Morgunblaðið - 11.02.2004, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 11.02.2004, Qupperneq 44
ÍÞRÓTTIR 44 MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÚRSLIT KÖRFUKNATTLEIKUR Breiðablik – Keflavík 98:105 Smárinn, úrvalsdeild karla, Intersport- deildin, þriðjudagur 10. febrúar 2004. Gangur leiksins: 9:0, 9:8, 14:10, 19:13, 26:20, 28:32, 37:38, 39:47, 41:52, 56:60, 57:68, 61:76, 66:86, 68:86, 75:97, 82:97, 88:105, 98:105. Stig Breiðabliks: Pálmi Sigurgeirsson 35, Loftur Einarsson 14, Uros Pilipovic 13, Jónas Ólason 10, Kyle Williams 10, Mirko Virijevic 8, Þórarinn Andrésson 6, Ólafur Guðnason 2. Fráköst: 29 í vörn, 14 í sókn. Stig Keflavíkur: Nick Bradford 21, Der- rick Allen 18, Hjörtur Harðarson 13, Jón Nordal Hafsteinsson 12, Arnar Freyr Jónsson 10, Halldór Halldórsson 10, Gunn- ar H. Stefánsson 8, Sverrir Þ. Sverrisson 5, Davíð Jónsson 4, Gunnar Einarsson 4. Fráköst: 21 í vörn, 24 í sókn. Villur: Breiðablik 18 – Keflavík 22. Dómarar: Björgvin Rúnarsson og Georg Andersen. Áhorfendur: Um 55. Staðan: Snæfell 16 13 3 1365:1295 26 Grindavík 16 13 3 1424:1350 26 Keflavík 16 11 5 1566:1375 22 KR 16 10 6 1486:1405 20 Njarðvík 16 10 6 1465:1367 20 Haukar 16 9 7 1304:1280 18 Hamar 16 9 7 1354:1354 18 Tindastóll 16 8 8 1486:1415 16 ÍR 16 5 11 1374:1458 10 Breiðablik 16 3 13 1307:1426 6 KFÍ 16 3 13 1467:1658 6 Þór Þorl. 16 2 14 1306:1521 4 NBA-deildin Leikir í fyrrinótt: Cleveland – Boston ...............................97:89 Atlanta – Dallas ...................................102:96 Denver – Memphis ................................86:83 Houston – San Antonio .........................82:85 KNATTSPYRNA England Arsenal – Southampton...........................2:0 Thierry Henry 31., 90. - 38.007. Leeds – Wolves .........................................4:1 Alan Smith 14., Dominic Matteo 41., James Milner 62., Mark Viduka 90. – Ioan Viorel Ganea 21. – 38.867. Leicester – Bolton ....................................1:1 Les Ferdinand 16. – Ian Walker (sjálfs- mark) 33. – 26.674. Staðan: Arsenal 25 18 7 0 49:16 61 Man. Utd 24 18 2 4 47:20 56 Chelsea 24 16 4 4 44:19 52 Newcastle 24 9 10 5 34:25 37 Charlton 24 10 7 7 32:26 37 Liverpool 24 9 8 7 34:26 35 Fulham 24 10 5 9 36:33 35 Bolton 25 8 10 7 31:37 34 Aston Villa 24 9 6 9 28:27 33 Birmingham 23 8 8 7 20:26 32 Southampton 25 8 7 10 23:23 31 Tottenham 24 9 3 12 31:36 30 Middlesbro 23 7 7 9 23:27 28 Blackburn 24 7 5 12 35:39 26 Everton 24 6 7 11 28:33 25 Man. City 24 5 9 10 32:35 24 Portsmouth 24 6 5 13 28:37 23 Leicester 25 4 9 12 33:47 21 Leeds 25 5 5 15 23:50 20 Wolves 25 4 8 13 22:51 20 2. deild: Luton – Brighton.......................................2:0 Staða efstu liða: Plymouth 30 17 9 4 65:27 60 QPR 30 16 9 5 54:28 57 Bristol City 29 15 10 4 43:22 55 Swindon 30 13 9 8 46:37 48 Barnsley 30 12 11 7 40:34 47 Brighton 30 13 7 10 42:33 46 Luton 28 12 9 7 45:39 45 Port Vale 29 13 6 10 47:42 45 Wrexham 29 13 5 11 35:30 44 Hartlepool 29 11 10 8 45:36 43 Bournem. 