Morgunblaðið - 01.03.2004, Side 51
Gaukur sig og hófu búskap í lítilli
íbúð í Bólstaðarhlíð. „Það var ekki
um auðugan garð að gresja í hús-
næðismálum á þessum tíma,“ segir
Svanhildur. „Við fengum pínulitla
tveggja herbergja íbúð með sameig-
inlegum inngangi með annarri sams
konar íbúð. Við deildum einnig bað-
herbergi með íbúum þeirrar íbúðar.
Svo skömmu síðar fæddist sonur
okkar.“
Svanhildur segir að þau hafi byrj-
að búskap sinn með tvær hendur
tómar. Hún var flugfreyja á þessum
tíma og flaug oft til Ameríku og þar
keypti hún ýmislegt smádót í búið,
en annað keyptu þau hér heima.
„Við fengum okkur t.d. fljótlega
sófasett sem við keyptum með af-
borgunum hér heima. Þetta sófasett
entist okkur lengi og það var yf-
irdekkt tvisvar, enda var það keypt
á þeim tíma sem hlutirnir áttu að
endast.“ Ólafur Gaukur var þá orð-
inn þekktur tónlistarmaður og rak
meðal annars tónlistarbréfaskóla
samhliða tónlistarflutningi og ann-
arri kennslu. Svanhildur segir að vel
hafi gengið að samræma vinnu og
barnauppeldi. „Maður gat verið
heima allan daginn og sinnt börn-
unum, en síðan þurfti maður að fá
pössun á kvöldin. Þegar við æfðum á
daginn tókum við börnin með, svo
þetta gekk allt vel upp.“
Fengu lán hjá Hinu
íslenska prentarafélagi
Eins og áður sagði var erfitt um
húsnæði á þessum tíma. Ólafur
Gaukur segir að eftir nokkur ár á
leigumarkaði hafi þau farið að huga
að því að koma sér upp sínu eigin
húsnæði. „Kaupin gengu nú þannig
fyrir sig á eyrinni að maður þurfti að
grátbiðja um bæði lóð og lán,“ segir
Ólafur Gaukur. „Maður sagði ekki
„ég ætla að fá lóð“, heldur sagði
maður „heldurðu að það væri nokk-
ur leið að ég gæti kannski fengið lóð
einhvers staðar á næstu fimm ár-
um“. Síðan fór maður í bankann og
sat þar skjálfandi í þrjá klukkutíma
bíðandi eftir einhverjum kalli, sem
síðan sagði blábert nei við láns-
umsókninni. Það var náttúrlega al-
veg hræðilegt hvernig farið var með
fólk á þessum tíma,“ segir Ólafur
Gaukur og verður nokkuð heitt í
hamsi þegar hann hugsar aftur í
tímann. „Það endaði með því að ég
fékk lán á himinháum vöxtum til að
byggja húsið mitt hjá Hinu íslenska
prentarafélagi. Húsnæðis-
málastofnun ríkisins neitaði mér
hins vegar. Þeir sögðu að ég gæti
ekki fengið lán af því að ættum ekki
nógu mörg börn, en þá var Anna
Mjöll rétt ófædd!“
Lífið tók nýja stefnu
Þrátt fyrir tregðu fjármálastofn-
ana fékk Ólafur Gaukur lóð í Foss-
vogi. „Svavar Gests vinur minn
sagði mér að sækja um lóð. Ég jánk-
aði því með hálfum huga og sagðist
kannski myndu sækja um rað-
húsalóð. „Nei, nei, sagði Svavar, þú
sækir um einbýlishúsalóð.“ Og það
varð úr að ég sótti um einbýlis-
húsalóð, án þess að gera mér nokkr-
ar vonir um að fá hana. Við fórum
því að leita okkur að íbúð og vorum
búin að finna eina glettilega góða í
Garðabæ sem við ætluðum að
kaupa. Til stóð að skrifa undir kaup-
samninginn síðla dags, en þann
sama dag hringir Svanhildur í mig
þar sem ég var upptöku, og segir að
það sé komið bréf frá borgaryf-
irvöldum. Ég sagði henni að opna
það og í því stóð þá að við hefðum
fengið einbýlishúsalóð við Kvista-
land í Fossvogi. Það munaði því bara
nokkrum klukkutímum að við hefð-
um keypt hús í Garðabæ en ekki
byggt hús hér. Þá hefði líf okkar far-
ið í annan farveg en raun varð á.
