Morgunblaðið - 01.03.2004, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 01.03.2004, Blaðsíða 46
46 C MÁNUDAGUR 1. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ SUMARHÚSALAÓÐIR - NÝTT HVAMMUR Í SKORRADAL 35 nýjar lóðir að koma í sölu en um er að ræða ótrúlega fallegar sumarhúsalóðir í landi Hvamms í Skorradal. Lóðirnar eru margar skógivaxnar en Hvammur hefur verið í umsjá Skógræktarinnar í 40 ár. Þeir sem vilja það besta verða að skoða þetta. Algjört ævintýri. Sjá myndir á: www.gardatorg.is Hringdu strax og pantaðu skipulagsgögn, við svörum alltaf símanum (545-0800), alltaf. FRAMKÖLLUN GARÐABÆJAR Kodak Express. Þekkt og rótgróin framköllunarþjónusta í góðri verslunarmiðstöð er til sölu af sérstökum ástæðum. Húsnæðið og reksturinn. BIRKIHOLT 13 - ÁLFTANES 1 HÚS EFTIR Nú er aðeins eitt hús eftir eftir (suður- endi) af þessum glæsilegu raðhúsum á miðju Álftanesinu. Húsið eru um 180 fm á tveimur hæðum skilast fullbúið að utan en fokhelt að innan (hægt að fá lengra komið). Tvennar góðar svalir. Leikskóli, skóli, íþróttahús, sundlaug og verslun rétt við hendina. Verð kr. 16,2 millj. TRÖLLATEIGUR - MOSÓ 172 og 190 fm raðhús á tveimur hæðum. 4 svefnherb. . Húsin skilast fullbúin að utan, grófjöfnuð lóð og fokheld að innann. Verð frá 16,5 millj. ÞORLÁKSGEISLI - GRAFAH. Í enkasölu um 200 fm parhús á þessum frábæra stað. Húsin skilast tilbúin að utan og fokheld að innan. Frábær staðsetning. Teikningar á skrifstofu Garðatorgs. SKEIÐARÁS - GBÆ Til sölu tvö bil á jarðhæð í nýlegu og góðu húsi. Annað bilið er 375 fm og hitt er 445 fm. Hvort um sig hefur tvær innk.hurðir. Hér má gera góð kaup á góðum kjörum. LYNGÁS - GBÆ 100 fm húsnæði með 5 metra lofthæð. 5 metra innkeyrsluhurð. Mögul. á millilofti fyrir t.d. skrifstofur o.fl. Nýtt hús á góðum stað og góðu aðgegni. Verð 8,5 milj. GARÐABÆR - MIÐBÆR - SALA/ LEIGA Stórglæsilegt samtals 532 fm verslunar og/eða skrifstofuhúsnæði. Grunnflötur neðri hæðar er 425 og efri hæð 107 fm. Hús í algjörum sérflokki, bjart og opið. Húsið er skiptanlegt í smærri einingar Fullbúið húsnæði miklir möguleikar hér. Sjá nánar á: www.gardatorg.is HRÍSMÓAR - GBÆ Nýkomin í einksölu falleg 71 fm íbúð á 3. hæð (efstu í litlu og góð fjölbýli miðsvæðis í Garðabæ. Stutt í skóla og þjónustu. Verð 12.7 millj. LAUFÁS - GARÐABÆ Mjög fín 100 fm íbúð á 2. hæð í 3 íb. húsi í eldri hluta Ásahverfis í Garðbænum. Geymsla og hjólageymsla. Verð 15,9 millj. HLYNSALIR - KÓP. Mjög góð 91 fm íbúð á 3. hæð í verðlaunahúsi (lyfta) ásamt stæði í bílageymslu. Ný íbúð, fullbúin, parket á gólfum og fallegar innréttingar og tæki. Verð 16,5 millj. NÝBÝLAVEGUR - NÝTT - 1 ÍBÚÐ EFTIR Mjög góðar og vel skipulagðar 85 fm nýjar íbúðir í glæsilegu 5 íbúða húsi á þessum gróna stað. Skilast fullbúnar á gólfefna í febrúar 2004. 1 bílskúr eftir. Teikningar hjá Garðatorgi. MIKLABRAUT 78 - LAUS Nýstandsett og glæsileg 61 fm enda íbúð á jarðhæð í ágætu fjölbýli á þessum frábæra stað. Allt nýtt í íbúðinni. Björt og rúmgóð íbúð. verð 9,8 millj. ÞRASTANES - GBÆ Mjög glæsilegt samtals 200 fm einbýlishús á einni hæð á mjög góðum stað á Arnarnesinu. 