Morgunblaðið - 29.03.2004, Page 4

Morgunblaðið - 29.03.2004, Page 4
FRÉTTIR 4 MÁNUDAGUR 29. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Skógarhlíð 18, sími 595 1000 www.heimsferdir.is Fegursta borg Evrópu og eftirlæti Íslendinga sem fara nú þangað í þúsundatali á hverju ári með Heimsferðum. Í apríl er vorið komið og fegursti tími ársins fer í hönd í Prag enda er þetta vin- sælasti tími ferðamanna til að heimsækja borgina. Fararstjórar Heims- ferða gjörþekkja borgina og kynna þér sögu hennar og heillandi menn- ingu. Góð hótel í hjarta Prag, frá- bærir veitinga- og skemmtistaðir. Munið Mastercard ferðaávísunina Verð kr. 36.550 Flugsæti til Prag með sköttum. Verð kr. 49.950 Flug og hótel í 7 nætur, hótel ILF, m.v. 2 í tveggja manna herbergi. Flug, gisting, skattar. Bókunargjald kr. 2.000. Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800. Síðustu sætin Páskar í Prag 8. apríl frá kr. 36.550 OPIÐ HÚS var í Björgunarmiðstöð- inni Skógarhlíð á laugardaginn en þar eru nú til húsa höfuðstöðvar Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, Fjarskiptamiðstöðvar Ríkislög- reglustjóra, Neyðarlínu og Al- mannavarna- og umferðardeildar Ríkislögreglustjóra. Fjöldi manns notaði tækifærið í blíðviðrinu og lagði leið sína í Skóg- arhlíðina og kynnti sér starfsemina þar. Greinilegt var að yngstu gest- irnir kunnu vel að meta að fá að fara í ferð upp í háloftin í körfubílum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Morgunblaðið/Júlíus Opið hús í Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð. Allir sem vildu fengu að fara upp í háloftin með körfubíl SHS. Allir þurftu að sjálfsögðu að vera með hjálm. Opið hús í Björgunar- miðstöðinni Skógarhlíð ÁSTA R. Jóhannesdóttir, þing- maður Samfylkingarinnar, vill fá svör við því hvernig íslensk stjórn- völd hyggjast bregðast við áskor- un 13. aðalfundar Norður-Atlants- hafsspendýraráðsins, NAMMCO, um að Ísland setji skýr markmið um framtíð útselsstofnsins við Ís- landsstrendur. Ásta var fulltrúi umhverfisnefndar Norðurlanda- ráðs á NAMMCO fundinum, sem haldinn var í Færeyjum í byrjun mánaðarins. Á fundinum kom fram að útsels- stofninn við Ísland hefði farið minnkandi síðustu 10 ár og að töluvert hefði verið veitt úr stofn- inum hér við land. Var mælt með því að Ísland setti skýr markmið um viðhald stofnsins. Ásta hefur lagt fram á Alþingi skriflegar fyrirspurnir til ráðherra um það hvernig þeir hyggist bregðast við umræddri áskorun NAMMCO. Enn hafa engin svör borist. Ásta kveðst fyrst hafa lagt fram skriflega fyrirspurn til Sivjar Friðleifsdóttur umhverfisráðherra. Umhverfisráðuneytið hafi á hinn bóginn tjáð Ástu nokkru síðar að málaflokkurinn tilheyrði sjávarút- vegsráðuneytinu. Í kjölfarið hafi hún því lagt fram sambærilega fyrirspurn til Árna M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra. „Ríkis- stjórnin verður að taka ákvörðun um hvað hún hyggst gera varðandi íslenska útselsstofninn,“ segir hún. Um fimmtíu krónur fyrir hvert kíló Ásta segir að verði ekki gripið í taumana nú þegar eigi Ísland á hættu að brjóta alþjóðlega sátt- mála um dýrastofna í útrýming- arhættu. „Ísland hefur undirgeng- ist alþjóðasáttmála um dýrastofna í útrýmingarhættu, m.a. Bernar- sáttmálann og alþjóðlegan sátt- mála um líffræðilegan