Morgunblaðið - 29.03.2004, Qupperneq 14
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
14 MÁNUDAGUR 29. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
SAMÞYKKT var á aðalfundi KB
banka á laugardag að greiða hluthöf-
um 18% eða 1.354 milljónir af hagnaði
síðasta árs eftir skatta en það gerir
þrjár krónur á hlut. Sigurður Einars-
son, stjórnarformaður bankans, sagði
í ræðu sinni á fundinum að umræða
og umfjöllun fjölmiðla um kauprétt-
arsamning helztu stjórnenda bank-
ans, sem síðan var fallið frá í lok síð-
asta árs, hefði verið óheppileg fyrir
bankann. Það hefði komið greinilega í
ljós að gríðarlega mikill munur væri á
þeim viðhorfum og venjum sem tíðk-
uðust hér heima á Íslandi og þeim
sem KB banki ætti að venjast í al-
þjóðlegu viðskiptaumhverfi. „Ég tel
að þegar við horfum til baka til þessa
atviks og þeirrar heitu umræðu sem
spannst, þá munum við líta á það sem
vaxtarverki vegna metvaxtar bank-
ans utan Íslands,“ sagði Sigurður.
Hann minnti jafnframt á að vegna
þessarar umræðu hefði KB banki
orðið fyrstur íslenskra fyrirtækja til
þess að koma á fót sérstakri launa-
nefnd til þess að fjalla um kjör æðstu
stjórnenda og starfsmanna.
Stefnt að vexti í Bretlandi og á
Norðurlöndum
Sigurður greindi frá því að enda
þótt meginmarkiðið á næstu árum
væri að styrkja stöðu KB banka á
heimamarkaði hans, Norðurlöndun-
um, hefði verið tekin ákvörðun um að
bankinn einbeitti sér í enn ríkara
mæli að Bretlandi. „Þessi markaður
þar sem búa um 60 milljón manns er
ekki aðeins áhugaverður vegna
stærðar hans heldur líka vegna þess
að hann er sérstaklega virkur og hef-
ur góða tengingu við fjármálamark-
aði heimsins.“
Sigurður sagði mörg verkefni blasa
við sér sem starfandi stjórnarformað-
ur bankans en meginverkefni hans
myndi þó felast í að stuðla að frekari
vexti bankans og þá sérstaklega á
Norðurlöndunum og í Bretlandi.
Þessi verkefni hefðu krafist mikilla
ferðlaga og vegna þess hefði hann nú
ákveðið að setjast að í London.
„London er nálægt dótturfélögum
okkar í Skandinavíu og ég tel þess
vegna að með því að flytja til Eng-
lands muni ég ekki aðeins gera mína
vinnu töluvert auðveldari heldur
einnig vinnu hugsanlegra viðskipta-
vina og starfsmanna utan Íslands,“
sagði Sigurður.
Langvarandi taprekstri í Sví-
þjóð snúið í hagnað
Hann sagði ljóst að bankinn hefði
notið góðs af hagstæðum ytri skilyrð-
um í fyrra, umsvif bankans hefðu vax-
ið verulega og hagnaður hefði aukist
um 40% á milli ára eða 7,5 milljarða
króna. Bankinn hefði skilgreint
Norðurlöndin öll sem sinn heima-
markað og væru umsvif hans næst-
mest í Svíþjóð þar sem 200 manns
störfuðu hjá bankanum; þar hefði
tekist að snúa langvarandi taprekstri
í hagnað með endurskipulagningu og
hagræðingu í rekstrinum. Markmið
væri að ná svipuðum árangri í Dan-
mörku, Noregi og Finnlandi.
„Þegar horft er til framtíðar, og ef
markmið okkar um áframhaldandi
vöxt nást, má búast við að starfs-
mönnum bankans muni fjölga mjög
umtalsvert. Markmiðið er að nota
reksturinn í Svíþjóð sem viðmið fyrir
þróunina hjá okkur á öllum Norður-
löndunum. Við munum fyrst um sinn
einbeita okkur að innri vexti á Ís-
landi, í Færeyjum, Svíþjóð og New
York. Aftur á móti gerum við ráð fyr-
ir að leita að róttækari möguleikum í
Danmörku, Noregi og Finnlandi og
við munum fylgjast mjög vel með
samruna- og yfirtökutækifærum á
fjármálamarkaðinum í Evrópu,“
sagði Sigurður Einarsson.
