Morgunblaðið - 29.03.2004, Síða 37
HESTAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. MARS 2004 37
Mi›asalan er hafin!
BÆJARLIND 2 • KÓPAVOGI • SÍMI 555 1100
Vetrarmót Andvara haldið á
Kjóavöllum
Pollar
1. Erla A. Ólafsdóttir, Framtíð frá
Króki, 10 v., móbrún.
2. Sara Ý. Guðjónsdóttir, Erill frá
Gunnarsholti, 12 v., brúnn.
3. Haukur Ingvi, Ormur frá Götu,
12 v., leirljós.
4. Magnea R. Gunnarsdóttir, Kar-
íus frá Neðri-Núpi, 11 v., rauður.
5. Íris E. Jónsdóttir, Fluga, 13 v.,
móálótt.
Börn
1. Steinunn E. Jónsdóttir, Mundi
frá Torfastöðum, 13 v., brúnn.
2. Gunnhildur Gunnarsdóttir,
Amadeus frá Bjarnarhöfn, 8 v.,
rauðblesóttur.
3. Guðrún E. Jóhannsdóttir,
Embla frá Efsta-Dal, 4 v., brún.
4. Guðlaug J. Matthíasdóttir,
Vængur frá Kóngsbakka, 10 v.,
brúnn.
5. Lýdía Þorgeirsdóttir, Neisti frá
Hvítárholti, 14 v., rauður.
Unglingar
1. Ólöf Þ. Jóhannesdóttir, Fjölnir
frá Reykjavík, 10 v., brúnn.
2. Anna G. Oddsdóttir, Þruma frá
Stokkhólma, 9 v., grá.
3. Melkorka Ragnhildardóttir,
Kolfinna frá Reykjavík, 9 v., brún.
4. Erna G. Björnsdóttir, Svalur frá
Blesastöðum, 11 v., brúnn.
5. Sandra S. Rúnarsdóttir, Flosi
frá Ketilsstöðum, 9 v., bleikálóttur.
Ungmenni
1. Már Jóhannsson, Valíant frá
Miðhjáleigu, 10 v., móálóttur.
2. Þórir Hannesson, Melkorka frá
Hnjúki, 6 v., brún.
3. Ívar Ö. Hákonarson, Rosi frá
Hlíð, 11 v., jarpur.
4. Halla M. Þórðardóttir, Dagfinn-
ur frá Reykjavík, 9 v., leirljós.
5. Halldór F. Ólafsson, Svás frá
Syðra-Vatni, 10, rauðvindótt.
Konur II
1. Ragnhildur Helgadóttir, Hug-
inn frá Götu, 7 v., brúnn.
2. Elísabet Sveinsdóttir, Prins frá
Hafnarfirði, 6 v., grár.
3. Geirþrúður Geirsdóttir, Gosi frá
Arakoti, 10v , leirljós.
4. Sigríður Eva Guðmundsdóttir,
Freydís frá Selfossi, 12 v., jörp.
5. Ólöf Hermannsdóttir, Mósart
frá Einiholti, 13 v., móálóttur.
Karlar II
1. Friðbjörn Kristjánsson, Dís frá
Þrastarhóli, 9 v., brún.
2. Guðmundur M. Skúlason, Gefn
frá Borgarholti, 7 v., móbrún.
3. Hörður Jónsson, Lóa frá
Bjarnastöðum, 7 v., brún.
4. Ásgeir Heiðar, Þorri frá For-
sæti, 8 v., móálóttur.
5. Benjamín Markússon, Snót frá
Selfossi, 11 v., rauðskjótt.
Konur I
1. Sigríður Pjetursdóttir, Spölur
frá Hafsteinsstöðum, 8 v., rauðvind.
bles.
2. Þórdís Gylfadóttir, Katla frá
Flugumýri, 5 v., brún.
3. Erla G. Gylfadóttir, Baldur frá
Holtsmúla, 8 v., rauðtvístjörnóttur.
4. Dagný Bjarnadóttir, Týr frá
Lambleiksstöðum, 10 v., móbrúnn.
5. Stine Rasmussen, Molly frá
Auðstöðum, 12 v., móálótt.
Karlar I
1. Jón Gíslason, Þórvör frá
Hvammi, 10 v., brúnskjótt.
2. Jón Ó. Guðmundsson, Hvati frá
Saltvík, 9 v., jarpur.
3. Ársæll Hafsteinsson, Elding frá
Brekkum, 6 v., brún.
4. Fjölnir Þorgeirsson, Atóm-
sprengja frá Forsæti, 9 v., brún.
