Morgunblaðið - 29.03.2004, Síða 21

Morgunblaðið - 29.03.2004, Síða 21
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. MARS 2004 21 Vatnaskógur – sumarbúðir fyrir hressa stráka – og það er bara það sem ég geri fyrir hádegi! Upplýsingar í síma 588 8899 og á www.kfum.isNON N I O G M A N N I I Y D D A • 1 1 7 0 3 • s ia .i s Skráning hefst 31. mars kl. 8.00 SAMKÓR Kópavogs og Söngsveit Hveragerðis halda sameiginlega tónleika í Safnaðarheimilinu Vina- minni á Akranesi kl. 20.30 á þriðju- dag. Samkór Kópavogs er blandaður kór áhugafólks og hefur starfað í rúm 30 ár. Stjórnandi er Julian Hewlett og undirleikari Jónas Sen. Söngsveit Hveragerðis er einnig blandaður kór og var stofnuð 1997. Söngsveitin hefur haldið marga tón- leika og haft samstarf við aðra kóra. Stjórnandi er Margrét S. Stefáns- dóttir. Á efnisskrá kóranna eru bæði innlend og útlend kórlög. Undirleik- ari er Ester Ólafsdóttir. Guðmund- ur Pálsson leikur á fiðlu, Ian Wilkingson á básúnu. Einsöngvarar eru þau Margrét Stefánsdóttir, Ian Wilkingson og Sæmundur Ingi- bjartsson. Samsöngur á Akranesi VERK eftir Grím Marinó Stein- dórsson var af- hjúpað við höf- uðstöðvar prentsmiðjunnar Meinders und El- stermann í Birs- sendorf í Þýska- landi á dögunum. Verkið, sem heitir Svif, er úr ryðfríu stáli, 3,7 m á hæð. Það sýnir svífandi svan og fat með ís- lensku fjörugrjóti. Prentsmiðjan pantaði verkið af listamanninum og var því valinn stað- ur við aðalinngang fyrirtækisins. Verk eftir Grím Marinó í Þýskalandi Svif, verk eftir Grím Marinó í Þýskalandi. TÓNSKÓLI Sigursveins D. Kristinssonar hefur á þessu ári fagnað 40 ára afmæli skólans. Lokasprettur hátíð- arinnar verður á stofndegi skólans, þriðjudaginn 30. mars. Það kvöld, kl. 20, verða tvennir hátíðartónleikar í Salnum, tónlistarhúsi Kópavogs. Á hverjum degi í af- mælisvikunni, frá mánudegi 29. mars til föstudagsins 2. apríl, verða tónleikar í Hraunbergi og á Engjateigi kl. 16.30 og 18, nema á föstudag, þá verða tónleikar kl. 15 og 16.30. Gestum gefst kostur á að skoða myndir úr skólastarfinu á þeim 40 árum sem liðin eru síðan hann var settur á stofn. Á tónleikum í Seltjarnarneskirkju kl. 20 á fimmtu- dag verða útskriftartónleikar Narfa Þorsteins Snorra- sonar gítarleikara. Framhaldsnemendur í Tónskóla Sigursveins á æfingu í húsakynnum skólans á Engjateigi í Reykjavík. Lokasprettur hátíðahalda vegna 40 ára afmælis Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.