Þetta er eitt af þeim tilvikum sem
sýnir að það er eitthvað meira í
spilinu en það sem maður getur
þreifað á. Þarna var gripið í taum-
ana hjá okkur og lífið sveigt í aðra
átt en maður hafði ætlað að fara.“
Húsbyggingin tók rúmt ár
Ólafur Gaukur og Svanhildur hóf-
ust þegar handa við byggingu ein-
býlishússins sem þau búa enn í. „Við
vorum sett á hornlóð,“ segir Ólafur
Gaukur, „því borgaryfirvöld voru
þess fullviss að við værum hávaða-
söm. Tónlistarfólk væri þannig. Með
því vildu þau reyna að koma í veg
fyrir að nágrannarnir yrðu fyrir
ónæði af okkur.“
Húsbyggingin hófst árið 1969 og
þau fluttu inn í húsið ári síðar. „Við
fluttum inn 11. ágúst 1970, á afmæl-
isdegi Gauks og Andra Gauks, sonar
okkar, en þeir feðgarnir eiga afmæli
sama dag,“ segir Svanhildur. „Þess
vegna er ekki hægt að gleyma inn-
flutningsdeginum.“
Ólafur Gaukur byrjaði að kenna
tónlist um tvítugt og hefur gert það
sleitulaust síðan. Hann starfrækir
Gítarskóla Ólafs Gauks og kennir
þar m.a. á gítar, rafbassa, tónsmíðar
og fleira. Hann segir skólann með
nokkuð öðru sniði en hefðbundna
tónlistarskóla og sérstaðan felist í
námsefninu, sem hann hefur sjálfur
hannað og sniðið að skólanum. Skól-
inn er fyrir fólk á öllum aldri, en
tæplega helmingur nemenda er full-
orðið fólk.
Nú eru Ólafur Gaukur og Svan-
hildur tvö eftir í hreiðrinu með tík-
inni Coco, en börnin þeirra tvö búa í
Bandaríkjunum. Anna Mjöll hefur
fetað í fótspor foreldranna og hefur
haslað sér völl sem söngkona og býr
núna í Los Angeles. Andri sonur
þeirra er skurðlæknir, býr í ná-
grenni Boston og á tvö börn. Ólafur
Gaukur og Svanhildur fara einu
sinni til tvisvar á ári í heimsókn til
þeirra, en með nútímasamgöngum
er það ekki erfitt. Ólafur Gaukur
bendir þó á að álíka langt sé á milli
Önnu Mjallar og Andra og frá Ís-
landi til Boston.
Svanhildur með Andra Gauk tæplega tveggja ára
í fyrstu íbúðinni í Bólstaðarhlíð.
Hér situr Ólafur Gaukur í fyrsta sófasetti þeirra hjóna og er líklega að
vinna við bréfaskólann í litlu risíbúðinni í Bólstaðarhlíð.
gudlaug@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. MARS 2004 C 51
Nýbyggingar
Þorláksgeisli Glæsileg og vel skipu-
lögð raðhús í suðurhlíðum Grafarholts með
golfvöllinn og náttúruna í næsta nágrenni.
Húsunum verður skilað fokheldum, en hægt
er að fá þau tilbúin til innréttinga eða fullbú-
in allt eftir nánari samkomulagi. Verð 16
millj.
Grænlandsleið Höfum fengið í sölu
stórglæsileg tvíbýlishús í Grafarholti. Stað-
setning og útlit er sérlega skemmtilegt.
Íbúðin er um 170 fm auk 32 fm bílskúrs sem
er innbyggður. Möguleiki er á 32 fm gler-
skála við efri hæð. Minni íbúðin er 84 fm.
Húsin afhendast tilbúin til innréttinga eða
fullbúin án gólfefna. Teikningar og allar nán-
ari uppl. á skrifsofu. Verð 25,9 millj.
Grænlandsleið Glæsilegar 3ja her-
bergja 117 fm neðri sérhæðir á góðum stað
í Grafarholti. Íbúðirnar eru tilbúnar án gólf-
efna. Vandaður frágangur og skemmtileg
hönnun. Sjón er sögu ríkari. Verð 17,9
millj.
Kirkjustétt - Grafarholt Einbýlis-
hús 203,6 fm á tveimur hæðum ásamt 35,3
fm bílskúr samtals 238,9 fm. Húsið afhend-
ist fokhelt að innan og fullbúið að utan,
steinað, hægt að kaupa ómúrað. Bílskúr er
innbyggður. GLÆSILEGT HÚS Í SUÐUR-
HLUTA GRAFARHOLTS. STUTT Í ALLA
ÞJÓNUSTU. Verð 20,9 millj.
Nýbygging/fjölbýli
Andrésbrunnur Falleg og skemmti-
lega innréttuð 5 herbergja 126,9 fm íbúð á
3. hæð (efstu) í lyftuhúsi ásamt stæði í bíla-
geymslu. Forstofa með fatahengi. Sér-
þvottahús og geymsla. Stofa með útgangi á
suðursvalir. 4 svefnherbergi öll með fata-
skápum. Baðherbergi flísalagt með baðkari.
