Morgunblaðið - 29.03.2004, Qupperneq 36
FRÉTTIR
36 MÁNUDAGUR 29. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Sportvöru- og
reiðhjólaverslun
Afgreiðsla. Óskum að ráða duglegan og
hressan starfsmann til afgreiðslu í verslun okk-
ar. Æskilegt er að umsækjandi hafi áhuga á
reiðhjólum, golfi og öðrum sportvörum.
Verkstæði. Okkur vantar einnig laghentan
og duglegan starfsmann á verkstæði okkar til
samsetningar og viðhalds á reiðhjólum.
Æskilegt er að umsækjandur geti hafið störf
sem fyrst. Góð laun eru í boði fyrir góða starfs-
menn. Umsóknareyðublöð liggja frammi í
verslun okkar í Ármúla 40.
Heimakynningar
Sala á kvenfatnaði
Getum bætt við okkur nokkrum sölu-
aðilum. Góð sölulaun í boði
Viltu nýta frítíma þinn til að afla tekna á
skemmtilegan hátt?
Þá skaltu hafa samband við okkur í síma
568 2870 til frekari upplýsinga.
Síðumúla 13, 108 Reykjavík,
www.friendtex.is
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
KENNSLA
Nám í læknisfræði
í Ungverjalandi 2004
Almennt nám í læknisfræði á ensku, tannlækn-
ingum og lyfjafræði við University
Medical School of Debrecen í Ungverjalandi.
Nú eru meira en 200 nemendur frá Skandi-
navíu og Íslandi við nám í háskólanum.
Inntökupróf fara fram í Reykjavík í maí/júní.
Nánari upplýsingar fást hjá: Dr. Omer Hamad, M.D.
H-4003 Debrecen, P.O. Box 4, Hungary.
Sími: +36 209 430 492, fax: +36 52 439 579.
Netfang: omer@hu.inter.net
Heimasíða: http://www.tinasmedical.com
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Eftirtalin bifreið verður boðin upp á Gránugötu 4-6, Siglufirði,
mánudaginn 5. apríl 2004 kl. 15:00:
KP-248
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn á Siglufirði,
26. mars 2004.
Guðgeir Eyjólfsson.
Auglýsing frá
Barnamenningarsjóði
Meginhlutverk sjóðsins er að styrkja verkefni
á sviði barnamenningar.
Til barnamenningar teljast verkefni á sviði lista
og menningar sem unnin eru fyrir börn og/eða
með virkri þátttöku barna.
Umsóknir skulu berast menntamálaráðuneyt-
inu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, í síðasta
lagi 26. apríl 2004. Umsóknareyðublöð fást
hjá menntamálaráðuneytinu og á vef ráðuneyt-
isins, menntamalaraduneyti.is .
Stjórn Barnamenningarsjóðs
26. mars 2004.
MÍMIR 6004032911 I
HEKLA 6004032919 IV/V
GIMLI 6004032919 III
I.O.O.F. 19 1843298 ATVINNA
mbl.is
I.O.O.F. 10 1843298 III*
Selfoss | Aðalfundur Mjólkurbús
Flóamanna var haldinn 26. mars.
Heildartekjur búsins á síðasta ári
námu 4.077 milljónum króna, hækk-
uðu um 241 milljón, eða 6,3 % á milli
ára. Rekstrargjöld án fjármagnsliða
og skatta námu 3.903 milljónum sem
er hækkun um 209 milljónir, eða 5,7
% milli ára. Hagnaður fyrir fjár-
magnsliði nam 174 milljónum króna.
Hagnaður af reglulegri starfsemi
nam 179 milljónum en var 184 millj-
ónir árið áður. Hagnaður ársins var
145 millj. Ákveðið er að greiða í arð
til framleiðenda, um 58 milljónir sem
nemur u.þ.b. 3,14 % af verðmæti inn-
leggs og gerir u.þ.b. 1,07 kr. á inn-
veginn lítra til útborgunar og 0,20
kr. á innveginn lítra í stofnsjóð. Nið-
urstaða efnahagsreiknings er 3.122
milljónir króna. Eigið fé er 2.421
milljón eða 77,0 % og hækkaði um
175 milljónir eða 7,8%. Veltufé frá
rekstri var 301 milljón og veltufjár-
hlutfall er 2,8.
Innlögð mjólk 45 milljónir lítra
Innlögð mjólk hjá MBF var á sl.
árið 45,3 milljónir lítra. Meðalinn-
legg á kúabú var 117.540 lítrar og
hækkaði um 3,76 % frá fyrra ári.
Meðalbúið er stærst í Árnessýslu
131.450 lítrar og hækkaði um 2,11 %
frá fyrra ári. Gæði innlagðrar mjólk-
ur voru í góðu jafnvægi á árinu 2003.
Vöruframleiðsla MBF eru dagvör-
ur af ýmsu tagi, sýrðar jógúrtafurð-
ir, skyr og skyrafurðir, sérostar,
bæði myglu- og rjómaostar, og G-
vörur þar sem Kókómjólkin er lang-
stærst. Þá eru smjör og aðrar við-
bitsafurðir ásamt duftafurðum stór
þáttur í framleiðslunni. Framleiðsla
á sýrðum afurðum var alls 5.373 tonn
og jókst um 628 tonn. Ostafram-
leiðsla nam 709,2 tonnum og jókst
um 161 tonn. Heildarframleiðsla við-
bitsafurða var 1.004 tonn sem er
minnkun um 140 tonn. Framleiðsla á
duftafurðum var alls 661,5 tonn og
minnkaði um 166,3 tonn milli ára.