4. svefnherb. Húsið hefur allt verið tekið í gegn á síðustu 4 árum og er allt mjög vandað. Stór og góð suðvesturverönd og mjög fallegur garður. Verð 35.8 millj. HEGRANES - GBÆ - NÝTT HÚS Nýkomið í einkasölu glæsilegt samtals 270 fm (56 fm bílsk.) einbýlishús á einni hæð. Húsið sem var byggt árið 2000 er allt hið glæsilegasta. 4 svefnherb., glæsileg 25 fm garðstofa. Mjög vandaðar innréttingar. Verð 43,9 millj. DRAUMAHÆÐ - GBÆ Sérlega glæsilegt 150 fm (27 fm bílskúr) tvílyft endaraðhús í Hæðahverfinu í Garðabæ. 4 svefnherb. Fallegt hús á góðum stað. Verð 26,9 millj. FLATAHRAUN - HF. Mjög góð 121,5 fm endaíbúð á 2. hæð í sérlega góðu fjölbýli. Húsið er mikið endurnýjað. Falleg og rúmgóð íbúð á þessum frábæra stað. Verð 14,2 millj. SJÁVARGRUND - GBÆ Mjög falleg 115 fm hæð í klasahúsi ásamt stæði í bílageymslu (undir húsi). Mjög gott og vel byggð hús. Gengið beint úr bílgeymslu í íbúð. Verð 17,9 millj. SKIPHOLT - RVK Mjög falleg 185,3 fm efri sérhæð auk 26 fm bílskúrs á þessum eftirsótta stað. Íbúðin er tilbúin til innréttinga. Innanhúsarkitekt; Guðbjörg Magnúsdóttir. BIRKIHÆÐ - GARÐABÆ Sérlega glæsilegt um 260 fm einbýli (+50fm), þar af um 54 fm bílskúr, á frábærum stað í Hæðahverfinu í Garðabæ. Mjög vandað og bjart hús. Frábærlega hannað og gott útsýni. Verð 49,5 millj. HAUKANES VIÐ SJÓINN Glæsilegt 401 fm tvílyft einbýli á Arnarnesinu. Húsið stendur á stórri sjávarlóð með útsýni yfir Kópavog. Frábært tækifæri fyrir þá sem vilja glæsieign á frábærum stað við sjóinn. HRÍSHOLT - GARÐABÆ Einstaklega glæsilegt rúmlega 500 fm einbýli. Í húsinu er meðal annars fullvaxin sundlaug með öllum búnaði. Húsið er sérlega glæsilegt og er byggt á einhverju glæsilegasta útsýnisstað höfðuborgarsvæðisins, útsýni frá Keili til Esju. Einstakt tækifæri. GLÆSILEGT EINBÝLI Í GARÐABÆ Erum með til sölu sérlega glæsilegt um 190 fm einbýli á einni hæð misvæðis í Garðbæ. Allt nýtt inni í húsinu. Tvö svefnherbergi og bílskúr innréttaður sem íbúð. Stutt í skóla og íþróttir. Uppl. aðeins á skrifstofu Garðatorgs (Þórhallur). MARARGRUND - GARÐABÆ Fallegt og mjög gott 184 fm tvílyft einbýli á frábærum stað í Garðabænum. 5 svefnherb, verönd og mjög fallegur garður. Bílskúrssökkull. Verð 25 millj. SÚLUNES - GBÆ Nýkomið í einkasölu mjög glæsilegt um 200 fm einbýli m. 43,5 fm bílskúr. Sérlega vandað og rúmgott hús með fallegum innréttingum og tækkjum. 1500 fm eingarlóð. Stór verönd og hellulagt upphitað plan. VANTAR ALLAR STÆRÐIR EIGNA Á SKRÁ - MIKIL EFTIRSPURN GARÐBÆJINGAR - ÁLFTNESINGAR Nú er mikil eftirspurn eftir öllum stærðum eigna. Skoðum og verðmetum samdægurs. Nú eru framkvæmdir hafnar á Asparholti en í boði verða 2ja, 3ja og 4ra herb. íbúðir. Erum farin að taka niður pantanir á íbúðum í nýja áfanga. Í fyrra (2003) var það Birkiholtið sem seldist upp á methraða enda er frábært að búa á Álftanesinu. Asparholtið rís norðan við Birkiholtið og verða fyrstu íbúðir líklega afhentar í haust. Leikskóli, grunnskóli, verslun og sundlaug rétt við