fjölbreyti- leika,“ segir hún. Að öllum lík- indum, segir Ásta, má rekja mikla veiði á íslenska útselsstofninum til þess að hringormanefnd á vegum útgerðarmanna greiðir veiðimönn- um fyrir hvern sel sem drepinn er. Þeir fái um fimmtíu krónur fyrir kílóið af fullvöxnu dýri. Auk þess fái þeir sérstaklega greitt fyrir kjálkana og skinnin. Að sögn Ástu hefur hún sömu- leiðis lagt fram skriflega fyrir- spurn til landbúnaðarráðherra, Guðna Ágústssonar, um það hvaða tekjur selabændur hafi af selnum; kjötinu, skinninu og öðru. Hún kveðst velta því fyrir sér hvað gert sé við þessar afurðir og segir t.d. að samkvæmt sínum upplýsingum séu útselsskinn ekki notuð í flíkur. „Ég velti því fyrir mér í hvað þess- ar afurðir séu notaðar. Eða er kannski bara verið að drepa selinn til að fá borgað fyrir hann frá hringormanefnd?“ Ásta R. Jóhannesdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar Vill markmið um framtíð útselsins LANDSSAMTÖK áhugafólks um flogaveiki, Lauf, fagna nú að tuttugu ár eru liðin frá stofnun þeirra. Af því tilefni bauð Lauf félögum og öðrum velunn- urum til afmælisveislu um helgina. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og kona hans, Dorrit Moussaieff, voru á meðal þeirra fjöl- mörgu gesta sem mættu í afmælisveisluna. Frum- kvöðlar að stofnun samtakanna, Sigríður Ólafs- dóttir, fyrsti formaður þeirra, og Sverrir Bergmann, sérfræðingur í taugasjúkdómum, ræddu um upphafsár félagsins. Baráttumál Laufs hafa tengst mikilvægi fræðslu og þar með bættum lífsgæðum fólks með flogaveiki og aðstandenda þess. Morgunblaðið/Jim Smart Lauf fagnaði 20 ára afmæli FEÐGAR voru fluttir á sjúkra- húsið á Akureyri eftir að hafa ekið vélsleða í á innst í Ólafsfirði um klukkan tvö í fyrradag. Fað- irinn brotnaði illa á fæti en son- urinn slapp með skrámur. Að sögn lögreglunnar á Ólafs- firði voru feðgarnir einir á ferð. Tvímenntu þeir á sleðanum og vissu ekki fyrr en þeir óku fram af árbakkanum og lentu ofan í ískaldri á í dal ofan við Kleifar, sem er um 5 km innan við Ólafs- fjarðarbæ. Pilturinn, sem er 15 ára, gat komist upp úr ánni, en faðir hans gat sig lítið hreyft vegna fótbrotsins og hélt sig á sleðanum. Pilturinn reyndi að ganga til byggða til að leita að- stoðar, en mætti þá öðrum vél- sleðamanni. Ók hann sleða sín- um þar til hann náði símasambandi til að láta vita af slysinu. Björgunarsveitarmenn og lögregla frá Ólafsfirði komu fljótlega á vettvang og aðstoð- uðu manninn við að komast upp úr ánni og var hann orðinn mjög kaldur og blautur, enda hita- stigið aðeins um frostmark. Fótbrotnaði í vélsleða- slysi HÁTTSETT sádi-arabísk sendi- nefnd kom hingað til lands í gær í nokkurra daga heimsókn. Í frétt fréttastofunnar SPA í Sádi-Arabíu segir að sendinefnd- in sé skipuð þingmönnum ráð- gjafaráðsins í Sádi-Arabíu og að hún komi hingað frá Finnlandi. Friðrik Ólafsson, skrifstofu- stjóri Alþingis, segir nefndina komna til Íslands á eigin vegum en skrifstofa Alþingis muni kynna nefndinni starfsemi þingsins. Þá muni sendinefndin einnig funda með utanríkismála- nefnd Alþingis, ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins, þing- flokksformönnum og forseta Al- þingis. Sendinefnd frá Sádi-Arabíu í heimsókn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.