Árið 2003 var viðburðaríkt á sviði
vöruþróunar í MBF og góða sölu á
ýmsum sérvörum á árinu má fyrst
og fremst rekja til vel heppnaðrar
vöruþróunar, segir í frétt frá MBF.
Sala skyr.is hefur gengið vel
Sala á skyr.is hefur gengið með af-
ar vel síðan framleiðsla þess hófst
árið 2001. Um mánaðamótin febr-
úar/mars var bætt við tveimur nýj-
um bragðtegundum í þessum vöru-
flokki. Með tilkomu þessara nýjunga
jókst salan gífurlega. Þegar upp var
staðið reyndist heildaraukningin á
árinu vera nærri 40%.
Í júní var kynnt algerlega ný vöru-
tegund frá MBF, Létt drykkjarjóg-
úrt í dós. Varan er þróuð af starfs-
mönnum MBF en um er að ræða
fituskertan og svalandi jógúrtdrykk.
Fljótlega eftir markaðssetningu
seldust yfir 40.000 dósir á viku, og
undir lok árs voru þær yfir 50.000 á
viku. Þessar viðtökur eru langt um-
fram allar áætlanir sem gerðar voru
í upphafi.
Í september var bætt við nýrri
tegund af viðbiti, Létt & laggott með
ólífuolíu. Í þessa afurð er blandað
ólífuolíu í smjörið í stað sojaolíu í
hefðbundnu Létt & laggott. Við-
brögð neytenda voru mjög góð og
hefur salan verið vonum framar, en
segja má að síðastliðin tíu ár sé þetta
fyrsta nýja viðbitsvaran sem nær
fótfestu á markaðnum.
Mjólkurvörusýningin í Herning
MBF tók ásamt öðrum íslenskum
mjólkuriðnaðarfyrirtækjum þátt í
mjólkurvörusýningunni í Herning
síðla árs. Þessi sýning hefur á síð-
ustu árum þróast frá því að vera ein-
göngu fyrir danskar mjólkurvörur
yfir í samnorræna sýningu. Það er
skemmst frá því að segja að vörur
frá MBF fengu mjög lofsamlega
dóma á sýningunni og rökuðu að sér
verðlaunum í harðri samkeppni við
vörur frá Danmörku, Noregi, Sví-
þjóð og Færeyjum.
Í ár var í fyrsta sinn keppt um tit-
ilinn „Besta mjólkurafurð Norður-
landa“ og voru tuttugu vörutegundir
valdar til þess að keppa um þennan
titil. Tvær íslenskar vörur voru í
þessum hópi og voru þær báðar frá
MBF, Þykkmjólk og Biomjólk.
Aðalfundur Mjólkurbús Flóamanna á Flúðum
Hagnaður í fyrra
var 145 milljónir
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Steinn Hermannsson sem var fundarstjóri er í ræðustól. Sitjandi eru Gunn-
ar Kr. Eiríksson mjólkurbússtjóri, Bjarni Jónsson stjórnarformaður, Birg-
ir Guðmundsson mjólkurbússtjóri og stjórnarmennirnir Magnús H. Sig-
urðsson, Haraldur Þórarinsson og Egill Sigurðsson.
Mývatnssveit | Hrafn Jökulsson,
velgerðarmaður skáklistarinnar
á Íslandi nú um stundir, kom
færandi hendi í barnaskólann í
Reykjahlíð á dögunum. Yngstu
nemendum færði hann kennslu-
bók en síðan var slegið upp fjöl-
tefli. Keppt var á 15 borðum og
sá háttur hafður á að þegar einn
hafði lokið glímu sinni við Hrafn
settist annar í stólinn. Þannig
höfðu um 40 nemendur att við
hann kappi áður en lauk og stóð
viðureign þessi nær tvær klukku-
stundir.
Æði langt er nú um liðið síðan
Mývetningar settust fyrst að tafli
og má minna á þúsund ára hnef-
taflið fræga frá Baldursheimi í
því sambandi. Það er varðveitt á
Þjóðminjasafni Íslands. Í Skútu-
staðaskóla var teflt þegar skák-
áhugamenn sátu þar á skólabekk
og í Reykjahlíðarskóla hefur ver-
ið teflt eitthvað á hverjum vetri
og skólamót haldið. Á öllum
skólamótum hér hefur verið
keppt eftir Monrad-kerfi við
mótsstjórn Sólveigar Jónsdóttur
kennara. Hrafn sæmdi Sólveigu
barmmerki Hróksins í við-
urkenningarskyni fyrir starf
hennar fyrir skáklífið í skól-
anum.
Reykjahlíðarskóli er vel búinn
töflum en skákklukkur hefur
skólinn ekki enn eignast. Mikil
ánægja var hjá nemendum og
kennurum yfir heimsókn Hrafns
Jökulssonar í skólann. Leyndi
sér ekki meðan á fjölteflinu stóð
áhugi allra á skákinni.
Morgunblaðið/BFH
Hrafn Jökulsson teflir við nemendur Reykjahlíðarskóla.
Enn er teflt í
Mývatnssveit