Morgunblaðið - 01.03.2004, Page 30

Morgunblaðið - 01.03.2004, Page 30
30 C MÁNUDAGUR 1. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ G era má ráð fyrir, að frum- varp dómsmálaráðherra um fasteignasölu, sem lagt var fram á Alþingi í haust, verði samþykkt innan skamms. Með frumvarpinu eru gerðar ýmsar mikilvægar breyting- ar og þá einkum með tillliti til þess, að eigandi einnar fasteignasölunnar hafði gerzt sekur um fjárdrátt og svik sem námu talsvert á annað hundrað millj. kr. að því er talið er, en dómur hefur ekki verið kveðinn upp enn í málinu. Þetta athæfi stóð yfir í alllangan tíma og varð til þess að margir ein- staklingar urðu fyrir verulegu tjóni og fjárhagslegum skakkaföllum af þessum sökum. Framkomnu frum- varpi er ætlað, þegar það er orðið að lögum, að koma í veg fyrir að þetta endurtaki sig. Ein mikilvægasta breytingin í frumvarpinu felst í því, að lagt er til, að sett verði á fót stjórnsýslu- nefnd, eftirlitsnefnd Félags fast- eignasala, sem starfi í tengslum við félagið og á kostnað þess. Nefndinni er ætlað að hafa eftirlit með fast- eignasölum í starfi þeirra og lög- mönnum, að því leyti sem þeir stunda fasteignasölu. Nefndin hefur miklar skyldur til eftirlits og ríkar heimildir til við- bragða, ef rökstuddur grunur er um að fasteignasali hafi brotið af sér í störfum sínum. Nefndin getur veitt áminningu og hún getur svipt fast- eignasala löggildingu hans tíma- bundið og hún getur líka lokað fast- eignasölu hans. Þessum ákvörðunum nefndarinnar má skjóta til ráðherra sem æðra stjórn- valds og hann getur ákveðið m. a. að svipting löggildingar skuli vera var- anleg. Eftirlit nefndarinnar á að vera tvenns konar, það er reglulegt eft- irlit eigi sjaldnar en þriðja hvert ár hjá hverjum fasteignasala og eft- irlit, sem ákveðið er sérstaklega, ýmist að gefnu tilefni eða ekki. Auk þess felst eftirlit nefndarinnar í því, að fasteignasalar eiga að skila til hennar vottorði löggilts endurskoð- anda um að meðferð þeirra á fé við- skiptamanna hafi verið í samræmi við lög og reglur um vörslufjár- reikninga. Íþyngjandi ráðstöfun Þetta er mikilvæg breyting og hlýtur að vera íþyngjandi fyrir fast- eignasala, ekki sízt vegna þess að gert er ráð fyrir, að þeir standi sjálfir undir kostnaði við störf eft- irlitsnefndarinnar. Sú spurning kemur strax upp, hver er afstaða Félags fasteignasala. Fyrir svörum verður Björn Þorri Viktorsson, hdl. og löggiltur fasteignasali hjá fast- eignasölunni Miðborg, en hann var endurkjörinn formaður Félags fast- eignasala á aðalfundi félagsins í síð- ustu viku. „Félag okkar vill ekki láta lög- festa skilyrðislausa skyldu til þess, að eftirlitsnefndin skoði alla fast- eignasala eigi sjaldnar en á þriggja ára fresti,“ segir Björn Þorri. „Mið- að við 150 löggilta fasteignasala í landinu nú, þá þyrfti þessi eftirlits- nefnd að skoða að meðaltali einn fasteignasala og starfsemi hans í hverri viku allt árið um kring. Af þessu hlýzt gríðarlegur kostnaður, sem okkur fasteignasölum finnst fullkomlega óþarfur. Þetta er svona svipað því og senda slökkviliðið reglulega út í sveit til þess að kanna, hvort það sé ekki kviknað í einhvers staðar.“ „Það má ekki gleyma því, að þessi mál eru í réttu horfi hjá langstærst- um hluta fasteignasala,“ heldur Björn Þorri áfram. „Úrræðin þurfa hins vegar að vera skýr og það þarf að vera hægt að bregðast við taf- arlaust, ef minnsti grunur vaknar um eitthvað óeðlilegt. Kostnaðurinn sem af þessu eft- irliti myndi hljótast væri varlega áætlað um 20 millj. kr. á ári og eng- in önnur sérfræðistétt á öllu Íslandi þarf að undirgangast slíka kvöð. Það mætti taka stikkprufur og skoða 10–15 fasteignasölur á hverju ári, þannig að þetta myndi alltaf vofa yfir. En það yrði ekki nærri því eins kostnaðarsamt. Jafnframt verður að hafa í huga, að kostnaði við þetta eftirlit geta fasteignasalar