Þurfa að eiga hlutabréfin
í a.m.k. þrjú ár
Á fundinum var samþykkt án mót-
atkvæða að bjóða starfandi stjórnar-
formanni, Sigurði Einarssyni og
Hreiðari Má Sigurðssyni forstjóra,
valrétt á 812 þúsund hlutum í bank-
anum hvorum um sig árlega í fimm ár
og miðast kaupverð bréfa við mark-
aðsvirði á þeim degi sem rétturinn
var veittur en gengi KB banka er nú
303 krónur. Þetta þýðir að þeim Sig-
urði og Hreiðari Má er hvorum heim-
ilt að kaupa bréf í bankanum fyrir
1.230 milljónir króna á næstu fimm
árum.
Ásgeir Thoroddsen, formaður sér-
stakrar launanefndar bankans, gerði
ýtarlega grein fyrir tillögunni um val-
rétt til þeirra Sigurðar og Hreiðars
Más og forsendum hennar. Kom þar
m.a. fram að þeir Sigurður og Hreið-
ar Már skuldbinda sig til að eiga bréf-
in a.m.k. í þrjú ár eftir kaup en bank-
inn veitir þeim lán til þeirra og
tryggir að þeir verði ekki fyrir fjár-
hagslegum skaða vegna nýtingar á
valréttinum, þ.e. lágmarksverð fyrir
bréfin sem dugar fyrir kaupverði auk
lánskostnaðar.
Í kjölfar kaupréttarsamninga sem
stjórn bankans gerði við þá Sigurð og
Hreiðar Má í nóvember í fyrra
keyptu þeir sex milljón hluti í bank-
anum fyrir tæplega 950 milljónir
króna á genginu 156 þegar meðal-
gengið var um 210 en þeir ákváðu síð-
an að falla frá kaupréttinum.
Á aðalfundinum var og samþykkt
að veita stjórn félagsins heimild til að
auka hlutafé félagsins um allt að hálf-
an milljarð króna að nafnverði með
áskrift að allt að 50 milljónum nýrra
hluta.
Nýkjörna stjórn KB banka skipa
Sigurður Einarsson, Hjörleifur Jak-
obsson, Tommy Persson, Gunnar Páll
Pálsson, Brynja Halldórsdóttir,
Finnur Ingólfsson, Ásgeir Thorodd-
sen, Peter Gatti og Bjarnfreður
Ólafsson.
Vaxtarverkir vegna met-
vaxtar KB banka erlendis
Aðalfundur samþykkti að greiða hluthöfum 1.354 milljónir króna í arð
Morgunblaðið/Jim Smart
Stjórnendur Frá aðalfundi KB banka á laugardag. Fremstir sitja bankastjórarnir Sólon Sigurðsson, sem tilkynnti
að hann hygðist láta af störfum í árslok, og Hreiðar Már Sigurðsson.
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● Samskip taka nk. mánaðamót við
rekstri umboðsskrifstofu eistneska
skipafélagsins Teco Lines AS í Liver-
pool af félaginu Vogt & Maguire Liner
Ltd. Þetta er önnur skrifstofa Sam-
skipa á Bretlands-
eyjum en að-
alskrifstofa
félagsins er í Imm-
ingham á austur-
strönd Englands.
Skip Samskipa,
Arnarfell og Helga-
fell, koma viku-
lega við í Imm-
ingham og frá því Skaftafellið hóf
reglubundnar áætlunarsiglingar milli
Íslands og Evrópu hefur það viðkomu
hálfsmánaðarlega í Immingham.
Þá eru ferðir tvisvar í viku milli Imm-
ingham og Riga í Lettlandi á vegum
Samskipa. Teco Lines, sem Samskip
eignuðust helmingshlut í fyrir rúmu
ári, er auk þess með fjögur gámaskip
í vikulegum áætlunarsiglingum milli
Felixstowe á Bretlandseyjum og Hol-
lands, Belgíu, Þýskalands, Finnlands
og Eistlands.
Önnur skrifstofa Sam-
skipa í Bretlandi
● Frumútboði þýska hálfleiðarafram-
leiðandans Siltronic, sem verið hefði
fyrsta frumútboðið í Þýskalandi í tvö
ár, hefur verið frestað um óákveðinn
tíma, en skráning bréfanna átti að
fara fram fyrir helgi. Þetta gerist að-
eins viku eftir að frumútboði ör-
gjörvaframleiðandans X-Fab var frest-
að.