29 10 10 9 33:33 40 Blackpool 30 11 6 13 37:43 39 Skotland Dundee United – Hibernian.....................0:0 Frakkland Bikarkeppnin, 16 liða úrslit: Brive – Auxerre.........................................1:0 Paris St Germain – Bayonne....................2:0 HANDKNATTLEIKUR Þýska bikarkeppnin, 8 liða úrslit: Wilhelmshavener – Hamburg..............25:30 HANDKNATTLEIKUR Bikarkeppni HSÍ, SS-bikarkeppni karla, undanúrslit: KA-heimili: KA - Víkingur ...................19.15 Hlíðarendi: Valur - Fram ..........................20 1. deild kvenna, RE/MAX-deild: Hlíðarendi: Valur - ÍBV.............................18 1. deild karla, RE/MAX-deild: Vestmanneyjar: ÍBV - Þór A................19.15 KÖRFUKNATTLEIKUR 1. deild kvenna: Grindavík: UMFG - Keflavík ...............19.15 DHL-höllin: KR - ÍS .............................19.15 Í KVÖLD THIERRY Henry skoraði sitt 100. mark í ensku úrvals- deildinni þegar hann kom Arsenal yfir, 1:0, á Highbury fyrir framan rúmlega 38.000 áhorfendur í gærkvöldi. Henry lét ekki þar við sitja heldur rak hann smiðs- höggið á sigur á Arsenal í leiknum þegar hann gerði annað mark sitt og annað mark Arsenal á síðustu mín- útu leiksins, 2:0. „Við erum mjög ánægðir með tíma- mótamark Henry, en ég tel að hann sé ánægðastur með sigurinn. Hann myndi fyrstur segja að stigin þrjú væru þýðingarmeiri en að hann skori. Henry er leikmaður í hæsta gæðaflokki,“ sagði Arsene Wenger, knatt- spyrnustjóri Arsenal. Leeds komst upp úr neðsta sætinu með því að leggja Wolves á Elland Road, 4:1. Úlfarnir féllu niður í neðsta sætið í stað Leeds sem hafði mikla yfirburði í leiknum eins og úrslitin gefa til kynna. Leicester er stigi fyrir ofan eftir jafntefli við Bolton á heimavelli, 1:1, en þar gerði markvörður Leicester, Ian Walker, skrautlegt sjálfsmark og jafnaði metin fyrir Bolton. Henry skoraði 100. markið ÍSLENSKA kvennalandsliðið í badminton fór létt með norska landsliðið í fyrstu viðureign sinni í undankeppni heimsmeistaramóts landsliða, Thomas & Uber Cup, sem hófst í Presov í Slóvakíu í gær. Íslensku konurnar sýndu yfirburði á öllum sviðum og töpuðu ekki lotu. Sara Jónsdóttir vann sinn mótherja 11:3 og 11:8 í einliðaleik, Ragna Ingólfsdóttir vann 11:0 og 11:1 og Tinna Helga- dóttir vann 11:5 og 11:5. Í tvíliðleik unnu Sara og Ragna 15:3 og 15:1. Katrín Atladóttir og Drífa Harðardóttir unnu 15:8 og 15:8. Stúlkurnar leika gegn Grikklandi í dag og Þýska- landi á morgun. Íslenska karlaliðinu gekk ekki líkt því eins vel og konunum. Karlarnir töpuðu fyrir Pólverjum 5:0 í 1. um- ferðinni. Helgi Jóhannesson tapaði sínum leik 9:15 og 8:15, Tryggvi Nielsen beið lægri hlut 12:15 og 12:15 og Sveinn Sölvason lá 5:15 og 8:15. Í tvíliðaleiknum töpuðu Helgi og Magnús Ingi Helgason sínum leik 5:15 og 4:15 og Sveinn og Tryggvi töpuðu 1:15, 15:13 og 7:15. Kvennalandsliðið