ekki velt annað en út í verðlagið og sölulaun myndu hækka. En aukið eftirlit frá því sem nú er, er að mörgu leyti af hinu góða. Félag fasteignasala fær eftirlits- og agavald með meðlimum sínum, en félagið mun skipa tvo fulltrúa í þessa eftirlitsnefnd og einn verður tilnefndur af ráðherra. Þessi nefnd mun hafa stjórnsýsluvald, sem nær til allra löggiltra fasteignasala á landinu, því að jafnframt verður innleidd skylduaðild að félaginu eins og nú er hjá Lögmannafélagi Ís- lands. En eftirlit þessarar nefndar má ekki ganga of langt. Ekki má gleyma því, að við höfum siðareglur og innan félagsins starfar nú þegar úrskurðarnefnd, sem tekur á deilu- málum, sem kunna að koma upp milli fasteignasala og viðskipta- manna þeirra. Þó að úrskurðir hennar séu ekki bindandi, þá hafa mörg mál leystst í gegnum tíðina á vettvangi þessarar nefndar.“ Leppun verður bönnuð Ein meginbreytingin frá núver- andi lögum felst í því, að sá sem er með löggildingu á starfsleyfi fast- eignasölu, verður að vera meiri- hlutaeigandi að stofunni. Með þessu er verið að koma í veg fyrir svokall- aða leppun, sem hefur verið nokkuð áberandi í þessari grein. Þá er það einnig mikilvæg breyting, að sölu- menn mega ekki starfa sem und- irverktakar á fasteignasölum, held- ur verða þeir að vera launþegar. „Meirihlutaeign löggilts fast- eignasala á að tryggja það að fag- maður hafi vald yfir rekstrinum,“ segir Björn Þorri. „Jafnframt verð- ur verktaka bönnuð. Starfsmaður verður að vera launþegi hjá fast- eignasalanum, þannig að það verður vinnuréttarsamband á milli þeirra til þess að tryggingar hins löggilta fasteignasala nái yfir starfsmann- inn. Auk þess mun þetta skapa meiri festu í greininni. Starfsmannavelta er víða mjög hröð. Mönnum er lofað gulli og grænum skógum, þegar þeir eru að ráða sig sem verktaka hjá fasteignasölum, en gefast svo fljótlega upp, því að oft er ekki svo mikið upp úr þessu að hafa. Mig grunar að það séu gjarnan gylli- vonir, sem fá menn til þess að ráða sig sem verktaka hjá fasteignasöl- um og það jafnvel með enga fasta tryggingu.“ Það er með hreinum ólíkindum, hvað verktaka og verktakasambönd hafa verið algeng í þessari grein. Hjá öðrum sérfræðistéttum er þetta nánast óþekkt. Við getum litið til lögfræðinga, endurskoðenda og lækna. Það er nánast óþekkt að menn selji þar aðgang að starfsrétt- indum sínum með þessum hætti.“ Í greinargerð með frumvarpinu segir, að einsýnt sé að rekstur úti- búa, sem heimilaður er að vissu marki samkvæmt gildandi lögum, hefur farið úr böndum. Tilhneiging- in hefur verið sú, að útibú í fast- eignasölu eru í raun sjálfstæð fyr- irtæki, sem fá að starfa undir firmanafni annars fyrirtækis og í skjóli sömu löggildingar. Þá hefur sú skipan, að einungis megi setja á fót útibú í öðru sveitarfélagi en því sem fasteignasala starfar í einnig verið gagnrýnd og hefur henni ekki verið fylgt í framkvæmd. „Útibú eins og þau hafa verið rek- in í dag, eru í sumum tilfellum en alls ekki öllum, rekin þannig að á útibúinu er enginn réttindamaður,“ segir Björn Þorri. „Þar er enga fag- lega menntun í fasteignasölu að finna. Sumir vilja segja, að þetta sé ein tegund leppunar. En afstaða fé- lagsins hefur verið sú, að hægt eigi að vera að opna útibú í fasteigna- sölu en aðeins með því skilyrði, að það sé tryggt, að það starfi að minnsta kosti einn löggiltur fast- eignasali á hverju útibúi. Þetta er líka neytendamál, því að það er þýð- ingarmikið fyrir viðskiptvinina, að það sé til staðar fagþekking á útibú- um alveg eins og á aðalskrifstof- unni. Í rauninni er það afar eðlilegt, að hægt sé að opna útibú til þess að fyrirtækin geti stækkað, en þá er e.t.v. hægt að ná fram hagræðingu í greininni.