Morgunblaðið - 29.03.2004, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 29.03.2004, Blaðsíða 29
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. MARS 2004 29 Ástkær móðir okkar, GUÐRÚN SIGURGEIRSDÓTTIR, Sporðagrunni 19, Reykjavík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni þriðju- daginn 30. mars kl. 15.00. Fyrir hönd aðstandenda, Sigurður Bogi Stefánsson, Ragna Hafdís Stefánsdóttir. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GRÍMUR JÓNSSON fyrrverandi héraðslæknir, Fjarðargötu 17, Hafnarfirði, sem lést þriðjudaginn 23. mars, verður jarð- sunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudag- inn 30. mars kl. 13.30. Gerda Jónsson, Grímur Jón Grímsson, Helga Guðjónsdóttir, Lárus Grímsson, Jóhanna D. Kristmundsdóttir, Þórarinn Grímsson, Sigrún Sæmundsdóttir, Jónína Ragnheiður Grímsdóttir, Ágúst Ólafsson, Bergljót Grímsdóttir, Gunnar Jóhann Friðriksson, Egill Grímsson, Guðrún Garðarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Rögnvaldur Sigur- jónsson og Helga Eg- ilson kona hans voru 64 ára þegar við Ein- ar Karl hittum þau fyrst á gangstéttinni fyrir utan heimili þeirra á Þórsgötu 21 A. Við vorum 34ra, að hefjast handa við húsbyggingu hinum megin við göt- una. Þau buðu okkur velkomin og fylgdust af áhuga og kannski ofur- litlum hrolli með ferlinu frá því að litla rauða timburhúsið á númer 18 var rifið og upp reis steinhús jafn hátt því sem þau sjálf bjuggu í og tók fyrir útsýnið þeirra til Skerja- fjarðar. Framkvæmdunum fylgdu skurðgröfur, loftpressur, steypu- bílar og fleiri hávaðatól sem frömdu tónlistargjörninga utan við gluggana þeirra af annarri tegund en þau höfðu lagt mesta rækt við um dagana. Í kjölfarið var sjálf gatan grafin upp, skipt um skólp- lagnir, vatnslagnir, raflagnir, og símastrengi og íbúarnir gengu á tréplönkum yfir skurði sem ýmist var verið að moka upp úr eða ofan í. Framkvæmdirnar buðu upp á samtöl á skurðabörmunum um hvað myndi nú verða úr þessu öllu saman, en þarna var í mótun fyrsta vistgatan í Reykjavík. Rögnvaldur leyndi því ekki að eitt olli honum áhyggjum á bygging- artímanum. „Hvað ætlið þið að fara hátt með húsið?“ spurði hann og bauð okkur inn til þess að sýna okkur hvað þau Helga hefðu fal- legt útsýni úr stofugluggunum og enn betra úr stúdíóinu í risinu þar sem flygillinn hans stóð. Við sýnd- um þeim teikningarnar og vorum dálítið leið yfir því að verða til þess að skerða þessi gæði. Þá sagði Rögnvaldur: „Uss krakkar mínir, við höfum búið í New York og París og Vín og ekki var það til að góna á útsýnið. Borg er borg.“ Þannig hófst vinátta okkar andbýl- inganna. Þegar húsbyggingin var að ríða efnahag okkar á slig varð okkur það til happs að Einar var ráðinn í starf hjá Norðurlandaráði í Stokkhólmi og hélt þangað á und- an fjölskyldunni. Á þriðja vori okk- ar í húsinu var ég búin að pakka saman búslóðinni á leið til Svíþjóð- ar með dætur okkar tvær á eftir Einari. Rögnvaldur og Helga sögð- ust sjá eftir okkur úr götunni og vildu létta mér brottflutninginn og búskapinn innan um kassana. Þau kölluðu í sameiginlega vini og buðu til kveðjuveislu sem mér er ógleymanleg og aldrei