Morgunblaðið - 11.02.2004, Síða 45

Morgunblaðið - 11.02.2004, Síða 45
Það er fyrirtækið Carlsberg sembýður íslenska kylfingnum til Malasíu með öllu sem því fylgir og að auki verður Sveinn Sigurbergs- son með í för sem aðstoðarmaður Björgvins og kylfu- sveinn. Björgvin var í óðaönn að undirbúa mikla málningarvinnu í áhaldahúsi GK er Morgunblaðið slá á þráðinn til hans, en í vetur hefur Björgvin unnið að ýmsum verkefn- um hjá GK. Hann fór á dögunum í 10 daga ferð til Flórída í Bandaríkjunum ásamt stórum hópi íslenskra afrek- skylfinga og telur Björgvin að hann komi ágætlega undan vetri. „Ég hef verið að æfa mikið inni í vetur, og tel mig vera á ágætu róli með golfið. Ferðin til Flórída hjálp- ar manni einnig mikið, þar fékk maður tækifæri til þess að spila mikið við bestu aðstæður. Eitt högg í einu Um markmið sín fyrir mótið í Malasíu segir Björgvin að þar verði aðeins eitt högg slegið í einu. „Það er erfitt að setja sér markmið fyrir slíkt mót enda hef ég aldrei farið til Malasíu, ég veit ekkert um aðstæð- ur á vellinum, hvernig hann er, og hvað ber að varast. Það eina sem ég veit er að rakinn er allt að 50% á þessum árstíma og hitinn þokka- legur. Eigum við ekki bara að stefna að því að komast í gegnum Björgvin Sigurbergsson, atvinnumaður í golfi, mun keppa við marga heimskunna kylfinga á móti í Malasíu. Björgvin Sigurbergsson í ævin- týraferð til Kuala Lumpur í Malasíu „Kem vel undan vetri“ BJÖRGVIN Sigurbergsson, atvinnukylfingur úr GK, mun taka þátt á evrópsku mótaröðinni í golfi á móti sem fram fer í Malasíu dagana 19.–22. febrúar. Þar verða margir af þekktustu kylfingum veraldar meðal þátttakenda en Björgvin öðlaðist keppnisrétt á mótinu með því að vinna tveggja daga mót fyrir atvinnumenn á Íslandi sl. haust sem fram fór á Akureyri og í Hafnarfirði. Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson                       niðurskurðinn til að byrja með, einn til tveir undir pari á hring væri al- veg ágætt,“ sagði Björgvin sem flýgur til London þann 14. febrúar og fer þaðan í beinu flugi til Malas- íu. Í fyrra lék Björgvin á mótaröð sem fram fór á Bretlandseyjum, en þar sem hann var með bækistöðvar og bjó ásamt fjölskyldu sinni. En í ár ætlar Hafnfirðingurinn og Haukamaðurinn að gera út frá heimavígstöðvunum. „Ég ætla að vera á Íslandi og fara á einhver mót í sumar erlendis. En það er allt óráðið og ég ætla að sjá hvar ég stend eftir ferðina til Malasíu. Það er dýrt að vera atvinnumaður ef maður hefur ekki öðlast keppnis- rétt á evrópsku mótaröðinni og eins og alltaf er þetta spurning um fjár- hagslegu hliðina,“ segir Björgvin sem er giftur Heiðrúnu Jóhanns- dóttur kennara og eiga þau tvö börn. Björgvin segir að hann muni samt sem áður verða atvinnumaður áfram þrátt fyrir að hann verði hér á Íslandi, og aðeins landsliðsverk- efni verði út undan á meðan hann sé atvinnumaður. „Ég hef áhuga á að fara í úrtöku- mótið fyrir Opna breska meistara- mótið. Það verður á Englandi og það gæti verið spennandi vettvang- ur.“ Boðsmaður stóð uppi sem sigurvegari í fyrra Spurður hvort hann hafi látið sig dreyma um að standa uppi sem sig- urvegari í Malasíu segir Björgvin að svo langt hafi hann ekki leyft sér að hugsa. „Sá sem fór á vegum Carlsberg í fyrra á þetta sama mót stóð efstur á palli í mótslok. Það var Indverj- inn Arjan Atwal sem lék á 24 högg- um undir pari samtals. Atwal fékk um 15 millj. kr. fyrir sigurinn en alls skiptu kylfingarnir á milli sín um 90 millj. kr. í verðlaunafé. Atwal varð í 63. sæti á peningalista evr- ópsku mótaraðarinnar í kjölfarið og náði að vinna sér inn um 29 millj. kr. á mótum ársins. Hann hefur verið á evrópsku mótaröðinni frá árinu 2001. Morgunblaðið/RAX Sveinn Sigurbergsson og Björgvin Sigurbergsson verða á ferð og flugi á næstunni og halda til Malasíu. ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2004 45 ÞÝSKI vefmiðill- inn sport1.de segist hafa heim- ildir fyrir því að Alfreð Gíslason, þjálfari Magde- burg í Þýska- landi, sé einn þeirra þjálfara sem sé á óska- lista handknatt- leiksliðs Barcelona, en for- ráðamenn félagsins leita nú logandi ljósi að eftirmanni Valero Rivera, sem hættir í vor eftir 20 ár við þjálf- un liðsins. Alfreð framlengdi samn- ing sinn við Magdeburg í haust til ársins 2007, en hann hefur vakið mikla athygli í handknattleiksheim- inum fyrir góðan árangur við stjórn þýska liðsins undanfarin ár. Alfreð segir í viðtali við sport1.de að sér sé sýndur heiður að vera nefndur í tengslum við þjálfarastarfið hjá Barcelona. „Ég er hins vegar með þriggja ára samning við Magde- burg og hyggst standa við hann. Hjá Magdeburg er ég byggja upp nýtt lið og frá því verki ætla ég ekki að hlaupa,“ segir Alfreð, sem lék á árum áður með Bidasoa á Spáni. Auk Alfreðs eru nefndir til sög- unnar sem hugsanlegir eftirmenn Rivera í Noka Serdarusic, þjálfari Kiel og Martin Schwalb, sem stýrir Wallau Massenheim, þar sem Einar Örn Jónsson og Rúnar Sigtryggs- son leika. Alfreð Gíslason undir smásjá Barcelona Alfreð FÓLK  KRISTJÁN Uni Óskarsson frá Ólafsfirði varð í 51. sæti í bruni á heimsmeistaramóti unglinga í alpa- greinum á skíðum, sem hófst í Slóv- eníu í gær – kom í mark hálfri þriðju sekúndu á eftir sigurvegaranum, Ro- med Baumann frá Austurríki.  RAUÐU spjöldin í leik Fram og Þróttar í Reykjavíkurmótinu í knatt- spyrnu á sunnudag voru fimm tals- ins, ekki þrír eins og sagt var í blaðinu í gær. Auk Framaranna þriggja sem fengu reisupassann var þeim Ingva Sveinssyni og Hans Sæv- arssyni úr Þrótti sýnt rauða spjaldið.  KENYON Martin, framherji New Jersey Nets, og Tim Duncan, mið- herji meistaraliðs San Antonio Spurs, voru kjörnir leikmenn vik- unnar 2.–8. febrúar, í NBA.  LIÐIN mættust í úrslitum um heimsmeistaratitilinn sl. sumar þar sem Spurs hafði betur. New Jersey Nets vann alla fjóra leiki sína á þessu tímabili og skoraði Martin 27 stig að meðaltali í leik og tók að auki 12 frá- köst. Duncan skoraði 27,3 að með- altali í þremur leikjum Spurs í vik- unni og tók að auki 13 fráköst. Spurs vann alla leikina þrjá.  DAMIEN Duff, leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Chelsea og írsk- ur landsliðsmaður, ætlar að fresta því að fara í aðgerð á öxl til þess að geta tekið þátt í baráttunni með fé- lögum sínum um enska meistaratit- ilinn. Duff hefur ekki byrjað inn á í leikjum Chelsea frá því fyrir jól, en hann fór úr axlarlið í leik í desember.  LÆKNAR Chelsea telja að Duff verði að fara í aðgerð til þess að láta laga þann skaða sem nú þegar er orðinn í axlarliðnum og telja 80% lík- ur á því að Duff muni fara á ný úr axlarlið, fari hann ekki í aðgerð á næstunni. „Ég vonast til þess að öxl- in verði í lagi ef ég legg áherslu á að gera styrktaræfingar. En ég veit að ég tek mikla áhættu, en hún er þess virði,“ segir Duff.  EIÐUR Smári Guðjohnsen stóð sig vel með Chelsea þegar hann kom inn á sem varamaður gegn Charlton þegar sextán mín. voru til leiksloka. Félagar hans voru klaufar að nýta sér ekki góðar fyrirgjafir hans og bæta við mörkum í leiknum, sem Chelsea vann, 1:0. Þrátt fyrir að vera stutt inn á var Eiður Smári valinn maður leiksins hjá SKY sjónvarps- stöðinni og fékk stóra kampavíns- flösku að launum.  BRASILÍSKI knattspyrnukappinn Ronaldo, markahrókur hjá Real Ma- drid, hefur skipt um umboðsmann til að sjá um sín mál – og hefur látið þau í hendur Portúgalans Luis Vicente. Reinaldo Pitta og Alexandre Mart- ins, sem voru umboðsmenn Ronaldo, eru komnir í skattarannsókn. Þess má geta að Luis Vicente er einnig umboðsmaður portúgalska lands- liðsmannsins Luis Figo, félaga Ro- naldo hjá Real. ÞAÐ eru margir þekktir kapp- ar sem taka þátt í mótinu í Malasíu og þekktastur þeirra er án efa Colin Montgomerie frá Skotlandi sem hefur verið í hópi 10 bestu kylfinga ver- aldar undanfarinn áratug. Ís- landsvinurinn Paidrag Harr- ington frá Írlandi tekur einnig þátt ásamt Spánverjanum Miguel Angel Jiménez og hin- um ítalska Costantino Rocca. Frakkinn Jean Van De Velde er í hópi þeirra sem taka þátt og þar má einnig nefna Englendinginn Peter Baker sem tók þátt í Canon- móti hér á landi og Paul McGinley frá Írlandi sem var í Ryderliði Evrópu í fyrra. Margir þekktir kappar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.