Morgunblaðið - 11.02.2004, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 11.02.2004, Blaðsíða 47
EINS og greint var frá í Morg- unblaðinu í gær verður Jón Jósep Snæbjörnsson, Jónsi í svörtum föt- um, fulltrúi Íslands í Evróvisjón þetta árið en keppnin fer fram í maí í Tyrklandi. Lagið, sem gengur und- ir vinnutitlinum „Heaven“, er eftir Svein Rúnar Sigurðsson en ekki Hauksson en eins og ranglega var farið með í gær. Þegar blaðamaður ræddi við Jónsa sagðist hann ekki enn vera umsetinn og gaf sér því góðfúslega tíma til að svara nokkrum spurn- ingum. „Sveinn vann þessa forkeppni sem RÚV hélt en 117 lög voru send inn fyrir jól,“ útskýrir Jónsi. „Hann fékk svo að velja sér upptökustjóra og flytjanda. Hann hringdi í Þorvald Bjarna og svo var hringt í mig. Ég sló til með það sama án þess að hafa heyrt lagið.“ Jónsi segir að hann hafi pælt í því hvort hann ætti einhvern tíma möguleika í Evróvisjón. Hann segir að hann hafi verið kominn á þá skoð- un að hann ætti ekki möguleika!? „Ég bjóst alls ekki við því að vera valinn. Mér fannst þeir vera svo margir aðrir sem kæmu til greina,“ segir hann. Jónsi segist vera búinn að heyra lagið núna en því miður geti hann ekki gefið upp strax hvers lags smíð það er. „Það verður frumflutt, með myndbandi, eftir 20. mars. Það verð- ur frumflutt hjá Gísla Marteini en þangað til ætlum við að liggja á lag- inu eins og ormar á gulli!“ Blaðamaður segir að fagmaður eins og Jónsi geti nú varla verið smeykur við komandi keppni. Eða hvað? „Auðvitað er ég smeykur. En ég vona að ég geti verið fólkinu mínu til einhvers sóma og ég mun að sjálf- sögðu leggja mig allan fram. Mér er sagt að það sé mjög skemmtileg upplifun að taka þátt í þessu. Þegar ég var níu ára sá ég Icy-flokkinn flytja „Gleðibankann“ á sviði og vildi þá ólmur vera með. Þannig að nú er gamall draumur loksins að rætast.“ Jónsi er klár „Gamall draumur“ Morgunblaðið/Jim Smart Jón Jósep hefur dreymt um að taka þátt í Evróvisjón frá því hann sá Icy- flokkinn á sínum tíma. Það var árið 1986 og piltur þá ekki nema 9 ára. arnart@mbl.is í slaginn í Tyrklandi MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2004 47 Yfir 90.000 gestir Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 14. Svakalegasti spennutryllir ársins frá leikstjóra Face/Off og Mission Impossible 2. Tilnefningar til óskarsverðlauna11 Sýnd kl. 5 og 9. B.i. 12. Sýnd kl. 6. Íslenskt tal. Charlize Theron: Golden Globe verðlaun fyrir besta leik í aðalhlutverki. Tilnefnd til Óskarsverðlauna Sannsöguleg mynd sem byggð er á skuggalegri ævi fyrsta kvenkyns fjöldamorðingja Bandaríkjanna. Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 16. MIÐAVERÐKR. 500. www.laugarasbio.is Kvikmyndir.com Nýr og betriHverfisgötu  551 9000 Tilnefningar til óskarsverðlauna Besta leikkona í aðalhlutverki Besti leikari í aukahlutverki 21 GRAMM www .regnboginn.is Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16. 2 Sýnd kl. 10.40. B.i. 14 ára. HJ Mbl. Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40.Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. Tilnefning til óskarsverðlauna1 TILNEFND TIL GOLDEN GLOBE-VERÐLAUNA M.A. SEM BESTA MYNDIN OG BESTI AUKALEIKARI Sýnd kl. 5.30. Allra síð. sýningar ÓHT Rás2 Vann 3 Golden Globe. Besta gamanmynd Besta handrit Besti gamanleikari í aðalhlutverki Ein athyglisverðasta mynd ársins l l . i i l i i í l l i i li i „Dýrmætt hnossgæti“ EPÓ Kvikmyndir.com Tilnefningar til óskarsverðlauna Besta mynd, besti leikstjóri, besta handrit og besti leikari í aðalhlutverki 4 BILL MURRAY SCARLETT JOHANSSON Allir þurfa félagsskap SV MBL „Glæsilegt ævintýri. Hreinn unaður frá upphafi til enda.“ Fréttablaðið ÓHT Rás 2 l il t i t ri. r i r fr fi til .“ r tt l i SV Mbl.l. Kvikmyndir.comvi y ir.                                     … Diana Ross var í gær dæmd í tveggja daga fangelsi fyrir ölvunar- akstur og mun hún afplána dóminn í Los Angeles. Ross, sem er 59 ára, var stöðvuð af lögreglu í desember árið 2002 og reyndist áfengi í blóði hennar vera langt yfir löglegum mörkum. „Ég held að hún sé ánægð með að þessu máli sé lokið,“ sagði Stephen Paul Barnard, lögmaður Ross, við fréttavef BBC. Lögregla í Tucson í Arizona stöðvaði Ross eftir að tilkynnt var um bíl sem ekið væri á röng- um vegarhelm- ingi. Lög- reglumenn sögðu að söngkonan hefði verið ofur- ölvi. Myndband, sem tekið var af handtökunni og sýnt var víða, sýndi Ross biðja lögreglumennina um að tryggja að málið kæmist ekki í fréttir. Ross varð stórstjarna þegar hún var aðalsöngkona söngtríósins The Supremes á sjöunda áratug síðustu aldar og hún hóf síðan sólóferil á átt- unda áratugnum. Hún hefur átt við áfengisvandamál að stríða og m.a. gengist undir meðferð. FÓLK Ífréttum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.