verður full- þökkuð. Þegar við fluttum aftur heim rúmum fjórum árum síðar og einni dóttur ríkari fögnuðu þau okkur eins og foreldrar týndum börnum. Og húsið var málað og lóðin löguð og lífið féll í fastar skorður með vappi um gangstéttirnar, léttu spjalli og spurningum um líðan og gengi í veraldarvafstrinu. Stundum buðu þau okkur yfir til sín, stund- um við þeim til okkar. Oft þegar ég kom heim frá matarinnkaupum síðdegis bárust ljúfir píanótónar út um stúdíóglugga Rögnvalds og ég setti frá mér plastpokana á stétt- ina og hlustaði smástund á hann æfa sig. Fór svo inn og opnaði eld- húsgluggann og heyrði framhaldið á meðan ég tók upp úr pokunum. Þannig voru tónleikarnir með Rögnvaldi Sigurjónssyni píanóleik- ara sem ég fékk að njóta. Rögnvaldur Sigurjónsson var mikils metinn listamaður og mikils metinn maður. Helga elskaði hann og dáði frá RÖGNVALDUR K. SIGURJÓNSSON ✝ RögnvaldurKristján Sigur- jónsson fæddist á Eskifirði 15. október 1918. Hann lést á heimili sínu í Reykja- vík 28. febrúar síð- astliðinn og var útför hans gerð frá Dóm- kirkjunni í Reykja- vík 9. mars. unglingsaldri, synirnir Þór og Geir sömuleið- is og barnabörnin og ég varð oft vitni að því hvernig Guðlaug tengdadóttir hans um- vafði hann og Helgu kærleika sínum og umhyggju. Vinir hans vissu vart skemmti- legri mann og nem- endurnir bera honum fagurt vitni. Ég byrj- aði að syrgja Rögn- vald og Helgu þegar þau fluttu úr Þórsgöt- unni og hugsaði upp á frönsku: „Partir, c’est mourir un peu.“ „Að fara er að deyja dálítið“. Svo dó Helga og þar sem þau höfðu áður alltaf gengið tvö saman gekk hann nú einn og lotinn. Við hittumst helst á tónleikum, en sem fyrr átti hann það til að hringja að gefnu tilefni. Síðast til að bjóða í 85 ára afmælið sitt. Þegar kom að því að hann færi í fimmtugsafmæl- ið hennar Guðlaugar vaknaði hann ekki. Var þó ferðbúinn. Í erfi- drykkjunni hitti ég Lenu Berg- mann sem sagði: „Í Rússlandi segja menn að svona deyi bara dýrlingar.“ Ég býst við að Röggi hefði snúið slíkum ummælum upp í gamansögu. En hvað sem menn segja í Rússlandi vita menn á Ís- landi og víðar að Rögnvaldur Sig- urjónsson var fágætur maður. Við Einar Karl sendum öllum syrgjendum samúðarkveðjur. Steinunn Jóhannesdóttir. Ég kynntist Rögnvaldi fyrir um 15 árum þegar ég gerðist nemandi hans við Nýja Tónlistarskólann. Þeim kynnum verð ég ævinlega þakklátur. Fyrstu árin sótti ég tíma á heim- ili Rögnvaldar, þangað sem ég átti oft eftir að koma. Þar kynntist ég Helgu, eiginkonu Rögnvaldar, sem var yndisleg kona sem alltaf tók vel á móti mér með bros á vör. Samband þeirra bar vott um mikla ást og gagnkvæma virðingu, sam- band sem ég hef ávallt litið upp til og látið verða leiðarljós í minni sambúð. Alltaf fann ég fyrir friði og góðum anda inni á heimili þeirra hjóna og betra te hef ég aldrei smakkað. Ég fann aldrei fyrir kynslóðabili á milli okkar og fyrir mig sem ungling að kynnast þannig lífsvið- horfi var mjög mikilvægt. Hann kenndi mér ekki bara á píanó, heldur líka á lífið sjálft og sú kennsla er ómetanleg, því það sem lifir áfram í mér af því sem ég lærði af Rögga mótar mig af miklu leyti í dag. Ég vil þakka