Morgunblaðið - 11.02.2004, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2004 43
ÍÞRÓTTIR
EIÐUR Smári Guðjohnsen segir í viðtali við
breska fjölmiðla í gær að leikmenn Chelsea
finni vel fyrir þeim þrýstingi sem lagður hef-
ur verið á þá að vinna titil á tímabilinu eftir
alla þá peninga sem rússneski auðjöfurinn
Roman Abramovich hefur lagt til félagsins og
leikmannakaup hans.
Claudio Ranieri, knattspyrnustjóri
Chelsea, hefur ítrekað reynt að draga úr
væntingum manna og þeim þrýstingi sem sett
hefur verið á hans lið með því að segja að
tímabilið í ár sé ætlað til uppbyggingar en
Peter Kenyon, nýr stjórnarformaður félags-
ins, sem kom frá Manchester United, hefur
hins vegar sagt opinberlega að það sé ekki
ásættanlegt ef Chelsea-liðinu takist ekki að
vinna bikar.
Eiður segir að Ranieri sé ekki sá eini hjá
Chelsea sem geri sér grein fyrir því að fram-
tíð sín hjá félaginu sé óljós takist liðinu ekki
að vinna til metorða. „Það eru allir hjá félag-
inu undir pressu. Ekki bara knattspyrnu-
stjórinn heldur við leikmenn líka. Við viljum
allir taka þátt í að vinna titil með liðinu og við
erum að berjast um að sýna okkur og sanna í
hverri viku – erum enn með í þremur keppn-
um og hvað úrvalsdeildina varðar er mikið
eftir af henni. Við eigum eftir að mæta topp-
liðunum tveimur, Arsenal og Manchester
United og erum alltaf að vonast til að þau tapi
stigum. Ef við höldum okkar striki þá setjum
við aukna pressu á þau allt til loka tímabils-
ins. Ég vil vera með í liði sem vinnur eitthvað.
Chelsea er með í baráttunni á þrennum víg-
stöðvum og við erum ekki þar bara til að vera
með heldur viljum við vinna,“ segir Eiður
Smári sem vonast til að verða í byrjunarliði
Chelsea í kvöld gegn Portsmouth.
Leikmenn Chelsea finna fyrir
þrýstingi segir Eiður Smári
Halldóra Ólafs og Lilja Rós Jóhannes-
dóttir fögnuðu sigri er Víkingur urðu
Íslandsmeistarar – sigurvegari í 1.
deild í borðtennis fjórtánda árið í röð.
Hér eru þær með Íslandsbikarinn.
Meistarar
FÓLK
ÅGE Hareide, landsliðsþjálfari
Noregs í knattspyrnu, sagði að Ole
Gunnar Solskjær, leikmaður Man-
chester United, yrði fyrirliði lands-
liðs Noregs – þegar hann yrði heill og
tilbúinn að leika. Ole Gunnar lék sinn
fyrsta leik frá því í september, er
hann meiddist á hné, með varaliði
United gegn Aston Villa í sl. viku og
stóð sig vel.
SOLSKJÆR verður í leikmanna-
hópi Manchester-liðsins í kvöld þeg-
ar það tekur á móti Middlesbrough á
Old Trafford í ensku úrvalsdeildinni.
NBA-LIÐIÐ í körfuknattleik Port-
land Trailblazers samdi í við for-
ráðamenn Atlanta Hawks um að
skipta á leikmönnum og fer fram-
herjinn Rasheed Wallace til Hawks
ásamt bakverðinum Wesley Person.
Í staðinn fær Portland framherjann
Shareef Abdur-Rahim, miðherjann
Theo Ratliff og bakvörðinn Dan Dic-
kau.
STEVE Patterson, forseti Port-
land, var ekkert að leyna því á fundi
með fréttamönnum að félagið ætlaði
sér að losa sig við nokkra leikmenn
sem hefðu ekki staðið sig í stykkinu
utan vallar. En ótrúlega mörg vafa-
söm mál hafa skotið upp kollinum í
tengslum við leikmenn Portland á
undanförnum árum, og hefur Wal-
lace átt þátt í mörgum þeirra. Að
auki er Wallace sá leikmaður sem
hefur átt í mestum útistöðum við
dómara deildarinnar og á hann met í
að fá dæmdar á sig tæknivillur á
einni leiktíð, 41 alls tímabilið 2000–
2001.
WALLACE er hins vegar mjög
góður leikmaður sem hefur skorað 17
stig að meðaltali á ferli sínum sem
hófst árið 1995 í herbúðum Wash-
ington Wizards. Hins vegar rennur
samningur hans við Hawks út í sum-
ar og er líklegt að hann staldri stutt
við í herbúðum Hawks.
Það er ansi leiðinlegt fyrir okk-ur HK-menn að geta ekki
varið bikarmeistaratitilinn og ég
dauðöfunda þau lið sem komast í
Höllina. Úrslitaleikurinn er há-
punkturinn á tímabilinu. Það
dreymir alla um að komast í úr-
slitaleikinn og það er því til mikils
að vinna fyrir liðin að komast
þangað,“ sagði Árni en undir hans
stjórn vann HK sinn fyrsta stóra
titil þegar liðið lagði Aftureldingu í
bikarúrslitaleiknum á síðasta tíma-
bili.