Íbúðin er fullinnréttuð en án gólfefna. Sam-
eign fullfrágengin. Verð 19,9 millj.
Andrésbrunnur GLÆSILEG 3JA
HERBERGJA 93,0 FM ÍBÚÐ Í FALLEGU
LYFTUHÚSI MEÐ BÍLAGEYMSLU Á JARÐ-
HÆÐ. Allar innréttingar og hurðir eru úr
spónlagðri eik, baðherbergi er flísalagt í hólf
og gólf. Skápar í öllum svefnherbergjum
sem og í forstofu. Gegnheilt eikarparket á
gólfum, flísar á baði og þvottahúsi. Verð
15,2 millj.
Vantar í Grafarvogi
Vantar raðhús/parhús eða
einbýli í Grafarvogi.
Verð 22-27 millj.
Ákveðinn kaupandi
Jórsalir
Stórglæsilegt 285 fm einbýli með tvö-
földum bílskúr. Húsið er allt hið vand-
aðasta með flísum og parketi á gólf-
um, allar innréttingar og hurðir eru úr
kirsuberjavið. Hiti er tölvustýrður í öll-
um gólfum. Húsið er umlukið skjól-
girðingu ásamt því að stór og glæsi-
leg verönd með heitum potti er í
garðinum. Verð 45 millj.
Bugðutangi - Mosf.bæ
Glæsilegt einbýli 274,2 fmauk 100 fm
aukarýmis. Húsið er að stórum hluta
nýendurnýjað með glæsilegum inn-
réttingum, gólfefnum, hurðum og lýs-
ingu. Garðurinn umhverfis húsið er
fallegur með veröndum og heitum
potti. Sjón er sögu ríkari. Allar uppl. á
skrifstofu. Verð 37 millj.
Sumarbústaðir
Skorradalur/Dagverðarnes
Fallegt sumarhús/heilsárshús á einni hæð.
Húsið er byggt úr bjálkum frá finnska fyrir-
tækinu VUOKATTI. Gott skipulag og falleg
hönnun er einkenni þessa glæsibústaðs.
Húsið er að flatarmáli 65 fm með ásamt 17
fm verönd. Húsið er í byggingu og er áætl-
aður afhendingartími í júní 2004. Húsið er
staðsett í landi Dagverðarness í Skorradal.
Frábær kostur til komast úr ys og þys höf-
uðborgarinnar. Uppl á skrifstofu.
3ja herbergja
Torfufell FALLEG 3JA HERBERGJA
ÍBÚÐ Á 3. HÆÐ Í GÓÐU FJÖLBÝLI. Íbúðin
er öll nýmáluð, falleg hvít eldhúsinnrétting
og parket á stofu og svefnherbergi. Sam-
eign er mjög falleg. Stutt í alla þjónustu.
Áhvílandi sem getur fylgt. ca 4 millj. Verð
9,7 millj.
Hraunbær Glæsileg, mikið endurnýjuð
3ja herbergja 82,2 fm íbúð í góðu fjölbýli.
Gott skipulag, skemmtileg útfærsla á íbúð-
inni. Á gólfum eru parket og flísar. Sameign
mjög snyrtileg. Húsið steniklætt að framan-
verðu. Barnvænn staður. Verð 12,3 millj.
Álftahólar Góð 88,2 fm íbúð á 1. hæð í
litlu fjölbýli ásamt 29,1 fm bílskúr. Glæsilegt
útsýni af 20 fm yfirbyggðum svölum. Húsið
hefur allt verið tekið í gegn, klætt að utan.
Öll þjónusta í nágrenninu. Verð 14,5 millj.
4-7 herbergja
Álfholt, Hafnarf. Virklega skemmti-
leg 99 fm 4ra herbergja íbúð á 3. hæð í
góðu fjölbýli. Útsýni er til suðurs og norð-
urs. Íbúðin er öll nýendurgerð, þ.e. innrétt-
ingar, málning og gólfefni. Íbúðin er laus.
Áhv 9,1 millj. Verð 13,6 millj.
Breiðavík Um er að ræða 4ra herbergja
íbúð á jarðhæð í lyftublokk með sérgarði í
suðaustur. Kirsuberjainnréttingar, hvítlakk-
aðar hurðir og parket á gólfum. Eign á
skemmtilegum stað í næsta nágrenni við
golfvöll, skóla, leikskóla o.fl. Íbúðin er ný-
máluð. Verð 15,8 millj.