fyrir allar þær stundir sem við áttum saman. Stundir sem ég á aldrei eftir að gleyma lengi sem ég lifi. Því er þannig farið með merki- lega menn eins og þig að maður er alltaf að segja af ykkur sögur, sög- ur sem aldrei gleymast og halda minningu ykkar á lofti. Sögur sem eru svo merkilegar að ekki er hægt annað en dást að þeim. Og ég dáðist svo sannarlega að þér. Guð blessi minningu þína. Ingólfur Jóhannesson. Fyrir rúmum tveimur árum skrifaði ég kveðju til ömmu hér sem byrjaði þannig að það brakaði alltaf í stiganum á Þórsgötu 21A. Nú þegar ég kveð gamla manninn þá er það ennþá stiginn sem mér kemur í huga. Þegar ég rifja það betur upp þá er það vegna þess að þau giskuðu alltaf eftir hljóðinu hver okkar krakkanna það væri sem myndi birtast á bak við gler- hurðina. Þegar þangað var komið tók við löng barátta við að ná af sér bomsunum og komast inn til þeirra fljótt, fljótt. Amma tók okk- ur inn í eldhús og afi spjallaði svo við okkur en ekki fyrr en eftir fréttir því að það var honum mik- ilvægt að fylgjast með heimsmál- unum. Ég hef oft velt því fyrir mér hvort hann hafi nokkurn tímann misst af fréttatíma ef hann var ekki sofandi. Þegar ég velti því fyrir mér ásamt því hvaða árangri hann náði í sinni list og keppti þar að auki á ólympíuleikunum í Berlín í sundknattleik, þá finnst mér heldur vandræðalegt að kvarta undan tímaleysi. En það merkilega við Rögnvald Sigurjónsson var að hann náði í sínu lífi að gegna svo mörgum og flóknum hlutverkum og sinna svo mörgum samböndum og gera það vel. Hann var dyggur eiginmaður Helgu sem hann kynntist 16 ára. Hann var faðir. Hann var listamaður og kennari. Hann var vinur svo margra. Og hann var elskulegur afi minn. Hann var maðurinn sem ég 6 ára færði blóm eftir afmælistónleika hans stóreygð og sennilega allt of ung til að skilja neitt meira en mikilvægi stundarinnar, en heimt- aði að fara í óperuna nokkrum vik- um seinna. Hann var maðurinn sem með heimsfréttunum kenndi mér að skilja málstað þessa Hróa Hattar eftir að amma hafði sent mig út á leikvöll í búning hans. Hann var yfirlýstur raunsæis- og efahyggjumaður sem hélt því fram að englaskrautið á sjónvarpinu hafi tekist á flug af einskæru kraftaverki og neitaði alfarið skýr- ingum mömmu að hitinn frá sjón- varpinu hafi átt þar þátt að máli. Hvers vegna? Það var einfaldlega ekkert skemmtileg skýring! Líf þeirra ömmu hafði svo mikil áhrif á mitt að mig dreymdi unga að fara til útlanda og upplifa þó ekki yrði nema brot af þeim ævintýrum sem þau lifðu. Það er vegna þess sem ég gat ekki verið viðstödd kveðjustundirnar með fjölskyld- unni og vinunum. Ég er búin að sakna afa svo lengi eftir að ég flutti í burtu. Hálfkláruð bréf eru í tölvunni minni og ég er ennþá ekki búin að átta mig á hvað ég á að gera við þau núna. Ég hafði hlakk- að svo til að hitta gamla manninn nú í vor og í huga mér hafði ég ætlað mér að spyrja hann: „Segðu mér afi … Þegar þið amma vor- uð … Segðu mér fleiri sögur af því hvað amma var falleg.