Þýska viðskiptablaðið Handelsblatt
segir að Þjóðverjar séu sér á báti í Evr-
ópu að þessu leyti. Markaðurinn fyrir
frumútboð hafi almennt tekið vel við
sér á ný í öðrum löndum, eftir erf-
iðleika síðustu ára.
Financial Times í Þýskalandi, FTD,
hefur eftir forstjóra Siltronic að
ástæður frestunar frumútboðs fyr-
irtækisins séu hryðjuverkin á Spáni
og aukið ofbeldi fyrir botni Miðjarð-
arhafs. Jafnvel áhugaverð fyrirtæki
geti ekki litið framhjá slíkum atburð-
um. Ekki eru allir þeirrar skoðunar að
þetta sé skýringin á frestuninni. FTD
hefur til dæmis eftir sjóðsstjóra að
bréfin hafi verið of hátt verðlögð, og
sama gagnrýni kom fram á bréf X-Fab
áður en hætt var við frumútboð þess.
Aftur hætt við frum-
útboð í Þýskalandi
Fyrirlestur um erlendar fjárfest-
ingar kl. 12.15 í Odda, stofu 101.
Ron Davies, hagfræðingur hjá há-
skólanum í Oregon, flytur erindi um
erlenda fjárfestingu og samkeppni
ríkja á grundvelli skattaívilnana og
staðbundinna skilyrða.
Í DAG
Í RÆÐU sinni á aðalfundinum
greindi Sólon R. Sigurðsson, for-
stjóri KB banka, frá því að hann
hygðist láta af störfum hjá bank-
anum í lok ársins.
„Í lok þessa árs verð ég búinn
að starfa í bankageiranum í 42 ár,
fyrstu 20 árin hjá Landsbanka Ís-
lands og nú
næstum 21 ár hjá Búnaðarbanka
Íslands og eftir það hjá KB
banka. Þetta er langur tími í
starfi sem á stundum er erfitt og
krefjandi. En ég hef þó notið
hverrar mínútu á þessum 42 ár-
um. Þrátt fyrir það hef ég ákveð-
ið að láta af störfum hjá KB
banka í lok þessa árs,“ sagði Sól-
on.
Sólon lýsti ánægju sinni með
það hversu vel til hefði tekist með
samruna Kaupþings og Bún-
aðarbanka og sagði samrunann
hafa verið nauðsynlegan fyrir ís-
lenska bankamarkaðinn. „Hinn
mikli kostnaður í íslenska banka-
kerfinu með of marga banka á
markaðinum gerði samþjöppun
afar mikilvæga. Samruninn var
líka mikilvægur með hliðsjón af
aukinni alþjóðavæðingu og þróun
á alþjóðlegum fjármálamörk-
uðum. En út frá sjónarmiðum
starfsfólksins var samruninn einn-
ig árangursríkur, starfsemi bank-
anna skaraðist ekki mikið og því
reyndist ekki vera þörf á að segja
upp starfsmönnum í stórum stíl.
Þetta var sérstaklega ánægjulegt
fyrir mann eins og mig sem hef
unnið í bankageiranum í meira en
40 ár,“ sagði Sólon.
Sólon hættir í lok ársins
Morgunblaðið/Jim Smart
Útrás „Aftur á móti gerum við ráð
fyrir að leita að róttækari mögu-
leikum í Danmörku, Noregi og
Finnlandi og við munum fylgjast
mjög vel með samruna- og yf-
irtökutækifærum á fjármálamark-
aðinum í Evrópu,“ sagði Sigurður
Einarsson stjórnarformaður.
● Halldór Ásgrímsson utanrík-
isráðherra sagði á aðalfundi Flug-
stöðvar Leifs Eiríkssonar fyrir helgi
að hann hefði hrokkið við er hann
kynnti sér fyrst fjárhag flugstöðv-
arinnar 1995. Síðan hefði hins
vegar tekizt að snúa rekstri stöðv-
arinnar við og hefði mikilvægasta
skrefið verið stigið með því að
breyta henni í hlutafélagið árið
2000.
„Ég hef það fyrir sið sem gamall
endurskoðandi að líta fyrst á tölur
um veltufé frá rekstri í árs-
skýrslum fyrirtækja enda segja
þær jafnan meira um stöðuna en
hagnaður. Veltufé frá rekstri Flug-
stöðvar Leifs Eiríkssonar 2003 var
1.179 milljónir króna en 639 millj-
ónir króna árið þar á undan, sem
segir mér það sem segja þarf,“
sagði Halldór.
Umskipti í rekstri
Leifsstöðvar