Morgunblaðið - 01.03.2004, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 01.03.2004, Blaðsíða 33
sér svona húsnæði nema eiga pen- inga fyrir því. Þurfi fólk að taka bankalán til kaupanna eru vext- irnir af þeim ótrúlega fljótir að hlaða utan á sig og fyrr en varir er fólk fast á skuldaklafa. Ástæðan fyrir því að ég keypti þetta er sú að ég átti peninga sem ég gat sett beint í þetta húsnæði, en það kost- aði 4,6 milljónir. Sú upphæð segir í raun ekki alla söguna, því ég er búin að eyða töluverðum fjárhæð- um í að laga þetta að mínum þörf- um. Ég er t.d. búin að setja svala- hurð og glugga í hlerann þar sem talían var, búin að taka gólfin í gegn, setja upp veggi, eldhús, bað og tvö svefnherbergi. Þessu fylgdu náttúrulega rafmagns- og pípu- lagnir. Í raun má segja að hús- næðið hafi ekki verið nema fokhelt þegar ég keypti það. Ég reyndi náttúrulega að hagræða kaupunum á sem hagkvæmastan hátt, en flís- arnar á milli skáps og bekkjar í eldhúsinu eru líklega hlutfallslega dýrastar.“ Eigin hugarsmíð Íris kveðst ekki vera sú mann- gerð sem gerir allt sjálf og þurfti því að kaupa flesta iðnaðarvinnu. Hún segir að þar að auki sé hún í fullri vinnu og meira en það. Núna er hún nýbúin að koma á laggirnar fyrirtækinu Regnbogagluggatjöld- um, sem flytur inn rimlaglugga- tjöld frá Spáni. Ætlunin er að bjóða upp á að koma á og taka mál fólki að kostnaðarlausu og gera síðan tilboð í gardínurnar. Utan- umhaldið um þann rekstur ætlar hún að hafa heima og er búin að eyrnamerkja plássið á bakvið bað- herbergið sem skrifstofuaðstöðu. Þá rekur hún einnig súpu- og sal- atbar í DHL-hraðflutningum. „Það eina sem ég gerði sjálf var að hanna gardínukappana,“ segir Íris. „Þá fór ég sjálf á stúfana og lét saga niður fyrir mig plötur í rétt- um stærðum. Síðan límdi ég svamp á þá með spreylími og hefti síðan efnið þar yfir. Ég er mjög ánægð með útkomuna.“ Íris segir að það sem standi upp úr við þessar framkvæmdir sé það að öll þessi íbúð er hennar eigin hugarsmíð. „Ég hannaði allt í hug- anum og fékk svo fagmenn til að klára verkið.“ Nágrannar Írisar eru tvær myndlistarkonur sem eru með vinnustofu á sömu hæð, en þær eiga fyrrgreint málverk sem hang- ir í stigaganginum. Þá er fyrirtæk- ið Stálex með skrifstofuaðstöðu á hæðinni, en á neðri hæðinni er vél- smiðja. Frá henni berst töluverður hávaði á daginn, en á kvöldin hljóðnar allt. Íris á eftir að reka lokahnútinn á fráganginn, svo sem á baðherbergi og frágang á listum. Hún segist kannski eiga eftir að selja þessa íbúð einhvern tíma og flytja niður í miðbæ, sem henni finnst heillandi staður. Stofan er einstaklega björt og rúmgóð, enda ná gluggarnir frá gólfi og upp í loft en það gefur öllu rýminu sérstakan blæ.Það gætir afrískra áhrifa í munstrum og víðar á heimilinu. gudlaug@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. MARS 2004 C 33 Skeifan 19 • 108 Reykjavík • Sími 533 1060 Fax 533 1069 • www.xhus.is • xhus@xhus.is Opið mánudag-föstudags frá kl. 8.30-17 Hæðir Barðavogur - Hæð + bílskúr. Falleg 81,8 m² hæð ásamt 28,6m² bílskúr. Íbúðin er á 1. hæð í fallegu þríbýli með stór- um garði og gróðri í kring. Íbúðin getur ann- arsvegar verið með 2 svefnherbergjum og 1 stofu eða með 2 samliggjandi stofum og 1 svefnherbergi. Sjón er sögu ríkari. Uppl gefa sölumenn XHÚSA Laugateigur Sérhæð- bíl- skúr- Falleg íbúð á fyrstu hæð ásamt bíl- skúr í mjög góðu húsi. Búið er að skipta um járn á þaki og klæða þakkant, bæði á húsi og bílskúr. Íbúðin sjálf er mjög snyrtileg og skiptist í 2 svefnherbergi, hol, eldhús með borðkrók, tvær samliggjandi stofur, hægt að loka á milli þeirra með litlum tilkostnaði og bæta við svefnherbergi. Nýstandsett bað- herbergi. Eign í sérflokki. Tilboð Óskast. Laus strax. Nesvegur - 4ra-5herb-sér- hæð. Nýtt á söluskrá 125,5 m² neðri- sérhæð í góðu tvíbýlishúsi. Íbúðin býður upp á mikla möguleika. Útleigumöguleiki á forstofuherbergi. Sólpallur í suður. Parket á gólfum, nýlegt gler. Góð staðsetning. 