5. Kristján Stefánsson, Þróttur frá
Efri-Hömrum, 8 v., jarpur.
100 m flugskeið.
1. Jón Ó. Guðmundsson, Sara frá
Reykjavík, 8,91.
2. Jón Halldórsson, Ísak frá Múla,
8,95.
3. Erling Ó. Sigurðsson, Kolfaxi
frá Kjarnholtum, 9,39.
4. Fjölnir Þorgeirsson, Lukku-
Blesi frá Gýgjarhóli, 9,57.
5. Kristján Ketilsson, Kólfur frá
Kjarnholtum, 9,67.
Úrslit móta helgarinnar
FRAMHALDSSKÓLANEMAR
héldu sitt árlega mót í reiðhöllinni
um helgina þar sem nemendur
Menntaskólans í Reykjavík báru
sigur úr býtum í fyrsta skipti í sögu
þessara móta. Má segja að þetta sé
góð sárabót fyrir MR-inga sem eru
vafalítið enn í sárum eftir að hafa
verið slegnir út úr spurninga-
keppninni Gettu betur á dögunum.
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti varð
í öðru sæti og það var einmitt einn
liðsmanna þeirra Viðar Ingólfsson
sem var tvímælalaust maður móts-
ins að þessu sinni en hann sigraði í
tölti, fjórgangi og fimmgangi. Sigr-
aði hann á Tuma frá Stóra-Hofi í
töltinu, Sögu frá Krossi í fimm-
gangi og fimmgangshestinum
Riddara frá Krossi í fjórgangi.
Mótið tókst með ágætum en dóm-
arar töldu vanta talsvert á breidd-
ina í getu horssa og knapa sem
þarna komu fram. Topparnir prýði-
legir, sögðu þeir, en allt þar fyrir
neðan í slakari kantinum og þar á
meðal keppendur sem ekkert erindi
áttu á mót sem þetta. Sáust ein-
kunnir alveg niður í 0,3 sem er orð-
ið býsna naumt skammtað.
Morgunblaðið/Vakri
Viðar Ingólfsson vann einstætt afrek þegar hann sigraði í öllum hringvall-
argreinum mótsins og hér hampar hann sigurlaunum fimmgangs á hryss-
unni Sögu frá Krossi.
Íþróttamót framhaldsskólanna
MR í sigur-
sæti í fyrsta sinn
Morgunblaðið/Vakri
Stúlkurnar voru atkvæðamiklar í fjórgangnum þótt ekki tækist þeim fimm
að klekkja á Viðari og Riddara sem hér eru lengst til hægri.
ALLT stefnir í að Sæðingastöðin í
Gunnarsholti muni ekki sinna fersk-
sæðingum í ár eins og verið hefur
undanfarin árin og ef svo fer mun
verða nokkur breyting á fyrirkomu-
lagi fengitímans hjá Orra frá Þúfu
sem hefur verið burðarásinn í starf-
semi stöðvarinnar gegnum tíðina.
Á aðalfundi Orrafélagsins nýverið
var þó samþykkti að kanna áfram
hvort ekki væri hægt að komast að
einhverju samkomulagi við forráða-
menn Sæðingastöðvarinnar og var
því gefinn tími til 15. apríl næstkom-
andi. Ef ekki nást samningar fyrir
þann tími verður strax hafist handa
um að byrja á að leiða hryssur undir
Orra en hann þarf þá að fylja á milli
60 og 70 hryssur á eigin spýtur á
árinu. Hlutirnir eru 60 í Orra en auk
þess munu nokkrar hryssur vera fyl-
lausar frá síðasta ári sem þarf að
fylja samkvæmt eldri samþykkt fé-
lagsins.
Mun Orrafélagið af þessum sökum
ráða starfsmann til að koma að til-
hleypingunum auk heimilisfólksins í
Þúfu sem hefur annast Orra allt frá
stofnun félagsins. Á næstu dögum
verður leitað eftir tilboðum í óm-
skoðanar á hryssum sem leiddar
verða undir Orra á tímabili.
Á aðalfundinum var samþykkt að
hafna tilboði frá Sæðingastöðinni
sem fæli í sér u.þ.b. 50% hækkun á
verði sæðinganna. Tilboðið hljóðaði
upp á 54 þúsund krónur fyrir hverja
sæðingu.
Mörgum þykir sjálfsagt fróðlegt
að sjá hvernig Orri sem nú verður 18
vetra í vor muni spjara sig eftir að
hafa skilað góðu fyljunarhlutfalli síð-
ustu árin með fulltingi sæðinga-
tækninnar.
