Morgunblaðið - 11.02.2004, Síða 49

Morgunblaðið - 11.02.2004, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2004 49 KRINGLAN Sýnd kl. 6 og 9. b.i. 14. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 8.15 og 10. b.i. 14 . ÁLFABAKKI Sýnd kl. 3.45. Ísl. tal. Sannkölluð stórmynd sem hlotið hefur frábæra dóma og viðtökur um allan heim. Tom Cruise hefur aldrei verið betri! ÁLFABAKKI Sýnd kl. 3.40. Ísl. tal. Kvikmyndir.is DV  ÓHT Rás 2 i i .i Stórskemmtileg og sprenghlægileg gamanmynd með Eddie Murphy sem kemst í hann krappann ásamt fjölskyldu sinni þegar þau gista á gömlu draugasetri! AKUREYRI Sýnd kl. 10. b.i. 14 ára. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 6. KEFLAVÍK Sýnd kl. 8 og 10.15. 4 Tilnefningar tilóskarsverðlauna 4 Tilnefningar tilóskarsverðlauna AKUREYRI Sýnd kl. 6. Ísl. tal. KRINGLAN Sýnd kl. 5 og 7. Ísl. tal. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4 og 6. Íslenskt tal. / Sýnd kl. 4 og 8. Enskt tal. Frábær teiknimynd frá Disney fyrir alla fjölskylduna með tónlist eftir Phil Collins! KRINGLAN Sýnd kl. 6.30 og 9. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.30. EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 8 OG 10.30. AKUREYRI Sýnd kl. 8 og 10.20. KEFLAVÍK Sýnd kl. 8 og 10.30. Jack Nicholson, Diane Keaton, Keanu Reevesog Amanda Peet í Rómantískri Gamanmynd frá Nancy Myers, leikstjóra „What Women Want“. Gamanmynd eins og þær gerast bestar !  Kvikmyndir.com Diane Keaton er tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn í myndinni EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL.5. Í NÝLEGRI heimildarmynd sem nefnist Leitin að Debru Winger kemur ýmislegt forvitnilegt fram, m.a. sú nöturlega staðreynd að Hollywood-kvikmyndir fjalla fyrst og fremst um (hvíta) karlmenn, eru skrifaðar og þeim leikstýrt af körl- um í meira en 90% tilfella. Konur komu að vísu fyrir í fjórðungi hlut- verka í 250 stærstu kvikmyndum ársins 2001, og af þeim konum voru 92% undir 35 ára aldri. Þannig þykja karlstjörnur á borð við Harr- ison Ford, Michael Douglas og Sean Connery aðeins þroskast með ár- unum, en móttleikonum þeirra í rómantískum hlutverkum er skipt reglulega út eftir því sem þær nálg- ast fjörutíu ára mörkin. Eftir það liggur leið leikkvennanna ýmist út úr kvikmyndabransanum eða í bak- grunn hans. Leikstýran Nancy Meyers tekur á þessu máli í orði og verki í gam- anmyndinni Eitthvað verður undan að láta – með því að skipa sér í hóp þeirra fáu leikstýra og handritshöf- unda sem komast að í Hollywood, með því að búa til hlutverk þar sem hin 57 ára Diane Keaton sýnir af hverju iðnaðurinn er að missa við það að útiloka leikkonur á borð við hana, og með því að gera æskudýrk- unina að stökkpalli fyrir bráð- skemmtilega gamanframvindu. Í myndinni leikur Keaton hina 55 ára gömlu Ericu Barry, hæfileika- ríkt leikskáld sem er vel stæð og virt á sínu sviði. En hún er líka ný- skilin og þegar hún svipast um á stefnumótamarkaðinum virðast karlmenn á hennar aldri fyrst og fremst hafa áhuga á konum sem eru á aldur við dóttur hennar. Plötuút- gefandinn Harry Sanborn fellur í þennan flokk, en á sínum 63 árum hefur hann aldrei átt náin kynni við konu sem komin er yfir þrítugt. Jack Nicholson fer skemmtilega nokk með hlutverk áðurnefnds kvennabósa og er þar leikið með op- inbera persónu leikarans, sem þekktur er fyrir áþekka stefnumót- un í kvennamálum og Harry San- born viðhefur. Þegar Harry gerist kærasti 28 ára gamallar dóttur Ericu minnir aldurinn þó áþreifan- lega á sig, hann fær hjartaáfall og er ekki ólíklegt að óhófleg Viagra- notkun hafi haft eitthvað með það