Morgunblaðið - 29.03.2004, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 29.03.2004, Blaðsíða 23
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. MARS 2004 23 Klapparstíg 44 Sími 562 3614 Páskaeggjamót Verð 495 og 895 • 5 stærðir H ön nu n: G un na r S te in þ ór ss on / M ar ki ð / 03 . 2 00 4 Vandið valið og verslið í sérverslun Þríhjól Vönduð, létt, og endingargóð. CE öryggisstaðall. Verð frá kr.5.200 Apollo 26” 21 gíra demparahjól. Verð aðeins kr. 24.900, stgr. 23.655. QUAKE 26” Ál stell og diskabremsur. 24. gíra Shimano Alivio. Tilboð kr. 39.900, stgr. 37.905 Áður kr. 49.900 FREESTYLE Sterk hjól með pinnum og rotor. Verð frá kr. 21.000, 19.950 stgr. Mikið úrval af barna og fullorðins- hjálmum. Einföld stilling. CE merktir Barnastólar Hjólin eru afhent tilbúin til notkunar, samsett og stillt á fullkomnu reiðhjólaverkstæði. Aðeins vönduð hjól með ábyrgð. Frí upphersla fylgir innan tveggja mánaða. Barnahjól Fyrir 3-6 ára. Létt, sterk og meðfærileg barnahjól með hjálpardekkjum og fótbremsu. CE öryggisstaðall. 12,5” verð frá kr. 9.700, stgr. 9.215 14” verð frá kr. 10.900, stgr. 10.355 16” verð frá kr. 10.900, stgr. 10.355 Afsláttinn strax við staðgreiðslu 5% Rocket 20” og 24” 20” 6 gírar, verð kr. 21.000, stgr. 19.950 24” 21 gír, verð kr. 23.900, stgr. 22.705 Upplýsingar um raðgreiðslur veittar í versluninni „HÚSAFRIÐUNARNEFND rík- isins gjörir kunnugt: Allar breytingar og röskun á um- hverfi því og húsakosti sem Hrafn Gunnlaugsson gerði og byggði upp í Laugarnesinu eru stranglega bannaðar að viðhöfðum ströngum viðurlögum og eru brot á þessari reglugerð refsiverð samkvæmt lögum. Húsafriðunarnefnd ríkisins hefur ákveðið að þessar minjar skuli varðveittar um ókomin ár sem tengsl borg- arbúa við landið og sögu þess og stefnt er að því í framtíðinni að stækka þetta svæði og gera þar ein- hvers konar lítinn þjóðgarð þar sem borgin mun safna saman öllum hugs- anlegum minjum alls staðar af land- inu á þennan stað og þarna verði svo í framtíðinni landssafn gamalla minja úr sögu landsins og verði opið fyrir ís- lenskan almenning og erlenda ferða- menn. Stefnt skal að því að öll grunn- skólabörn komi í safnið einu sinni á ári til að kynnast sögu lands og þjóð- ar.“ Það er spá mín að þetta furðuverk sem þarna hefur verið fært líf í verði í tímans rás til sýnis fyrir ferðafólk og friðað af ríkinu. Hrafn Gunnlaugsson á þakkir skildar fyrir að nenna að gera svona stað og eyða í það tíma og fjármunum og hann ætti að fá fjár- hagslegan stuðning til að halda áfram og bæta í. Þessi staður er út úr og er kjörinn til þess að gera eitthvað sem er öðrvísi. Hrafn Gunnlaugsson er um margt sérstakur maður en um leið ósköp venjulegur. Það er næstum hlægilegt að horfa upp á hvernig inn- yflin í sumum hafa um- hvolfst eins og þeir hafi innbyrt heila brenni- vínsflösku á einum klukkutíma, þegar Hrafn sendir eitthvað frá sér. Á síðasta ári var ég á ferð á Sæ- brautinni með lítinn 5 ára dreng og varð litið upp í Laugarnesið eins og oft áður og dauðlangaði til að fara uppeftir og skoða þetta einstaka um- hverfi sem þarna hefur verið skapað af listamanni með sérstaka sköp- unargáfu. Ég hikaði og hugsaði að þetta væri einkalóð og ég yrði rekinn burt en svo tók ég ákvörðun í skyndi að uppeftir skyldi ég fara og láta reyna á hvort ég og þessi litli drengur fengjum tækifæri til að skoða fortíð Íslands. Ég ók bílnum alveg eins ná- lægt og hægt var og steig út ásamt 5 ára frænda mínum og hugsaði mikið asskoti