Morgunblaðið - 29.03.2004, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 29.03.2004, Blaðsíða 18
DAGLEGT LÍF 18 MÁNUDAGUR 29. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið Vegmúla 3 - 150 Reykjavík Sími 545 8700 - Bréfasími 551 9165 Póstfang:postur@htr.stjr.is V I Ð E R U M F L U T T. .. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið er flutt að Vegmúla 3 í Reykjavík og tekur ráðuneytið til starfa á nýjum stað á morgun, þriðjudaginn 30. mars. Afgreiðslutími er alla virka daga frá 8:30 til kl. 16:00 Engin breyting er á símanúmeri og bréfasíma ráðuneytisins Ve gm úli Suðurlandsbraut Árm úli Síðum úli A T H Y G L I ÞEGAR tveir einstaklingar ákveða að rugla saman reytum getur verið býsna misjafnt hvað dregur þá hvorn að öðrum. Áhugamál, hugðarefni, lífsskoðanir og líkamlegt aðdráttarafl skipta miklu máli og seinna þegar börnin eru komin í spilið fá þau vissulega sinn skerf af athygli og orku parsins. Flest okkar eigum fyrst og fremst samskipti við maka eftir vinnutíma og á frídögum og margir hafa jafnvel aðeins óljósa hugmynd um hvað betri helming- urinn aðhefst á milli klukkan níu og fimm á daginn. Þó eru undantekningar þar á því inn á milli eru hjón eða pör sem starfa við sama fag og vinna jafnvel á sama vinnustað. Oft er það einmitt fagið sem dró þau hvort að öðru í upphafi þar sem þau hafa kynnst við nám eða störf. Morgunblaðið fór á stúfana og spjallaði við nokkur slík hjón og forvitnaðist um hvernig vinnan hefur áhrif á hversdaginn. Er það kostur eða galli að starfa við sama fag og snúast umræður á heimilinu fyrst og fremst um vinnuna? Það kemur kannski ekki á óvart að svörin eru ólík og undirstrika kannski hið gamalkunna að mennirnir eru jafn misjafnir og þeir eru margir.  VINNA | Þegar starfsvettvangurinn er sá sami Hjón í starfi og leik ben@mbl.is „ÉG er þeirrar skoðunar að það væri mjög heppilegt að prestar væru gift- ir prestum ef þetta væri ekki svona óreglulegur vinnutími,“ segir Jóna Hrönn Bolladóttir miðborgar- prestur. Maki hennar, Bjarni Karls- son, sóknarprestur í Laugarnes- kirkju, botnar konu sína. „Já, ef það væri hægt að koma þessu fyrir milli klukkan níu og fimm á virkum dög- um,“ segir hann brosandi. Jóna Hrönn heldur ótrufluð áfram. „Það góða við prestahjónaband er skiln- ingurinn sem maður nýtur hjá maka er dagarnir verða eins konar tilfinn- ingarússíbani milli gleði og sorgar.“ Þau segja líka ákaflega gefandi að geta rætt vinnutengd verkefni við hvort annað. „Áðan vorum við t.d. í löngum göngutúr þar sem við töl- uðum um guðfræði og pældum í ákveðnum biblíutexta sem annað okkar þarf að útleggja og því hvern- ig hann tengist raunveruleikanum,“ segir Bjarni og Jóna Hrönn heldur áfram: „Við höfum nefnilega komist að því að trúin er hagnýt lífsafstaða. Hún er ekki aðeins vinna okkar heldur lífsgrundvöllur og það er ekki lítils virði fyrir hjónabandið.“ Krefst mikils skipulags Þeim ber saman um að erfitt get- ur verið að greina á milli einkalífsins og prestsstarfsins og stundum þurfi þau að taka meðvitaðar ákvarðanir um að ræða ekki vinnuna. „Þetta er auðvitað freistandi umræðuefni því þetta er okkar hugðarefni fyrir utan það að starfs- og félagsumhverfi okkar er tengt kirkjunni,“ segir Bjarni. Um gífurlega margt sé að ræða enda vinnan tilfinningaleg og hugmyndafræðileg. „Þess vegna er svo gott að geta átt öruggt aðgengi að einhverjum sem segir manni í al- vöru hvað honum finnst. Og þegar ég er með mjög vandasamar athafn- ir eða þarf að flytja mjög erfiðar ræður þá forma ég ekki að fara af stað öðru vísi en við séum virkilega búin að ræða hlutina tvö saman.