að gera. Fyrr en varir hefur Harry komið sér fyrir í strandhúsi Ericu til þess að jafna sig á áfallinu, og fer hún þá að sjá hvað dótturinni þótti svona sjarmerandi við manninn. Og þegar Harry smám saman kynnist þeirri manneskju sem Erica hefur að geyma, fellur hann kylliflatur. Keaton og Nicholson eiga frábær- an samleik í þessari lipru og hnyttnu gamanmynd, sem tekst fljótt og örugglega á loft og brakar af gamansemi í fyrri hlutanum. Nic- holson túlkar Harry með mátulegu samblandi af framúrskarandi gam- anleik, sjálfshæðni og þroska, sem birtist í því hversu ófeiminn hann er við að stíga fram sem stórlax sem of lengi hefur neitað að horfast í augu við staðreyndir varðandi aldur sinn. Handritið kastar persónunni sömu- leiðis fram og aftur, gerir grín að honum og réttir hann við, og eru bæði Harry og Nicholson nægilega sterkir persónuleikar til að bæði taka þátt í hríðinni og standa hana af sér. Diane Keaton er vel að Ósk- arstilnefningu komin fyrir túlkun sína á Ericu Barry, og nægir að horfa á hana til að skilja af hverju karlmennirnir í myndinni falla fyrir henni hver um annan þveran. Aðrir leikarar standa sig líka með sóma, Amanda Peet er stórfín í hlutverki dótturinnar og Frances McDorm- and eykur enn á leikkvennablóma myndarinnar í hlutverki systur Ericu. Þá kemur Keanu Reeves heldur betur á óvart í hlutverki hins skilningsríka og bráðsjarmerandi læknis sem keppir við skrögginn Harry um ástir Ericu. Hér vottar hvorki fyrir hinu þráláta gaurafasi sem elti Reeves eftir hina vinsælu Bill & Ted’s Exellent Adventure né hinu nær frosna viðmóti sem ein- kenndi leikframmistöðu hans að öðru leyti. Hér hreinlega sannar Reeves að hann getur leikið og er bæði trúverðugur og bráðfyndinn í hlutverki hins yfirmáta fýsilega von- biðils sem á enn frekari þátt í að hrista upp í tilveru Ericu. Eitthvað verður undan að láta er í lengri kantinum á gamanmynda- mælikvarða en sagan má alveg við því að fá sinn tíma. Leyst er ágæt- lega úr gamalkunnum vanda róm- antískra gamanmynda sem skapast venjulega eftir að turtildúfurnar ná fyrst saman, en babb kemur í bát- inn. Eftir nokkurt lágflug í seinni hlutanum tekst farsinn aftur á loft þegar kvikmyndahandritið er soðið niður í leikrit og hnýtt er fyrir end- ana í París, sjálfri borg ástarinnar. Keaton og Nicholson kveðast á KVIKMYNDIR Sambíóin og Háskólabíó Leikstjórn og handrit: Nancy Meyers. Kvikmyndataka: Michael Ballhaus. Aðal- hlutverk: Diane Keaton, Jack Nicholson, Amanda Peet, Keanu Reeves, Frances McDormand, Jon Favreau. Lengd: 128 mín. Bandaríkin. Columbia Pictures, 2003. SOMETHING’S GOTTA GIVE / EITTHVAÐ VERÐUR UNDAN AÐ LÁTA  Heiða Jóhannsdóttir ÞAÐ hafa eflaust margir beðið spenntir eftir lokamyndinni í Böku- þríleiknum góða sem nú kemur út á myndbandi og -diski. Amerísk baka – brúðkaupið er lokakaflinn í þess- ari vinsælu gamanmyndaröð og nú ætla Jim og Michelle upp að alt- arinu. En Stifler og hinir vitleysing- arnir setja að sjálfsögðu strik í þann (brúðkaups)reikning. Annars kennir ýmissa grasa í útgáfu þessarar viku. Fyrst ber að nefna þrjár róm- antískar gamanmyndir. Eðalleik- arinn Colin Firth leiðir Vonarvorið (Hope Springs) á meðan Millu Jovo- vich bregður fyrir í Karlgerpinu (You Stupid Man). Þriðja myndin er svo Niður með ástina (Down with Love) með stórleikurunum Ewan McGregor og Renée Zellweger. Þá verður að geta þess að ný mynd með snillingnum Steven Seagal kemur á leigurnar í vikunni en hún heitir Á veiðum (Out for a Kill). Lengi lifir í gömlum glæðum …Og börnin gleymast heldur ekki, því að ný Tomma og Jenna-teiknimyndaspóla kemur út í þessari