lagði Norðmenn  SARA Jónsdóttir er komin í 50. sæti á heimslistanum í einliðaleik í badminton með 963 stig. Eftir er að uppfæra listann eftir mótið í Teher- an sem hún tók þátt í á dögunum svo möguleiki er að hún hækki næst þeg- ar listinn kemur út. Ragna Ingólfs- dóttir er í 57. sæti með 851,71 stig og hefur lækkað um eitt stig. Í tvíliða- leiknum eru Ragna og Sara í 32. sæti með 1227 stig og hafa hækkað um eitt sæti frá því síðast.  AGANEFND íshokkídeildar Skautasambands Íslands hefur úr- skurðað Einar Guðna Valentine, leikmann SA, í tveggja leikja bann vegna „leikdóms“ (MP) sem hann hlaut í leik SA og Bjarnarins hinn 31. janúar 2004. Einnig hefur leikmaður Bjarnarins Hrólfur Gíslason verið úrskurðaður í tvegga leikja bann vegna „leikdóms“ (MP) sem hann hlaut í leik Bjarnarins og SR hinn 5. febrúar 2004.  GYLFI Gylfason og samherjar hans í þýska handknattleiksliðinu Wilhelmshavener féllu í gærkvöldi úr bikarkeppninni er þeir töpuðu fyrir HSV Hamborg á heimavelli, 30:25, í átta liða úrslitum.  JÓHANNES Karl Guðjónsson var í leikmannahópi Wolves en kom ekk- ert við sögu leiksins þegar Úlfarnir steinlágu fyrir Leeds, 4:1, á Elland Road í ensku úrvalsdeildinni í knatt- spyrnu í gærkvöldi.  HARRY van Raaij, forseti PSV Eindhoven, segist vera undrandi á tilboði því sem borist hafi frá Man- chester United í framherjann efni- lega, Arjen Robben. Það sé upp á 5 milljónir punda sem sé aðeins helm- ingur af því verði sem Raaij segir Peter Kenyon, fyrrverandi for- stjóra, hafa samþykkt að greiða sl. sumar. Hækki Manchester United ekki tilboð sitt segir Raaij að ekkert verði af því að Robben fari til Man- chester United í sumar eins og til hafi staðið.  RAIMONDS Jumikis, körfuknatt- leiksmaður frá Lettlandi, hneig nið- ur í leik með liði sínu, Akropols í Sví- þjóð, í gærkvöld og lést á sjúkrahúsi í kjölfarið. Hann var aðeins 23 ára gamall. FÓLK Keflvíkingar eru einir í þriðjasæti úrvalsdeildarinnar í körfuknattleik eftir sigur á Breiða- bliki, 105:98, í Smár- anum í gærkvöld. Sigurinn var mun öruggari en lokatöl- urnar gefa til kynna því Blikar, sem sitja áfram í þriðja neðsta sæti með sex stig, skoruðu síðustu tíu stigin í leiknum. Það voru þó Kópavogsstrákarnir sem byrjuðu betur. Bikarmeistar- arnir nýkrýndu virtust rykaðir eftir fögnuð helgarinnar því staðan eftir þrjár mínútur var 9:0, Blikum í hag. Þessi byrjun dugði heimamönnum út fyrsta leikhluta en Keflvíkingar tóku forystuna í upphafi annars hluta og létu hana ekki af hendi. Þeir eru með mikið meiri breidd en Blikarnir og nýttu sér það vel. Allir þeirra menn spiluðu í það minnsta 15 mínútur og enginn lengur en í 27 mínútur. Staðan í hálfleik var 52:41 og eftir þokkalega mótspyrnu Blika til að byrja með í síðari hálfleik gerðu Keflvíkingar út um leikinn með góð- um kafla. Þar náðu þeir 20 stiga for- ystu, beittu pressuvörn með góðum árangri, og úrslitin voru ráðin. Í