“ Þrátt fyrir erfiðan vinnutíma seg- ir Jóna Hrönn ganga ágætlega að sameina starfið fjölskyldulífinu. „En það krefst mikils skipulags. Þegar við skipuleggjum önnina byrjum við á að setjast niður með dagbækurnar okkar og ákveða fríhelgarnar sem eru þrjár fyrir og eftir jól. Síðan för- um við hvort á sinn vinnustaðinn og setjum niður plan fyrir starfið. Þarna höfum við tryggt einhvern tíma sem við eigum með börnunum okkar og er algjörlega heilagur.“ Þar sem þau vinna hvort í sinni kirkjunni geta þau einnig tekið mánudaga frá fyrir fjölskyldusam- veru. Þannig hefur það þó ekki alltaf verið því um sjö ára skeið þjónuðu þau saman í Vestmannaeyjum. „Að- alvandinn við að þjóna í sama prestakallinu er að það er erfitt að fá bæði frí í einu. Því þurftum við að fá prest ofan af landi til að leysa okkur af,“ útskýrir Bjarni. Þau segja þó þetta hafa bjargast með hjálp góðra vina. „Við eign- uðumst ómetanlega vini í Vest- mannaeyjum. Þar voru konur sem voru búnar að hugsa hvernig dæmið ætti að ganga upp hjá okkur þegar eitthvað erfitt reið yfir sem við þurftum að sinna og þá hringdu þær,“ segir Jóna Hrönn. Það er greinilegt á þeim hjónum að þau eru samofin inn í starf hvort annars. Þau segja að árin sjö í Vest- mannaeyjum spili þar ríkan þátt. Þau segja þó ekki hafa hvarflað að sér að sækja um í sama prestakalli eftir að til Reykjavíkur var komið. „Við söknuðum þess en við höfðum verið saman alveg frá því að við fór- um saman í gegnum guðfræðinámið. Þarna var komið að þeim tímapunkti að sjá hvernig okkur gengi að þrosk- ast hvort á sínum vettvanginum,“ segir Jóna Hrönn. „Já,“ segir Bjarni hlæjandi. „Annars hefðum við farið að standa sem fastast í skjólinu hvort af öðru og orðið einhvers kon- ar síamsprestar að lokum.“  JÓNA HRÖNN BOLLADÓTTIR OG BJARNI KARLSSON Hefðum getað orð- ið síams- prestar Morgunblaðið/Ásdís Jóna Hrönn og Bjarni þurfa að skipuleggja starf sitt með góðum fyrirvara til að tryggja frítíma með börnunum. „VIÐ kynntumst í Óð- insvéum í Danmörku þar sem við vorum í skóla. Sigga var eina konan sem var að læra mjólkurfræði og síðar tókst mér að fá hana með mér heim,“ segir Guðmundur Jónsson um tildrög þess að hann og kona hans, Norðmaðurinn Sigrid Foss, tóku saman en bæði eru þau mjólkurfræð- ingar. „Ég sagði að snjórinn hérna væri svo hvítur og grasið svo grænt og það virkaði,“ segir hann glottandi og Sigrid heldur áfram: „Svo þegar fyrsti snjórinn féll eftir að við fluttum hingað kom moldrok í kjölfarið og þegar ég leit út um gluggann var allt brúnt!“ Þó að þau hjón fáist við mis- munandi hluti í dag hafa þau starfað saman, bæði hjá Mjólk- urbúi Flóamanna og Mjólkursam- sölunni. „Það var alveg skelfilegt,“ segir Guðmundur með áherslu og Sigríður útskýrir hlæjandi: „Þetta er í lagi ef maður er ekki að vinna við það sama. Um tíma var ég í vélasalnum og hann niðri við pökkun og það var ekki gott því þá þurfti ég að hafa mjólkina til- búna fyrir hann. Þá gat stundum orðið heitt í kallkerfinu.