíga sín fyrstu
skref í efstu deild ekki tekið þátt í
úrslitakeppni fyrr en að loknu öðru
keppnistímabili sínu. Jakob og Helgi
fá því ekki að taka þátt í „brjálæðinu
í mars“ með liði sínu BSC.
Helgi Magnússon, landsliðsmaður
í körfuknattleik, skoraði 11 stig og
tók jafnmörg fráköst er háskólalið
hans, Catwaba, lagði efsta lið suður-
Atlantshafsdeildarinnar, Lenoir-
Rhyne, 64:62. Liðin eru í 2. deild há-
skóladeildanna í Bandaríkj-
unum.Vinningshlutfall Catwaba er 8
sigrar og 13 töp.
Ekkert stöðvar Jakob,
Helga og BSC-liðið
Um helgina 7. og 8. febrúar fórfyrstagrunnskólamótið fram
þegar rúmlega 500 krakkar í 5. og 6.
bekk úr skólum
Reykjavíkur mættu
til leiks í íþróttahúsið
við Austurberg.
Margir voru búnir að æfa í nokkur ár
og því með allt á hreinu en aðrir að
stíga sín fyrstu skref svo að fyrir
sumum var afrek að grípa og öðrum
að skora með hnitmiðuðu skoti en
sami svipur kom þó upp, alger ein-
beiting og síðan gleði með heppnuð
áform. Eins og við var að búast settu
sum lið stefnuna beina leið á sigur,
annað kom ekki til greina enda féllu
nokkur tárin eftir spennuþrungna
leiki. Aðrir komu til að prófa að spila
handbolta og skemmta sér í leiðinni,
þar var leikgleðin í fyrirúmi og fjörið
mest. Búningarnir báru þess merki
því sumir voru í keppnisbúningum
félagsins í hverfinu en önnur lið
bjuggu til sína búninga sjálf. Helst
voru það stelpurnar, sem skreyttu
sig rækilega og mátti sjá mörg góð
slagorð í bland við persónulegri árit-
anir, svo sem Lísa skvísa, Hertha
besta, og fleira. Það skapaði létta
stemningu á svæðinu og að einhverju
að keppa því kosið verður um flott-
ustu búningana og besta klappliðið.
Úrslitaleikir skólamótsins fara
fram 29. febrúar í Laugardalshöll-
inni.
Boltanum
var kastað
HANDBOLTI er boltinn
segir Handbolta-
samband Íslands og
hrinti af stað átaki ásamt
Íþróttabandalagi Reykja-
víkur til að efla veg
íþróttarinnar. Verkin
voru látin tala og mörg
félög bjóða krökkum að
æfa ókeypis til 22. febr-
úar og er hægt að sjá á
vefslóð Handknattleiks-
sambandsins, www.hsi-
.is, hvaða félög það eru.
Auk þess fá allir sem æfa
gefins handbolta. Átakið
skilaði sér strax og nú
hafa rúmlega 400 krakk-
ar fylkt liði í handbolta
og kastað þar með bolt-
anum til félaganna, sem
hafa í nógu að snúast. Til
að fylgja eftir átakinu er
ætlunin að halda grunn-
skólamót fyrir sem flesta ár-
ganga í Reykjavík og síðan að-
stoða önnur bæjarfélög og
landsbyggðina.
Morgunblaðið/Stefán Stefánsson
Stelpur úr Breiðagerðisskóla og Borgarholtsskóla voru hinar hressustu og hnykluðu vöðvana.
Sum lið skörtuðu reyndum handboltastúlkum eins og sást svo vel hjá Álftamýrarskóla og Breið-
holtsskóla enda álitu margir bestu liðin þar á ferð. En annað lið vann eins og sjá má á myndinni.
Það tók nokkra stund að fá strákana úr Fossvogsskóla og Álftamýrarskóla til að koma saman á
mynd eftir hörkuleik. Mótbárur voru ekki teknar til greina og þeir voru fljótir að jafna sig. Hvor
skólinn vann ætti að vera hægt að greina á myndinni.
Leikmenn Breiðholtsskóli voru lúnir eftir leik og einn varð að liggja á gólfinu vegna meiðsla.
Strákarnir úr Seljaskóla og Melaskóla voru sáttir við úrslitin í
sínum leik en óneitanlega af þeim dregið.
Hið glaðbeitta lið Selja-
skóla. Nokkrar vantaði í lið-
ið svo að þessar gátu varla
kastað mæðinni en það kom
ekki niður á góða skapinu.
Stefán
Stefánsson
skrifar