“ Meiri menntunarkröfur „Félag fasteignasala hefur ítrek- að bent á, að gera verði meiri kröfur til þeirra, sem fá löggildingu sem fasteignasalar og þá einkum um starfsreynslu en líka að bæta þurfi menntun á námskeiði því, sem er aðdragandi að prófraun fasteigna- sala,“ segir Björn Þorri. „Í frumvarpinu er lögð til 12 mán- aða starfsreynsla fyrir próftöku, en félagið leggur til 18 mánaða starfs- reynslu og einnig 18 mánaða starfs- reynslu eftir að prófum lýkur, en áður en löggilding er gefin út. Það er nauðsynlegt að tryggja víðtæka starfsreynslu á þessu sviði, ekki hvað sízt í ljósi þess hve mikils- verða hagsmuni löggiltur fasteigna- sali höndlar með og einnig í ljósi þess, að löggilding til fasteignasölu veitir leyfishafanum rétt til þess að ráða til sín ótiltekinn fjölda ófag- lærðs starfsfólks. Til samanburðar má nefna kröfur í ýmsum öðrum starfsgreinum. Þannig þurfa iðnaðarnenn 3ja–4ra ára námsvist til þess að fá starfs- réttindi og því til viðbótar að ljúka meistaraskólanámi til þess að mega takast sjálfstætt verkefni á hendur og hafa sem slíkir mannaforráð í greininni.“ „Kröfurnar sem gerðar eru til sérfræðinga eru alltaf að aukast og það á einnig við um fasteignasölu,“ heldur Björn Þorri áfram. „Í fasteignasölu hefur fyrirkomu- lagið verið þannig frá árinu 1986, að nemendur hafa þurft að sækja þriggja anna námskeið, sem hefur verið kvöldnámskeið og fyrir hádegi á laugardögum og ljúka prófum. En það eru engar inntökukröfur. Nemendur þurfa ekki að vera með grunnskólapróf, framhaldsskólapróf eða stúdentspróf. Ef nemendurnir ná að ljúka prófi, hafa þeir aðeins þurft að sýna fram á 30 daga starfs- reynslu hjá fasteignasala og sótt viku námskeið hálfan daginn til þess að fylgjast með þinglýsingum. Þetta er að sjálfsögðu algerlega ófullnægjandi og afar þýðingarmik- ið, að þessu verði breytt. Þetta skiptir líka miklu máli fyrir neytendur, því að fólkið á mark- aðnum, sem er að höndla með aleigu sína, á réttláta kröfu á, að það sé tryggt, að þeir sem annast þessi við- skipti hafi til þess þekkingu og reynslu.“ Ágreiningsefnum fækkar Björn Þorri segir það staðreynd, að með lögum um fasteignakaup, sem tóku gildi 2002, þá hefur ágreiningsefnum út af fasteigna- kaupum stórlega fækkað. „Í samn- ingsforminu er kaupendum gert það alveg ljóst, að til þess að um galla sé að ræða, þurfa að vera veruleg frá- vik frá því, sem reikna má með út út frá aldri eignarinnar,“ segir hann. „Allar aðfinnslur um raka í veggj- um, lausa parketlista og annað minni háttar, sem finna má að eign- inni, er ekki lengur hægt að bera fyrir sig. Ég tel, að með þessu sé ekki um mjög mikla þrengingu á gallahugtakinu að ræða heldur fyrst og fremst verið að skýra það. En fasteignasalar eiga að gæta hagsmuna beggja aðila og það þýð- ir, að þeir verða að setja sig inn í mál af þessu tagi og hjálpa aðilum að leysa þau, ef þess er nokkur kostur.“ Mikil framför „Verði þetta frumvarp að lögum, þá er það mikil framför,“ sagði Björn Þorri Viktosson að lokum. „Réttarvitund fólks er alltaf að aukast og hún er miklu meiri en hún var fyrir 30 árum síðan. Fólk gerir meiri kröfur á öllum sviðum, ekki síður til fasteignasala sem annarra. sérfræðinga. Það er bara eðlilegt og undir þeim kröfum verða við fast- eignasalar að standa.“ Eiga að tryggja betur hag seljenda og kaupenda Frumvarp um fasteignasölu, sem nú er til meðferðar á Alþingi, hefur vakið talsverða athygli. Magnús Sigurðsson ræddi við Björn Þorra Viktorsson, formann Félags fasteignasala, um frumvarpið, sem á að fá lagagildi 1. júlí nk. Morgunblaðið/Jim Smart Í Félagi fasteignasala eru nú um 150 manns. Þessi mynd var tekin á aðalfundi félagsins, sem fram fór á Grand Hótel. Morgunblaðið/Eggert Björn Þorri Viktorsson, hdl. og löggiltur fasteignasali hjá Miðborg, var endur- kjörinn formaður Félags fasteignasala á aðalfundi félagsins í síðustu viku. magnuss@mbl.is Frumvarp til nýrra laga um fasteignasölu til meðferðar á Alþingi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.