Framarar slógu bikarmeistara
HK út í 8-liða úrslitunum og
hefndu ófaranna frá því í fyrra
þegar HK hafði betur í framlengd-
um leik í undanúrslitunum.
„Það er engin spurning að þarna
verður um hörkuleik að ræða. Mér
finnst liðin svipuð að styrkleika en
kannski ætti Valur fyrirfram að
vera sigurstranglegri aðilinn. Ég
held hins vegar að Framarar komi
mörgum á óvart og fari með sigur
af hólmi. Það er erfitt að spila
gegn Frömurum. Þeir eru klókir
og hafa mikla reynslu sem ég tel
að þeir komi til með að notfæra
sér í þessum leik. Það er mikil
seigla í liði Fram og það er með
vanmetna leikmenn eins og Björg-
vin Björgvinsson. Ég spái því að
hann eigi eftir að reynast sínum
mönnum vel í leiknum. Fram-liðið
hefur kannski ekki alveg fundið
taktinn í fyrstu leikjum úrvals-
deildarinnar en ég er viss um að
bikarleikurinn hefur truflað þá
eitthvað. Framararnir voru ansi
svekktir að missa af úrslitaleiknum
í fyrra og ég held að þeir vilji ekki
upplifa það aftur,“ segir Árni segir
að Valsmenn hafi á að skipa mjög
skemmtilegu liði sem hafi alveg
burði til að fara alla leið. „Ég held
að spennan sem á eftir að ein-
kenna þennan leik eigi eftir að
vinna á móti Völsurunum þar sem
þeir eru yngri og óreyndari heldur
en Framarar. Ég er alveg viss um
að Valsmenn ætli sér að keyra upp
hraðann í leiknum og ef þeim tekst
það þá geta þeir vel unnið en ein-
hvern veginn segir mér svo hugur
að þeir bláklæddu hafi þetta á
seiglunni.“
KA-menn á góðu róli
„Ég spái því að KA vinni Víking
og þar skiptir mestu að KA-liðið
nýtur heimavallarins auk þess sem
það er á feikilega góðu róli þessa
dagana. KA hefur komið mjög
sterkt til leiks eftir fríið með besta
mann deildarinnar, Arnór Atlason,
í toppformi og hann ásamt Stelmo-
kas og Jónatani Magnússyni munu
gera Víkingunum lífið leitt. Víking-
arnir eru með fínt lið en það sem
háir þeim kannski mest er að þeir
hafa ekki mikla breidd. Ég held að
Víkingarnir geti alveg staðið í KA
en mín spá er sú að KA hafi þetta
nokkuð sannfærandi,“ segir Árni
sem tók þátt í fjórum bikarúrslita-
leikjum í röð með KA sem aðstoð-
arþjálfari, 1994–1997, þar sem KA
sigraði tvívegis, Val, 27:26 árið
1995 og Víking árið eftir, 21:18.
Árni Stefánsson, þjálfari bikarmeistara
HK í handknattleik, spáir í undanúrslita-
leikina í bikarkeppninni
Framarar
koma á
óvart
ÁRNI Stefánsson, þjálfari bikarmeistara HK, spáir því að KA og
Fram komist í bikarúrslitaleikinn en undanúrslitaleikirnir fara fram
í kvöld. Á Akureyri taka KA-menn á móti Víkingi og í Valsheimili
leika Reykjavíkurliðin Valur og Fram.
Tíu til tólf ára stelpur í Ártúnsskóla og Rimaskóla háðu harða
rimmu og féllust með semingi á að vera saman á mynd.
Stelpurnar úr Vogaskóla og Vesturbæjarskóla – þær glöddust í
hvert sinn er sending rataði rétta leið og enn betur ef mark var
skorað. Hér eru þær kampakátar eftir leikinn.
Rimaskóli var með frískt lið sem reyndi sitt allra besta. Útkom-
an varð þó ekki alltaf í samræmi við það en þeir stilltu sér upp
fyrir mynd eftir erfiðan leik. Lítið var um bros, einn náði því þó
en tók fram að það væri gervibros sérstaklega fyrir myndina.
Ármúla 36, 108 Reykjavík,
sími 588 1560.
Liverpool dagar
www.joiutherji.is sendum í póstkröfu
10-50%
afsláttur af
Liverpoolvörum
9. - 14. feb
ANJA Pärson hefur haft mikla yfirburði í
stórsvigi og svigi á heimsbikarmótum vetr-
arins og getur hin sænska skíðakona sett
nýtt met hvað varðar verðlaunaféð sem
keppendur fá fyrir árangur sinn á heimsbik-
armótum.Pärson gæti orðið fyrst allra til
þess að ná yfir 28 millj. kr. í verðlaunafé á
einu keppnistímabili.
Hún hefur nú þegar tekið á móti tæplega
23 millj. kr., en metið á Alexandra Meiss-
nitzer frá Austurríki, sem vann sér inn tæp-
lega 26 millj. kr. á keppnistímabilinu 1998–
1999.
Hinsvegar er Pärson langt frá meti Her-
manns Maier frá árinu 2000 en þá fékk hann
um 37 millj. kr. í verðlaunafé fyrir árangur
vetrarins. Í vetur hefur Finninn Kalle Pall-
ander náð í hæstu upphæðina í verðlaunafé
hjá körlunum, um 17 millj. kr. alls.
Pärson er
tekjuhæst