“ Það er svo skrýtið en um leið svo ljúft að það er varla hægt að skrifa um bara eitt þeirra hjóna. En það orð sem kemur í huga meira en annað er orðið ævintýri. Takk fyrir þau og að hafa verið umfram allt fyrir- mynd í að lifa þessu lífi með opin augu og eyru, vakandi og virk. Áttatíu og fimm ár jafn stórbrotin og hvert einasta verk sem hann flutti en lifuð á þann auðmjúka og vandvirka hátt sem hann hitaði sér tebollann á hverjum einasta degi. Það er ekki hægt að biðja um meira. Ragnheiður Katla Geirs- dóttir, Los Angeles. Rögnvaldur Sigurjónsson hefur kvatt þennan heim, en hann skilur eftir sig stórt rúm í hjarta okkar sem eftir lifum. Lífsgleði hans og kraftur smitaði alla sem í návist hans voru. Hann var líka einstak- lega skemmtileg blanda af húm- orista og rómantíker. Það var alltaf gott að koma á Þórsgötuna. Heimili þeirra Helgu og Rögnvaldar fyllti mann vissri ró og um leið sterkri lífsorku. Lífleg skoðanaskipti sem voru algerlega laus við fordóma, þannig að manni fannst aldrei neinn sekur gerði það að verkum að það var auðveldara að láta í ljósi sínar eigin skoðanir. Ekkert var ómerkilegt en því fleira var stórkostlegt. Hjónaband þeirra Helgu og Rögnvaldar einkenndist af ást, virðingu og vináttu. Það var ekki sjaldgæft að hitta þau á gangi um miðbæinn þar sem þau leiddust hönd í hönd eins og unglingar í til- hugalífinu. Og nú eru þau sam- einuð á ný. Ég er þakklát fyrir að hafa kynnst Rögnvaldi og þakka honum vináttu og stuðning. Los Angeles í mars 2004 Hjördís Ketilsdóttir. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSLAUG ARADÓTTIR frá Ólafsvík, lést á St. Franciskusspítalanum í Stykkishólmi að kvöldi 26. mars. Auður Bárðardóttir, Eyþór Lárentsínusson, Þórdís Hjálmarsdóttir, Garðar Eyland Bárðarson, Guðbjörg Sveinsdóttir, Jenetta Bárðardóttir, Benóný Ólafsson, Sigurður Skúli Bárðarson, Jóhanna Hauksdóttir, Jóhanna Bárðardóttir, Sigurður Lárus Hólm, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn og faðir okkar, ERLENDUR Ó. JÓNSSON skipstjóri, Austurströnd 8, áður Neshaga 13, lést á líknardeild Landakotsspítala 27. mars sl. Jarðarförin verður auglýst síðar. Ásta M. Jensdóttir, Edda Steinunn Erlendsdóttir, Ólína Erlendsdóttir. MORGUNBLAÐIÐ birtir afmælis- og minningargreinar end- urgjaldslaust alla daga vikunnar. Greinunum má skila í tölvu- pósti (netfangið er minning@mbl.is - svar er sent sjálfvirkt um leið og grein hefur borist) eða á disklingi og þarf útprentun þá að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/ eða sendanda (vinnusíma og heimasíma). Tekið er á móti afmæl- is- og minningargreinum á 1. hæð í húsi Morgunblaðsins, Kringlunni 1 í Reykjavík, og á skrifstofu Morgunblaðsins Kaup- vangsstræti 1 á Akureyri. Ekki er tekið við handskrifuðum greinum. Minningargreinum þarf að fylgja formáli með upplýs- ingum um hvar og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verður gerð og klukkan hvað. Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr. Ef útför er á sunnudegi, mánudegi eða þriðjudegi þurfa greinarnar að berast fyrir hádegi á föstu- degi. Berist greinar hins vegar ekki innan hins tiltekna skila- frests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist á réttum tíma. Birting afmælis- og minningargreina

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.