viku. Myndbandaútgáfa vikunnar ÓLAFUR Jóhannesson kvikmynda- gerðarmaður er leikstjóri kvikmynd- arinnar Proximitas sem frumsýnd verður í kvöld í Háskólabíói. Proximi- tas er latneskt orð sem merkir „náin tenging“ enda segir Ólafur að þetta sé mannúðleg og heimspekileg mynd um lífið. Myndin gerist annars vegar hér heima á Íslandi og hins vegar á Ind- landi og margir nafntogaðir sem og minna frægir koma þar við sögu. „Ég gæti nefnt Gunnar Dal heimspeking, Þráin Bertelsson rithöfund og Magn- ús Sigurðsson netagerðarmann og eru þá margir ónefndir,“ segir Ólafur. „Fyrir nú utan allt fólkið á Indlandi, frá forsætisráðherra fátækrahverfis til betlara. Þó allt fólkið í myndinni komi úr ólíkum menningarheimum þá á það samt ýmislegt sameiginlegt, myndin sýnir fram á það. Ég geng út frá „nálægðinni“ og leitast við að finna í fólki það sem gerir okkur mannleg og tengir okkur saman, þrátt fyrir miklar fjarlægðir. Ég hef manneskjuna í for- grunni og skoða hana í ljósi drauma, vona, minninga og hverdagsleikans.“ Ólafur bætir við að myndin hafi lengi verið í þróun og tekið miklum breytingum á þeim tíma. „Þegar ég heyrði sjálfur fyrst hugmyndina að þessari mynd inni í hausnum á mér, þá fannst mér ég bilaður og var viss um að ég dræpi áhorfendur úr leiðindum. Þess vegna lagði ég svo mikla áherslu á að hún væri skemmtileg og einlæg. Það er því höfuðáhersla að myndin sé þessum kostum búin, því maður nær ekki til áhorfenda nema í gegnum hjartað.“ Ólafur segir Proximitas ekki vera heimildamynd í venjulegum skilningi. „Sýn leikstjórans, það er að segja mín, er mjög fyrirferðarmikil í allri gerð myndarinnar og ég gerði það sem mér sýndist og var óhræddur við að brjóta reglur. En við lögðum mikla áherslu á að klippingar, hljóðvinnsla og annað slíkt væri unnið mjög fagmannlega og settum standardinn í hæstu hæðir í allri vinnslu, því við ætlum að spíg- spora erlendis með myndina á sýning- ar sem skrautfjöður fyrir kvikmynda- fyrirtækið okkar og þá gengur ekki að vera með einhver amatöravinnu- brögð.“ Ólafur segir aðstandendur hafa fengið mjög gott fólk með sér við myndgerðina og nefnir þar Þorvald Þorsteinsson, hljómsveitina Sigur Rós sem leyfði þeim að nota lag frá sér í myndinni og eins hafi tónlistarvinnsl- an verið í höndum Pavel E. Smid og Halls Ingólfssonar sem séu mjög fær- ir á sínu sviði. „Þannig gæti ég haldið áfram að telja endalaust upp frábært og fært fólk sem kom að gerð þessarar myndar en við erum rúmlega tíu manns sem erum meðlimir kvik- myndafélagsins POPPOLI sem ég stofnaði síðastliðið vor ásamt Ragnari Santos framleiðanda, en þá höfðum við verið að vinna í þessum bransa í átta ár. Benedikt Jóhannesson, litli bróðir minn, hefur líka nýlega bæst í hópinn og í honum er mikil liðveisla.“ Fram undan hjá POPPOLI kvik- myndafélaginu eru spennandi hlutir, þau hafa fengið framleiðslustyrk til að gera kvikmynd um sögu Bubba Morthens, sem ber vinnuheitið Blindsker. Eins hafa þau fengið handritastyrk að kvikmyndinni Stóra planið sem fjallar um íslenskan misskilinn listamann sem rukkar dópskuldir. Ný íslensk mynd, Proximitas, frumsýnd í Háskólabíói Nálægð og fjarlægð www.poppoli.com khk@mbl.is   >  ' "         ( * + ) ? , - . (0 /  ? (* (, () (- (. (/ *0 (+ "! * + + * ( , ) , / . . ( + / /  (* * / * @          =  ' !1'   =  ' !1' !1'   =   = !1'   = !1'   = !1'  ' !1'   = !1'   = !1' A  B A  A  B B A  B B A  A  B B B B A  B B A       / ++   ( '   ) , +   , 0+  0 )& (    12   )  3    3  &    )  -4 0 )        0    &  0    )  ,  5 & ,6 0 )      0   arnart@mbl.is Allt er þá þrennt er

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.