“ Guðmundur viðurkennir að hann hafi ekkert brýnt sig með kurteisi áður en hann kallaði í konu sína í gegnum kerfið til að reka á eftir mjólkinni. „Við vinnum ekkert vel saman,“ segir hann og Sigrid tek-  SIGRID FOSS OG GUÐMUNDUR JÓNSSON Gat orðið heitt í kallkerfinu Guðmundur og Sigrid segja allt í lagi að vinna á sama stað svo fremi sem þau vinni ekki við það sama: „Við þvælumst bara hvort fyrir öðru,“ segja þau. Morgunblaðið/Árni Sæberg ÞAÐ var lögfræðin sem sameinaði Arnór Halldórsson og Hjördísi E. Harðardóttur því þau kynntust þegar þau voru bæði í námi við lög- fræðideild Háskóla Íslands. Þrátt fyrir það hafa þau valið að reka hvort sína lögmannsstofuna, Arnór í sam- vinnu við félaga sinn og Hjördís með sex öðrum konum. „ Það hefur aldrei komið til tals að vera saman með stofu,“ segir Hjördís. „Við erum á svo ólíkum starfsvettvangi að ég er ekki viss um að það myndi henta.“ Arnór segir þau lítið tala um lög- fræði við matarborðið heima hjá sér og Hjördís tekur undir það. „Við leit- um frekar eftir upplýsingum og ráð- um hvort hjá öðru því við vinnum á ólíkum sviðum. Þannig nýtum við þetta með því að fletta svolítið upp í hvort öðru þótt við ræðum lítið fræði- lega lögfræði. Það kemst hreinlega ekki að í önn dagsins og alls ekki við matarborðið.“ Í ljós kom að þau eiga þrjú börn sem öll eru á leikskólaaldri og því er í nógu að snúast á heimilinu á milli klukkan fimm og átta á daginn. Og það er sjaldan sem þau koma heim klyfjuð málaskjölum til að skoða heima við, líkt og lögfræðingar í bandarískum bíómyndum virðast oft- ast þurfa að gera. „Það eru líklega minni vegalengdir hér en þar. Það tekur ekki nema fimm mínútur að koma sér á stofuna þannig að það er lítið um að maður taki vinn- una með sér heim,“ segir Arnór. „Krakk- arnir teikna líka á allan pappír sem þau sjá þannig að það borgar sig ekki ef maður vill halda virðingu sinni,“ bætir hann hlæjandi við. Sveiflukennd vinna Börnin virðast reyndar hafa ansi óljósar hugmyndir um starfa foreldra sinna, a.m.k. elsti sonurinn sem er fimm ára. „Ég var að tala við hann um daginn og hann gerði sér ekki almennilega grein fyrir því hvað ég gerði,“ útskýrir Hjördís. „Hann vissi að ég væri að tala í síma og vinna í tölvu en þegar ég gekk á hann og spurði hvað ég gerði sagði hann að ég væri vinnukona! “ Arnór er fljótur að bæta hér við að sá stutti viti að pabbi hans sé lögfræðingur. „Ég hef líklega verið harðari í PR- málunum á heimilinu,“ segir hann. Eins og búast má við eiga þau hjón talsvert af sameiginlegum vinum enda var aðeins eitt ár á milli þeirra í lögfræðideildinni á sínum tíma. „Maður vill auðvitað umgangast skemmtilegt fólk og þá skiptir ekki öllu máli úr hvaða geira það kemur,“ segir Arnór. „Þetta þrengir hins veg- ar aðeins vinahópinn og hann er kannski svolítið einsleitur – meðal okkar bestu vina er þó fólk úr öðrum stéttum en okkar eigin.“ Þau segja í mörgum tilvikum heppilegt að vinna við sama fag og oft hafi þau stuðning hvort af öðru, t.d. þegar kemur að álagstoppum. „Þá hefur hitt skilning á því hvað maður er að gera,“ segir Hjördís og Arnór heldur áfram. „Hins vegar er þetta dálítið sveiflukenndur bransi, bæði í verkefnum og eins í tekjum. Það er kannski það óheppilega við það að vera bæði með sjálfstæðan rekstur. Maður lærir bara að lifa við þetta og finnur leið til að jafna út sveiflurnar.“ Hjördís tekur undir þetta. „Ég held að minnsta kosti að kostirnir séu fleiri en gallarnir,“ segir hún að lok- um.  ARNÓR HALLDÓRSSON OG HJÖRDÍS E. HARÐARDÓTTIR Kostirnir fleiri en gallarnir Hjördís og Arnór hafa um nóg annað að ræða við matarborðið en lögfræði enda eiga þau þrjú börn á leikskólaaldri sem þurfa sína athygli. Morgunblaðið/Jim Smart

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.