hendina. Mjög traustur verktaki sem skilar vönduðum íbúðum fullbúnum án gólfefna og sameign og lóð fullfrágengin. Gott verð. ASPARHOLT ÁLFTANESI - BESTU KAUPIN Í DAG GULLFOSS, fyrsta skip Eimskipa- félags Íslands (stofnað 17. janúar 1914), kom til Reykjavíkur 16. apríl 1915 við mikinn fögnuð bæjarbúa. Goðafoss kom til Reykjavíkur 13. júlí 1915 og var einnig fagnað mjög. Bæði skipin voru smíðuð í skipa- smíðastöð í Kaupmannahöfn. Hófu þau siglingar milli Íslands og Dan- merkur með viðkomu í Englandi. Þetta var á árum heimsstyrjald- arinnar fyrri (1914–1918) og milli- landasiglingar erfiðleikum háðar. Gullfoss og Goðafoss fóru einnig ferðir til New York árin 1915–1916 og var góður árangur af þeim ferð- um. Aðfaranótt 30. nóvember 1916 strandaði Goðafoss við Straumnes norðan við Aðalvík vestra í hríð- arveðri og náttmyrkri. Jafnskjótt og fregnin af strandinu barst hing- að til Reykjavíkur voru björg- unarskip send vestur og tilraunir gerðar til þess að bjarga skipinu en miklu lauslegu varð náð úr því og síðar einnig vörum sem í því voru. Farþegarnir sem voru í skipinu urðu að hafast þar við í tvo sólar- hringa eftir að það strandaði en komust þá til Aðalvíkur. Ástandið á strandstað versnaði, skemmdirnar á skipinu jukust, ljóst var að ekki mundi kleift að bjarga því og yfirtók vátryggingafélag flakið og greiddi vátryggingabætur til Eimskips. Sumarið 1917 var farið vestur að strandstaðnum og rifið úr flakinu það sem hægt var að ná og flutt til Reykjavíkur, flakið flutt þangað og ýmislegt hagnýtt úr því. Eimskip keypti síðan flakið af vátrygginga- félaginu, eða það sem eftir var af því, og var það til ýmissa nota. Þess má geta að járnrúmin úr Goðafossi voru notuð fyrir sjúkrarúm þegar Barnaskóli Reykjavíkur var gerður að bráðabirgðaspítala í spönsku veikinni haustið 1918. Bekkurinn sem hér er til skoð- unar er úr strandinu við Straumnes í nóvember 1916, en ekki er nú vitað hvenær hann barst til Reykjavíkur – umfram það sem að ofan er sagt um björgunaraðgerðir. Hann var í eigu manns sem starf- aði hjá Eimskip og lengi notaður sem garðbekkur. Harald Guð- mundsson rafvirkjameistari fékk bekkinn að gjöf frá fyrri eiganda um 1980 og var bekkurinn þá í slæmu ásigkomulagi. Harald gerði bekkinn upp og lét þess getið að hann væri úr völdum við, eða fyrsta flokks „oregon pine“. Síðan hefur þessi bekkur verið hluti af innbúi á heimili Haralds og fjölskyldu hans. Honum hefur nú verið ráðstafað til Kristínar Guðmundsdóttur, son- ardóttur Haralds, og bíður þess að verða fluttur til hennar. Heimildir: Eimskipafélag Íslands 25 ára. 1914 – 17. janúar – 1939, afmælisrit er Guðni Jónsson skráði og út kom í Reykjavík 1939. Öldin okkar, minnisverð tíðindi 1901–1930. Útg. á forlagi Iðunnar 1950, Gils Guðmunds- son tók saman, bls. 146 „Goðafoss strandar á Straumnesi“. Skipsbekkur úr Goðafossi Morgunblaðið/Sverrir Bekkur úr Goðafossi. Á hlið hans má sjá hring sem væntanlega hefur verið not- aður til að festa bekkinn við þilfarið. Saga hlutanna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.