Páll Stefánsson, forstöðumaður
Sæðingastöðvarinnar, sagði í samtali
við Morgunblaðið að leit að fleiri
hestum hafi ekki borið neinn árang-
ur enn sem komið væri og því væri
allt útlit fyrir að fersksæðingar legð-
ust af í ár eins og staðan væri í dag.
Hann sagði að til þess að tryggja
rekstrargrundvöll fyrir fersksæð-
ingum þyrfti 180 til 200 hryssur.
Svo virðist sem einn hestur öðrum
fremur gæti tryggt nægjanlegan
fjölda en það er Gustur frá Hóli sem
virðist njóta afar mikilla vinsælda
um þessar mundir. Hann er í eigu
Hrossaræktarsambanda Vestur-
lands, Eyfirðinga og Þingeyinga og
hrossaræktardeildar Freyfaxa. Sem
dæmi má nefna að hjá Vestlending-
um hefur verið pantað fyrir 40 hryss-
ur en 25 hryssur komast að. Formað-
ur hjá Vestlendingum, Bjarni
Marinósson, kveðst mjög opinn fyrir
þeirri hugmynd að fara með Gust á
Sæðingastöðina og sama sinnis er
Baldvin K. Baldvinsson, formaður
Eyfirðigna og Þingeyinga, en hann
kveður sér hins vegar ekki hafa tek-
ist að sannfæra meðstjórnarmenn
sína um ágæti þessa.
En ljóst er að úr því sem komið er
muni Gustur ekki fara í sæðingarnar
á þessu ári en líklegt að sá möguleiki
verði kannaður gaumgæfilega á
næsta ári því mikil eftirspurn er eftir
að koma hryssum til hans. Sagði
Baldvin til gamans að hringt hefði
verið til sín frá Ítalíu í því augnamiði
að koma hryssu undir klárinn og því
ljóst að víða vekur hann áhuga.
Útséð um fersksæðing-
ar í Gunnarsholti í ár
AUSTUR-Landeyingar héldu
upp á aldarafmæli Hrossaræktar-
félags hreppsins nýlega með vel
heppnaðri ráðstefnu eins og frægt
er orðið en þeir gerðu ýmislegt
fleira. Þar á meðal fóru þeir í
ræktunarferð um Suðurland þar
sem þeir heimsóttu meðal annarra
Brynjar Vilmundarson hrossa-
bónda á Feti. Skoðuðu þeir þar
nýtt og glæsilega reiðhöll og hest-
hús auk þess að kynna sér ræktun
Brynjars. Sýndi hann þeim stoltið
á bænum, Þrist frá Feti, og hafði
Brynjar að sjálfsögðu mörg orð
um ágæti hans og þar á meðal
hversu geðprúður og traustur
hann væri.
Brynjar sem er þekktur að því
að standa við og styðja orð sín
ákvað að skríða undir hestinn til
að sýna svo ekki væri um villst að
hann segði satt og rétt frá. En
Brynjar sýndi þeim fleiri hross og
við hvert þeirra var spurt um
geðslag og bóndinn hvattur til að
sýna í verki hversu traust þau
væru. Var hann ekkert að tvínóna
við það heldur skreið undir þau
öll.
Að endingu var skoðað folald
eitt sem vakti nokkurn áhuga í
hópnum og fóru menn að sýna
áhuga á kaupum á hlutum í folald-
inu sem var hestfolald undan Orra
frá Þúfu og Díönu frá Feti. Varð
endirinn sá að nokkrir gestanna
keyptu helminginn í folaldinu og
til að sýna fram á að þeir hefðu
gert góð kaup ákvað Brynjar að
skríða undir kvið folaldsins.
Reyndu menn að fá hann ofan af
því en engu tauti varð við bóndann
komið og skreið hann undir kvið
folaldsins ekki bara einu sinni
heldur undir og aftur til baka. Fol-
aldið var hið rólegasta og sagðist
Brynjar aldrei hafa verið í neinni
hættu. Hann þekkti sinn búpen-
ing og vissi vel hvað hann gæti
boðið honum. Það fylgdi hins veg-
ar sögunni að nýbúið hefði verið
að taka folaldið undan móður sinni
og á hús. En folinn heitir Dynj-
andi og sjálfsagt að leggja nafnið á
minnið því vafalítið verður ekki
langur tími liðinn þar til stofnað
verður félag um hestinn og verður
það þá sjötta stóðhestafélagið sem
Brynjar á Feti er aðili að.
Geðprýðin mikil á Feti