4ra til 7 herb. Stíflusel - 4ra. Mjög falleg 100,7 m² íbúð á annari hæð í góðu húsi. Íbúðin er rúmgóð og björt með nýlegum innréttingum og gólfefnum. Þrjú stór svefnherbergi, park- et og flísar á gólfum. Nýlegt baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Mikið endurnýjuð og góð eign á grónum friðsælum stað vest- anmegin í Seljahverfi. 3ja herb. Barmahlíð. 3ja herbergja risíbúð í Hlíð- unum. Tvö góð svefnherbergi. Þvottahús á hæðinni. Parket og flísar á gólfum. Snyrtileg eign miðsvæðis í Reykjavík. Verð. 9,7 millj. Klapparstígur - bílskýli. Vorum að fá í einkasölu fallega 100 fm íbúð á sjöttu og efstu hæð með tveimur útsýnissvölum. Tvö rúmgóð herbergi ásamt óskráðu her- bergi í risi. Glæsilegar sérsmíðaðar innrétt- ingar úr mahogný, gegnheilt parket. Ákveð- in sala 20 millj. Hraunbær. Mjög stór og góð 3ja- 4ra herbergja íbúð í Hraunbænum. Allar vistar- verur eru rúmgóðar. Húsið nýlega tekið í gegn. Getur verður laus strax. Góð áhvíl- andi lán. Tilboð óskast. Okkar kaupendum bráðvantar allar tegundir eigna. • Raðhús í neðra Breiðholti, rúmur afhendingartími. • Einbýlishús í Mosfellsbæ eða Kópavogi. • Raðhús eða sérhæð í Lækjum eða Teigum. • Sérhæð nálægt miðbæ Reykjavíkur, verður að vera með bílskúr, rúmur afhendingartími. • 3ja herbergja á höfuðborgasvæðinu, erum með marga kaupendur á skrá. • Raðhús í Kópavogi afhending samkomulag. UPPLÝSINGAR GEFA SÖLUFULLTRÚAR XHÚSA ÓSKALISTINN 4 íbúðir - 3ja og 4ra herbergja Okkur hefur verið falið að finna fyrir leigufélag 4 íbúðir sem leigðar verða til félagsmanna. Íbúðirnar geta verið hvar sem er á höfuðborgasvæðinu. Staðgreiðsla í boði. Rúmur afhend- ingatími. Frekari upplýsingar eru hjá sölufulltrúum XHÚSS. Rasta-auglýsing 15-20 íbúðir- 2ja 3ja og 4ra herbergja Okkur hefur verið falið af op- inberum aðila að útvega 15-20 íbúðir, 2ja, 3ja og 4ra herbergja í Reykjavík. Stað- greiðsla er í boði fyrir réttar eignir, og sam- komulag með afhendingu. Íbúðir sem þarfn- ast endurbóta koma einnig til greina. Frekari upplýsingar er hjá sölufulltrúum XHÚS. Hesthús * Heimsendi - Kópavogi. 6 hesta hús. Nýtt  Flugubakki - Mosfellsbæ. 36 hesta hús.  Blíðubakki - Mosfellsbæ. 26 hesta hús.  Heimsendi - Kópavogi. 2 pláss.  Sörlaskeið - Hafnarfjörður. 6 hesta hús.  1000 fm hesthúsalóð í Hólmsheiði í landi  Fjárborgar. Jón Magnússon Hrl., löggiltur fast- eigna og skipasali Bergur Þorkelsson Sölufulltrúi gsm: 860 9906 Hilmar Viktorsson. Viðskiptafr. og loggiltur fasteignasali. Valdimar R. Tryggvason Sölufulltrúi gsm: 897 9929 Valdimar Jóhannesson Sölufulltrúi gsm: 897 2514 Guðbjörg Einarsdóttir RitariFASTEIGNASALA Skálaheiði Kópavogi - 4ra herb með bílskúr. Mjög rúmgóð og vel skipulögð íbúð á þriðju og efstu hæð með miklu út- sýni til allra átta. Tvö góð herbergi. Stofa og sér sjónvarpsstofa sem auð- velt er að breyta í herbergi. Endurnýjað baðherbergi með hornnuddbaði. Húsið er klætt að utan.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.