síðasta leikhlutanum var aðeins einn útlendingur með í leiknum, serbneski Blikinn Mirko Virijevic, og það hefur varla gerst oft í deild- inni í vetur. Keflvíkingar hvíldu bæði Derrick Allen og Nick Bradford, sem höfðu skilað sínu, og hjá Blikum voru Kyle Williams, sem var afspyrnuslakur lengst af, og Uros Pilipovic komnir á bekkinn. Williams skoraði ekki eitt einasta stig í fyrri hálfleik og virðist ekki vera sérstak- ur happafengur fyrir Blikana. Jón Nordal Hafsteinsson átti mjög góðan leik með Keflvíkingum og Pálmi Sigurgeirsson var allt í öllu hjá Blikum en hann skoraði 35 stig. Bikarmeistararnir ekki í miklum vandræðum með Blika í Smáranum Víðir Sigurðsson skrifar Úlfarnir eru með hann í láni fráspænska liðinu Real Betis en ár- ið 2006 rennur samningur Jóhannes- ar við Spánverjana út. Ruud Gullitt, fyrrum stjarna hollenska landsliðsins og AC Milan, tekur við starfi þjálfara hjá Feyenoord í sumar en hann ku hafa verið að fylgjast með Jóhannesi sem lék í þrjú ár í Hollandi, frá 1999– 2002, með Maastricht og Waalwijk. „Það eina sem ég veit er að Feyenoord hefur sýnt mér áhuga en þetta er ekki komið á neitt viðræðu- stig,“ sagði Jóhannes Karl við Morg- unblaðið í gær þar sem hann var staddur í Leeds að undirbúa sig fyrir leikinn við heimamenn. „Ég er samn- ingsbundinn Wolves til loka tímabils- ins og eftir það eiga Úlfarnir for- kaupsrétt á mér en ég ræð samt alveg hvert ég fer. Ef Feyenoord hyggst reyna að fá mig þá þarf félagið að semja við Real Betis um kaupin.“ Jóhannes sagði að það yrði mjög spennandi ef kæmi upp á borðið tilboð frá Feyenoord. „Það yrði fínn kostur að fara þangað enda Feyenoord stór klúbbur sem ætlar að byggja upp nýtt Feyenoord með augastað á Jóhannesi Karli Morgunblaðið/Kristinn Jóhannes Karl Guðjónsson á ferðinni í landsleik. HOLLENSKA úrvalsdeildarliðið Feyenoord hefur augastað á landsliðsmanninum Jóhannesi Karli Guðjónssyni eftir því sem fram kemur í hollenska blaðinu Rotterdam Dagblad í gær. Haft er eftir Mark Wotte, tæknilegum ráðgjafa Feyenoord, að félagið sé að skoða málið en Jóhannes er samningsbundinn enska úr- valsdeildarliðinu Wolves til loka tímabilsins í vor. lið og mér líkaði ákaflega vel í Hol- landi þegar ég var þar. En þó svo að Feyenoord hafi sýnt mér áhuga þá er langur vegur frá því að samningur sé að verða til. Framtíð mín er óljós og ég veit ekki hvað Úlfarnir hyggjast gera. Ég væri alveg til í að vera áfram hjá félaginu hvort sem liðið fellur eða heldur sér í úrvalsdeildinni. Ég veit að Paul Ince hættir eftir tímabilið og fleiri eru samningslausir en þessi mál skýrast ekkert fyrr en tímabilið er búið,“ sagði Jóhannes Karl. Íslendingar og þá Skagamenn, eins og Jóhannes er, eru ekki alveg ókunnugir í herbúðum Feyenoord en þrír Akurnesingar hafa leikið með lið- inu – Pétur Pétursson og tvíbura- bræðurnir Arnar og Bjarki Gunn- laugssynir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.