er ég heppinn, það er enginn heima og gekk hægt í áttina að hús- inu. Allt í einu sé ég hvar Egill Skalla- grímsson kemur gangandi í hægðum sínum í áttina til okkar en þegar nær dregur sé ég að þetta er ekki Egill heldur skelfirinn mikli, Hrafn Gunn- laugsson, vinur Davíðs, og ég hugsaði hvurn andskotann ég væri að gera þarna í óleyfi inni á lóð hjá brjáluðum sérvitringi sem setti upp heimili sitt í fornaldarstíl og minnti á Franken- stein gamla. Við nálguðumst hægt og rólega hvor annan og ég hugsaði; af hverju var ég ekki búinn að vara litla frænda minn við þessum ægilega sér- vitringi sem margir voru búnir að vara við og allt borgarkerfið var búið að reyna að koma vitinu fyrir, reynt hafði verið að kenna honum að vera eins og við öll hin en ekkert dugði. Hann vildi vera eins og Egill Skalla- grímsson eða Grettir Ásmundarson eða kannski vildi hann bara vera hann sjálfur og fá að gera heimili sitt eins og hann langaði til eins og við öll viljum en hrokafullir kerfiskarlar og -kerlingar sem vilja öllu ráða og drepa niður allt frumkvæði sköp- unargáfu sögðu nei. Ég ákvað að eiga frumkvæði og ávarpa Hrafn og sagði að rétt væri að biðjast afsökunar á því að ryðjast óboðinn inn á einkalóð og heimili hans en mig hefði lengi langað að skoða það sem hann væri að sýsla við þarna. Við frændi biðum milli vonar og ótta eftir því að þessi myrkrahöfðingi, sem margir sögðu að ætti helst heima upp á Vatnajökli, segði okkur að hypja okkur í burtu, hann vildi fá að vera í friði. En viti menn; Hrafn sagði, farið þið inn, drengir, og litist um, það er opið, ég kem svo þegar ég er búinn að ljúka smá verki og sýni ykkur og skýri hluti fyrir ykkur. Við frændi gengum inn í dýrðina sem blasti við manni, öðruvísi heimur en maður átti að venjast, þetta var eins og að fara 100–200 ár aftur í tímann. Allt í einu stoppaði ég og þrýsti í hendina á frænda litla og blóðið fraus í æðunum, fyrir framan mig blasti við mér mynd sem Hrafn var á ásamt tveimur öðrum mönnum sem mér fannst ég kannast við. Það skyldi þó ekki vera satt að þarna væru komnir myrkrahöfðingjarnir sjálfir aftur úr fornöld? Frændi minn fimm ára sá að mér var brugðið við að sjá þessa mynd sagði; ekki vera hræddur, Eiki frændi, þetta er bara Davíð Oddsson sem er í sjónvarpinu. Í þessum töluðu orðum heyrði ég þrusk fyrir aftan mig og hjartað tók kipp og ég leit við og þar stóð myrkrahöfðinginn Hrafn Gunnlaugsson og ég hugsaði hvort við ættum að hlaupa fram hjá honum hægra megin eða vinstra megin og út í frelsið. En þá sagði Hrafn: jæja, drengir, hvernig líst ykkur á? Ég hugsaði; hann er þá venjulegur mað- ur eftir allt saman og hann á þá venjulega vini líka. Hrafn sýndi okk- ur allt innanhúss og allt utanhúss og sparaði ekki tímann sinn og leit ekki á klukkuna og fyrir það vil ég þakka honum fyrir mína hönd og fimm ára frænda sem hafði mjög gaman af þessari heimsókn. Grein þessi er ekki skrifuð til varnar Hrafni Gunnlaugs- syni, hann sér um það sjálfur, en mér hefur oft ofboðið hvernig að honum hefur verið sótt á ómálefnalegan hátt og tel að um einelti sé að ræða. Þetta er bara maður eins og við hin með til- finningar og fjölskyldu. Hrafn Gunnlaugsson er náttúruperla Eiríkur Stefánsson skrifar um framkvæmdir í Laugarnesinu ’Hrafn Gunnlaugsson áþakkir skildar fyrir að nenna að gera svona stað og eyða í það tíma og fjármunum …‘ Eiríkur Stefánsson Höfundur er fv. formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Fáskrúðsfjarðar. ÞEGAR gagnrýnendur beina orð- um sínum að landeyðingarstefnu kvótakerfisins og nefna meinsemd- ina miklu, brottkastið, heitir það á máli lénsherra og taglhnýtinga þeirra rógur um ís- lenzkan sjávarútveg. Þeir bíða þeirra stunda óþreyjufullir að fá að vera í friði með kvótann sinn fyrir öfundsjúkum úrtölumönnum, sem ekki kunna að hagræða og skilja ekki einu sinni hagræðinguna sem í því felst að henda öllum fiski, sem ekki fæst há- marksverð fyrir, en það eru leigjendur veiði- heimilda hinsvegar nauðbeygðir til að skilja út í hörgul. Formælendur kvóta- kerfisins segja að aldr- ei hafi verið uppfundið annað eins kerfi og vitna til fjarlægustu landa máli sínu til stuðnings. Þeir hafa ekki enn frétt af sókn- arkerfi Færeyinga, sem útrýmt hefir öllu brottkasti. Auk þess að efla fiskstofna við eyj- arnar stórum, sem menn skyldu halda að væri meginmarkmið fiskveiði- stjórnar. Aftur á móti hefir „fram úr skarandi“ kerfi Íslendinga engu skilað í þeim efnum, heldur þvert á móti gengið á botnfiskstofna mið- anna. Frændur eru frændum verstir. Nú hafa Norðmenn og Danir rokið upp með andfælum vegna brottkasts afla og Danir m.a.s. reiknað út að fiskimenn þeirra fleygi jafn miklu og þjóðin étur af fiskmeti árlega. Að hafa hátt um þetta mun íslenzkum kvótagreifum þykja óvinsamlegt af Dönum í garð sjávarútvegs og skyggja á hagræðinguna. Að ekki sé minnzt á þá ósvífni Dana, þegar þeir nefna, að til athugunar komi að taka upp færeyska fiskveiðikerfið! Hversu marga áratugi myndi það taka íslenzka þjóð að torga því fisk- meti sem hent er fyrir borð árlega á Íslandsmiðum? Undirritaður hefir ekki þrek til að fara mörgum orðum um hið gegnd- arlausa brottkast afla af því sem gagnrýni þess vegna bitnar ekki á þeim sem aðalábyrgð bera, heldur einkum á þeim, sem síður skyldi: Mönnunum, sem til þess eru neydd- ir að bjarga afkomu sinni og sinna – og nægir í mörgu falli ekki til. Neyddir til af bandvit- lausu kerfi, sem knúið er áfram af stórtæk- ustu arðræningjum Íslandssögunnar síð- an danska einok- unarverzlunin var og hét, sem einnig var rekin samkvæmt lög- um sem valdstjórn setti. Og nú sem ráð- stjórnarmenn eru óttaslegnir vegna kvótahöfðingja, sem láta greipar sópa með sölu á sameiginlegri auðlind þjóðarinnar, hafa þeir hátt um frels- ið. Eins og aðalritari orðaði það á Við- skiptaþingi hinn 11. febrúar sl.: „Tilgangur baráttu okkar fyrir ein- staklingsfrelsinu var aldrei sá að frelsið væri fyrir fáa útvalda.“ Það var og! Og verðandi aðalrit- ara ráðstjórnar þótti af fyrrgreindu tilefni ástæða til að taka fram uppi í Há- skóla Íslands að: „Hin nýja íslenzka stefna er ekki „dýrkun gróðans“.“ Það er nefnilega það! Við hæfi er að ljúka þessu grein- arkorni með því að vitna í viðtal við Kristján Júlíusson, bæjarstjóra á Akureyri og fv. stjórnarformann Samherja, í Morgunblaðinu 8. febr- úar sl. Hann segir svo: „Ef frelsi sumra er með þeim hætti að það takmarkar frelsi annarra þá er eitt- hvað orðið að. Það getur ekki verið að einhver hafi ætlast til þess að hlutirnir gengju þannig fyrir sig.“ Þó ekki væri! Hversu lengi mun æðstu ráða- mönnum og attaníossum þeirra haldast uppi að tala til þjóðarinnar eins og hún sé mestmegnis samsafn fábjána? Brottkast Sverrir Hermannsson skrifar um kvótakerfið Sverrir Hermannsson ’Hversu margaáratugi myndi það taka ís- lenzka þjóð að torga því fisk- meti sem hent er fyrir borð ár- lega á Íslands- miðum?‘ Höfundur er fv. formaður Frjálslynda flokksins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.